Tíminn - 19.04.1991, Síða 13
Föstudagur 19. apríl 1991
Tfminn 13
1TVÖFALDUR1. vinningur
ISLAND I EVROPU - UTAN EB
Sjálfstæð þjóð á íslandi - „okkar l'slandi"!
Stéfna Alþýðubandalagsins hefur verið afdráttarlaus
frá upphafi.
JAFNVÆGII BYGGÐ LANDSINS
Samqöngubætur og samvinna sveitarfélaga.
Vald og frumkvæði í hendur heimamanna.
Verkefni og stofnanir út á landsbyggðina.
OKKARISLAND
- okkar hjartans mál!
STÓRÁTAKí
UMHVERFISMÁLUM
Stöðvun gróður- og jarðvegseyðingar.
Umhverfismat við allar framkvæmdir.
Alþjóðlegur umhverfissáttmáli.
ÁFRAMHALDANDI ÁRANGUR
í MENNINGARMÁLUM
Menningarsjóður til stórverkefna.
Tvöföldun framlaga til vísinda.
NÝ ÖRYGGIS- OG
FRIÐARSTEFNA
Afvopnun um allan heim.
Öflug þátttaka í alþjóðlegu samráði og friðarstarfi.
NÝ HUGSUNí
SJÁVARÚTVEGSMÁLUM
Burt með kvótakerfið.
Allur fiskur á innlendan markað.
Alþjóðlegur fjarskiptamarkaður fyrir fisk.
SAMFELLDUR SKÓLADAGUR
- DAGVISTUN FYRIR ÖLL BÖRN
Einsetinn skóli, samfelldur skóladagur.
Lengri skóladagur, skólamáltíðir.
Jafn aðgangur allra barna að leikskólum.
VÍÐTÆKT JAFNRÉTTI
Jafnrétti kynja og þjóðfélagshópa til menntunar,
starfa, launa og lífskjara. Atak í atvinnumálum
fatlaðra. Jafn réttur allra á atvinnutækifærum.
Jafnrétti í húsnæðismálum, félagsþjónustu og
skólamálum. Réttaröryggi barna, úrbætur fyrir fötluð
börn, umboðsmaður barna.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Flokkur sem getur - fólk sem þorirl
LIFSKJARAJOFNUN - AUKINN
KAUPMÁTTUR
Stöðugleikinn er staðreynd. Næsta verkefni er að
jafna lífskjör og skila árangrinum til launafólks. Það
gerum við m.a. með hækkun skattleysismarka,
óbreyttri heildarskattbyrði, hækkun barnabóta,
húsaleigubótum, hátekjuskatti og skattlagningu
fjármagnstekna.
Matthías Johannessen
|l
eftir Matthías Johannessen
Út er komin hjá Almenna bókafé-
laginu bókin Sálmar á atómöld eftir
Matthías Johannessen. Þetta eru 66
trúarleg ljóð og birtust 49 þeirra í
samnefndum ljóðaflokki í bókinni
Fagur er dalur 1966. Dr. Gunnar
Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós
ritar inngang að þessum ljóðum þar
sem hann lýsir þeim trúarviðhorf-
um og trúartilfinningum sem í þeim
speglast. Sálmar Matthíasar eru
vissulega ólíkir þeim sem við höfum
vanist og sungnir eru í kirkjum og
gerir dr. Gunnar rækilega grein fyr-
ir því. Hér eru engar trúfræðilegar
kenningar og ekki heldur bænir, en
hvað eina, bæði stórt og smátt, verð-
ur skáldinu tilefni til lofgjörðar, eins
og dr. Gunnar kemst að orði.
„í Sálmum á atómöld er það skáld-
ið sem talar við Guð. Meðal annars
um lífsháskann sem ávallt er í nánd,
í hverju atviki, í hverri minningu, í
hverjum hlut, í hverju andliti. Lífs-
háskinn felst í spurningunni um
það hvort Guð sé nálægur í þessum
heimi eða ekki. Er heimurinn yfir-
gefinn, er maðurinn einn? Eða er
allt þrungið návist Guðs?“
Bókaklúbbur Almenna
bókafélagsins:
Duldir heimar
í Nazcaeyðimörkinni í Perú er risa-
mynd dregin í jarðveginn og er hún
aðeins sýnileg úr lofti og gerð mörg-
um öldum áður en maðurinn lærði
að fljúga.
Þetta fyrirbrigði og fleiri, sem eru
handan skilnings tæknivæddra og
rökhugsandi nútímamanna, er við-
fangsefni bókarinnar Duldir heimar
sem Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins hefur sent frá sér.
Kaflaheiti Dulinna heima gefa
nokkra hugmynd um innihald bók-
arinnar. Kaflarnir nefnast Atlantis:
Leitin eilífa, en þar eru raktar sagnir
um hið týnda eyríki sem sagt er að
hafi sokkið í kaldar og myrkar öldur
Atlantshafsins. Einnig er í þeim
kafla myndafrásögn sem heitir
Heimur hulinna dóma þar sem rætt
er um Bermúdaþríhyrninginn og
þau undur sem þar hafa gerst. Annar
kafli bókarinnar heitir Leyndardóm-
ar pýramíðans mikla og segir frá
rannsóknum á þessum ótrúlegu
mannvirkjum. Þeim kafla lýkur á
myndfrásögn um margskonar forn
og stórfengleg steinmannvirki. Hvað
tákna jötunsteinar? er nafn þriðja
kaflans og er þar viðfangsefnið með-
al annars Stonehenge jötunsteina-
hringurinn. í kaflanum Myndgátur á
jörðu er fjallað um fyrirbrigði eins
og risamyndina í Nazcaeyðimörk-
inni og fleiri svipuð. Lokakaflinn: í
holum heimi fjallar um hugmynd
mannsins um neðanjarðarheim,
sem er ævagömul og einnig ný. Ad-
olf Hitler aðhylltist til dæmis þessa
hugmynd og lét ríkið leggja fram fé
til að færa sönnur á hana.
Duldir heimar er skrifuð af höfund-
um hins virta bandaríska útgáfufyr-
irtækis Time-Life. Hún er 160 bls. að
stærð, í stóru broti og mjög vegleg-
ur prentgripur, skreytt fjölda glæsi-
legra litmynda, teikninga og skýr-
ingamynda. Setningu á íslensku og
umbrot annaðist Ritsmiðjan sf.
Honum fannst í lagi
að keyra heim...
Eftir einn-ei aki neinn!
yUMFERÐAR
RÁÐ
BOKMENNTIR
Sálmar á atómöld