Tíminn - 19.04.1991, Síða 14
14 Tíminn
Fimmtudagur 19. apríl 1991
SJÁVARÚTVEGUR________
Spænski fiskveiðiflotinn
er of stór
eftir dr. Wolfgang von Geldem, þingskipaöan aðstoðarmann
landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra Þýskalands
Nokkrum ummælum greinarínnar „Aflatakmarkanir ógna flski-
mönnum í Vigo“ (er birtist í F.A.Z. 7. janúar sl.) verður ekki látið
ómótmælt. Það er staðreynd að síðan komið var á 200 sjómflna
flskveiðilandhelgi þjóða, frá miðjum sjöunda áratugnum til loka
hans, hafa mörg Evrópuríki misst hefðbundin fiskimið sín í veru-
legum mæli. Þetta hefur leitt til mikilla efnahagsörðugleika í
strandhéruðum þessara landa.
Spánverjar eru ekki einir um að
hafa orðið fyrir þessu, þetta hefur
einnig bitnað á öðrum miklum físk-
veiðiþjóðum, svo sem Portúgal og
Stóra-Bretlandi. Úthafsveiðar Þjóð-
verja og öll Norðursjávarstrandhér-
uðin hafa einnig orðið illa fyrir
barðinu á þessu. Með sársaukafullri
aðlögun var dregið úr sóknargetu
fiskveiðiflotans í Sambandslýðveld-
inu Þýskalandi með aðstoð frá því
opinbera að því marki að samsvaraði
minnkuðum aflamöguleikum.
Þessi mjög svo nauðsynlega aðlög-
un sóknargetu fiskveiðiflotans hefur
aftur á móti ekki enn átt sér stað á
Spáni. Þess vegna er spænski fisk-
veiðiflotinn nú sem fyrr of stór og
fiskistofnar illilega ofveiddir. Fiski-
mennirnir eru þannig sjálfir að
svipta sig því sem stendur undir lífs-
björginni.
Þetta á einnig í verulegum mæli
við um fiskveiðar Spánverja ýti fýrir
ströndum Namibíu. Þar hafa lýs-
ingsstofnarnir á síðustu árunum
fyrir sjálfstæði Namibíu verið svo of-
nýttir að þeir þarfnast nú aðkallandi
verndar. Það að staðreyndin um of-
veiði hafi verið borin til baka af hálfu
Spánverja í FAZ.-greininni er ein-
ungis hægt að skýra með því að
menn viti ekki um hvað málið snýst.
Hún byggir á nýjustu fréttum um
afla spænskra skipa sem stundað
hafa ólöglegar veiðar í fiskveiðilög-
sögu Namibíu.
Oskiljanleg er sú aðdróttun Spán-
verja að Evrópubandalagið vilji að
fiskveiðum verði hætt, þar sem það
framlengi ekki neina fiskveiðisamn-
inga við önnur ríki né geri nýja
samninga. Hið sanna í málinu er
þveröfugt! EB er alltaf að gera fisk-
veiðisamninga við Afríkuríki sem
nýtast engum meira en spænska
fiskveiðiflotanum. Til þessa hafa ver-
ið gerðir 15 slíkir samningar sem
greiddar eru fyrir úr sameiginlegum
sjóðum bandalagsins um 300 millj-
FRAMHALDSSKÓLINN
Á HÚSAVÍK
Lausar eru til umsóknar kennarastöður í hjúkrun-
arfræði og skyldum greinum á sjúkraliðabraut,
íslensku, ensku, frönsku (1/2 staða) og sér-
kennslu þroskaheftra. Staða bókasafnsfræðings
á skólabókasafni er ennfremur laus til umsóknar.
Með tilvísun til laga númer 48, 1986, er einnig
auglýst til umsóknar kennsla í ensku, félags-
fræði, sálfræði, stærðfræði og þýsku.
Umsóknir berist til skrifstofu skólans fyrir 15. maí
1991. Upplýsingar veita skólameistari í síma 96-
42095 og yfirkennari í síma 96-41720.
Skólameistari.
A
KJORFUNDUR
W í KÓPAVOGI
Kjörfundur í Kópavogi vegna alþingiskosning-
anna 20. apríl hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 22.00.
Kjörstaðir eru tveir: í Kársnesskóla fyrir kjósend-
ur sem samkvæmt kjörskrá eru búsettir vestan
Hafnarfjarðarvegar og í Kópavogsskóla fyrir
kjósendur sem samkvæmt kjörskrá eru búsettir
austan Hafnarfjarðarvegar.
Kjósendur eru beðnir að framvísa persónuskil-
ríkjum á kjörstað ef kjörstjórn óskar.
Aðsetur kjörstjórnar verður í Kópavogsskóla.
Kjörstjómin í Kópavogi,
Jón Atli Kristjánsson
Sólveig Helga Jónsdóttir
Siguijón Davíösson
ónir marka á ári!
Einnig er sú staðhæfing alröng að
eftir að Spánn gekk í Evrópubanda-
lagið, geti erlendir samkeppnisaðil-
ar frá Rómönsku Ameríku, Afríku og
Austur-Evrópu selt afla sinn þar í
landi án þess að tollar séu lagðir á
hann. Þvert á móti er það rétt að —
eins og stjórn Sambandslýðveldisins
— spænska stjórnin sækir árlega til
framkvæmdanefndar EB, um (sjálf-
stæðar) tollaívilnanir til þess að
tryggja markaðsaðföng. En spænsk-
ir fiskimenn stunda rányrkju á fiski-
stofnum án þess að taka nægilegt
tillit til skammtíma markaðsmögu-
leika. Þannig voru til dæmis smokk-
fiskstofnar við Falklandseyjar
grimmilega ofveiddir þótt tregða
væri á sölu. Afleiðingarnar voru
miklar birgðir af frystum smokkfiski
á Spáni og var meira að segja sótt til
Brússel um fjárhagsaðstoð vegna
birgðasöfnunar og aðstoðin veitt.
Skynsamlegri veiðar til lengri tíma
litið hefðu getið viðhaldið endurnýj-
unarmöguleikum stofnsins með
minni sókn í hann og jafnframt
komið í veg fyrir röskuh á markaðn-
um.
Nokkur orð að lokum um hugs-
anlega afskráningu/fánaskipti
spænskra skipa. Slík ráðstöfun yrði
Spánverjum ekki í hag í fiskveiðilög-
sögu Evrópubandalagsins, því af-
skráð skip myndu ekki mega veiða
þar lengur. Afskráð skip, sem áður
sigldu undir spænskum fána, hafa í
skjóli kjarafána veitt á hafsvæði því
er Norðvestur- Atlantshagsfiskveiði-
samtökin (Nafo) hafa séð um að
stjórna veiðum á, án þess að þurfa
að hlíta reglum samtakanna (afla-
kvótum, tæknilegum ráðstöfunum
til verndar fiskveiðistofnum o.s.frv.),
þar sem hið nýja heimaland þeirra
er ekki aðili að Nafo eins og EB. Ég
tel þetta háttalag afar varhugavert,
því það leiðir til þess — sem þegar
má sjá merki um — að einnig á
þessum hafsvæðum er stunduð til-
Iitslaus rányrkja á fiskistofnum og
að þess verður ekki langt að bíða að
þeim verði eytt.
Þann tíma sem ég hef annast mál
er varða fiskveiðistefnu Þjóðverja í
landbúnaðar- og sjávarútvegsráðu-
neyti Sambandslýðveldisins, sé ég
það og hef miklar áhyggjur af,
hvernig fiskistofnar um allan heim
eru ofnýttir með ábyrgðarlausu at-
hæfi eða vanrækslu. Mér gremst
þetta þeim mun meira vegna þess að
í Þýskalandi gerum við allt sem við
getum til þess að vernda fiskistofn-
ana — einnig vegna umhverfis-
verndarsjónarmiða (með því t.d. að
við styðjum eindregið kvóta sem
byggjast eingöngu á ráðleggingum
sérfræðinga/vísindamanna, kvóta
sem fiskimenn okkar hafa á síðustu
árum þar að auki aðeins nýtt að
70%) en verðum þó að taka afleið-
ingunum eins og aðrir, ef að því
kemur að ekkert verður eftir til að
veiða. Ég mun með öllum ráðum
beita mér fyrir því að svo langt verði
ekki gengið, heldur takist okkur
innan ramma Evrópubandalagsins,
með skilningi og stjórnmálaþrýst-
ingi ef með þarf, að aðlaga fiskveið-
arnar nýjum aðstæðum þannig að
þær verði viðunandi frá sjónarhóli
umhverfisverndara og jafnframt við-
hlítandi efnahagslegur grundvöllur,
til lengri tíma litið, fyrir það fólk
sem þetta bitnar á.
bíla ekki
ganga að óþörfu!
Útbástur bitnar verst
á börnum...
UMFERÐAR
RÁO
Kvöld-, nætur- og hdgidagavarsla apóteka f
Reykjavik 19.-25. apríl er í Laugamesapóteki
og Árbæjarapóteki. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi
til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Uppfýsingar um læknis- og lyfja-
þjónustu eru gefnar í síma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Slm-
svari 681041.
Hafnartjöröur Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar í simsvara nr. 51600.
Akureyrí: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðmm tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
síma 22445.
Apótek Keflavíkur Opiö virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vcstmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Setfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opiö rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á iaugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Settjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og timapant-
anir i slma 21230. Borgarsprtaiinn vakt frá kl. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar I sim-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðlr fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Seltjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi
612070.
Garðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
slma 51100.
Hafharfjörðun Heilsugæsla Hafnarfjaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sátfræöistööin: Ráðgjöf I sál-
fræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspftallnn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildln: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspftali Hrfngsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunartækningadelld Landspltalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16ogkl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartlmi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspitalinn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnart>úöir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdelld: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðln: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Weppsspitali: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadelld: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshælíð: Eftir umtall og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifilsstaöaspitaii: Heimsóknar-
tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspltali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlfð hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heim-
sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikurlæknlshéraðs og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátiöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyrt- sjúkrahúsið: Heimsóknartími
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusími frá kl.
22.00- 8.00, sfmi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Hejmsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Seltjamames: Lögreglan sími
611166, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100.
Kópavogur Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreiö sími 11100.
Hafnarfiörður Lögreglan simi 51166, slökkviliö
og sjúkrabifreið slmi 51100.
Keflavik: Lögreglan sími 15500, slökkvilið og
sjúkrablll slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222.
Isafiörður: Lögreglan sími 4222, slökkvilið slmi
3300, brunasími og sjúkrabifreið simi 3333.