Tíminn - 19.04.1991, Qupperneq 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
1 i- / HÖGG- /32?
RÍKKSKIP Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga . DEYFAR Verslió hjá fagmönnum
NÚTÍMA FLUTNINGAR PÓSTFAX
Hainarhusinu v Tryggvogotu. S 28822 1 91-68-76-91 Haaarsböföa l - s. 67-67-44 TVÖFALDUR1. vinningur
Iíminn
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991
Steingrímur Hermqnnsson forsætisráðherra telur eðlilegt að
sveitarfélögin taki pneiri þátt í að viðhalda hér öflugu velferðarkerfi:
I hvað fara skatta-
hækkanir Reykvíkinga?
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði í viðtali við blaða-
menn Tímans á útvarpsstöðinni Aðalstöðinni í gær að hann teldi að
sveitarfélögin í landinu yrðu að taka meirí þátt í að viðhalda velferðar-
kerfinu. Hann benti á að þrátt fyrir að tekjur Reykjavíkur hafi aukist um
35% milli áranna 1985-1989 á fostu verðlagi, sé borgin með slaka þjón-
ustu við aldraða og sjúka í heimahjúkrun.
Forsætisráðherra vitnaði til
fréttabréfs VSÍ, „Af vettvangi", en
þar kemur fram að skattar í Hafn-
arfirði á hvem íbúa hækkuðu milli
áranna 1985-1989 um 40% milli
ára á föstu verðlagi. Næstmestar
skattahækkanir urðu í Reykjavík
og Seltjarnarnesi, eða 35%.
„Það er auðvitað rétt sem borgar-
stjórinn í Reykjavík segir að þessir
auknu skattar komi vegna meiri
veltu og meiri aðstöðugjalda. Engu
að síður hlýtur maður að spyrja sig:
Var ekki hægt að lækka fasteigna-
skattana og útsvarið miklu meira
en gert var? Tekjuaukningin hefur
verið svo gífurlega mikil. Ég verð
að viðurkenna að ég gerði mér alls
ekki grein fyrir að sveitarfélögin
hefðu hækkað sína skatta svona
gífurlega.
Nýlega var skipt upp verkefnum
milli ríkissjóðs og sveitarfélaganna
og þá tók ríkissjóður yfir miklu
meiri hluta af heilbrigðiskerfinu.
Það er enginn vafi á því að í raun og
veru þyrfti að færa eitthvað af tekj-
um frá sveitarfélögunum til að
borga fyrir þá heilbrigðisþjónustu
sem ríkið borgar í dag. Séu þessar
tölur í fréttabréfi VSÍ hafðar í huga
er ábyggilegt að við getum haldið
hér á landi óbreyttum heildarskött-
um. Við þurfum bara að nýta pen-
ingana betur en gert hefur verið."
Hafa framsóknarmenn útfært
nánar þessa hugmynd um breyt-
ingar á tekjum sveitarfélaga?
„Nei, við viljum gera það með
samkomulagi. Við viljum setjast
niður með sveitarfélögunum yfir
þessu dæmi. Það á að vera sameig-
inlegt áhugamál ríkisins og sveit-
arfélaganna að viðhalda velferðar-
kerfinu. Hvers vegna er t.d. ekki
byggt meira af ódýrum íbúðum fyr-
ir aldrað fólk í Reykjavík? Hvers
vegna er ekki byggð upp í Reykja-
vík öflug heimahjúkrun, sem sveit-
arfélög eins og Kópavogur og Hafn-
arfjörður hafa gert með miklum
ágætum? Ég tel að sveitarfélögin,
með sínar miklu tekjur, þurfi að
koma meira inn í slíka þætti vel-
ferðarkerfisins," sagði Steingrím-
ur. -EÓ
Bíll og
götusóp-
ur lentu
í árekstri
Tveir voru fluttir á slysadeild eftir
umferðarslys á gatnamótum Bú-
staðavegar og Flugvallarbrautar síð-
degis í gær. Slysið varð með þeim
hætti að lítill götusópur, sem var að
sópa við gatnamótin, beygði í veg
fyrir bfi sem ók vestur Bústaðaveg-
inn. Ökumaður bfisins og ökumað-
ur götusópsins voru fluttir á slysa-
deild, en ekki var talið að þeir væru
alvarlega slasaðir. Innan við mínúta
leið frá því að slysið varð þar til
sjúkrabfiar voru komnir á staðinn,
en slökkvistöðin í Reykjavík er ein-
mitt rétt við áðurnefnd gatnamót.
—SE
Svipuö þátttaka
og í síðustu
kosningum
Klukkan 17 í gær höfðu 4139
greitt atkvæði utan kjörfundar hjá
borgarfógetaembættinu í Reykjavík
í gær. Þetta mun vera svipaður
fjöldi og í kosningunum fyrir fjór-
um árum síðan. í fyrradag og á
þriðjudaginn komu mjög margir til
að greiða atkvæði, en í gær voru
þeir heldur færrí.
Opið er hjá borgarfógetaembætt-
inu, Stigahlíð 6, milli kl. 10-12, 14-
18 og 20-22. Á kjördag, laugardag-
inn 20. aprfi, getur fólk, sem býr ut-
an Reykjavíkur, greitt atkvæði utan
kjörfundar í Reykjavfk milli kl. 10-
12 og 14-18. -EÓ
Tilboð opnuð í gerð jarðganga um Breiðadals- og Botnsheiðar:
ÍSTAK VAR MEÐ
UEGSTA BOÐIÐ
ístak sf. átti lægsta tilboðið í gerð
jarðganga um Breiðadals- og
Botnsheiðar, en tfiboð í gerð
þeirra voru opnuð I gær. Titboð
ístaks er uppá 2.474 milljarða
króna, en kostnaðaráætlun sér-
fræðinga Vegagerðar ríkisins var
3.013 milljarðar. Alls bárust 7 til-
boð. Steingrímur J. Sigfússon
samgönguráðherra sagði tilboð
Istaks vera mjög álitlegt, en geng-
ið verður til samninga um ganga-
gerðina í byrjun sumars.
„Það er mjög ánægjulegt að ís-
lenskur aðili er með lægsta tilboð-
ið. Þetta eru traust fyrirtæki með
öfluga bakhjarla og því er tilboðið
mjög álitlegt. Það er skynsamleg
ráðstöfun, sem beinbfnis sparar
peninga, að vinna þetta af fullum
krafti og á sem stystum tíma.
Sum tilboðin eru að vísu mjög lík,
þannig að ekki er hægt að útiloka
að nokkur tími fari í að bera þau
saman. En við höfum sett markið
á undirritun verksamninga í byij-
un sumars og þá verður ekki aftur
snúið,“ sagði Steingrímur J. Sig-
fússon samgönguráðherra.
ístak býður í gerð ganganna í
púkki með þremur norrænum fyr-
irtækjum. Tilboðin sem bárust
voru alls 7. Þau komu frá einu fe-
lensku fyrirtœki til viðbótar,
Krafttaki, en það fyrirtæki annað-
ist gerð ganganna um Ólafsfjarð-
armúla. Hin tilboðin komu frá
Tilboðin opnuð f gær. Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra og Ólafur Steinar Valdimarsson ráðu-
neytisstjórí bera saman bækur.
búlgörskum, þýskum, ítölskum
og skandinaviskum fyrírtækjum.
Hæsta tilboðið kom frá þýska fyr-
irtækinu Biilfinger + Berger og
hljóðaði uppá 4.102 milljarða.
Sumir erlendu tilboðsaðilana voru
með felenska undirverktaka.
Jarögöngin um Brciðadais- og
Botnsheiðar verða í það heila 8,7
tólómetrar. Framkvæmdir við
gerð þeirra hefjast i sumar og
þeim á að }júka i árslok 1995.
Gangamunnamir vera þrír: í botni
Tungudals, inn af Skutulsfirði; í
Timamynd: Ami Bjama
botni Breiðdals við Önundaríjörð
og ioks í botni Breiðdals f Súg-
andafirði. Jarðgöngin veröa
þriggja arma með gatnamótum
inni í miðju fjalli og munu tengja
saman Flateyri, Suðureyri og ísa-
0örð. -sbs.