Tíminn - 12.06.1991, Síða 3
Miðvik'udágúr' 12Vjiiní 1991
Tíminn 3
Fáir taka þátt í landgræðslu og starfsemi skógræktar:
Um 45% þeirra sem
þátt taka búa í dreifbýli
í könnun, sem Gallup á íslandi framkvæmdi dagana 3. til 7. maí
þessa árs, kemur fram aö um 80% aðspurðra vilja láta auka fjár-
framlag til landgræðslu. Könnunin var styrktarverkefni Gallup fýrir
umhverfisnefnd Rotary- umdæmisins á íslandi og Átak í land-
græðslu. Af 1000 manna úrtaki sem valið var úr þjóðskránni svör-
uðu 695 einstaklingar á aldrinum 15 til 75 ára. Þar af voru 53% að-
spurðra karlar og 43% konur.
Alls töldu 43% aðspurðra að gróð-
ureyðing fari vaxandi hér á landi en
32% töldu hana vera svipaða og
hún hefði verið undanfarin ár.
Einnig taldi 31% aðspurðra að
lausagangur búfjár og ofbeit væru
helstu orsök uppblásturs og gróð-
ureyðingar en 32% töldu að veður-
far sé orsök þessa. Um 39% höfuð-
borgarbúa og 36% þeirra sem búa í
öðru þéttbýli en Reykjavík álitu að
ofbeit og lausagagur búfjár væru
helsta orsök gróðureyðingar og
uppblásturs en einungis 19% þeirra
sem búa í dreifbýli voru þeirrar
skoðunar. Þeir töldu aftur á móti að
veðurfar væri orsakavaldurinn eða
um 49% aðspurðra.
Um 17% álíta að sorpmál séu
helsti umhverfisvandi íslendinga
og sami fjöldi telur að það sé slæm
umgengni almennt. Um 12% telja
að það sé loftmengun en 15% segj-
ast ekki vita hver séu helstu vanda-
málin. Dálítill mismunur er á skoð-
unum fólks í sambandi við þessi
mál og fer mismunurinn þá aðal-
lega eftir búsetu því 16% höfuð-
borgarbúa telja mesta umhverfis-
vandamálið vera útblástur úr bfl-
um. í dreifbýli telja 12% það vera
meginvandamálið og 10% eru sam-
sinnis því í þéttbýli. Aftur á móti
telur fólk í þéttbýli sorpmál vera
helsta vandamálið eða um 27% en í
Reykjavík telja um 17% það vera
vandamál.
Fólk var einnig spurt hvort það
hefði tekið þátt í landgræðslu eða
starfsemi skógræktar. Þar svöruðu
80% neitandi. Athyglisvert er að
fleiri karlar hafa tekið þátt í land-
græðslu og starfsemi skógræktar
eða um 25% á móti 15% þátttöku
kvenna. Einnig kemur það fram í
könnuninni að flestir sem taka þátt
í slíkri uppbyggingu landsins eru á
Arlegi umferðarskólinn:
Hætturnar í umferðinni
Þessa dagana eru fimm og sex ára
böm frædd um mikilvægar umferð-
arreglur fyrir gangandi fólk, hjólreið-
ar og nauðsyn þess að nota bílbelti og
bflstóla. Fræðslan fer fram í grunn-
skólum Reykjavíkur, Hafnarfjarðar,
Garðabæjar og Bessastaðahrepps. í
Reykjavík standa námskeiðin til 25
júní en í Hafnarfirði, Garðabæ og
Bessastaðahreppi standa námskeiðin
til 19.júní. Þetta kemur m.a. fram í
fréttatilkynningu sem umferðarráð
sendi frá sér nýlega.
Þar segir jafnframt að um fræðsluna
sjái lögreglumenn og fóstmr. Hvert
barn er boðað tvisar og er kennt í um
eina klukkustund í hvort skipti.
Þá em foreldrar hvattir til að fylgjast
vel með hvenær umferðarfræðslan
verði í skólanum þeirra þannig að
ekkert 5 eða 6 ára bam verði af þess-
ari ómissandi tilsögn, eins og segir í
fréttatilkynningunni.
Þar segir enn fremur að í ágústmán-
uði sé fyrirhugað að fara með um-
ferðarskólann til Akraness, Vest-
mannaeyja og á Snæfellsnes. -HÞ
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar:
„Hvíti víkingurinn“
frumsýndur í haust
í fréttatilkynningu frá dreifíngaraðila myndarinnar kemur fram að
„Hvíti vfldngurinn“ sé mesta stórvirltíð á sviði íslenskra kvikmynda
til þessa. Heildarkostnaður við gerð myndarinnar er 420 milljónir
íslenskra króna. Myndin er stærsta samstarfsverkefni Norðurland-
anna fímm á sviði kvikmyndagerðar og fyrsta verkefnið þar sem
fulltrúar allra landanna gegna lykilstörfúm.
Hrafn Gunnlaugsson skrifar sög-
una og handritið að „Hvíta víkingn-
um“ og leikstýrir myndinni, sem er
alfarið leikin á íslensku og tekin að
verulegu leyti hér á landi. Frá Sví-
þjóð eru Tony Forsberg kvikmynda-
tökumaður og Sylvia Ingemarsson
klippari. Finninn Ensio Suominen
hannar leikmyndir og Daninn Hans-
Erik Philip semur tónlist. Aðalfram-
leiðandi myndarinnar er Dag Alve-
berg frá Filmeífekt A/S í Noregi.
Leikarar í kvikmyndinni eru flestir
íslenskir. Erlendu leikaramir lærðu
hins vegar hlutverk sín á íslensku.
Stærstu hlutverkin eru í höndum
komungra leikara. Gottskálk Dagur
Sigurðarson 17 ára leikur Ask, sem
aldrinum 35 til 44 ára eða um 27%
og um 45% þeirra sem þátt taka
búa í dreifbýli.
Þátttakendur voru spurðir sím-
leiðis og 64% þeirra búa í Reykjavík
og á Reykjanesi en 36% úti á lands-
byggðinni. Það er sama hlutfall
skiptingar íbúafjölda og nú er á
landinu. Reikna má með að skekkj-
úr í niðurstöðum vegna úrtaksins
geti verið á bilinu 2 til 4%. Þá var
einnig miðað við 95% öryggi og
700 svör.
Frá umhverfisráðuneytinu:
Magnús Jóhannesson siglinga-
málastjórí hefur verið ráftinn
aðstoöarmaftur Eifts Guðnason-
ar umhverfísráðherra.
Magnús er fæddur 23. mars
1949 á ísafirði. Hann lauk
stúdentsprófí frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1969. Prófí í
efnaverkfræði frá Háskólanum í
Manchester 1973. MSC-prófi í
verkfræfti frá sama skóla 1974.
Magnús hefur verift siglinga-
málastjóri frá 1. janúar 1985.
Þar hefúr hann unniö að um-
hverfísmálum, umgengni á sjó
og við hafnir. Magnús tekur sér
ieyfi frá starfi siglingamáia-
stjóra á meftan hann dvelur í
umhverfísráðuneytinu. Magnús
er kvæntur Ragnheiði Her-
mannsdóttur æfingakennara.
Þau eiga tvð bðm. -aá.
r
SKÍL
KRAFT VERKFÆRI ^ - ÞESSISTERKU
EMH Á ENGAN SINN LÍKA
EMH er einkaleyfisverndaður höggbúnaöur frá Skll, sem
gerir borun í steinsteypu svo létta, að því trúir enginn
nema reyna það sjálfur.
ALHLIÐA B0R- 0G SKRÚFUVÉL MEÐ EMH
6845H
- 500 vatta mótor
-13mm patróna
- allt að þreföld ending á steinborum
- stiglaus hraðarofi frá 0-1500 sn/mín
■báðar snúningsáttir
í
Ólafur konungur TVyggvason, sendir
til að kristna íslendinga. Maria
Bonnevievar var aðeins 16 ára þegar
hún lék hlutverk Emblu. Hún hefur
síðan leikið í annarri kvikmynd og
er upprennandi stjama f Noregi,
heimalandi sínu.
Með önnur stór hlutverk fara EgiII
ólafsson, Tomas Nordström, Þor-
steinn Hannesson, Helgi Skúlason,
Bríet Héðinsdóttir, Flosi Ólafsson og
fleiri.
Því hefur verið fleygt að .Hvíti víking-
urinn" sé fyrsta íslenska „alvörumynd-
in“. Frumsýningin er fyrirhuguð síðari
hluta septembermánaðar. -j*
SKIL - KRAFTVERKFÆRI ER HANDHÆG HEIMILISHJÁLP.
Eigum ávallt fjölbreytt úrval SKIL rafmagnshandverkfæra og fylgihluta
jaínt til iðnaðar- sem heimilisnota.
SÖLUAÐILAR VÍÐA UM LAND.
I ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670