Tíminn - 12.06.1991, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 12. júní 1991
UTLOND
Iraski stjómarherinn:
Brytjar niður sjjta-
múslima í Suður-írak
Formælendur þýska utanríkisráðuneytisins sögðu í gær að írösk
stjómvöld meðhöndluðu íraska sjítamúslima af „ótrúlegri grimmd“
og að íraski stjómarherinn stráfelldi þá í suðurhluta iandsins. Utan-
ríkisráðherra Þýskalands, Hans- Dietrích Genscher, ræddi við fuil-
trúa íraskra sjítamúslima í Bonn á mánudaginn og er mjög áhyggju-
fullur, að sögn formælenda ráðuneytisins. Þeir sögðust hafa aðrar
heimildir, sem styddu frásagnir sjítamúslimanna um grímmdarverk
íraska stjóraarhersins.
Formælendur þýska utanríkisráðu-
neytisins sögðu að starfsmenn ráðu-
neytisins mundu taka málið upp hjá
Evrópubandalaginu og Sameinuðu
þjóðunum.
Ríkisrekna útvarpsstöðin í Teheran
í íran greindi frá því í gær að íraskar
herþotur vörpuðu sprengjum á
flóttamenn sjíta, sem væru innikró-
aðir í votlendi í suðurhluta íraks, og
að íraski herinn væri að undirbúa
lokasóknina gegn þeim. Útvarpið
Fréttayfirlit
SRINAGAR - Indverskar örygg-
issveítir skutu 17 óbreytta borg-
ara tll bana í míðborg Srinagar í
gær, þar af elna aldraða konu og
10 ára gamlan dreng. Skothrfð
öryggissveitanna tylgdí i kjölfar
árásaraðskilnaðarsinna á örygg-
issveitimar, að sögn vitna, og
skutu öryggissveitamennimir á
allt sem fyrir varð.
ISTANBÚL - Leiðtogi kúrdískra
uppreisnarmanna, Jalal Tala-
baní, sagði í gær aö samninga-
viðræður viö Saddam Hussein
um sjálfestjómarhérað Kúrda í
Norður- (rak gætu dregist f
marga mánuði. Talabani sagði
þetta skömmu eftir að dagblað
iraska vamarmáianáðuneytisins,
Qadissiyah, greindi frá þvi aö
samningar við uppreisnarmenn
væru á næsta leiti og að jákvætt
andrúmsloft væri yfir viðræðun-
um.
BRÚSSEL * Haft er eftir heim-
ildum í Atlantsbafebandalaginu
(NATO) að Sovétstjómin hafi
samþykkt að eyöa meira en 10
þúsund vopnum og vopnahlut-
um, sem flutt vom úr Evrópu, og
er þetta liður I samkomulagi til að
liðka fyrir afvopnunarsamningn-
um CFE, sem 22 riki Varsjár-
bandalagsins og NATO gerðu
með sér í Paris í nóvember sið-
asöiðnum um takmörkun hefð-
bundinna vopna f Evrópu Búist
er við aö gengið veröi frá CFE-
afvopnunarsamningnum á
næstu vikum.
MOSKVA - Háttsettur ráðgjafi
Gorbatsjovs Sovótforseta sagði i
gær aö sú efnahagsaðstoð, sem
vestræn rlki vildu ekki láta Sovét-
mönnum í té, gæti ekki oröið tH
þess að leysa vanda sovésks
efnahags, hvort sem hún væri
með eða án strangra skilyrða.
Hann sagði að spumingin snerist
um hvort Sovétmenn fengju að-
gang að ijármálamarkaöi heims-
ins eða ekki. Sovétmenn þyrftu á
lánum að halda, sem borguð
yrðu aftur. Aðstoðarforsætisráð-
herra Sovétrikjanna, Fyodor
Senko, sagði i gær að sovéskur
landbúnaöur væri í mikilli kreppu
og ffamleiðsian hefðí minnkað í
fyrsta sklpti i mörg ár.
MANILA - Þrýstingur hélt áffam
að aukast I gær f eldfjallinu Pin-
atubo á Filippseyjum og búist var
við öfiugu sprengigosi á hverri
stundu. Bandarisk herfiugstöð,
Clark, er talin í mikilli hæftu og
jafnvel taldar líkur á að heimingur
hennargeti grafist i hraun. Fimm-
tán þúsund Bandaríkjamenn
hafa veriö fluttir frá stöðinni, en
rúmlega eitt þúsund manns uröu
eftir og halda uppi öfiugri Öryggis-
gæslu vegna ótta um að heima-
menn fari ránshendi um stöðina,
KARACHI - Aö minnsta kosti
116 létust á mánudaginn i Pakist-
an vegna of mikilia hita og hafa
þá alls 418 manns látist á siðustu
tíu dögum, samkvæmt opinber-
um tölum. Hitinn hefur farið i allt
að fimmtiu gráður á selsíus, en
mesti hiti, sem mælst hefur í Pak-
istan, var 53 gráður árið 1919.
Formælandi veðurstoiriunarinn-
ar í Pakistan sagði að hitinn
mundi fara lækkandi á næstu
dögum, en mjög heitt yrði sarnt
þangað tii monsúnrigningarnar
hælúst um miðjan júli.
Reuter-SÞJ
sagði að um 100 þúsund vel vopnað-
ir íraskir hermenn sæktu nú að
flóttamönnunum. Fregn útvarpsins
kom á sama tíma og stjórnarand-
stöðuleiðtogi íraskra sjítamúslima,
Ayatollah Mohammad Baqer al-Hak-
im, hvatti til að sett yrðu upp sams-
konar verndarsvæði fyrir flótta-
menn sjíta í suðri eins og fyrir
flóttamenn Kúrda í norðri.
írönsk stjórnvöld telja að allt að ein
milljón manns séu í felum í votlend-
inu og stór hluti þeirra séu upp-
reisnarmenn og liðhlaupar úr íraska
hernum. Embættismenn Samein-
uðu þjóðanna í íran sögðu í síðustu
viku að íraskir hermenn hefðu um-
kringt flóttamennina til að koma í
veg fyrir að þeir kæmust til írans og
aðeins um 70 þúsund flóttamenn
hefðu náð að forða sér yfir Ianda-
mærin. í gær skýrðu þeir svo frá því
að sjítar, sem flúið hefðu til írans,
væru farnir að snúa aftur til íraks,
þrátt fyrir fregnir um að sjítar væru
stráfelldir af íraska stjórnarhernum.
Reuter-SÞJ
Flóttafólk frá frak í íran.
Sprengjutilræði í
Mflanó og Bologna
Tvær sprengjur sprungu nærrí
stofnunum á vegum Spánveija í
borgunum Mflanó og Bologna á
ítah'u í fyrrinótt. Fjórir lögreglu-
menn slösuðust lítillega, en miklar
skemmdir urðu af völdum sprengj-
anna.
Lögreglan fann sprengjuna í Mílanó
áður en hún sprakk. Hún var fyrir
utan skrifstofur spænska flugfélags-
ins Iberia. Sprengjusérfræðingar
voru kallaðir til, en þeim tókst ekki
að gera hana óvirka áður en hún
sprakk. Fjórir lögreglumenn slösuð-
ust lítillega í sprengingunni, sem
olli miklum skemmdum á skrifstof-
um spænska flugfélagsins. Sprengj-
an í Bologna sprakk við anddyri
spænsks háskóla í borginni og olli
nokkrum skemmdum á honum og
næsta umhverfi en engu manntjóni.
Þrjár sprengjur sprungu nærri
spænskum stofnunum í Róm þann
28. maí síðastliðinn. Ein sprengjan
sprakk við spænska sendiráðið og
önnur við skrifstofur Iberia í borg-
inni. Ekkert manntjón varð í spreng-
ingunum. Skæruliðasamtökin ETA,
sem berjast fyrir sjálfstæði Baska á
Spáni, lýstu yfir ábyrgð sinni á til-
ræðunum. Formælandi spænska
sendiráðsins á Ítalíu sagði mjög lík-
legt að ETA hefðu staðið að baki
sprengjutilræðunum í gær.
Reuter-SÞJ
Pavlov dregur upp dökka mynd
af efnahagsástandinu í USSR:
Segir samt
versta hjall-
ann að baki
Kristiansand í Noregi:
24 menn af „uppreisn-
arskipinu“ urðu eftir
Eþíópska flutningaskipið „Drottn-
ingin af Sheeba“, sem siglt var til
Kristiansand í Noregi í síðustu viku
eftir að uppreisn hafði veríð gerð
um borð, fór til Þýskalands í gær án
23 sjómanna og eins laumufarþega,
sem beðið hafa um pólitískt hæli í
Noregi.
Uppreisn var gerð á skipinu þegar
það var á siglingu á Ermarsundi á
leiðinni til Bremen í Þýskalandi með
kaffifarm frá Eþíópíu.
Sjómennirnir urðu hræddir við að
snúa aftur til Eþíópíu eftir að upp-
reisnarmenn tóku stjórn landsins í
sínar hendur úr höndum harðstjór-
ans Mengistu Haile Mariam í lok
maí.
Þeir vildu ekki fara til Þýskalands
og neyddu skipstjórann til að sigla
til Noregs, þar sem þeir höfðu heyrt
að Norðmenn væru miklir „mann-
vinir".
Forsætisráðherra Sovétríkjanna,
Valentin Pavlov, dró í gær upp
dökka mynd af efnahagsástand-
inu í Sovétríkjunum og sagði að
næstu tveir mánuðir mundu ráða
úrslitum um hvort takast mundi
að koma á stööugleika í sovésku
efnahagslífi eða ekki. Pavlov
sagði það skipta miklu máli
hvernig stjómmálaástandið í
landinu þróaðist á næstu mánuð-
um.
Forsætisráðherrann taldi hins
vegar að erfiðasti hjallinn væri að
baki. Efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar hefðu komið í veg
fyrir algjört hrun, minnkað við-
skiptahallann við útlönd og komið
í veg fyrir hungursneyð. „Sovésk-
ur efnahagur hefur ekki enn sýnt
nein batamerki, en hraðminnk-
andi framleiðsla hefur verið stöðv-
uð á árangursríkan hátt,“ sagði
hann.
Pavlov, sem hefur sakað vestræna
stjórnmálamenn og bankastjóra
um að reyna að koma á frekari
óróa í sovésku efnahagslífi, sagði
að Sovétmönnum hefðu ekki bor-
ist eins mikil lán og þeim hafði
verið lofað. Þessu hafi þurft að
mæta með því að minnka inn-
flutning um 45%. Pavlov sagði að
olíuútflutningur hefði minnkað
um 49% á fyrstu fimm mánuðum
þessa árs miðað við árið í fyrra,
timburútflutningur um 45% og
járnútflutningur um 61%. Hann
sagði að viðskiptahallinn fyrstu
fimm mánuðina hefði verið
32,2%.
Reuter-SÞJ
Reuter-SÞJ