Tíminn - 12.06.1991, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 12. júní 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin (Reykjavlk
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Glslason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrimsson
Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason
Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavlk. S(ml: 686300.
Auglýslngasíml: 680001. Kvöldslmar: Áskrift og dreifmg 686300,
ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaöaráskrift kr. 1100,-, verö I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Samvinnuhreyfingin
Á undanförnum árum hefur samvinnuhreyfmgin
gengið í gegnum erfíðleika- og umbreytingaskeið. Til
rekstrarvanda saamvinnufyrirtækja lágu margar or-
sakir. Meginástæðuna var að sjálfsögðu að rekja til
þess að almenn skilyrði atvinnurekstrar versnuðu
mjög fyrir u.þ.b. fjórum árum og komu ekki síst nið-
ur á rekstri sem samvinnuhreyfingin var mjög bund-
in við og tengdist margs konar skyldum og ábyrgð.
Samvinnuhreyfingin hefur alla tíð verið landsbyggð-
arbundin og átt mestan stuðning meðal alþýðufólks
víðast hvar í landinu og verið lyftistöng sjálfsbjargar-
vilja hinna mörgu dugandi einstaklinga sem hafa
rækt staðfestu sína í sveit og við sjó hringinn í kring-
um landið.
Þjóðfélagsþróun nútímans hefur vegið gegn þessari
búsetumynd og atvinnuuppbyggingu. Samvinnu-
menn voru án efa óviðbúnir ýmsu því sem fylgdi í
kjölfar slíkrar þróunar og haft hefur afgerandi áhrif á
fjárhagsstöðu samvinnurekstrar. Að því leyti til má
segja að félagslegt og rekstrarlegt skipulag sam-
vinnuhreyfingarinnar hafi úrelst og gæti ekki staðið
lengi.
í rekstri samvinnumanna hafði heildarhyggja getað
ráðið farsællega fram úr staðbundnum og tíma-
bundnum erfiðleikum innan samvinnuhreyfingar-
innar, en dagar þess háttar heildarhyggju eru liðnir,
ekki af því að heildarhyggja standi ekki undir sínu
sem hugsjónamál samvinnumanna, heldur af því að
útfærsla hennar í framkvæmd verður að laga sig að
háttum hverrar aldar. „When in Rome, do as the Ro-
mans do“, segir enskt spakmæli. Hyggindi sem í hag
koma eru ekki síður einkenni á samvinnumönnum
en öðrum sem kunna fótum sínum forráð.
Ár er nú liðið síðan Samband íslenskra samvinnufé-
laga ákvað að reka deildir sínar í hlutafélagsformi. Til
þessarar ákvörðunar lágu hagnýtar ástæður líðandi
stundar sem býr svo vel að hlutafélagsforminu að til
þess hljóta hagsýnir menn að grípa þegar það hentar
betur en annað rekstrarform.
Þetta þarf ekki að vera neinum samvinnumanni nein
raun né andstæðingum samvinnuhreyfingarinnar
neitt til að hlakka yfir, því að samvinnuhreyfmgin er
ekki andstæði hlutafélögum og hefur lengst af átt
þátt í hlutafélagarekstri á ýmsum sviðum. Þá skipu-
lagsbreytingu sem orðið hefur á deildum Sambands
íslenskra samvinnufélaga má líta á sem viðbót við það
sem áður hefur verið gert í hagnýtum tilgangi og
ekkert fráhvarf frá hugsjón samvinnumanna, heldur
merki þess að samvinnuhreyfingin ætlar áfram að
neyta framtaks síns til áhrifa og umsvifa í þjóðfélag-
inu.
Þrátt fyrir mikla fækkun kaupfélaga að tölu til, hef-
ur kaupfélagshreyfingin úti um landsbyggðina verið
að styrkja stöðu sína. Kaupfélögin eru meginstoð
samvinnuhreyfingarinnar og meðan sú stoð á sér
traustan grundvöll mun samvinnustarfsins lengi sjá
stað á íslandi. Samvinnuhreyfingin á sér langa sögu
og hefur lagt sitt af mörkum til framfara og uppbygg-
ingar. En samvinnuhreyfingin hefur einnig orðið að
þola mótlæti. Á því hefur hún jafnan sigrast með því
að bregðast skynsamlega við vandanum.
DV spyr nýja menntamálarað-
herrann, Ólaf G. Einarsson, aö
því í vikunni sem leið hvort hann
ætli aft beita scr fyrir að einka-
væða skólakeriið frekar en orðið
cr. Ráðhcrrann svarar með því að
segja: „Einkavæðing á fullan rétt
á sér í skdlakerflnu. Ég mótmæB
hins vegar aiveg að einkaskólar
muni hafa í för með sér eitthvert
val í nemendum þaonig að ein-
ungis nemendur {svo) vel stæðra
foreldra komist í þá. Siíkir skólar
munu stuftla að samkeppni sem
ríkisskólamir munu hafa gott
Augnaþjónusta
kerfinu. Þaft tekur því aft vísu etód
að eyða miklu póftri á þessa fnllyrð-
ingu, en tíl þess aft Garra verði ekki
núift því um nasir að hann sé ófor-
er það hans skoðun að meta verði
eflir aðstæðum hversu rétimæt og
skynsamJeg slfk úrræði eru. Að
mati Garra fer það einkum etir
þtírra, hvort hagkvæmt og sann-
gjamt sé að hafa einhvers konar
einkavæftingu í skólakcrfinu. En
isstjóma frá því að innlend stjóm
og þingræði var kmnið á 1904, að
menntamálaráðhcm er að af þvf
verður helst séð að hann ætli eldd
að beita $ér fyrir einkavæðingu í
skólakerflnu. Aft öðru leyti er
„svarið*4 <ef svar skyidi kalla) afar
varfæmisleg augnaþjónusta við
einkavæðingarhugmyndir nýkapi-
taiista. Er heldur ólíldcgt að nú-
verandi menntamálaráöherra fari
að taka undir þær i framkvæmd.
Ólafur G. Einarsson er nógu h'fs-
reyndur og kunnugur öUum að-
stæðum til að skilja að einkavæft-
ing íslenska skólakerfisins er ekki
sériega brýnt verkefni fyrir ráft-
herra fræðslumála. Káðherrann cr i
það kunnugur íslcnskri skólasögu
og þróun fræðslumála á þessari
Öld og því iengra sem horft er til
baka, að einkavæðing skóla hefur
ekki maritað drýgst spor í framfar-
ir á sviði Iræðsíu- og skólamála,
svar ártð 1907, voru í eðH sínu skólabast-
inbera. Að vísu er ósanngjamt að
hafa uppi þennan samanburð á
einkaskólum fyrri tíöar og óskaskói-
ans, að því Ieytí að menn gætu
freistast til að halda að einhvetju sé
saman að jafna um tílganginn. Svo
er auðvitað ekld aok þess sem fé-
lagslegar aðstæöur em allt aftrar.
Það sem er líkt með hinu frum-
menn nútímans eru að tala umeraft
þessirnýju skólamenn ætla aö sækja
peninga tii almenningssjófta aft
Saekja til almannasjóða
ssú af
bamaskólahaldi áður en Hannes
Hafstein, fyrsti íslenski ráöherrann,
dreli fræftshílögin í gegnum Alþihgi
pilsfaldakapítalisml
flokksins útfærður í skólakerfinu.
Þegar vitrir menn réðu
ólafur G. Emarsson segir að einka-
væfting eigi fulian rétt á sér í skóla-
almannavatds, ríJds og sveitarfé-
hafi aldarinnar, Guðmundur Finn-
bogason, Einar H. Kvaran, PáH Bri-
em og umfram aUt Hanncs Haf-
stein, sem íslendingar voru svo
heppnir að ii fyrir ráðherra, þegar
mest á reift aft þeir sönnuftu fyrir
Einkaskólar hverra?
Menntamálaráðherra hlýtur að
tala um hug sér þegar hann mót-
mæHr því að einkaskólar hafi f for
með sér .æitthvert val“ á nemend-
um, þannig að það vcrðí einungis
böra hinna vel stæðu sem teidn
verða í $Hka skóla. Einkaskólar hér
á landi munu áreiðanlega velja
nemendur eftir sínni eigin regiu og
útiioka nemendur að sama skapi.
Þar sem einkaskólar ætla öðrum
um, þarf ckki að fara í grafgötur
um að efnahagur foreldra skiptír
máH um það hvaftan nemendur
sKkra skóla kæmu. Garri
Xívfflíffl’SfK.Síf
VÍTT OG BREITT
■
' ..............................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
Höfðingjabragur
Þegar gamli Gústav Svíakóngur
var nærri búinn að skjóta hof-
meistara sinn í misgripum fyrir
elginn sem rekinn var inn í rjóðrið
þar sem kóngur beið með byssu
sína þótti orðið tímabært að láta
gamla manninn hætta að hefja
veiðitímabilið með því að skjóta
fyrsta elginn og hljóta klapp og að-
dáun hirðarinnar fyrir vikið.
Venja var að aðalbornir höfðingj-
ar stunduðu veiðar á lendum sín-
um og þótti undirsátum og al-
múga gríðarmikið til þeirra afreka
koma. Einvaldar tóku eðlilega öll-
um öðrum veiðimönnum fram og
stunduðu veiðarnar af meiri íþrótt
en öðrum mönnum var unnt.
Skipti þá litlu máii hvort þeir
skutu eig eða hofmeistara eða jafn-
vel ekki neitt, þeir voru meiri og
betri en aðrir veiðimenn.
íslandsfálkinn var löngum kon-
ungsgersemi, enda sá konungs-
verslunin um útflutninginn. Fálk-
inn veiddi fyrir þjóðhöfðingja og
aðra ekki.
Veiðifálkar eru enn mikil dýrmæti
meðal vellvellvellauðugra araba og
eru notaðir til fugladrápa. Biskup-
ar Múhameðs fara á veiðar með
fálkum.
Sumir Afríkuhöfðingjar eru sjálf-
krafa mestu veiðimenn þjóða
sinna og um sunnanveröa Asíu eru
einstaka þjóðhöfðingjar dáðir fyrir
snilldartakta í veiðiskap.
Veiðimennirnir miklu
í upplýstari hluta Evrópu er farið
að sneiðast um þá stórhöfðingja
sem hafa smekk fyrir að vera betur
til íþrótta búnir hvað veiðiskap
snertir en aðrir menn. Tító Júgó-
slavíuforseti var einna síðastur
evrópskra stórhöfðingja sem
gekkst upp í að vera fyrstur og
mestur þegna
sinna á veiði-
slóð. Hann
skaut fjalla-
tígra og þótti
mikið til
garpsskapar
hans koma og
myndir af hon-
um með fjöðr-
um skreyttan
hatt, byssu í
hendi og vinstri fótinn á hálsi ný-
drepins tígurs vöktu þjóðarstolt
með þegnum hans.
Um það leyti sem miðaldahug-
myndir um veiðisæld og færni
æðstu höfðingja voru að deyja út
fyrir austan haf magnaðist áhugi
lslendinga á veiðum stórhöfðingja
og stórbrotin fjölmiðlun nútímans
fylgist með laxveiðum þeirra af
meiri áhuga og þekkingu en
nokkrum stjórnarathöfnum sömu
herra.
Hinir æðstu meðal herrafólksins
hefja veiðitímabilin með allt fjöl-
miðlagengið að baki sér og svo er
hver urriðatittur sem kippt er á
land með sveiflu veginn og mynd-
aður og herrarnir sem fá lax tíunda
hvaða flugu hann tók og veiði-
menn fjölmiðlanna kannast svo of-
boð vel við ensku nöfnin á flugun-
um og þykir nú ekki skrýtið að
hann hafi tekið einmitt þessa af-
bragðsflugu, sem gafst svo vel
hérna einu sinni.
Almúginn bíður í ofvæni eftir enn
fleiri afrekum herra sinna og svo
eru forstjóramir og tannlæknamir
og endurskoðendurnir og lána- og
sjóðsstjórar að tygja sig og er enn
mikilla tíðinda að vænta af bökkum
rándým laxveiðiánna sem þjóðinni
þykir svo undurvænt um að renni
hennar bestu sonum til dýrðar.
Gömlu góðu úrræðin
Á meðan herraðir höfðingjar
þreyta urriða og laxfiska í glæsileg-
ustu veiðivötnum heimsins er eld-
islaxinn gerður útlægur úr kerjum
og lánastofnunum og milljarðar
fara í súginn. Nokkrar aðrar at-
vinnugreinar tengdar landbúnaði
og sjávarútvegi eru settar í þrot.
Rækjan er orðinn þungur baggi og
nokkur byggðarlög em að komast
á vonarvöl vegna gjaldþrota fisk-
vinnslustöðva og útgerða.
Fjölmiðlarar, sem em ekki eins
vel að sér í atvinnuvegum og lána-
stofnanafári og enskum nöfnum á
fjöðrum hænsnfugla vöfðum á
öngla, spyrja hvern framkvæmda-
manninn og lánaúthlutunarstjór-
ann af öðmm hvað hafi komið fyr-
ir og verður fátt um svör en þau
sem fást em óskiljanleg.
Þó kom að skilningi á vandamál-
unum og úrræðum á vandanum.
Matthías Bjamason, alþingismað-
ur og formaður Byggðasjóðs, gaf
gamla og haldgóða skýringu á
ósköpunum.
Gengið er rangt skráð. Ef gengið
verður skráð rétt, sagði Matthías í
sjónvarpsviðtali, þá munu fyrir-
tækin standa sig.
Vandamálið er sem sagt rangt
skráð gengi og gengisfelling mun
leysa allan vanda gjaldþrotanna.
Gömlu íhaldsúrræðin með sí-
felldum gengisfellingum og til-
heyrandi verðbólgufári er það sem
Byggðastofnun leggur til og verði
útgerðarauðvaldinu að góðu.
En hvað gerir til þótt framleiðslu-
atvinnuvegirnir fari Ijandans til?
Málið er að herraþjóðin veiði lax
og er það meira um vert en að ala
lax.
OÓ
v v v v v v vv v v v v v v v v i;