Tíminn - 12.06.1991, Page 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 12. júní 1991 Miðvikudagur 12. júní 1991
Tíminn 9
sóknarstöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá:
HREMMINGUM MOGILSAR LOKI0>
GRUNDVÖLLUR LOKS TRAUSTU R
Eftlr Helga Þórhallsson_____________t,™****^
Aö Mógilsá er ræktaö mikið af trjáplöntum. Mest er ræktaö af svonefndu rússalerki,*sem náö hefur ailt aö 15-20 metra hæö f
Guttormslundi í Hallormsstaöarskógi.
Hér sjást nokkrar alaskaaspir sem notaðar hafa verið sem móðurplöntur fyrir græölinga. Næst öspunum stendur Jón Loftsson
skógræktarstjóri og í forgrunni sést Ámi Bragason, forstööumaöur skógræktarstöðvarinnar aö Mógilsá.
Starfsemi Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins er nú að komast í fullan gang eft-
ir hlé, sem varð vegna deilna og uppsagna starfsmanna á árinu 1990. Málið, sem
snertir deilur um rannsóknaverkefni fyrrverandi starfsmanna, er ennþá í höndum
ríkissaksóknara. „Við horfum fram á við og hugsum lítið um þetta og það háir okkur
ekkert. Við höldum áfram með eldri verkefni og erum einnig komin með ný,“ sagði
Árai Bragason, forstöðumaður Rannsóknarstöðvar ríkisins á Mógilsá, er blaðamenn
voru boðaðir þangað í gær.
Áherslubreytingar
Á fundinum kom fram að með þeirri upp-
stokkun, sem orðið hefur hjá rannsókar-
stöðinni, hafi gefist tækifæri til að endur-
meta starfið og gera áherslubreytingar. Þar
starfa nú um 13 sérfræðingar og sex þeirra
eru fastráðnir. Árni sagði að áherslubreyt-
ingarnar fælust helst í því að ráðinn var
sérfræðingur sem sinnir landgræðslu-
skógum og vistfræðirannsóknum tengd-
um birki. Umsjón með þessum rannsókn-
um hefur Ása L. Aradóttir. Árni segir þetta
vera algerlega nýtt svið og rannsóknir á
þessu sviði séu nýjar og hafi ekki verið
sinnt af hálfu Skógræktarinnar áður. Árni
segir starfsemina vera í sífelldri þróun,
eins og sé eðlilegt í rannsóknarstörfum.
Hremmingum lokið
„Við mannabreytingarnar sem urðu feng-
um við mikil viðbrögð frá öðrum aðilum,
þar á meðal frá starfsmönnum Skógræktar
ríkisins. Það eru engar deilur innan Skóg-
ræktar ríkisins, því þær eru úr sögunni,"
segir Árni. Hann segir menn hafa séð það
að deilurnar hafi háð allri starfseminni og
þá ekki eingöngu á Mógilsá, heldur líka
annars staðar innan Skógræktar ríkisins.
Þess vegna hafí myndast um það góð sam-
staða að skapa starfseminni farsælan
grundvöll. „Ég kom hingað eftir að deil-
urnar höfðu náð hámarki og það má segja
að enginn hafi skilið lengur að öllu leyti í
hverju þær fólust." Árni segir að m.a hafi
margs konar smáatriði ráðið þar ferðinni.
Nú segir hann að tekist hafi gott samband
við m.a. Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins, bændaskólana á Hvanneyri og á Hól-
um, Garðyrkjuskólann og Landgræðsluna
og samstarfið sé eflaust betra heldur en
nokkurn tímann hafi verið áður. Hann seg-
ir það skýrast af því að allir hafi verið til-
búnir að hjálpa Rannsóknarstöðinni á Mó-
gilsá af stað á nýjan leik. Árni segir byrjun-
ina og þróunina síðan ganga betur en
nokkur þorði að vona. Hann segist hafa
haldið að minnst tvö ár þyrfti til að koma
starfseminni aftur af stað, en sjái nú fram á
að starfsemin verði komin á mjög gott
skrið nú í sumar og næsta vetur.
Um það hvort rannsóknarstöðin heyrði
undir landbúnaðarráðuneytið eða um-
hverfísráðuneytið, eins og rætt hefur verið
um, kvað Árni það ekki skipta neinu máli
hvað rannsóknaráherslur snerti. Hann
sagðist hafa sínar skoðanir á því máli, en
vildi ekki tjá sig um þær.
130 tegundir prófaðar
Ámi sagði að unnið væri að ýmsum fleiri
málum en landgræðsluverkefnum. Hann
sagði að á næstunni yrði lögð áhersla á svo-
kallaðar „tegunda- og kvæmarannsóknir".
Hann sagði að þær fælu í sér að ákveðið tré
væri valið af ákveðnu svæði og væri tekið fræ
af því, sem væri kallað kvæmi. Hann sagði að
undanfarin ár hefðu verið prófaðar um 130
trjátegundir og kvæmi hafi verið prófuð frá
u.þ.b 1000 stöðum á jörðinni. Þessar rannsók-
ir segir Ámi því ganga út á það að finna hvar
hentugast sé að sækja efnivið. Á þessar rann-
sóknir hefur verið lögð höfuðáhersla, segir
Ámi. Hann segir að nú starfi að þessum rann-
sóknum skógfræðingamir Aðaisteinn Sigur-
geirsson, sem er að ljúka doktorsritgerð sinni
þessa dagana, og Þórarinn Benedikz skógfræð-
ingur. Hann segir þá skoða allar tegundir og
þetta verkefni sé ekkert síður fyrir hefðbundna
skógrækt en Landgræðsluna. Ámi sagði að
stöðugt væm í gangi ræktunartilraunir, sem
Sigvaldi Ásgeirsson sæi um. Jafnhliða þessu
sagði hann að unnið væri að rannsóknum á
meindýrum í skógum, sem dr. Guðmundur
Halldórsson skordýrafræðingur sjái um, en
þær hóf meðal annarra Jón Gunnar Ottósson,
fyrrum forstöðumaður á Mógilsá.
Gjöf frá Noregskonungi
Blaðamönnum var boðið að skoða skógrækt-
arsvæði Rannsóknarstöðvarinnar að Mógilsá.
Það kom fram, að stöðinni var komið á fót fyr-
ir andvirði gjafar, sem ólafur Noregskonungur
færði íslendingum 1961, og var skilyrði henn-
ar það að fénu yrði varið til að efla skógrækt á
íslandi. Skógræktarstöðinni var valinn staður
að Mógilsá á Kjalamesi og hófst bygging henn-
ar vorið 1964. Skógrækt hófst þar um svipað
leyti og er undravert hversu gróskumikill
skógur hefur risið á svæði stöðvarinnar frá
þessum tíma.
15 þúsund hektarar
Jón Loftsson skógræktarstjóri sagði við þetta
tilefni að þau verkefni, sem beint væri til Skóg-
ræktar ríkisins, væm sífellt að aukast Þar átti
hann aðallega við verkefni sem tengjast rækt-
un bænda. í því sambandi gat hann verkefnis á
Fljótsdalshéraði, sem felur í sér ræktun um 15
þúsund hektara á svæði fyrir ofan Egilsstaði.
Hann sagði þetta vera stærsta verkefni í skóg-
rækt, sem hleypt hefði verið af stað. Jón sagði
tengsl garðyrkjubænda við rannsóknaraðila
vera tryggð með stofhun svonefhds fagráðs,
sem er ráð þeirra aðila sem málið snertir.
Hér sést rússalerki í tugþúsundavís. Kannski verða þessar litlu plöntur einhverntímann uppistaða mikils skógar.
Árni Bragason, forstöðumaður að Mógilsá, sýndi blaðamönnum skóg skógræktarstöðvarinnar.