Tíminn - 12.06.1991, Blaðsíða 10
lOTÍminn
Miðvikudagur 12. júní 1991
Dómsmálakerfið í Brasilíu í molum:
Fátæklingar í Brasilíu
taka lögin í sínar hendur
Oft er talað um réttlætiskennd
almennings, en smáglæpa-
mennirnir sem hafa hreiðrað
um sig í fátækrahverfum
Brasilíu fá hroll þegar þeir
heyra þessi orð. „Pega, mata,
lyncha“ er kjörorð æðandi
lýðs sem hefur ekki annað
ofar í huga en að lúskra eða
brenna til dauða smáþjófa og
nauðgara. Kjörorðið merkin
„Grípið hann, drepið hann,
gangið frá honum.“
Þetta kjörorð nær aldrei eyrum
Femandos Collor, hins unga og vel
efnum búna forseta Brasilíu, sem
talar heilmikið um að gera land sitt
að fyrsta heims ríki. En almenning-
ur í Iandi hans, sem löngu er búinn
að fá sig fullsaddan af sívaxandi
efnahagskreppu og algerlega óstarf-
hæfu dómskerfi, er farinn að taka
réttlætið í sínar hendur og beitir við
það sömu aðferðum og tíðkuðust á
miðöldum.
Aftökur án dóms
og laga
Nú er algengt að almenn réttlætis-
kennd brjótist út í aftökum án dóms
og laga um gervalla Brasilíu. Al-
gengastar eru þær í bænum Salva-
dor í ríkinu Bahia í norðausturhluta
landsins, þar sem herlögregla viður-
kennir að slík lögleysa eigi sér stað
a.m.k. þriðja hvern dag. Og tölurnar
hækka, í aprílmánuði einum voru
þær 19 og létu flest fórnarlömbin
lífið. Á öllu síðasta ári var þessi full-
næging réttlætisins framkvæmd
105 sinnum.
f flestum þessara dómlausu full-
nægingarmála eru fómarlömbin vel
þekktir glæpamenn og oftast eru
þau viðbrögð við nauðgun eða drápi
á bömum. Án undantekninga em
það fátæklingar sem taka málin í
sínar hendur og em svo refsiglaðir.
í Salvador halda 70% íbúanna til í
fátækrahverfum, oft í vesælum
hreysum úr plasti, sem hróflað er
upp meðfram illa þefjandi ám. Oft
má sjá blóðslettur á götunum, þar
sem jafnvel hundarnir em vonleys-
islegir að sjá.
í sumum hverfum er ofbeldið svo
allsráðandi að þeir sem þangað
koma verða að greiða verndarfé,
strætisvagnar fara um í lestum und-
ir lögregluvemd og ökumenn gefa í
á ferð um hverfin af ótta við að það
bjóði hættunni heim á árás ef þeir
hægja ferðina.
Yfirmaður herlögreglunnar í Salva-
dor viðurkennir að ástandið sé svo
spennuþrungið að ekkert megi út af
bera svo að ekki fari allt í bál og
brand. •
Nýlega barði óður múgur tvo únga
bræður sundur og saman eftir að
þeir höfðu stolið þrem dollumm úr
búð í fátækrahverfi í Salvador.
Skömmu áður hafði 15 ára piltur á
bifhjóli verið barinn til dauða eftir
að hann ók á einhvern af slysni.
Ástandið er að vísu verst í Salvador,
en er ekki ósvipað í öðmm borgum.
Nýlega ók bflþjófur á stolna bflnum
á tré í Ríó de Janeiro. Fimmtíu
manna hópur viðstaddra batt þjóf-
inn við tré, lagði til hans með hníf-
um, hellti yfir hann bensíni og
kveikti í.
Tálsmaður mannréttindahópsins
„Nefnd um frið og réttlæti" segir að
ekki þurfi mikið til svo að réttlæta
megi lögleysuna, ekki þyrfti meira
til en úri væri stolið eða deila risi við
Dómstóll götunnar
hefurfellt úrskurö
sinn. Þessir menn
eru sagðir hafa ver-
iö viðriðnir eitur-
lyfladreifingu og
samborgarar þeirra
í Ríó de Janeiro út-
deila refsingunni.
granna. „Þetta fólk berst fyrir lífi
sínu og veit aldrei hvaðan næsta
máltíð kemur. Þegar ástandið er því-
líkt er kjúklingur eða nokkrir doll-
arar dýrmæti og litið á þjófnað á því
sem alvarlegan glæp.“
Aumur orðstír
dómstólanna
Fullnæging lögleysisdómanna sýn-
ir hversu algerlega fátæklingamir
hafa gefið upp alla von um opinbert
réttlæti. Aumur orðstír dómstól-
anna varð enn aumari nýlega þegar
upplýstist að dómarar og lögfræð-
ingar væru flæktir í margmilljón
dollara svindl í félagslega trygginga-
kerfinu.
Vonbrigðin vegna dómstólakerfis-
ins rista svo djúpt að í þrjú skipti á
þessu ári hefur skrfll kveikt í lög-
reglustöðvum á Salvador-svæðinu
og dregið þaðan út fanga til að hljóta
refsingu almennings.
Maria Upajareida er félagsfræðing-
ur sem lítur á almannarefsingar sem
vitnisburð um óánægju hinna fá-
tæku vegna vanhæfni yfirvalda til að
leysa vanda þeirra. Aukin áfengis-
neysla eykur líka á tilfinningahit-
ann.
Dómsmálaráðherra Brasilíu, Jarbas
Passarinho, segir réttlætisfullnæg-
ingu almennings auðmýkjandi fyrir
ríkisvaldið, en hann bætir við að
hans staða sé lík því að vera stillt
upp við vegg án þess að geta nokkuð
aðhafst.
Fjórir af fímm eftir-
lýstir glæpamenn
Það kemur sjaldan fyrir að lögregl-
unni takist að ná einhverjum úr
höndunum á ofstopahópunum, auk
þess að hún er of illa launuð og finn-
ur ekki hjá sér hvatningu til að ráð-
v.v*v*v. v.v.v.v % % %.
ast gegn 300 manna æstu liði. Auk
þess viðurkennir lögreglan að í fjór-
um tilfellum af fimm sé um eftir-
lýsta glæpamenn að ræða.
Tcilsmaður Amnesty International
skellir skuldinni á lögregluna fyrir
að skapa ofbeldisandrúmsloft. Hann
segir þá sem í hlut eiga vera vana
pyntingum lögreglunnar og mann-
drápum. „í þeirra augum er blóð al-
vanaleg sjón," segir hann.
Um leið og lögreglustjórinn í Sal-
vador flettir í gegnum skrá þar sem
skráð eru dráp á börnum, bankarán
og almannarefsingar, segir hann sitt
eina ráð til að stemma stigu við of-
beldinu væri að setja fleiri menn í
eftirlitsferðir. En lögreglumennirnir
auka frekar á ótta íbúanna en traust
til yfirvaldanna.
Þegar höfð voru viðtöl við götu-
böm nýlega kom fram að mörg
þeirra vildu verða lögreglumenn,
„svo að við getum rænt án þess að
lenda í fangelsi," var skýringin. Ný-
lega var lögreglustöð í Bahia lokað
eftir að í ljós kom að þaðan var
stjórnað einum stærsta bflaþjófa-
hópi Brasilíu. Stolnu bflarnir voru
geymdir á bflastæði lögreglunnar.
Lýðurinn hefur fyllst
hroka við að vera und-
anþeginn réttlætinu
En þó að lögreglan hafi ekki hrein-
an skjöld hefur undanþágan frá
réttlæti gefið lýðnum vissan hroka.
Kaupmaður einn sem spurður var
um almannadóma svaraði hryss-
ingslega: „Þetta er bara auga fýrir
auga.“ Hann rekur litla búð í ein-
hverju ofsafengnasta hverfinu og
játaði að hafa tekið þátt í fullnæg-
ingu almannadóms. Hann kallaði
það „sameiningaraðgerð samfélags-
ins“.
Ekki taka allir þessum aðgerðum
með sama jafnaðargeðinu. Maria er
móðir fimm barna. Hún segir:
„Þegar mér var sagt að einhver
hefði verið bundinn við kross og
barinn til bana, sögðu allir að hann
hefði átt það skilið vegna þess að
hann hefði drepið svo marga. En
innst inni fannst mér að það sé enn
rangt að taka líf annarra."
Myndi dauðarefsing
eitthvað bæta?
Almannadómsfullnægingar hafa
svo aftur á móti átt sinn þátt í því
að aftur er farið að ræða um að taka
upp dauðarefsingu. Nýjustu skoð-
anakannanir sýna að flestir eru
henni meðmæltir.
Dauðarefsing var tekin upp í Bras-
ilíu í upphafi tuttugu og eins árs
einræðisstjórnar hersins sem stóð
allt til ársins 1985. Andstæðingar
hennar og þeir sem börðust fyrir
mannréttindum sökuðu stjórnina
um að beita henni sem ógnun gegn
pólitískum andstæðingum.
Jafnvel rómversk-kaþólska kirkj-
an, sem heldur því fram að hún hafi
80% þjóðarinnar innan sinna vé-
banda, er klofin í afstöðu sinni til
dauðarefsingar. Á árlegum biskupa-
fundi tókst kirkjunnar mönnum
ekki að koma sér saman um áiykt-
un gegn dauðarefsingu vegna þess
að biskuparnir 305 í landinu reynd-
ust ósammála í afstöðu sinni.
Talsmaður Amnesty International
segir að fólk sé þegar farið að ræða
um það sín á milli, að ef ríkisvaldið
hafi rétt til að taka mannslíf, eigi
það líka þann rétt. Hann segir að ef
ríkisvaldið segi að dauðarefsing sé
lausnin, gefi það bara manndráp-
unum á götunum lögleiðingar-
stimpil.
■ •
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavík 7.-13. júnl er I Arbæjarapotoki og
Laugamesapóteki. Þaö apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi
til kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 2200 á
sunnudögum. Upplýsingar um læknls- og lyQa-
þjónustu eru gefnar I slma 18888.
Neyöarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíöum. Sím-
svari 681041.
Hafnarfjöröur Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek em opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyrf: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvi apótekl sem sór um þessa vörslu, til
W. 19.00. A helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakL Upplýsingar eru gefnar I
slma 22445.
Apótek Keflavfkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garöabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandna Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra, simi 28586.
íMBKnaVOKE
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Setfjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
A Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokað á
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tlmapant-
anir I sima 21230. Borgarspftalinn vaktfrá Id. 08-
17 alla virka daga fýrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sfmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúöir og læknaþjónustu erugefnar I sim-
svara 18888.
Ónæmisaögeiðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heflsuvemdarstöö Reyfqavikur á
þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Garöabær Heilsugæslustöðin Garðafiöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er i
síma 51100.
Hafharfjoröur: Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, simi 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suöumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræöistöðin: Ráðgjöf I sái-
fræðilegum efnum. Slmi 687075.
rahus
Landspitalinn: Alladaga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadefldfo: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar ki. 15-
16. Heimsóknartiml fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspítali Hríngsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunartækningadeild Landsprtalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspitali: Allavirka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Bamadelld 16-17. Heimsóknartimi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspitalinn f Fossvogl: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúöin Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga tl föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Neppsspftall: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgídögum. - Vrfilsstaðaspitall: Heimsóknar-
tími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL
Jóscpsspitaii Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30._______________________________
Sunnuhlið hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavfkurtæknishéraðs og heilsu-
gæslustöðvar Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Sími 14000. Keflavik-sjúkrahúsiö: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátlðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
bamadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl.
22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og ki. 19.00-19.30.
Reykjavik: SeHjamames: Lögreglan sími
611166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
HafnarQöröur. Lögreglan simi 51166, slökkviliö
og sjúkrabifreiö simi 51100.
Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vesfmanneyjan Lögreglan, simi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsiö simi
11955.
Akureyrí: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 22222.
fsaljöröur: Lögreglan sími 4222, slökkviliö simi
3300, bmnasimi og sjúkrabifreið sími.3333.