Tíminn - 26.06.1991, Qupperneq 5

Tíminn - 26.06.1991, Qupperneq 5
Miðvikudagur 26. júní 1991 Tíminn 5 Bnn allt óljóst um afdrif EES. Steingrímur Hermannsson: Heiöursmannasamkomulagiö heldur hvorki hér né Enginn árangur varð af fundi utanríkisráðherra EFTA-ríkjanna og embættismanna Evrópubandalagsins í Salzburg annar en sá, að samningsaðilar lýstu vilja sínum til að ljúka verkinu fyrír sumarfrí EB í ágúst. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að ef það takist ekki séu samningarnir í hættu. Sem fyrr eru fjögur atriði að vefjast fyrir mönnum: Fríverslun með fisk, vöruflutningar um Alpana, þróunar- sjóðurinn og sá tími sem EFTA-ríkin vilja fá til að laga sig að ýmsum regl- um EB um frjálst streymi fólks og fjármagns. Þau eru mismikilvæg, en ágreiningur um þó ekki væri nema eitt þeirra gæti orðið til að upp úr slitnaði. Þó íslendingar hafi nú þegar fallið frá því skilyrði sínu að EB láti af ríkis- styrkjum í sjávarútvegi, skiptir það, sem eftir er af fríverslun með fisk, þá öllu. Án hennar hafa íslendingar ekk- ert á Evrópska efnahagssvæðið aö gera. Skiljanlega vöktu frásagnir ís- lenskra ráðherra af Lúxemborgar- fundinum því miklar vonir með landsmönnum. Þær voru hins vegar ekki í samræmi við frásagnir EB- manna. í þeirra augum er tilboð Norðmanna og íslendinga um gagn- kvæmar veiðiheimildir fyrir fríverslun með fisk ekki grundvöllur samninga. Eftir fundinn í gær sagði Jacques Po- os, utanríkisráðherra Lúxemborgar, að enn væri með öllu ósamið um fisk. EFTA-ríkin Sviss og Austurríki tak- marka umferð vöruflutningabifreiða um Alpana til þess að draga úr meng- un. EB-ríkin, sem vitaskuld eiga mik- ið undir þessum flutningum, vilja að þessar takmarkanir verði afnumdar, eða hið a.m.k. rýmkaðar mjög. Um þetta náðist ekkert samkomulag í Lúxemborg og þá lýstu samninga- menn EB því yfír að þetta væri úrslita- atriði. Enn hefur því ekkert orðið til að auka mönnum bjartsýni um að saman kunni að ganga í þessu efni. Þróunarsjóðurinn er til þess hugsað- ur að styrkja fatækari héruð EB-ríkja í komandi samkeppni þeirra við hin ríku EFTA-lönd. Enn hefur ekki náðst samkomulag um hvert skuli vera framlag EFTA-ríkjanna. Spánn og Portúgal leggja skiljanlega mikla áherslu á að það verði nógu mikið. EFTA-ríkin eru treg. í því felst vita- skuld nokkur mótsögn ef ríkisstjóm íslands leggur fram almannafé til að styrkja byggð á Spáni, um leið og hún fordæmir slíka stjómarhætti og „af- skiptasemi" af atvinnulífinu, á eigin landsbyggð. Hið Evrópska efnahagssvæði verður einn sameiginlegur markaður. Um hann skal m.a. fólk og fjármagn fá að streyma óhindrað. Það gengur víða í berhögg við landslög. M.a. íslensk. Þau banna útlendingum að setjast hér að og stunda vinnu nema að uppfyllt- um ströngum skilyrðum. Þau leggja og hömlur á hversu stóra hluti út- lendingar mega eiga í innlendum fyr- irtækjum. EFTA-ríkin vilja tíma til að laga sig að frelsinu. Sum þeirra vilja og setja fyrirvara um frelsið og reyna aðeins að hefta það. íslendingar vilja þannig ekki að útlendingar geti með því að kaupa upp íslensk útgerðarfyr- irtæki laumað sér bakdyramegin inn í landhelgina. Með slíkum fyrirvara er þó gengið þvert á meginmarkmið samninganna um Evrópska efnahags- svæðið. Eftir Lúxemborgarfundinn í síðustu viku stefndu menn að því að undirrita pólitíska viljayfirlýsingu í Salzburg í gær. Af því varð ekki. Menn em sam- mála um það eitt að reyna að ná samningum. Samningamir um Evr- ópska eftiahagssvæðið em enn og aft- ur komnir í hnúL Tíminn leitaði álits nokkurra stjóm- málamanna á tíðindunum. Stein- grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir: „Þetta virðist ætla að verða erfitt Það virðist ekki ætla að halda þar heiðursmanna- samkomulagið, fremur en hjá sumum hér heima. Almennt þá fannst mér skipti á veiðiheimildum koma til greina með því að vandlega hefði ver- ið útfært hvemig við íslendingar ætt- um að fylgjast með veiðum erlendra skipa. Það hefur reynst mjög erfitt, t.d. á Grænlandsmiðum og í Kanada. í annan stað sýnist mér alveg ófrá- gengið með fyrirvarana á fólksflutn- ingum og vinnuleyfum. Þá sýnist mér enn ótryggt að við getum haldið þess- um 350 milljón Evrópubúum ffá því að kaupa upp landið okkar. Það var alltaf talað um það í síðustu ríkis- stjóm að um það yrðu sett sérstök ákvæði, sem kæmu í veg fyrir slíkt. En ég sé ekkert þvílíkt nú. Að þessu tryggðu og svo hinu að ekki yrði um að ræða einhliða veiðiheimildir EB, eða að það kæmist bakdyramegin inn í landhelgina, höfum við framsóknar- menn verið þeirrar skoðunar að ís- lendingar ættu að semja um og vera aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. En mér sýnist ýmsum af þessum íslendingum, sem sækja vilja um aðild að Evrópubandalaginu, hefur fækkað stórum síðan í fyrra. Að- eins um fjórðungur þjóðarinnar (26%) telur nú æskilegt að íslend- ingar sæki um aðild að Evrópu- bandalaginu. Þrátt fyrir það telur stór meiríhluti (um 61%) að ís- lendingar verði orðnir aðilar að bandalaginu innan níu ára, þ.e. fyr- ir áríð 2000. Þetta er meðal athyglisverðustu niðurstaðna úr umfangsmikilli könnun um afstöðu íslendinga til Evrópubandalagsins, sem Félags- vísindastofnun hefur nú gert í 5. sinn á rúmlega tveim árum. í öllum þessum könnunum hafa landsmenn verið spurðir: „Telur þú æskilegt eða óæskilegt að ísland sæki um aðild að Evrópu- bandalaginu?" Segja má að svörin hafi algerlega snúist við. í könnun- um í febrúar og maí í fyrra töldu um og yfir 40% umsókn æskilega en 22-24% voru á móti. Nú telja aðeins 26% umsókn æskilega, en 45% frekar/mjög óæskilega. Um þriðj- ungur spurðra hverju sinni segist hlutlaus eða óviss. spumingum nú ósvarað og reyndar eins og horfið hafi verið frá fyrri fyrir- vörum. Almennur fyrirvari um fjár- festingar útlendinga kemur ekki í stað vandlega útfærðs ákvæðis. Enn er því ansi margt óljóst og frekar byggt á óskhyggju heldur en raunveruleikan- um. Annað er það, sem við íslendingar verðum að fára að huga að. Nú eru þær raddir orðnar ansi háværar að gera EB að ríkjasamsteypu, jafnvel bandaríkjum Evrópu. Þá vakna ýmsar spumingar um stöðu okkar. Ég held við verðum þá að gæta okkar ansi vel að sogast ekki inn í slíka ríkjasam- steypu, sem ég held að flestir líti á sem yfirtöku Þjóðveija, kannski fyrst og fremsL og Frakka og Breta á Evrópu. Auk þess vil ég taka undir það, sem Sigmundur Guðbjamason rektor hef- ur sagt hvað oftast, að sagan sýnir að slík ríkjasamtök standa ekki lengi og þá sitja margir eftir með sárt ennið. Ég tel því að við eigum að fara mjög „Telurðu að íslendingar verði orðnir aðilar að Evrópubandalaginu um aldamótin 2000, þ.e. eftir 9 ár?“ Athyglisvert er að aðeins 18% þeirra, sem afstöðu taka, svara þess- ari spurningu neitandi. Rúmlega helmingur úrtaksins, og um 61% þeirra sem svöruöu, kvað hins vegar „já“ við spurningunni og um 18% svöruðu „hugsanlega". Enda kemur í ljós, þegar nánar er spurt, að hátt í helmingur þeirra, sem telja um- sókn óæskilega, telur íslendinga samt verða komna í Evrópubanda- lagið fyrir aldamót. Það sama á við um stóran meirihluta þeirra hlut- lausu. Og þótt aðeins 17% kvenn- anna telji æskilegt að sækja um að- ild, álíta 63% þeirra eigi að síður að ísland verði orðið Evrópubanda- lagsland fyrir aldamótin. Mjög mik- ill munur kemur fram á afstöðu fólks til Evrópubandalagins eftir því hvaða stjórnmálaflokka það styður. Aðeins 14-18% stuðningsmanna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja eru hlynntir umsókn, en 60-62% eru á móti. Þeir stuðningsmenn stjórnarflokkanna, sem afstöðu taka, skiptast hins vegar nokkuð þar varlega í þetta og að því miður hafi hlutimir ekkert skýrst síðustu vikum- ar.“ Kristín Einarsdóttir hjá Kvennalist- anum segir: „Þetta er í fullu samræmi við það sem hingað til hefur gersL Það er stöðugt undanhald af hálfu ís- lenskra stjómvalda, og hefur verið ffá upphafi. Það sýnir sig betur en áður að við eigum við að etja sterkan aðila, sem ætlar ekkert að gefá eftir. Síðustu atburðir þurfa því ekki að koma á óvart. Ég var reyndar aldrei ánægð með útspil okkar á fundinum í Lúx- emborg 19. júní, að hleypa EB-þjóð- unum inn í landhelgina. Annars hefur Kvennalistinn lengi verið þeirrar skoðunar að við ættum að draga okk- ur út úr þessum viðræðum. Það kem- ur æ betur í ljós að aðild að EES er skref inn í EB. Þessi ríkisstjóm ætlar þangað hugsunarlausL án fyrirvara. Mér þótti fyrri ríkisstjóm ekki standa sig vel. Þessi stendur sig enn verr.“ -aá. jafnt með (38-40%) og á móti (32- 38%). Milli 20% og 30% í hverjum flokki eru hlutlausir, flestir í Sjálf- stæðisflokki og utan flokka. Áberandi munur er einnig milli kynja. Aðeins 17% kvenna telja um- sókn æskilega, en 34% karla. Fleiri konur en karlar eru óvissar/hlut- lausar, en í kringum 45% beggja hópa eru á móti umsókn. Stuðning- ur við bandalagið er einnig talsvert minni á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu og meðal eldra fólks en hinna yngri. í þessari nýjustu könnun var fólk einnig, í fyrsta sinn, spurt hvort það teldi umsókn æskilega ef tryggt væri að íslendingar héldu fullu for- ræði yfir fiskimiðunum við landið. Með þeirri tryggingu snúast við hlutföll þeirra sem eru með og á móti. Hlutfall þeirra, sem telja mjög/frekar æskilegt að sækja um aðild að Evrópubandalaginu, hækk- ar þá í 51% af öllu úrtakinu og í 55% sem svara. En þeim, er telja umsókn óæskilega, fækkar í 27% svarenda. Um sjötti hluti tekur ekki afstöðu, en um 6% vildu ekki svara. - HEI Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins, afhendir Guðmundi Ingimarssyni forstöðumanni iyklana að Hyrnu. AMOR YFIRBUGAÐUR íslendingar vilja ekki ganga í EB, en búast við að lenda þar samt: Almenningsálitið að snúast gegn EB Ný þjónustumiðstöð opnuð: Hyrna í Borgarnesi „Hyma“, þjónustumiðstöð við Brú- artorg í Borgamesi, var opnuð föstudaginn 21. júní. Hyma er í eigu Kaupfélags Borgfírðinga og Olíufélagsins. í Hyrnunni er matvöru- og ferða- mannaverslun, veitingasala, sölu- turn, ESSO-bensínstöð ásamt versl- un með bflavörur, upplýsingaþjón- usta fyrir ferðamenn, góð snyrtiað- staða og rúmgóð bílastæði. Þá verður sparisjóður Mýrasýslu með afgreiðslu í húsinu. Mikill mannfjöldi var samankom- inn við opnunina í góðu veðri. Þórir Páll Guðjónsson kaupfélagsstjóri flutti ávarp. Vilhjálmur Jónsson, for- stjóri Olíufélagsins, opnaði þjón- ustumiðstöðina formlega og afhenti Guðmundi Ingimarssyni, forstöðu- manni Hyrnu, lykla að henni. Lúðrasveit Akraness lék nokkur lög, karlakórinn Söngbræður tók lagið og hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar hélt útitónleika við Hyrnu. Þá var yngri kynslóðinni boðið á hest- bak og fleira. -SIS MEÐ LÖGREGLUVALDI „Konan kvartaði undan honum og ég var kallaður á tjaldstæðið hér, þar sem þau vom. Konan sagði að hann hefði fylgt sér alveg síðan þau komu til landsins með Norrænu og nú vildi hún alls ekki búa við þetta ástand Iengur,“ sagði Reynir Ragn- arsson, yfíriögregluþjónn í Vík í Mýrdal, aðspurður um sérkennileg kynni svissneskrar konu og ítalsks manns, sem hafa veríð að ferðast um landið að undanfömu. Hinn blóðheiti ítali og svissneska konan hittust um borð í Norrænu þar sem þau voru bæði ein síns liðs, og virðist sem ítalinn hafi látið heillast af hinni svissnesku alparós. Eftir að komið var í land veitti hann konunni samfylgd sína norður með landinu allt til Víkur í Mýrdal. Þá sá konan sig tilneydda að kvarta við lögreglu undan yfirgengilegri ást mannsins á sér. Lögreglan reyndi síðan að bjarga konunni á þann hátt að taka hana úr rútunni frá Vík til Seyðisfjarðar í grennd við Skaftafell í þeirri von að maðurinn yrði við- skila við hana. Konan fór til baka á tjaldstæðið í Vík þar sem hún ákvað að vera einum degi lengur, áður en hún héldi austur til að ná Norrænu. Á mánudagsmorgun var maðurinn hins vegar kominn aftur til Víkur og sat fyrir utan tjaldið hennar. Að sögn Reynis var að svo komnu máli reynt að tala um fyrir mannin- um, en hann tók engum sönsum. Að ráði útlendingaeftirlitsins var hann því fluttur og „þeir reyndu að tefja fyrir honum þar til konan var komin um borð í Norrænu," segir Reynir. ................... GS.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.