Tíminn - 26.06.1991, Síða 6

Tíminn - 26.06.1991, Síða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 26. júní 1991 er hdst ad ncfna FílajJ faknakra virkur í fkikksstarfi í Reykjanes- kjördæmi, boðar í DV f gaer a6 hann tnuni skriÉ* greinaflolck t þaú blað um samninga EFTA og EB um stofnun evrópsks efnahags- svæðis. ti8r stárkaupmanna, sem iöngum sem önnur Fyrirvarar ar gangi í evrópsl® dnahagssvæötó EngÍlWl SÍgUr Unnítin með þelm skilmálum sem bjóöast í Hér á Jandi hefur nú og oitast áöur því efnL Hann heldur því fram aö nú veriö mest talaö um fyrirs'ara ísknd- þegar hafi verið faUið frá þeim fyrir- inga um stefnuna f fiskveiðimálum \tirum sem Steingrímur Hermanns- og fisksöiuraáhim. Jafnwl í þeira son benti á í ræðu á Iciðtogafuniíi málum er allt í ðvissu, eins og nýjar EFTA í Óstó 15. mars 1989 ura fréttir frá Lúxemborg bera vítai ura, fjörfrelsið og fuOvddið ognúsl ver~ þrátt ferir dæmalausar skruroyfir- virða þessa tyrirvara. vert um málflutning Siguróar að hann segir að þetta ffáhvarf ffá fyr- sonarhafi veriö gert með samþykki uröar Helgasonar er furðulegt að hans fStetogriras), en í andstöðu hann skuli wyna að þvo af Srfálf- við Sjáifstæðisftótónmi. Nokkuð er stæðisflokknura og forystu hans hér máluro biandið. Hvergi hefnr vfljann til þess að tengjast Evrópu- komið fram nein yfiriýsing uro það bandalaginu og inngöngu f Evr- hann hafi faflið ffá feróvönun sm- son hafM ffumfc^ði að þ^ í alda- um, enda iiggur enginn samningur mótanefhd fiokfcsins að Sjálfstæðis- tyrir í heild sem hcegt er að tala af- flokkurinn vifcli eldn útílofca aðild að stöðu tíL Það sem fyrir Kggur eru EB. ValdaÖfi í Sjálfstæðisfloldmum ýmsar hugmyndir að samnings- hafa verið helstu hvatamenn inn- drögum á iausum blöðum, en engin göngu í EB og krefjast ákafast af öll- hciid sera tetón hefur verið afstaða um að hvert það spor verói stígið tfl. $em færir okkur nær þvf marki. Þar flokksforystunnar tógu um að teknir yrðu upp tvíhliða samuingar við EB á sinni tíð, viröist sú tifiaga hefur reynst sýodar- óim halda áfram á sömu braut, þótt einmht mætti telja að rótta augna- IJavíd frumkvööull og aðrm *em era sama sinms og hann í flokknum, að belna skeytum smtnn að flokksforystunni, minna hana á sín eigin orð. Raunar efiur Cani etód að Siguróur Helgason floktónn sem hann hefur rótt bvrjað a, Við sjáum hvað setur. Garri Heiöursmenn án túlka Ráðherrafjöld var samankomin í Luxemburg í síöustu viku á sameig- inlegum fúndi Evrópubandalagsins og Efnahagsbandalags Evrópu og sóttu nokkrir ráðherrar úr hverri ríkisstjóm fundina ásamt ambassa- dorum og aragrúa annarra embætt- ismanna. Mikið var látið af mikilvægi fúndar- ins áður en hann var haldinn, á með- an á honum stóð og ekki síst að hon- um afloknum. Var þetta hinn merk- asti fúndur og afgerandi um framtíð Evrópu í bráð og lengd. Sérstaklega unnu íslendingar mikinn sigur á fúndinum, þar sem gengið var að öll- um kröfum þeirra um friverslun með fisk í ríkjum Evrópubandalagsins án þess að þeir þyrftu að láta neitt í stað- inn nema gagnkvæmar veiðiheimild- ir. Norðmenn tóku að sér að leyfa Spánverjum að fiska við Svalbarða og í staðinn fengu íslendingar vilyrði um að fa að veiða loðnu í grænlenskri landhelgi. Betri kaup gerast ekki á eyri alþjóðlegrar samvinnu. Þetta eru að minnsta kosti fréttim- ar sem sagðar vom og em sagðar af fundi ráðherragengisins í Luxem- burg. Veiðíheimildir og niðurgreiðslur Brátt tóku aðrar og öðm vísi fréttir að berast af fundi ráðherranna um evrópska efnahagssvæöið. Ýmsir þeirra, sem þátt tóku í fundinum, kannast ekkert við það samkomulag sem íslensku ráðherramir segja að hafi náðst um veiðar Spánverja við Svalbarða og veiðileyfi íslendinga við Grænland. Margir erlendu ráðherr- anna og embættismannanna kann- ast meira að segja ekkert við að gert hafi verið neitt samkomulag um gagnkvæmar veiðiheimildir, frekar en að Jón Baldvin kannist við að fara að láta íslenska ríkissjóðinn fara að greiða niður óseljanlegar landbúnað- arafurðir bændakarla í Suður-Evr- ópu. Enginn vill heldur kannast við að veita eigi eiturspúandi 50 tonna tmkkum leyfi ti! að andskotast yfir Jón Baldvin og Davíð Alpa Sviss og Austumkis, eins og Þjóðverjar og ítalir héldu að þeir væm búnir að fá vilyrði íyrir. En það em gagnkvæmu veiðiheim- ildimar sem varða íslendinga og er heldur bagalegt að hafa enga hug- mynd um hvemig þau mál standa. Ríkisstjómir, embættismenn og fjölmiðlar landanna í EFTA og EB túlka samningana á mismunandi vegu og á fundi, sem halda á í Strass- burg í þessari viku, á að halda áfram viðræðum um niðurstöður sem alls ekki liggur fyrir hverjar em. Ekkert stenst Jón okkar Baldvin er viss í sinni sök einsog fyrri daginn og segir hiklaust að gert hafi verið heiðursmannasam- komulag milli ráðherranna um gagnkvæmu veiðiheimildimar og það standi. Það heiðursmannasamkomulag virðist álíka mikils virði og það sem gert var í Viðey og var úr sögunni þegar lent var í Vatnagörðum. Allt er á huldu um þetta heiðurs- mannasamkomulag yfirleitt og einu tveir mennimir í 21 ríki, sem túlka það á sama veg, em Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð Oddsson. Ekkert var sett á blað um sam- komulagið og engu var handsalað. Virðist þetta því eingöngu vera sam- kvæmishjal heiðursmanna, sem hver túlkar eftir sínu nefi og misskil- ur eftir hentugleikum. Ekki er rétt að segja að orðræðum- ar á ráðherrafundinum í Luxemburg hafi verið mistúlkaðar, því þær voru alls ekki túlkaðar. Svo vildi nefnilega til að þá vikuna, sem fúndurinn var haldinn, voru túlkar Evrópubandalagsins í verkfalli. Sem endranær var talað tungum á svo alþjóðlegri samkomu sem sam- eiginlegur ráðherrafundur Evrópu- bandalagsins og Fríverslunarbanda- lags Evrópu er. Ekki skal málakunn- átta ráðherranna dregin í efa og fæmi þeirra til að yfirfaera hin flóknustu milliríkjamál og tækniorðaforða at- vinnuveganna og að skilja hver annan er hafin yfir allar gmnsemdir. En heiðursmannasamkomulag, sem gert er við svona aðstæður, kann að bjóða smáræðismisskilningi heim, eins og Ld. þeim hvort einhliða aðgangur Spánverja og annarra fiskislóðalausra útgerðarþjóða að íslandsmiðum sé nokkum verginn hið sama og gagn- kvæmar veiðiheimildir við Svalbarða með sérákvæðum um rétt þriðja ríkis til veiða í grænlenskri lögsögu. Á svipuðum nótum kann heiðurs- mannasamkomulagið um sfyrkja- kerfið að vera. Samkvæmt lauslega þýddum misskilningi er það eitthvað á þá lund, að íslendingar aðstoða bændur í Suður-Evrópu með niður- greiðslum til framleiðslu sinnar. Samtímis verður íslenskum ylrækt- arbænmdum settur stóllinn fyrir dymar, til að auðvelda innflutning á niðurgreiddum landbúnaðarvörum fra Suður-Evrópu. Sagt er að almenningur viti Iftið um samninga EB og EES og hafi lítinn áhuga á að fræðast um hvað úr öllu þessu er að verða. Vel má það rétt vera. En að ráðherrar, embættismenn og fjölmiðlafólk skuli vera jafnvel enn verr að sér um hvað verið er að semja, varðandi framtíðarstöðu íslands og Evrópu allrar, er forkastanlegt Þá kröfu verður að gera til heiðurs- manna, sem sækja málþing í útlönd- um, að þeir greini á milli hvað er kurteisishjal og hvað samningar. OÓ Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin f Reykjavlk Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason SkrifstofurrLyngháls 9,110 Reykjavlk. Síml: 686300. Auglýslngasíml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð i lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Lúxemborgarklúðrið Nú er komið í ljós sem vita mátti, að fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar og Davíðs Oddssonar um að Lúxemborgarfundurinn 18.-19. þ.m. haft skil- að íslendingum árangri, voru blekkingar. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sögðu á mið- vikudagsmorgun fyrir viku (19. júní) að kraftaverk hefði verið unnið á næturfundi ráðherra EB og EFTA um aðgengilega lausn á deilunni um fiskveiðimál í samningum um myndun Evrópsks efnahagssvæðis. í forystugrein Tímans var sagt af því tilefni á fimmtu- daginn var, að kraftaverkatrú í milliríkjasamningum væri ekkert nema skynvilla, þessi næturverk van- svefta ráðherra væru nýjar blekkingar um framvindu þessara mála. Fundur sá, sem EFTA-ráðherrar boðuðu til nú í byrjun vikunnar og stendur enn þegar þetta er ritað, staðfestir það sem Tíminn hefur sagt um málið, að niðurstaða fundarins 19. júní var tóm blekking. í þessu samningsþófi hefur hvorki miðað aftur né fram. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hefur raun- ar dregið úr fullyrðingum um árangur og benti strax á að ekkert skriflegt samkomulag lægi fyrir um eitt eða neitt af því sem átti að heita samkomulag. Þessi yfirlýsing sjávarútvegsráðherra hefði átt að vera stjórnvöldum, hagsmunasamtökum og fjölmiðl- um á íslandi viðvörun um að taka fullyrðingum Dav- íðs Oddssonar með meiri varúð en reyndin hefur orð- ið. Eins og minnast má átti lykill að lausn deilunnar (samkvæmt „heiðursmannasamkomulagi" nætur- fundarins í Lúxemborg í fyrri viku) að liggja í því að íslendingar færu að semja um veiðiheimildir fyrir Evrópubandalagsþjóðir í íslenskri landhelgi eftir formúlu þeirri sem kallast „gagnkvæmar veiðiheim- ildir“. Auk þess ætluðu Norðmenn að ástunda ein- hvers konar kvótavíxl hjá sér og hafa sem smurningu á þessa nýju sókn útlendinga á íslensk fiskimið. Svo fáránleg sem kraftaverkatrúin í Lúxemborg var í sjálfri sér var þó ekki síður furðulegt hvernig við- brögðin urðu hér heima á íslandi, þegar ströngustu afneitarar gagnkvæmra veiðiheimilda í hópi útgerð- armanna og stjórnmálamanna voru farnir að mæla með því að hleypa Spánverjum inn í landhelgina í skjóli hugmyndar, sem löngu er orðin úrelt sem við- ræðuefni og menn vita nú að yrði aðeins til að opna möguleika útlendinga til að stunda veiðiþjófnað, sem engar skráðar reglur geta komið í veg fyrir og ekkert veiðieftirlit fær ráðið við. Samningaþófið um Evrópska efnahagssvæðið er orðið að þráhyggju sem strandað hefur í klúðri og kraftaverkatrú sem á ekkert skylt við diplómatískt og pólitískt raunsæi. Tímabært er að Alþingi verði kallað saman til þess að ríkisstjórnin verði krafin svara um stöðu þessara mála í heild. Lúxemborgarklúðrið er mál út af fyrir sig. Þing og þjóð þarf að fá heildar- mynd af samningsstöðunni og þeim skyldum og kvöðum sem aukaaðild að Evrópubandalaginu felur í sér, hvernig svo sem semst um fiskveiðimálin. í-r.r.r.T.T.r.r.Y r.r.r v t v v \ v t v v v v v v.v.v.v.’vr. .v

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.