Tíminn - 26.06.1991, Page 7

Tíminn - 26.06.1991, Page 7
Miðvikudagur 26. júní 1991 Tíminn 7 VETTVANGUR Ragnar Danielsen: Greining hjartasjúk- dóma með hjartaómun Hjartaómun er rannsóknaraðferð sem einkum hefur verið þróuð undanfarin 15 ár til greiningar og mats á ýmsum hjartasjúkdóm- um. Rannsóknaraðferðin byggir á bergmálstækni þar sem sendar eru hátíðnihljóðbylgjur inn til hjartans frá svokölluðum ómbreyti sem venjulega er settur á brjóstvegg sjúklingsins. Hljóðbylgjumar endurkastast frá hjartanu og eru numdar af ómbreytinum. Með að- stoð kröftugs tölvubúnaðar er síðan sköpuð ómmynd af útlitsgerð hjartans í tvfvídd sem sjá má á sjónvarpsskermi. í grundvallarat- riðum er um að ræða sams konar bergmálstækni og sjómenn nota í fiskileitartækjum. Með sérstakri ómtækni, Doppler- aðferð, er auk þess hægt að meta blóðflæði um hjartað. Doppler- ómun hefur þróast ört frá því að vera einfaldar hraðamælingar á blóðflæði um hjartað yfir í lita-ómun þar sem allt blóðstreymi um hjartahólf og lokur er kortlagt í litum. Notkunarsvið hjartaómunar Kransæðasjúkdómur og afleiðing hans er algengasti hjartasjúkdómur- inn í vestrænum þjóðfélögum í dag. Við bráða kransæðastíflu verður skemmd á hjartavöðvanum í mis- munandi mæli. Með tvívíddarhjarta- ómun er nákvæmlega hægt að stað- setja og meta útbreiðslu skemmdar- innar á hjartavöðvanum og hvemig hjartað starfer í kjölfar hjartaáfalls- ins. Kransæðamyndataka með skuggaefhisinndælingu í kransæðar er hins vegar nauðsynleg til að stað- setja þrengsli eða lokun á kransæð- um eða jafnvel opna lokaða æö. í öðrum tilfellum er kransæðaaðgerð besta lausnin. Hjartaómun er ein- föld og skjót aðferð til þess að meta árangur fyrir og eftir slík inngrip á starfsemi hjartavöðvans. Til að meta lokusjúkdóma þurfti áður yfirleitt að gera hjartaþræð- ingu. Hjartaómun hefur stórlega fækkað eða einfaldað slíkar þræð- ingar og oft gert þær ónauðsynlegar. í mörgum tilfellum er hjartaómun nú talin nákvæmari og betri aðferð til þess að meta flókna lokugalla og afleiðingar þeirra á starfsemi hjart- ans. Stundum geta sýkingar lagst á hjartalokur og skemmt þær. Hjarta- ómun er besta aðferðin sem völ er á til greiningar slíks ástands. Það sama gildir um flesta meðfædda hjartasjúkdóma, þar gefur hjarta- þræðing í dag sjaldnast viðbótarupp- lýsingar við góða rannsókn meó hjartaómun. Kosturinn við hjartaómun er að hægt að framkvæma hana í skyndi, jafnvel við rúmstokk sjúklings, þeg- ar upp koma bráð vandamál, td. meðan á hjartaaðgerð stendur eða eftir á. Er þá með skjótum hætti hægt að meta sjúkdómsástand og gera viðeigandi ráðstafanir. Sjúkdómar í hjarta eru oft undir- liggjandi orsök heilaáfalla, sem í versta falli geta leitt til lamana eða dauða sjúklings. Við ýmsa hjarta- sjúkdóma geta myndast segar í hjartanu. Hlutar þeirra geta losnað og rekið með blóðstraumnum til heila eða annarra líffæra og þannig valdið skaða. Með hjartaómun er í mörgum tilfellum hægt að greina slíka undirliggjandi sjúkdóma og mæla með viðeigandi meðferð. Nýjungar í hjartaómun Hjá sumum sjúklingum með lang- vinna lungnasjúkdóma, ofifitu, eða aðra aflögun á brjóstvegg getur verið erfitt að S góða ómmynd af hjartanu gegnum brjóstvegginn. Um miðjan 7. áratuginn var farið að þróa hjaita- ómunaraðferð þar sem ómbreytirinn var setur niður í vélindað á útbúnaði er líkist umbreyttu magaspeglunar- tæki. Ómbreytirinn liggur þá þétt að hjartanu aftanverðu og má í flestum tilfella fé óvenju skýrar myndir. Að- ferðin opnaði annan glugga að hjart- anu og bætti stórlega möguleika á greiningu ýmissa hjartasjúkdóma. Vélindislæg hjartaómun er einnig L'.ctuð við stórar aðgerðir til þess að meta starfsemi hjartans og td. við flóknar aðgerðir á hjartalokum. Er þannig hægt að meta árangur að- gerðar áður en brjóstholi er lokað og getur það í ýmsum tilfellum sparað enduraðgerð. Með vélindislægri ómun má einnig, með því að snúa ómbreytinum í vélinda 180 gráður, skoða ósæðina, stærstu slagæð lík- amans aftanvert í brjóstholinu og greina sjúkdóma í æðinni. Þótt hjartaómun sé yfirleitt fram- kvæmd í hvíld er einnig mögulegt að meta starfsemi hjartans undir álagi með þessari aðferð. Hægt er að auka álag á hjartað með því að láta sjúkling erfiða, með gjöf lyfja er örva starfsemi hjartavöðvans, eða með raförvun. Hafa rannsóknir síðustu ára leitt í ljós að álagshjartaómun er í vissum tilfellum nákvæmari aðferð til að greina þrengsli í kransæðum en hefðbundin álagshjartarit Hjartaómun á Landspítalanum Hjartaómanir á Landspítalanum Landssamtök hjartasjúklinga efna nú til happdrættis í fýrsta skipti og er ætlunin að stuðla að kaupum á hjartaómsjá fyrir hjartadeild Land- spítalans. - Hér á myndinni er hjartaómtæki af nýjustu gerð. hófúst þegar 1979 með tilkomu tæk- is þar sem hægt var að fa einföld hreyfiómrit Vegna örrar þróunar gáfu Landssamtök hjartasjúklinga hjartadeildinni nýtt hjartaómunar- tæki 1983 er gaf möguleika á tví- víddarhjartaómun og vissum hraða- mælingum í hjarta með Doppler- ómun. Var það gott tæki á sínum tíma, en vegna örrar tækniþróunar stenst það ekki nútímakröfur; hefur það til að mynda ekki möguleika á litaómun. Notkun hjartaómunar á hjartadeild Landspítalans hefúr farið hratt vaxandi. Gerðar voru um 200 rannsóknir fyrstu 2 árin, en á síðasta ári var rannsóknafjöldi um 1500 og stefnir í um 2000 á þessu ári. Ljóst er að núverandi tækjakostur spítalans stendur ekki undir slíkum rann- sóknafjölda né þeim gæðakröfum sem gerðar eru til hjartaómunar í dag. Benda má á, að með tilkomu hjartaskurðlækninga á Landspítal- anum hafa kröfur til hjartarann- sókna með ómtækni aukist enn frekar. Auk þess hefur fjöldi þeirra sjúklinga, er gengist hafa undir hjartaaðgerð vegna kransæða- þrengsla, hjartalokusjúkdóms eða meðfæddra hjartagalla, aukist með árunum. Margir þessara sjúklinga þarfnast reglulegs eftirlits þar sem hjartaómun er mikilvægt hjálpar- tekl Lokaorð Þegar er ljóst að þörf er á nýju tæki til hjartadeildar Landspítalans svo hún standi undir auknum kröfum um þjónustu á sviði hjartaómunar, en deildin hefur verið vanbúin til þess undanfarið. Þarf átak til að bæta úr því ef Landspítalinn á ekki að dragast aftur úr þróuninni. Nýju tæki þarf jafnframt að fylgja búnað- ur til vélindislægrar hjartaómunar. Eingöngu með því að fylgjast með í tækniþróun á sviði hjartaómunar getur hjartadeild Landspítalans tek- ist á við verkefni framtíðarinnar í hjartalækningum. Höfundur er sérfrœðingur í almennum lyflœkningum og hjartasjúkdómum og starfar á fyartadeild Landspítalans. Gylfi Guðjónsson: Hrafna-Flóki Mér er til efs að þeir frumbyggjar, sem komu til íslands í öndverðu, hafi átt von á að hömlur yrðu sett- ar upp gagnvart öflun hvals, fisks og fugls. Það hefði enginn tekið sér bólfestu á eyjunni, hefði sú staða komið upp. Þannig hagar málum í dag að íbú- ar þessa lands eru undir hæl sömu örlaga og knúðu forfeður okkar til að flýja ofríki í sínum heimahéruð- um. Ef svo heldur áfram, legg ég til að allt fólk á íslandi verði flutt brott og yfir til Jótlands. Slík tillaga kom upp vegna örbirgðar íslend- inga og ég endurflyt hana hér með til öryggis barnabarna minna. Ég hefi ekki í huga að deyja hérna með allt í kaldakoli og óvissu með mína afkomendur. Flóki h.f. á Brjánslæk á Barða- strönd var stöndugt fyrirtæki á sínum tíma og veitti fjölda fólks vinnu. Hrefnan var veidd og seld út í heim. Hrefnuleyfinu var kippt af stöðinni og þar með afkomu fólksins. Unninn var skelfiskur og farið var í rækju. Nú er hún verðlaus. Þjóð- félagið skuldar öllu því fólki, sem vann að hrefnuvinnslu um landið, stórfé í dag. Ég legg til að þráskákin verði rof- in. í ísafjarðarhöfn verður hrefnu- veiðiskipið Halldór Sigurðsson mannað vönum hvalveiðimönn- um, byssa fægð og skutull, skyttan sett í starf sitt á ný. Sýslumanni ísafjarðarsýslu tilkynnt um áhöfn og ferðir skipsins. Sýslumanni Barðastrandarsýslu tilkynnt um komu skipsins á Breiðafjörð. Skipið er tekið úr dragnótarveiði og missir afla. Eg ákalla sjávarútvegsfýrirtæki um allt ísland til að bæta skipi og útgerð þess tapið. Ég kalla til fólks um allt ísland til að leggja fram Iitlar upphæðir í laun fyrir áhöfn og fjölskyldur þeirra. Útgerð hrefnuveiðibátsins setur honum ekki mark í upphafi. Hann siglir af stað á hrefnumiðin fullbú- inn í könnunarleiðangur. TVúlega verður ekki leyft að fréttamenn komi í skipið, en þá hafa þeir aðgang að Landhelgis- gæslunni og öðrum farartækjum í lofti og legi. Óheimilt er að taka Halldór Sig- urðsson meðan hann lónar um Breiðafjörðinn. Skyndilega tekur skipstjórinn ákvörðun um að hrefna verði skot- in. Skyttan fer á byssuna í stafni skipsins og skutullinn fer út. Hrefnan er hífð inn á skipið aftan- vert og síðan er hún skorin. Fiskbúðir Kaupfélags Kjalarnes- þings og fleiri búðir bíða eftir nýju hrefnukjöti á matborð sinna við- skiptavina. Eg vil alvarlega vara við því, að okkar eigið fólk hjá Landhelgis- gæslunni hafi afskipti af hvalveiði- skipinu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.