Tíminn - 06.07.1991, Blaðsíða 13

Tíminn - 06.07.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 6. júlí 1991 Tíminn 25 FLOKKSSTARF REYKJAUIK Sumarferð Fjallabaksleið nyrðri - Landmannalausar - Eldsjá Sumarferð framsóknarmanna í fteykíavík verður farin iaufiardafiinn 27. Júfí n.k. Laet verður af staðfráBSÍki. 8.00. áætiaðeraðkomatii Reykiavikur aftur ki. 22.00. Faröjaid er kr. 2600 fyrir fuiiorðnaenkr. !4oo fyrir börn ynari en 12 ára. Nánari ferðatiihíteun auölýst Aliar nánari upplýsinfíar á skrifsfofu fiokksins í sima 624480. Fulltráaráðið Þórsmerkurferð SUF/FUF-Suðurland Farið verður í Þórsmörk helgina 12.- 14. júlí. Margt verður sér til gamans gert, svo sem grillveisla SUF, fjöldasöngur, pokahlaup og margt, margt fleira. Ungt fólk er hvatt til að Ijölmenna og taka þátt í þessari stór- skemmtilegu ferð. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Önnu í síma 91-624480 eða til Sigurðar í slma 98-34691 (á kvöldin). Undirbúningsnefnd Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 15. ma( verður skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III haeö, opin frá kl. 8:00-16:00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. FramsóknaiHokkurinn 5. landsþing LFK 5. landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið í Reykjavík 4.-5. október n.k. Nánar auglýst síðar. Konur eru hvattar til að taka þessa daga frá. Framkvæmdastjórn LFK. Stofnfundur Ferðaþjónustu bænda hf. í framhaldi af undirbúningsstofnfundi Ferða- þjónustu bænda hf. þann 24. apríl s.l., er hér með boðað til stofnfundar þann 10. júlí, eins og fram kemur í stofnsamningi. Fundarstaðurinn er Bændahöllin við Hagatorg og hefst fundurinn kl. 15.00. Dagskrá samkvæmt ákvæðum stofnsamn- ings. Undirbúningsstjómin. SPEGILL Ivana Trump komin á fast Dularfullur „skylmingaþræll" hefur hertekið hjarta Ivönu TYump. Og jafnvel þótt hann sé tuttugu árum eldri en hún, heííir hann það sem hún vill: sand af seðlum! Ken Lieberman, sem er þekktur milljónamæringur í Bandaríkjun- um, hefur undanfama 8 mánuði hitt einhverja konu á laun. Nú er ljóst hver hún er. Ivana hefur sagt vinum sínum að Ken sé algjör andstæða Donalds, en hann er fyrrum eiginmaður hennar. „Hann veit hver hann er og er ekki að þykjast vera neitt annað. Hann er afar blíður og góð- ur. Við tölum mikið saman, hann kemur mér til að hlæja, en hlær ekki að mér,“ segir Ivana. Ennfremur segir hún: „Hann er það sem vantaði í líf mitt núna, og hann leyfir mér að vera ég sjálf." Ken Lieberman klæddur sem rómverskur skylmingaþræll í furöufatapartíi. Ivana Trump, ánægö með líf- ið aö nýju. Þau tvö kynntust í veislu, sem haldin var í London í fyrrasumar. Ken Lieberman er fráskilinn eins og Ivana. Hann er frá Kalifomíu, en heldur heimili bæði í Englandi og í Sviss. Sagt er að þegar upp komst um framhjáhald Donalds TYump, fyrr- um eiginmanns Ivönu, hafi hún sagt að nú mætti hann vita um Ken. Ken segir sjálfur að þau hugsi að- eins um einn dag í einu, en þau séu afskaplega hamingjusöm. Brigitte opinberar gamalt leyndarmál Brigitte Bardot hefur gert opin- skátt að hún hefur fengið brjóst- krabbamein. Að vísu eru átta ár síðan, en það skiptir kannski ekki öllu máli. Hún sagði ekki neinum frá því nema gömlum manni, sem er góður vinur hennar. Þetta er hugsanleg ástæða fyrir þeim varnarmúr, sem hún hefur byggt í kringum sig undanfarin ár. Brigitte Bardot var ein sú heit- asta á hvíta tjaldinu þegar hún var upp á sitt besta. Frægasta mynd hennar, ,And God Created Woman“, gerði hana að mesta kyntákni sinnar samtíðar. Síðan Bardot hætti að leika í kvikmyndum fyrir 17 árum hefur hún helgað líf sitt dýrum og bar- ist fyrir rétti þeirra. Brigitte Bardot þegar hún var upp á sitt besta. sig karl- manns- Julianne Springsteen hefur gert allt annað en sitja auðum höndum síðan hún og Bruce Springsteen skildu. Nú leikur hún í sjónvarpsþáttunum „Sist- ers“ í Bandaríkjunum við sívax- andi vinsældir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.