Tíminn - 14.09.1991, Blaðsíða 14
22 Tíminn
Laugardagur 14. september 1991
Viðurkenning Fegrunarnefndar
Dável heppnuð
endurbygging
íbúar hússins að Stýrimannastíg 2
fengu í vifcunni viðurkenningu
Fegrunamefndar Reykjavíkur fyrir
vel heppnaðar endurfoætur og varð-
veislu á gömlu húsi. Auk þess lagði
nefndin til að Efnalaug Reyfcjavíkur
og veitingahúsinu Prifcinu yrðu
veittar viðurkenningar fyrir að
varðveita gamlar innréttingar.
Petta er í þriðja sinn sem Fegrun-
arnefnd veitir viðurkenningar af
þessum toga. í greinargerð segir að
þær breytingar, sem gerðar hafa ver-
ið á Stýrimannastíg 2, falli vel að
upphaflegum byggingarstfl hússins.
Húsið sé í eigu tveggja fjölskyldna
sem hafi tekið höndum saman um
endurbygginguna, sem tekist hafi
mjög vel og setji húsið nú fallegan
svip á umhverfi sitt.
Eigendur hússins eru annars vegar
Hrönn Pálmadóttir og Sævar Guð-
björnsson, en hins vegar Elína
Helga Hallgrímsdóttir. Höfundur
breytinga á húsinu er Jón Þór Þor-
valdsson arkitekt.
—sá
Stýrimannastígur 2 hlaut viður-
kenningu Fegrunarnefndar
Reykjavíkur, sem veitt var í
þriðja sinn. Tímamynd: sá
Reykjavíkur fyrir varðveislu Stýrimannastígs 2:
Fyrsta skóflu-
stunga að
smáíbúðum
á Sólheimum
Úr Fokkerverksmiðjunni í Amsterdam.
Nýr innanlandsflugfloti Flugleiða tekinn í
notkun snemma á næsta ári:
Fokker 50 í smíðum
Nú er verið að smíða fyrstu Fok-
ker 50 flugvélina af fjórum fyrir
Flugleiðir í Amsterdam í Hol-
landi. Vélin verður afhent 14.
febrúar nk. og fer strax að fljúga
á innanlandsleiðum. Hinar þrjár
vélarnar verða afhentar á tímabil-
inu febrúar-apríl.
Fokker 50 leysa af hólmi gömlu
F- 27 vélarnar. Þær fyrrnefndu eru
af nýjustu kynslóð skrúfuþotna og
eyða um 32% minna eldsneyti en
þær gömlu, eru mun hljóðlátari
og þægilegri fyrir bæði farþega og
áhafnir og hafa umtalsvert meira
flugþol. Hægt verður því að nýta
þær til sérstakra verkefna í milli-
landaflugi til nágrannalandanna.
Byrjað verður að þjálfa áhafnir á
Fokker 50 vélarnar innan
skamms.
—sá
Nýlega var tekin fyrsta skóflu-
stungan að nýjum smáíbúð-
um/þjónustuíbúðum að Sólheim-
um í Grímsnesi. íbúðirnar eru sjö
að tölu og eru m.a. ætlaðar heim-
ilisfólki að Sólheimum sem óskar
að flytja úr heimiliseiningunum í
minni íbúðir. Byggð verða tvö rað-
hús og eru íbúðirnar ýmist 2ja eða
3ja herbergja, ætlaðar fyrir einn,
tvo eða þrjá einstaklinga.
Það voru þær Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, eiginkona Frið-
riks Sophussonar fjármálaráð-
herra, og Ástríður Thorarensen,
eiginkona Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra, sem tóku skóflu-
stungurnar á meðan eiginmenn
þeirra fylgdust með ásamt heimil-
isfólki og fjölda gesta í rigningu
og dumbungi.
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir fjármálaráðherrafrú tekur hér
skóflustungu fyrir íbúðirnar á
Sólheimum. Stjórnarformaður-
inn, Pétur Sveinbjarnarson,
fylgist með.
íslenskur
Dire
Straits
klúbbur
Stofnaður hefur verið aðdáenda-
klúbbur hljómsveitarinnar Dire
Straits á íslandi. Hann mun aðstoða
meðlimi við að útvega alls konar
efni sem tengist hljómsveitinni,
bæði skrif, myndir, bæklinga, hljóð-
upptökur í öllu formi og myndbönd.
Komin er út ný LP-plata með Dire
Straits eftir nokkurt hlé og hljóm-
leikaferð er fyrirhuguð um Evrópu
næsta sumar. Aðdáendaklúbburinn
hyggst gangast fyrir hópferð á tón-
leika næsta sumar. Aðdáendaklúbb-
ur Dire Straits er að Njarðargötu 29
í Reykjavík.
—sá