Tíminn - 18.09.1991, Page 1
Þorskklak virðist hafa misfarist í ár, samkv. árlegum seiðamælingum Hafrann-
sóknastofnunar. Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri á Arna Friðrikssyni:
Lakasti áraangur frá
upphafi seiðamælinga
Ef marka má árlegar seiðamælingar Hafrann-
sóknastofnunar í ágústmánuði þá hefur
þorskklakið á íslandsmiðum gersamlega mis-
farist í ár, þrátt fyrir að umhverfisaðstæður í
sjónum úti af Vestur-, Norður- og Austurlandi,
við A-Grænland og á Grænlandssundi séu, að
1 sögn Sveins Sveinbjörnssonar, leiðangurs-
stjóra á Árna Friðrikssyni, allgóðar og betri en
nokkur undanfarin ár. Niðurstaðan er sú að frá
því seiðamælingar hófust árið 1970 hefur útlit-
ið ekki verið skuggalegra. Einna skást virtist
ástandið vera undan Norðurlandi, en annars
staðar fundust þorskseiði í mjög litlum mæli.
Að sögn Sveins eru niðurstöður seiðamæling-
anna settar fram í vísitölu. Þegar best hefur
gengið hefur seiðavísitalan mælst tvö- til þrjú-
þúsund seiði. Síðan mælingar þessar hófust
i hefur seiðavísitalan sjö sinnum mælst undir
80 seiðum. Nú nær hún hins vegar aðeins töl-
I unni sex. Það er því nokkuð víst að þorskár-
gangurinn 1991 verður eitthvað annað en
sterkur árgangur. • Blaðsíða 5