Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 28. desember 1991 Tíminn 3 Fortíðarvandanefnd sendir frá sér þrjú ný hefti: Fjárhagur Byggðastofnunar traustur Fortíðarvandanefnd ríkisstjómarinnar telur hættu á að 22% af öllum lán- um, sem Byggðastofnun lánaði frá 1. október 1985 til ársloka 1990, tapist, eða sem svarar 2.560 milljónum króna á verðlagi þessa árs. Nefndin telur að þrátt fyrir þetta geti stofnunin staðið við allar fjárhagslegar skuldbind- ingar sínar. í lok október á þessu árí nam eigið fé Byggðastofnunar 1.790 milljónum króna. þrátt fyrir töp Á fundi ríkisstjómarinnar 23. júlí í sumar var ákveðið að tillögu for- sætisráðherra að skipa sérstaka for- tíðarvandanefnd. Nefndin er undir forystu Hreins Loftssonar, aðstoðar- manns forsætisráðherra, en með honum í nefndinni eru nokkrir embættismenn úr ýmsum ráðu- neytum og stofnunum ríkisins. Nefndin hefur nú skilað sex skýrsl- um, en þær em um Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Framkvæmdasjóð ís- lands, Byggingarsjóð ríkisins og Byggingarsjóð verkamanna, Byggðastofnun, Atvinnutrygginga- sjóð og Hlutafjársjóð og Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Ríkisendur- skoðun hefur áður fjallað um flestar þessar stofnanir og sjóði. Skömmu fýrir jól komu út þrjár nýjar skýrslur frá fortíðarvandanefndinni. í ljósi þeirra breytinga, sem boðað- ar em á starfsemi Byggðastofnunar með reglugerð, leggur fortíðar- vandanefnd til að fram fari stjóm- sýsluleg endurskoðun á stofnun- inni, t.a.m. í tengslum við flutning aðalskrifstofu hennar til Akureyrar, líkt og ríkisstjórnin hyggst beita sér fyrir. Endurskoðunin hafi það að markmiði að laga innra skipulag og starfsemi Byggðastofnunar að breyttum áherslum og aðstæðum, og miðist við að skilvirkni í allri starfsemi hennar verði sem mest. Nefndin dregur saman upplýsingar um fjárhag Byggðastofnunar frá því að stofnunin hóf starfsemi haustið 1985. Eigið fé er 1.790 milljónir og hefur minnkað um 360 milljónir á sex ámm. Framlög til stofnunarinn- ar úr ríkissjóði á þessu tímabili námu 1.200 milljónum. Að auki hef- ur ríkissjóður yfirtekið skuld við Framkvæmdasjóð íslands að fjár- Blysför Sunnudaginn 29. desember efnir Ferðafélag íslands til blysfarar og léttrar fjölskyldugöngu. Slík ganga var farin á sama tíma í fyrra og vom þátttakendur þá 450 talsins. Mæting er á sunnudaginn við nýtt félagsheimili Ferðafélagsins að Mörkinni 6 (v. Suðurlandsbraut, austan Skeiðarvogs). Brottför í gönguna er kl. 16:30, en fyrir brott- för verða seld blys. Alþjóðasamtök fatlaðra: Ákall um frið Alþjóðasamtök fatlaðra, FIMITIC, hafa sent frá sér svokallað ,Ákall um frið". Er þar sérstaklega átt við hið hörmulega stríðsástand í Júgóslav- íu. í ákallinu heita fatlaðir á alla menn, einkum þá sem hafa mikil völd og áhrif, að tryggja frið. „Alþjóðasamtök fatlaðra lýsa inni- legri samúð með þeim sem þjást, og biðja allt velviljað fólk og þá, sem völdin hafa hvarvetna, að binda enda á þessa hræðilegu atburði," segir í ákallinu. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, á aðild að FIMITIC, og tekur heils hugar undir ályktun þessa. hæð 1.200 milljónir króna. Á þessu sex ára tímabili hefur Byggðastofn- un veitt rúmlega 2.000 lán, sem á verðlagi ársins 1991 nema um 11.600 milljónir króna. Stofnunin hefur þegar afskrifað lán sem eru samtals að upphæð 940 milljónir, og að auki eru nú í afskriftasjóði um 1.620 milljónir til að mæta hugsan- legu tapi í framtíðinni. Ef allt þetta fé tapast, mun stofnunin tapa 22% af útlánum sínum á umræddu 6 ára tímabili. í skýrslu um Atvinnutryggingasjóð er áréttað það, sem Ríkisendurskoð- un hefur áður bent á, að hætta sé á að sjóðurinn tapi 1.500 milljónum eða um 20% af útlánum sínum. Áætlað er að ríkissjóður þurfi að Ieggja til Hlutafjársjóðs um 200 milljónir vegna ríkisábyrgðar á A- hlutdeildarskírteinum. Þá er tap eigenda B-hlutdeildarskírteina áætlað samtals 150 milljónir, en flest þeirra eru í höndum banka og sjóða í eigu ríkissjóðs. í skýrslu fortíðarvandanefndar um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna er bent á það, sem áður hefur komið fram, að sjóðurinn standi ekki undir skuldbindingum sínum. Skuldbind- ingar sjóðsins að frádreginni hreinni eign hans, sem tilheyra A- hluta ríkissjóðs, eru áætlaðar 42,7 milljarðar. Samsvarandi tala fyrir B- hluta og séraðila að lífeyrissjóðnum er 19 milljarðar. -EÓ N ý heillaóskaskeyti Sjjndu hug Iiíiiii með sheyti Að fá heillaóskaskeyti er alltaf jafn ánægjulegt og sýnir hlýjan hug sendandans. Nú eru komin ný heillaóskaskeyti frá Pósti og síma með fallegum og lifandi myndum sem gleðja augað. Láttu okkur koma heillaóskaskeyti til vina þinna og ættingja. Afgreiðsla á öllum Póst- og símstöðvum og í síma 06. POSTUR OG SIMI Viö spörum þér sporin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.