Tíminn - 28.12.1991, Síða 10

Tíminn - 28.12.1991, Síða 10
10 Tíminn Laugardagur 28. desember 1991 I ár voru liðin 150 ár frá dauða Bjarna Thorar- ensen. í þessari grein frá 1942 ræðir prófessor Þorkell Jóhanneson um þetta meginskáld róm- antísku stefnunnar á íslandi og ástæður þess að stefna þessi birtist með öðrum hætti hér á landi en annars staðar í Evrópu. Eigi nokkurt íslenskt skáld skilið að kallast rómantískt í anda og sannleika þá er það Bjarni Thorar- ensen. Mér er næst að halda að það verði ekki sagt um neinn ann- an íslenskan höfund. Þegar alls er gætt er þetta næsta furðulegt.Ætt hans var dramblát nokkuð og harðgeðja, uppeldið að sjálfsögðu strangt og einskorðað. Mörkin eru líka auðsæ. Bjarni er ramur kirkjutrúarmaður í lútherskum réttrúnaði, og sem lögfræðingur og dómari er hann íhaldssamur og ósveigjanlegur bókstafsþræll rammra og ómannúðlegra hegn- ingarlaga. Hér er ekkert sem greinir hann frá 17. aldar mann- inum ísleifi Einarssyni á Brekku, samstarfsmanni hann í Yfirréttin- um — nema eitt: Þessi kynlegi fiðringur í hjartarótunum sem stundum setur að manni ákafan hjartslátt svo að blóðið stígur manni þungt til höfuðs — rautt ský vefst um mann utan. Þegar það er liðið hjá situr maður gagn- tekinn af kitlandi hrolli sem seitl- ar niður herðarnar og bakið að innanverðu! Slíks veikleika mun ísleifur Einarsson aldrei kennt hafa. Hann var veilulaus eintrján- ingur að eðli: fáeinar dyggðir í tröllaukinni mynd. En duttlung- um forlaganna sýndist að gera of- urlitla glufu, litlafingursglufu, í skapgerð sveinsins Bjarna. Þar með var hið öfluga og fábrotna samhengi rofið og hin fasta kyn- erfð varð að sæta nýjum áhrifum og örlögum. Og í trássi við hana, námið og uppeldið, varð hann skáld sem lifa mun meðan íslensk- ar skáldmenntir lifa — löngu eftir að réttrúnaður hefur þokað til fulls fyrir mannúðlegri frjálshuga vantrú á gildi einstrengingslegra kennisetninga og hegningarlög eru úr gildi gengin með siðuðum þjóðum. Bráðgör æskumaður Bjarni Thorarensen kemur til Kaupmannahafnarháskóla árið 1803 aðeins 17 ára gamall. Af námi hans og þróun má ráða það að gáfur hans hafi verið mjög þroskaðar og að öllu hefur hann verið bráðger og mikilhæfur. Hann gerist skjótlega lagamaður mikill og eins og fleiri stúdentar um þetta leyti, eigi síður en seinna, er hann heitur og einlæg- ur ættjarðarvinur. Hann hyggst að vinna þjóðinni mikið gagn sem lærður og duglegur embættis- maður, líkt og ýmsir hinir fyrri frændur hans. En honum dugir hvergi nærri það sem þeim var löngum fullnóg. Hugmyndaríki hans nýtur sín ekki í náminu og fegurðarþráin, vöggugjöf forlag- anna, því síður. Hann verður hrif- inn af skáldskap og byrjar að yrkja dálítið sjálfur. Shakespeare og Edda annars vegar, en á hinn bog- inn Ossian og Oehlenschlæger, móta smekk hans og leiða skáld- gáfu hans til þroska að nokkru í sinni líkingu. Sigrúnarljóð En þó að Bjarni sé ekki að öllu frumlegt skáld og honum sé markað fremur þröngt svið eru kvæði hans harla merkileg, eigi aðeins frá sjónarmiði íslenskra bókmennta, heldur einnig þá Jitið er til rómantískra skáldmennta yf- irleitt. Karlmannleg hugsun, mannvit og viljaþrek einkenna kveðskap Bjarna. En rómantíkin er ljóðræn að eðli. Draumfleygt ímyndunarafl og misjafnlega skarpt brjóstvit eru höfuðein- kenni hennar, minna um þrek og þor. Hugmyndafar Bjarna er að vísu alrómantískt að forminu til og hirðuleysi hans um háttu er líka af þeim toga. En engum dylst samt að hann stendur nær Eddu og Shakespeare en Schiller og Ossian í sinni rómantísku skáld- list. Þannig verður hún býsna Dr. Þorkell Jóhannesson sjálfstæð og einkennileg — nor- ræn að eðli, þótt yfirbragðið sé með suðrænum blæ. Stórbrotnar og hrikalegar hug- myndir einkenna skáldskap Bjarna Thorarensen. Það eru róm- antísk áhrif, en annars eiginleg skáldinu. Skapið er ríkt og ofsa- fengið og þar sem hleypidómar og drottnandi venja þvergirða ekki allt of rammlega eru tilfinning- arnar næmar og brennandi. Til eru eftir Bjarna kaflar kvæða og auk heldur heil kvæði, þar sem geðríkið, tilfínningarnar, yfirbuga hann. Hann gleymir sér, yfirstígur sjálfan sig. Þessi kyngi sálarinnar gefur líf og anda hugmyndum, sem í meðförum ágætra skálda, en kaldgeðjaðri og ekki eins tilfinn- ingaríkra, hlýtur að verða and- vana óskapnaður. Ég get ekki stillt mig um að minnast hér á Sigrún- arljóð, þetta undarlega kvæði, sem víst mun víðkunnast allra ís- lenskra kvæða frá seinni tímum. Vafalaust verður það talið með fegurstu ástarkvæðum sem Wmm Áratuga reynsla á Islandi ! Einar mest notuðu básamotturnar landsins ! Níðsterkar og einangra ! BASAMOTTUR ARIVIULA 11 <E 31-BB15DO MUNIÐ að skila tilkynningum I flokksstarfið tímanlega - þ.e. fýrlr kl. 4 daginn fyrir útkomudag. SEKTIR fyrlr nokkur umferðarlagabrot: Umferöarráö vekur athygli á nokkrum neöangreindum sektarfjárhæöum, sem eru samkvæmt leiöbeiningum ríkissak- sóknara til lögreglustjóra frá 22. febrúar 1991. Akstur gegn rauðu Ijósi - allt að 7000 kr. Biðskylda ekki virt “ 7000 kr. Ekið gegn einstefnu “ 7000 kr. Ekið hraðar en leyfilegt er “ 9000 kr. Framúrakstur við gangbraut “ 5000 kr. Framúrakstur þar sem bannað er “ 7000 kr. „Hægri reglan“ ekki virt “ 7000 kr. Lögboðin ökuljós ekki kveikt 1500 kr. Stöðvunarskyldubrot - allt að 7000 kr. Vanrækt að fara með ökutæki til skoðunar “ 4500 kr. Öryggisbelti ekki notuð “ 3000 kr. MJÖG ALVARLEG OG ÍTREKUÐ BROT SÆTA DÓMSMEÐFERÐ. FYLGJUM REGLUM - FORÐUMST SLYS! UUMFERÐAR RÁÐ Bjami Thorarensen mönnum hefur auðnast að yrkja. Sú saga er til um það að Bjarna og annan mann greindi á um það, hvort það mundi ekki vera hverju skáldi ofraun að yrkja jafn heit ástarljóð til unnustu sinnar lát- innar eins og ef hún væri lifandi. Bjarni kvað þetta engu geta breytt og leysti þrautina, svo að ekki varð um deilt. Þessi saga er ekki trúleg. Þvílík kvæði yrkja skáld tæplega með það fyrir augum að skera úr þrætu, svo sem í til- raunaskyni eða í orðastað kunn- ingja síns, að bón hans, til þess er hér alltof miklu ofið inn í af sjálfu skáldinu, lífi þess og sál. Enginn skyldi reyndar gera lítið úr því að snjall rithöfundur eða skáld getur alltaf gert vel það sem hann vill gera. Þá fyrst hefur hann náð tök- um á íþróttinni, er hann getur far- ið skáldlega með hvaða efni sem er, svo að snilld sé á — hvað sem menn kunna annars að segja um innblásnar stemmningar, anda, sem yfir menn komi og svo hins vegar stílagerð og pöntuð erfiljóð. En hér er bara svo óralangt bil milli þess snjalla og þess ágæta — þess Iangbesta. Mér finnst ég eigi hægast með að skilja og meta list Bjarna er ég reyni að hugsa mér hvernig hin eða önnur skáld myndu hafa ort Sigrúnarljóð. Ef til vill er samt ósanngjarnt að bera saman á þennan hátt. Ein lista- stefna skilur eftir sig verk, sem aldrei geta eignast fullkomlega sinn líka. Kraftur og kyngi hetju- kvæða Eddu og hið ótamda hugar- flug Ossiansljóða hafa'skapað sí- gilda perlu rómantískrar skáld- listar í íslenskum bókmenntum, þar sem eru Sigrúnarljóð, — þrungna og dýrlega af brennandi tilfinningum sterkrar sálar. Rómantíkin á Norður- löndum Rómantíkin er í eðli sínu öfga- stefna. Hver sá sem kynnir sér sögu hennar eða kynnst hefur ein- hverju af verkum hinna þýsku berserkja þessarar listastefnu, hlýtur að undrast og minnast alls þess sem hann hefur heyrt eða séð af „fútúrisma" eða öðru þvílíku í listum nútímans. En hin þýska rómantík tekur miklum breyting- um er stundir líða, bæði vegna breyttrar aðstöðu og þá eigi síður vegna áhrifa frá mönnum eins og Goethe og Schiller. Þannig hverfa

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.