Tíminn - 25.01.1992, Side 14

Tíminn - 25.01.1992, Side 14
14 Tíminn Laugardagur 25. janúar 1992 Á síðasta árí kynnti Ingvar Helga- son hf. nýja línu Sunny-bfla, frá Nissan-verksmiðjunum, en áður hafði evrópski Japaninn Prímera verið fluttur hingað tii lands. Þessi stóríbróðir er framleiddur í Bret- landi, en Sunny fáum við frá Japan. Skyldieiki þessara Nissanbfla leyn- ir sér ekki: hönnuðir Sunny hafa greinilega sett sér það markmið að „evrópísera" bflinn, líkt og Prim- era. Og það má segja þeim til hróss, að þetta hefur að mörgu leyti tekist mjög vel. Að þessu sinni tökum við fyrir Sunny SLX, stallbak, með 1,6 1 fjöl- ventlavél, fimm gíra beinskiptingu og sítengdu aldrifi. Þetta er ríkulega útbúinn gripur með samlæsingum á hurðum, rafdrifnum rúðum (sem mér persónulega þykir hálfgert pjátur), upphituðum framsætum og fleiri atriðum sem ekki eru staðal- búnaður í bílum í svipuðum stærð- arflokki. Óvenju „þéttur“ Japani Það fyrsta, sem ég tók eftir þegar sest var undir stýri, var smekklegt mælaborð og gott útsýni úr bílnum. Annað atriði kom þægilega á óvart þegar ég lokaði bílstjórahurðinni, en það var hversu þéttur bíllinn er. Venjulega heyrir maður dálítið dós- arhljóð þegar hurð er lokað á jap- önskum millistærðarbíl, en svo var ekki með þennan og ég varð að opna hurðina og loka henni aftur til að sannfæra mig um að hún hefði lok- ast almennilega í fyrra skiptið. Að- gangur að stjórntækjum er auðveld- ur og jafnvel óvanir og óöruggir ökumenn eru fljótir að fá tilfinn- ingu fyrir bflnum. Rétt staðsetning stjórntækja er reyndar ekki nema hluti skýringarinnar á því hvað Nissan Sunny virkar vel á óvanan ökumann. Þar kemur til samspil margra þátta, s.s. góðrar fjöðrunar, sídrifsins sem tryggir einstaklega góða rásfestu, mátulega létt vökva- stýri, öflug vél og fleira. Verulega góðir akst- urseiginleikar í akstri er Sunnyinn eins og hugur manns. Þar munar ef til vill einna Plássið undir vélarhlifinni er vel nýtt, en nýja fjölventlavélin skitar 90 hestöflum. Nissan Sunny SLX 4WD stallbakur, eöa skottbill eins og sumir vilja kalla þessa útfærslu. LIFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA KYNNINGARFUNDUR UM STARFSEMI LÍFEYRISSJÓÐS VERZLUNARMANNA í tilefni af 100 ára afmæli Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn sameiginlegur kynningarfundur VRog LV á starfsemi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Kynningarfundurinn verður haldinn sunnudaginn 26. janúar 1992 kl. 14 í súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn verðuröllum opinn. Fundarstjóri, Magnús L. Sveinsson, formaður VR. Magnús L. Sveinsson Guömunndur H. Garöarsson Þorgeir Eyjólfsson Hallgrimur Snorrason Þórarinn V. Þórarinsson Dagskrá: 1. Setningarávarp. Guðmundur H. Garðarsson, stjórnarformaður LV. 2. Starfsemi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri LV. 3. Lífeyrissjóðir - fortíð og framtíð. Hallgrímur Snorrason, Hagstofustjóri. 4. Lífeyrissjóðir og atvinnulífið. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands. 5. Fyrirspurnir til framsögumanna. 6. Fundarslit.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.