Tíminn - 29.02.1992, Page 13
Laugardagur 29. febrúar 1992
Tíminn 13
+
Líkamlegur og andlegur skyldleiki er
sitt hvað, þótt hvort tveggja geti auð-
vitað fylgst að, og sé auðvitað svo best.
En ef ekki er því að heilsa, fer oftast
svo, er bemskunni lýkur og ólfkar
hneigðir og þrár fara að bærast í
brjóstum þeirra, sem blóðböndum
voru tengdir og samvista, að leiðir
þeirra skiljast og hver leitar sinnar
eigin hafnar, leynt eða Ijóst. — Með
mig var því svo farið, að ég fetaði furðu
ungur mínar eigin leiðir og sneiddi
jafnvel oft hjá félagsskap og nærveru
annarra, sem mér fannst ég ekki eiga
samleið með. En svo var það á sól-
björtum sunnudegi undir messu í
Hrepphólakirkju, að ég kom auga á
ungan, ókunnan mann, er mér virtist
mundi vera á aldri við mig. Hann stóð
í einni neðstu tröppu stigans upp á
loftið og horfði yfir kirkjuna, þéttskip-
aða fólki. Hann var bjartur yfirlitum
og hafði mikið, ljóst hár, og lífsgleði
og ástúð skein af andlitinu. Hann var í
nærri skósíðum „havelock"; og svo
starsýnt varð mér á þenna framandi
fugl, að ég hafði víst ekki augun af
honum messuna á enda. Þótti mér
hann harla listamannslegur og þóttist
strax sjá, að þama myndi ég loks finna
mann af svipuðu sauðahúsi og ég var
sjálfúr. Og staðfestist sá grunur, er ég í
messulok fékk að vita, að þarna væri
ungt skáld austan úr Rangárþingi, —
bláfjallageimnum með hvítu tindana.
Eg herti nú upp hugann, þótt feim-
inn væri, og ruddi mér braut í áttina
til hans, all-krókótta að vísu; og er
flestir höfðu tínst út úr kirkjunni,
gekk ég til hans, rétti honum höndina
og stamaði einhverju fram um það,
hver ég væri. En hann beygði sig yfir
mig brosandi og ástúðlegur, til þess að
heyra betur, hvað þessi ókunni piltur
hefði við hann að tala. — Og eftir
augnablik vorum við orðnir góðir vin-
ir, — eins og við hefðum þekkst alla
ævi, — og kynni okkar héldust um
mörg ár, þar til tími og rúm skildu
leiðir að miklu leyti. Hann varð mjög
kærkominn gestur á æskuheimili
mínu upp frá þessum degi okkar fyrstu
funda, og ég, sem þama hafði fundið
þjáningabróður, — mér „jafnvitlaus-
an“ og einráðan um eigin leiðir, —
fann nú ekki eins sárt til einstæðings-
skapar míns og labbakútslegrar sér-
stöðu og áður.
Hugðarefni okkar voru mjög lík á
þessum árum. Rómantíkin var efst á
baugi hjá okkur báðum; og léttu ljóð-
in hans, sem spegluðu fagra og ljós-
eiska listsál, urðu mér hvöt til drauma
og dáða. Hann átti litla kvæðasyrpu, er
að mínum dómi geymdi sum af hans
bestu ljóðum, og ég ágirntist hana
mjög. Og þó hún væri honum dýr-
mæt, gaf hann mér hana loks. En mér
skildist síðar, að hún hefði orðið mín
eign vegna erfiðleika skáldsins á að
neita. Tugum ára seinna gaf ég þessa
syrpu ekkju hans, henni, sem mér
fannst ég alltaf geta kallað hans jarð-
neska hjálpar- og vemdarengil. Guð-
mundur var einn þeirra manna, sem
sumir kalla of góða fyrir þennan heim.
Ég er þeim, er þannig taka til orða, að
vísu ekki samdóma, því svo góður get-
ur enginn verið. Og þó hinum tilfinn-
inganæmu draumsjónamönnum
blæði oft út í sorg og söknuði, eru þeir
heiminum ómissandi; og sá blettur, er
þeir störfuðu og stríddu á, ljómar æ
síðan af lífi þeirra.
Ástin truflar
rósemina
Þennan vetur, sem ég dvaldi fyrstan
í Reykjavík, var ég langmest með Guð-
mundi Guðmundssyni; og oft var Guð-
mundur Þorsteinsson, sonur hjón-
anna, sem ég bjó hjá, í félagsskap okk-
ar. Hann varð seinna læknir á Húsa-
vík. Skemmtanir voru ekki miklar í
Reykjavík á þeim árum, og líf mitt þar
leið að mestu leyti í ró og friði. — Þó
ekki alveg! — Ég varð ástfanginn af
ungri stúlku, svo heríilega. að engin
tilfinning slík hafði áður bærst svo
sterk í brjósti mínu. Ég hafði séð þessa
ungu stúlku fyrst, er ég kom til
Reykjavíkur einu eða tveim árum áð-
ur, og ekki gleymt henni síðan. En ég
fékk aldrei tækifæri til að kynnast
henni; enda þurfti þess ekki; allt var
þar vonlaust. — En þá, og ávallt síðan,
er tilfinningar mínar hafa viljað
þvinga mig meir en góðu hófi gegndi,
gerði eitthvað uppreist í sál minni á
móti böndunum og þverneitaði öllu
utanaðkomandi valdi og harðstjórn —
jafnvel ljúfsárri harðstjóm ástarinnar.
Listabækurnar í
Landsbókasafninu
Ég fann, að ég varð að verða mér úti
um einhverja andlega fæðu aðra en þá,
sem mér veittist á Hermes. Gekk ég
þvf einn dag niður í Landsbókasafn,
sem þá var í Þinghúsinu; fann þar
bókavörðinn, Hallgrím Melsteð, og
kynnti mig honum. Varð hann „inter-
esseraður", er hann fékk að vita, hvers
ég óskaði; sagði, að ég skyldi koma svo
oft sem ég vildi, og skyldi hann veita
mér þá aðstoð, er í hans valdi stæði.
Ég notaði mér þetta. En ekki voru þær
margar eða mikilfenglegar listabæk-
urnar, er ég fékk þar þá. Þær voru þó
tvær. Ekki man ég, hvað önnur hét; en
þar sá ég í fyrsta sinn mynd af mál-
verki Guido Renis, „Auroru"; og hefur
mér jafnan síðan þótt vænt um þá
mynd. Svipaður árroði og yfir henni
hvíldi fannst mér síðar mæta augum
mínum, er ég heimsótti föðurland
þessa málara. — Hin bókin var ekki
annað en sýningarskrár frá listsýning-
um í Charlottenborg í Höfn. En þær
urðu mér samt til hinnar mestu
ánægju, því svo mikla mergð af lista-
verkum hafði ég aldrei séð fyrr i einni
bók. Fæst af þeim megnuðu þó að
hrffa sál mína. Langbest þóttu mér
verk norska myndhöggvarans, Steph-
an Sindings, því að ég fann, að honum
lá eitthvað á hjarta, sem hann reyndi
að láta í ljós í list sinni.
Mér er þessi vetur minnisstæður
fyrir margra hluta sakir. Margt bar fyr-
ir augu mín og eyru í borginni, sem
mér þótti nýstárlegt. Oft var ég úti á
Tjörn á kvöldin með öðru ungu fólki,
og hlustaði þar á homablástur lítils
flokks, sem Helgi Helgason tónskáld
stjórnaði. - Helgi lifði af verslun, því
að enginn gat þá lifað af listinni einni
hér heima, hvorki skáldin né aðrir.
Það var óhugsandi.
Heimferð um jólin
Leið nú tíminn fram að jólum, og
var ég farinn að hlakka mikið til að
koma heim og sjá aftur foreldra mína
og systkini, þó ég ætti þá að vísu að
kveðja þau í síðasta sinni, áður en ég
færi af landi burt. Ég lagði svo af stað
einn góðan veðurdag við þriðja mann
austur til átthaganna.-
Svo lifði ég síðustu jólin mín í for-
eldrahúsum — og síðustu jól mín í
sveit. Síðan hef ég ekki séð fjöllin
heima í vetrarskrúði. Mörg jól hef ég
lifað síðan í framandi löndum, þar sem
nóg hefur verið af skrauti, viðhöfn og
veisluföngum, en árangurslaust hef ég
leitað þar þeirrar unaðslegu gleði og
sælu, sem sú hátíð veitti mér á fátæk-
lega bemskuheimilinu mínu.
Skilnaðarstundin
Svo kom skilnaðarstundin.
Snemma morguns, áður en albjart var
orðið, bjóst ég til ferðar. Nú kvaddi ég
mömmu mína, hana, sem mér frá
barnæsku hafði fundist, að ég mætti
síst allra án vera. Ég kvaddi hana
heima og litlu systur, sem ekki var
komin á fætur, en grúfði sig niður í
rúmið og grét. Bræður mínir, Jakob
og Bjami iitli, vildu fylgja mér eitt-
hvað áleiðis, — Bjarni fram að Hrepp-
hólum og Jakob nokkru lengra. Vegna
þess að ég hafði ekki jafnað mig í fót-
unum eftir kalið á leiðinni austur, var
ég ríðandi; en pabbi gekk með hestin-
um, þögull og þungstígur, og braut
stundum niður ísinn, sem leyndist á
milli þúfnanna. Hann hálf-datt öðm
hvoru, og var sem hann sæi illa. — Ég
varð gagntekinn af hryggð. Ég hafði
aldrei fyrr séð föður minn gráta. —
Hann fylgdi mér fram að Stekkjarlæk;
þar kvaddi hann mig, og ég hélt áfram
í humátt á eftir bræðrum mínum. En
svo heyrði ég kallað hátt að baki mér.
— Það var faðir minn, sem hafði snúið
við og vildi kveðja mig enn einu sinni.
Hann tók mig aftur í faðm sinn með
heitri bæn um vemd Guðs og blessun.
Elsku litli bróðir kvaddi mig á Hóla-
stöðli og var mjög sorgbitinn. Ég
horfði lengi á eftir honum og upp að
dökku þústinni, sem geymdi margra
ára ávöxt af striti iðjusamra handa
dyggðugra foreldra minna. Á eftir
þrem börnum sínum ungum höfðu
þau séð í gröfina. Og nú var eitt af
þeim fjórum, er á legg komust, að yfir-
gefa þau — og hafði nú á samvisku
sinni sorg þá, er nú ríkti í blessuðum
gamla bænum, er nú smá-hvarf í
móðu fjarska og fanna.
MITSUBISHI
BÍLLINN SEM ALLIR VILJA ElGA
□ Öryggisbitar í fiurðum
□ Bensín/Diesel breyfill
□ Prívirk stilling á höggdeyfum
□ Sjálfskiptur/fiandskiptur
□ Læsivörn á fiemlum (fáanleg)
□ 100% læsing á afturdrifi
□ Hvarfakútur (mengunarvörn)
□ Priggja ára ábyrgð
1. Hágír - Afturdrif virkt, framdrifsbúnaður óvirkur.
2. Hágír - Aldrif sítengt gegnum mismunadrif og seigjutengsli.
3. Hágír - Aldrif sítengt með millilæsingu.
4. Lággír - Aldrif sítengt með millilæsingu.
5. Lággír - Aldrif sítengt með millilæsingu og 100% læsingu á afturdrifi.