Tíminn - 01.05.1992, Page 2

Tíminn - 01.05.1992, Page 2
2 Tfminn Föstudagur 1. maí 1992 Akureyri: Játning á stuldi á skot- vopnum liggur fyrir Maður á fertugsaldri hefur við yfirheyrslur hjá lögreglunni á Ak- ureyri játað að hafa brotist inn á heimili byssusafnara að morgni mánudags og stoiið þaðan sjö skotvopnum. Maðurinn var hand- tekinn á þriðjudag, en játning hans lá ekki fyrir fyrr en síðdegis í gær. Maðurinn vísaði á byssurn- ar og er nú laus úr haldi lögreglu og fer mál hans rétta boðleið í dómskerfinu. Samkvæmt upplýsingum Tím- ans nam maðurinn á brott eina haglabyssu, þrjá riffla og þrjár skammbyssur. Alls munu um 30- 40 vopn vera í safninu og var frá þeim gengið í læstum skápum eins og lög gera ráð fyrir. Pinnar og lásar höfðu verið fjarlægðir úr byssunum, þ.a. þær eru ónothæf- ar. Sá útbúnaður sem og skothylki voru geymd í læstri hirslu annars staðar í húsinu og var ekki hróflað við þeim. Innbrotsþjófurinn not- aði kúbein til að spenna upp úti- dyrahurð, sem og til að opna skápa og losa um keðjur sem verja áttu byssurnar óboðnum gestum. hiá-akureyri. Frá aðalfundinum í gær. Hermann Hansson er í ræöustóli. Aðalfundur íslenskra sjávarafurða hf. Tímamynd Ámi Bjama Ríflega 83 millj. rekstrarhagnaður Rekstrarhagnaður af starfsemi ís- lenskra sjávarafurða hf. var á síð- asta ári 83 milljónir króna, fyrir skatta og fjármagnsgjöld, en árið 1991 var fyrsta starfsár hins nýja hlutafélags sem stofnað var upp úr Sjávarafurðardeild SÍS. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var að Hótel Loftleiðum í gær. I ávarpi stjórnarformanns félagsins, Hermanns Hanssonar, kom fram að heildarframleiðsla þeirra fyrirtækja sem selja frystar afurðir sínar fyrir milligöngu íslenskra sjávarafurða var rösklega 52 þúsund tonn og er það aukning sem nemur um 6,1% frá árinu áður. Þó var aukning í bol- fiskafla meiri eða um 11%, en einnig jókst rækjuframleiðsla. Verðmæti frystra sjávarafurða nam rúmlega 12 milljörðum og jókst verðmætið um 15% frá árinu áður. Samkvæmt efnahagsreikningi fé- lagsins voru heildareignir um ára- mót tæplega 5 milljarðar króna, en eigið fé félagsins var um 656 millj- ónir króna. Hermann sagði við þetta tækifæri að þetta fyrsta ár hins nýja fyrirtæk- is og sú afkoma sem reikningar fé- lagsins sýna gæfu fyrirheit um góð- an árangur ef fram heldur sem horf- ir. Það væri ljóst að íslenskar sjávar- afurðir hf. hefði mikilvægu hlutverki að gegna á þeim samdrátt- artímum í afla og á tímum erfiðleika í rekstri, sem væru tilkomnir vegna of mikillar fjárfestingar í skipum og fiskvinnslufyrirtækjum, sem nú eru ríkjandi. Enn sem komið er væri hlutafélagið enn í eigu tiltölulega fárra hluthafa, en jafnframt sagði Hermann Hansson að nauðsynlegt væri að stefna að því innan tiltekins tíma að opna félagið alveg og bjóða hlutabréf þess á almennum mark- aði. -PS Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga: Hagnaður 32,4 millj. og fjárfest í sjávarútvegi Frá Guttormi Óskarssyni, fréttaritara Timans f Skagafiröi. Aðalfundur Kaupfélags Skagfirð- inga var haldinn 25. apríl sl. í skýrslu Þórólfs Gíslasonar kaupfé- lagsstjóra kom fram að heildarvelta kaupfélagsins og dótturfyrirtækja þess; Fiskiðjunnar og Skagfirðings nam 3.540 milljónum króna árið 1991 og hafði aukist um 5% frá ár- inu áður. Rekstrarhagnaður varð 32,4 millj- ónir en var 57 milljónir 1990. Árið 1991 er þriðja árið í röð sem rekstr- arhagnaður verður hjá félaginu. Fjármunamyndun rekstrar varð 175 milljónir á sl. ári og eigið fé félags- ins var í árslok 890 millj. kr. og er eignarhlutfallið 41,2% af niður- stöðu efnahagsreiknings. Verulegur vöxtur var í starfsemi Fiskiðju Sauðárkróks sem er, eins og áður segir, dótturfyrirtæki kaup- félagsins. Fiskiöjan tók á árinu á móti 7.900 tonnum af fiski til vinnslu á móti 6.300 tonnum árið 1990 og tæpum 4000 tonnum árið 1989. Fiskiðjan rekur hraðfrystihús á Sauðárkróki og Hofsósi auk skreiðarvinnslu, saltfiskverkunar- stöðvar og fiskimjölsverksmiðju á Sauðárkróki. Rekstur Fiskiðjunnar gekk vel á ár- inu og skilaði hún reksturshagnaði. Framkvæmdastjórinn Einar Svans- son flutti ítarlegt erindi á fundinum um horfur í sjávarútvegi og fisk- vinnsiu. Miklar umræður urðu og á fundinum um m.a. stöðu landbún- aðar í landinu og vænlegar leiðir til þess að styrkja atvinnulíf í héraði. Meðal þeirra mála, sem til af- greiðslu voru á fundinum, voru til- lögur að nýjum samþykktum fyrir kaupfélagið. í tillögunum eru ýmis merk nýmæli svo sem þau að gert er ráð fyrir heimild til stofnunar svo- nefndar B-deildar stofnsjóðs sem gerir félaginu kleift að gefa út og bjóða til sölu samvinnuhlutabréf. Á fundinum áttu rétt til setu rúm- lega 90 manns, fulltrúar 12 félaga- deilda auk stjómar félagsins, en fé- lagsmenn KS voru rúmlega 1800 í árslok 1991. í lok inngangsoröa kaupfélags- stjóra sagði m.a. „Efnahagsleg staða kaupfélagsins er nokkuð sterk í lok 102. starfsárs félagsins. Verulegu skiptir fyrir byggðir Skagafjarðar að félagið nái að eflast á næstu árum og halda uppi þróttmikilli framleiðslu- og þjónustustarfsemi, íbúum Skagafjarðar til hagsældar." Akureyri: Hótel Stefanía selt Stjómlr Byggðastofnunar og og kaupendumir eru eigendur Ferðamálasjóðs hafa samþykkt Bautans hf. auk Valdimars Geirs- að taka kauptilboði Bautans hf. á sonar, Þorvaldar Jónssonar og Akureyri og þriggja einstaklinga í Guðmundar Ámasonar sem jafn- eignir Hótels Stefaníu á Akur- framt verður hótelstjóri. Þegar eyri, en sjóðimir eignuðust hót- hefur verið hafist handa um und- ellð á nauðungaruppboði í fyrra- irbúnlng á opnun hótelsins, og er haust Lausafé og Innanstokks- stefnt að því að opna það undir tnunir eru þó enn í eigu þrota- nýju nafni um miðjan maí. Rek- búsins, en stefnt er að því að stariyririromulag verður að Wnir nýju eigendur kaupi þá mestu leyti óbreytt, þó er stefnt einnig. að því að hótelið bjóði upp á ódýr- Samkvsmt heimildum Tímans ari verðlagningu en hin hótelin á er kaupverðið 54 milljónir króna, Akureyri. hiá-akureyri. Frá kynningu á fjarnáminu. F.v. Margrét Jóhannsdóttir ráðunautur, Þuríður Magnúsdóttir hjá Iðntæknistofnun, Guörún Friðgeirsdóttir, skólastjóri Bréfaskólans, og Paul Richardsson, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. Tímamynd Ámi Bjama Fjarnám fyrir bændur í ferðaþjónustu: Bændur þurfa aö Ijúka fagnáminu Námsefni fyrir þá sem reka ferða- þjónustu í dreifbýli hefur verið samið fyrir tilstuðlan Ferðaþjón- ustu bænda, Fræðsludeildar Iðn- tæknistofnunar og Bréfaskólans. Allir nýir aðilar í Ferðaþjónustu bænda verða nú að hafa iokið fagn- ámi til að geta auglýst þjónustu sína undir nafni og merki hennar, þ.e.a.s. fjarnáminu í ferðaþjónustu í dreif- býli eða sambærilegu námi. Þetta er tveggja anna fjarnám með megináherslu á bændur en að sögn Þuríðar Magnúsdóttur hjá Iðn- tæknistofnun er ætiunin að síðar nái námskeiðið yfir alla ferðaþjónustu. Námsefnið skiptist niður í tvo hluta, annars vegar ferðamál og þjónustu en hins vegar rekstrarhlið. Það er félagsmálaráðuneytið sem styrkir verkefnið að langmestu leyti en menntamálaráðuneytið, Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins og Búnaðarfélag íslands eiga einnig hlut að máli. Það er mikil aukning í ferðaþjón- ustu í dreifbýli og er hún nú orðin mikilvæg atvinnugrein, sérstaklega vegna samdráttar í hefðbundnum landbúnaði. Fjarnámið á að gera bændum kleift að afla sér grunn- þekkingar áður en haldið er út í íjár- frekar aðgerðir. —GKG.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.