Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 11

Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 11
Föstudagur 1. maí 1992 Tíminn 11 Innri og ytri styrkur samtakanna ótvíræður 1-2 Við höfum undanfarið búið við erfiðari aðstæður en ég man eftir til að gera kjarasamninga. Efnahagsástandið hefur verið okkur andsnúið þannig að það að ná að styrkja stöðu sína og sækja á í fallandi þjóðartekjum er undir öllum kringumstæð- um mjög erfitt mál. Atvinnu- ástandi er þannig að hátt í fjög- ur þúsund manns eru á at- vinnuleysisskrá allan þann tíma sem liðinn er af árinu og það gerir aðstöðuna til þess að beita átökum mjög erfiða. Ég tel að þegar við skoðum niðurstöðuna hafi hreyfingin einmitt nú sýnt ótvíræðan styrk: Það gerir hún í fyrsta lagi með því að þegar það er ljóst að ekki getur orðið stór árangur í kauphækkunum, þá hefur hún þann innri styrk að sameinast um það að í lausninni sé fyrst og fremst tekið tillit til lág- tekjufólks sem auðvitað verður alltaf harðast úti þegar saman dregur. Samningurinn felur í sér að allir hópar fá nokkuð bættan kaupmátt frá því sem var fyrir samningana. Og þeir sem tekjulægstir eru fá náð þeim kaupmætti sem var í júní í fyrra en það var sú viðmiðun sem við lögðum upp með. Jafn- framt því sýnum við ótvírætt að verkalýðshreyfingin er eini að- ilinn sem megnar að standa vörð um velferðarkerfið. Ríkisstjórnin hefur sótt að áunnum réttindum, réttindum sem mörg hver hafa kostað mikil átök á sínum tíma af hálfu verkalýðshreyfingarinnar. Þar tekst að verja mjög mikil- væga hluti eins og ríkisábyrgð á laun, atvinnuleysistryggingar, fæðingarorlof og ýmislegt fleira mætti til nefna. Þetta sýnir okkur auðvitað að vörn er ekkert síður mikilvæg en sókn í þessari baráttu eins og annarri. Á pólitíska vett- vanginum hafði málið tapast. Stjórnarandstaðan var ekki þess umkomin að breyta þar neinu en einmitt styrkur verka- lýðshreyfingarinnar endur- speglast í því að þó svo að við náum ekki því sem við vildum ná, þá náum við þó mjög mark- tækum árangri. í þriðja lagi vil ég nefna að rík- isstjórnin samþykkir að gang- ast fyrir vaxtalækkun og hún samþykkir stefnubreytingu í at- vinnumálum: Frá því hún tók við hefur hún mjög einhlítt endurtekið það að ríkisstjórn eigi ekki að skipta sér af at- vinnumálum, en í yfirlýsingu til okkar fellst hún á það að hún beri ábyrgð í því efni og vilji vinna að því að treysta atvinnu- ástand og atvinnuuppbyggingu. Auðvitað er ekki fyrirfram hægt að gefa sér hvað út úr yfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar kem- ur en í öllu falli er um tvímæla- lausa stefnubreytingu að ræða. Ef við því skoðum ákveðna iykilþætti þá sjáum við að verkalýðshreyfingin hefur enn styrk út á við gagnvart stjórn- völdum og við sjáum að hún hefur innri styrk í erfiðri stöðu að beita sér þannig að þeir sem verst standa njóti árangursins. 1. maí er hvort tveggja í senn hátíðis- og baráttudagur. 1. maí koma menn saman til að sýna samstöðu, sýna að þeir eigi sameiginleg markmið, rifja upp fyrir sér þann árangur sem náðst hefur í baráttu liðinna ára og fylkja sér fyrir baráttuna sem framundan er. 1. maí drögum við það skýrar fram en á nokkrum öðrum degi að inntak verkalýðsbaráttunnar er óbreytt þótt aðstæðurnar hafi verið að breytast. Inntak hennar er að bæta kjör, verja kjör. Josve hnífaherfi Mest seldu herfin á íslandi. Sex öxla, lyftutengd meb 3 metra vinnslubreidd. Einföld og ódýr í rekstri, aubvelt ab skipta um hnífa. Josve hnífaherfi henta vel til ab vinna plógstrengi fyrir endurvinnslu á túnum og til vinnslu á grænfóbursökrum. í notkun jafnar Josve sábbebib og skilar því hreinu. Flest búnabarfélög nota Josve. SILVA rafgirbingar Silva rafgirbingar eru fljótari og aubveldari í uppsetningu en hefbbundnar girbingar, auk þess er efnib sem notab er í Silva rafgirbingarnar vandabara en gengur og gerist. T.d má nefna ab vírinn uppfyllir ýtrustu kröfur sem gerbar eru um togþol og efnisblöndun. Strekkingar eru úr áli, rafmagnstengi eru öflug úr sérstakri sínkblöndu. Spennugjafar uppfylla kröfur rafmagnsprófunar Rafmagnseftirlits ríkisins. Stauramir eru úr svoköllubum azobe-vib sem hafa verib prófabir hjá ásamt fleirri tegundum af Teknologiske Institute í Danmörku. Niburstöbur sýna ab azobe viburinn er sá besti sem völ er á í rafgirbingar. Eigum einnig fyrirliggjandi sex strengja girbinganet 100 metra rúlla abeins 4.560,- m/vsk. ELHO áburbadreifarar 700 Lítra Nákvæmir, áreibanlegir og aubveldir í notkun. Hlebsluhæb 95 cm dreifibúnabur úr rybfríu stáli. Kapalstýring inn í ekilshús til stýringar á áburbamagni. Kögglasigti, áburbatregt á löm, aubvelt ab þrífa og hirba. VICON áburbadreifarar Þekktir fyrir gæbi og frábæra endingu. Hlebsluhæb 90-100 cm. Stærbir 500 - 750 lítra. Dreifibúnabur úr rybfríu stáli og plasti. Stillanleg dreifibreidd 6-14 metra. Vicon vöndubustu og nákvæmustu áburbardreyfarar sem völ er á. Gtobusi -heimur gœða LAGMULA 5 - REYKJAVIK - SIMI 681555 Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ:

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.