Tíminn - 01.05.1992, Side 12

Tíminn - 01.05.1992, Side 12
12Tfminn Föstudagur 1. maí 1992 — Hrafnkell A. Jónsson, formaður Árvakurs á Eskifirði Arangurinn nú er for- tíðarvanda að kenna i. í spumingunni felst að sökum getuleysis verkalýðshreyfingarinnar hafi ekki náðst betri árangur. Því viðhorfi er ég ósammála. Ég tel að verkalýðshreyfingin hafi ekki getað litið framhjá því að það urðu veruleg áföll í atvinnulífinu á síðasta ári og í byrjun þessa með samdrætti í afla og frestun álversframkvæmda og ýmsu öðm sem brást, sem menn höfðu reiknað með. Síðan lít ég svo til að verkalýðs- hreyfingin sé að súpa seyðið af óskynsamlegri stjóm efnahags- og atvinnumála undanfarinna ára þar sem ríkisvaldið, væntanlega í góðri trú, tók ákvarðanir sem leitt hafa til verulegra áfalla í efnahags- og at- vinnulífi. Afleiðingarnar eru að koma fram í milljarða reikningum sem meðal annars íslenskir laun- þegar þurfa að borga. Þetta tel ég vera bakgrunninn að sáttatillögunni og ég tel jafnframt að verði hún samþykkt þá sýni það styrk verkalýðshreyfi ngari nnar eða þeirra forystumanna hennar sem vildu sýna gætni í samningagerð og taka mið af staðreyndum f stað þess að blanda eigin pólitískum skoðun- um inn í samningagerðina. Ég tel jafnframt að verði tillagan samþykkt þá sýni hún að launþegar búa yfir meiri skynsemi en jafnvel er hægt að ætlast til af þeim. Auðvitað er þessi tillaga eða niður- staða samninga svo víðs fjarri þeim væntingum sem fjöldinn gerði sér. Ég tel hins vegar að það sýni meiri styrk að samþykkja þetta en að ganga út og snýta sér og tala illa um þá sem það vilja, eins og dæmi eru um. Hins vegar get ég alveg viður- kennt það að skipulagslegur glundroði í hreyfingunni gerir það aö verkum að hún nær ekki þeirri niðurstöðu sem hún á að hafa getu til. Ég tel t.d. að ef miðstjóm og sér- staklega forsetar Alþýðusambands- ins og formaður BSRB og hans nán- ustu samstarfsmenn hefðu í hönd- um raunverulegt vald til að taka * 'vSf* Til sölu framleiðslu- tæki, vöruheiti og uppskriftir ÁTVR Kauptilboð óskast í tæki ATVR til framleiöslu áfengra drykkja, vöruheiti og uppskriftir aö Brennivíni, Óöalsbrennivíni, Hvannarótarbrennivíni, Gömlu brennivlni, Kláravini, Tindavodka og Dillons gini. Útboöslýsing er afhent á skrifstofu vorri aö Borgartúni 7, Reykjavík. Skrifleg kauptilboö berist á sama staö fyrir kl. 11:00 þann 25/5/92 þar sem þau veröa opnuö í viðurvist viðstaddra bjóöenda. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS: 680001 & 686300 Verkamannafélagið Dagsbrún Verkamannafélagið Dagsbrún heldur fé- lagsfund í Bíóborginni (áður Austurbæjar- bíó) mánudaginn 4. maí n.k. kl. 17.00. Dagskrá: Miðlunartillaga ríkissáttasemjara kynnt. Dagsbrúnarmenn eru hvattir til að fjöl- menna á fundinn. Stjórn Dagsbrúnar ákvarðanir, yrði árangurinn mun betri í stað þess að þessir menn em nánast í gíslingu okkar smákóng- anna vítt og breitt um landið og mega varla gefa upp eigin skoðun án þess að einhver verði ekki kolvitlaus yfir því að nú séu topparnir farnir að skipa fyrir. 2. Ég tel því að niðurstaðan nú sé í samræmi við það sem geta efna- hagslífsins býður upp á. Það er ekki styrkur í hreyfingunni í dag til þess að breyta tekjuskiptingunni. Það er ljóst að það sem til skiptanna er hef- ur minnkað ef eitthvað er. Ef eitt- hvað átti að nást fram þá hefði það þurft að gerast með breyttri tekju- skiptingu. Það hefði þurft að skipta upp á nýjan leik. Til þess að það ger- ist verður að vera fyrir hendi býsna mikill slagkraftur í hreyfingunni og hann er ekki fyrir hendi á tímum at- vinnuleysis og þeirra aðstæðna sem nú ríkja. 3. Fyrir mér hefur 1. maí mikið gildi og ég vona að svo sé með flesta laun- þega. f mínum huga markar dagur- inn ákveðin tímamót þar sem laun- þegar geta aðeins stungið við fótum og horft yfir farinn veg og íhugað framtíðina. En það sem mér finnst skipta meginmáli er það að á þess- um degi gefst gólki betur kostur en aðra daga að skapa með sér ákveðna samkennd og samstöðu og sterkasta vopnið sem launþegar hafa er að þeir séu sér meðvitaðir um að þeir geti skapað sér sameiginleg örlög með því að standa saman. En með því að klóra augun hver úr öðrum þá kemur slíkt venjulegast í bakið á þeim fyrr eða síðar þótt tímabund- inn ávinningur náist. Ingibjörg Sigtryggsdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Þórs á Selfossi: Afl hreyfingarinnar fólgiö í félagsmönnum Verkamannafélagið Dagsbrún Allsherjaratkvæða- greiðsla um miðlunartil- lögu ríkissáttasemjara Verkamannafélagiö Dagsbrún efnir til allsherjaratkvæöagreiöslu um miöl- unartillögu ríkissáttasemjara. Kosiö veröur: Þriöjudaginn 5. maí kl. 10-22 Miövikudaginn 6. maf kl. 10-22 Allir skuldlausir félagsmenn Dagsboinar hafa rétt á aö greiöa atkvæöi um miölunartillöguna. Kosiö verður aö Lindargötu 9,1. hæö, á skrif- stofu Verkamannasambandsins. Menn eru beðnir um félagssklrteini, persónuskilríki eöa launaseöil til staö- festingar á rétti sinum til aö ganga i félagiö, ef þeir eru ekki fullgildir félags- menn. Stjórn Dagsbrunar hvetur alla félagsmenn tll að taka þátt I atkvæöagreiöslunni. 1. Samstaðan hefði mátt vera betri, en kjarasamningarnir nú voru mjög erfiðir þar sem hinir ýmsu hópar, sem þurfti að samstilla, búa við mjög ólík kjör. Launabilið er alltaf að breikka og algengt að stórir hóp- ar séu yfirborgaðir. Verkalýðshreyfingin getur verið beitt vopn, en hún er því aðeins virk að hinn almenni félagsmaður standi þétt að baki forystunnar og sýni stuðning sinn í verki. Litla þýðingu hefur þótt forystumennirnir berjist um á hæl og hnakka, ef hinir al- mennu félagsmenn sofna á verðin- um. Ég er ekki sátt við úrslit nýafstað- inna kjarasamninga og verð aldrei sátt fyrr en vinnuframlag einnar fyr- irvinnu dugir til framfærslu fjöl- skyldu. í þetta sinn var það þó mat samn- inganefndar ASÍ að lengra yrði ekki komist án átaka og ákveðið að mæla með samþykkt sáttatillögunnar. Ár- angurinn verður nú á næstu dögum lagður í dóm hinna almennu félags- manna með allsherjaratkvæða- greiðslu og það er þeirra að dæma um það hvort sáttatillagan sé viðun- andi. 3. 1. maí hefur gildi sem sameiginleg- ur baráttudagur verkafólks um allan heim og er viðurkenndur sem slíkur. Á slíkum degi ætti að vera kjörið að efla samstöðuna. STÖÐVUM BILINN ef vlð þurfum að tala í farsímann! UMFERÐAR Práð

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.