Tíminn - 01.05.1992, Síða 18
1$ Tíminn
Föstudagur 1. maí 1992
Styrkur til tónlistarnáms
Eins og áöur hefur verið auglýst, mun Minningarsjóður
Lindar h.f. um Jean-Pierre Jacquillat veita á þessu ári
tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta
skólaári, 1992/93.
Veittur verður einn styrkur að upphæð kr. 600.000,-.
Styrkur þessi verður sá fyrsti sem sjóðurinn úthlutar.
Athygli skal vakin á þvi, að umsóknir með upp-
lýsingum um námsferil og framtíðaráform, send-
ist fýrir 15. maí n.k. til formanns sjóðsins,
Erlendar Einarssonar
Selvogsgrunni 27
104 Reykjavík
Umsókn fylgi hljóðritanir, raddskrár og/eða önnur gögn
sem sýna hæfni umsækjanda.
Tónlistarfólk, sem hyggur á nám í Frakklandi, kemur að
öðru jöfnu frekar til greina, en slíkt er þó ekki skilyrði.
Umsóknir um styrki
frá Vestur-Norrænu samstarfsnefndinni
(Vest Norden samarbejdet)
Vestur-Norræna samstarfsnefndin, sem starfar á vegum Noröur-
landaráös, auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir áriö 1993.
Nefndin veitir styrki til samstarfsverkefna fyrirtækja, stofnana og
félagasamtaka á hinum vestlægu Noröurlöndum, þ.e. á Islandi,
Grænlandi og I Færeyjum. Flestir þeirra styrkja, sem nefndin hef-
ur veitt á undanfömum árum, hafa runnið til hagnýtra rannsókna-
verkefna og atvinnuþróunarmála, þó styrkimir einskoröist ekki
viö slík verkefni.
Styrkireru eingöngu veittirá verkefnagrundvelli. Skilyrði fyrirveit-
ingu þeirra er aö verkefni feli i sér samstarf aöila frá a.m.k. tveim-
ur hinna vestlægu Noröurianda, að gildi þeirra sé ekki bundið viö
ákveöið land ellegar aö verkefni geti á annan hátt stuðlaö aö
framþróun og auknu samstarfi innan svæöisins.
I umsóknum skal tilgreina samstarfsaöila í Færeyjum eöa á
Grænlandi, en einnig skal fylgja umsóknum greinargóö lýsing á
verkefninu, áætlun um framkvæmd þess, kostnaöaráætlun og
upplýsingar um hvemig kosta eigi verkefnið. Umsóknum má skila
á íslensku. Fyrirspumir berist til Guömundar Ámasonar, deildar-
stjóra I forsætisráöuneytinu, eöa Sturlaugs Þorsteinssonar, bæj-
arstjóra á Höfn i Hornafirði.
Umsóknir sendist til:
Lánasjóös Vestur-Norðurlanda
b.t. Vestur-Norrænu samstarfsnefndarinnar
Rauöarárstíg 25
105 Reykjavik
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1992.
LÖGREGLUSTÖÐ EGILSSTÖÐUM
HÉRAÐSDÓMUR AUSTURLANDS
Tilboð óskast í innanhússfrágang á lögreglustöðinni á Eg-
ilsstöðum. Húsið er samtals 760 m2 að gólffleti.
Verktími fyrir efri hæð er til 21. september 1992, en fyrir allt
verkið til 1. mars 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri í Borgartúni 7,
Reykjavík, til og með fimmtudeginum 14. maí 1992 gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7, Reykja-
vík, þriðjudaginn 19. maí kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVlK
Sendum viðskiptavinum okkar
og öllu launafólki árnaðaróskir á
hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí.
HERRARÍKI
Snorrabraut 56
Tími öldunganna er á þrotum. Gamall þingfulltrúi sofnar fram á boröiö á fulltrúaþinginu í fyrra
mánuöi.
Þau eiga aö erfa ríkið:
Gamalmennin í Peking
styðja „erfðaprinsa"
sína til valda
Sumir vinna í kínverskum bönk-
um og fyrirtækjum, meðan aðrir
njóta lífsins í Hong Kong. Sumir
fara og læra markaðsfræði í Banda-
ríkjunum og sumir halda sig
heima. En eitt eiga þeir sameigin-
legt og það er að allir eru þeir
„erfðaprinsari*.
Þotufólkiö
Þetta kann að þykja mótsagna-
kennt undir hinu stranga kerfi kín-
verska kommúnismans, en samt á
ekki annað heiti betur við á forrétt-
indaklíkum tilvonandi leiðtoga.
Þau eru „þotufólkið", þau eru synir
og dætur gömlu leiðtoganna.
Litlu skiptir, þótt sumar og sumir
séu orðin nógu gömul til þess að
vera afar og ömmur. Feðumir ger-
ast æ ruglaðri í ellinni, komnir vel
yfir áttrætt. Þeir fara að haltra inn á
síður sögunnar, síðustu frumherjar
þess öflugasta af kommúnistaríkj-
unum, sem enn stendur.
Deng Xiaoping, hinn gamli og
lasni leiðtogi, og gamalmennin í
kringum hann virðast trúa því að
engir nema synir þeirra og dætur
séu fær um að leiða Kína áfram á
braut sósíalismans eftir þeirra dag.
í augum hins almenna Kíverja ber
þetta vitanlega keim af erfðareglun-
um á öldum keisaranna.
Stefnt aö 10%
hagvexti
Deng gerir allt sem hann getur,
blygðunarlaust, til þess að greiða af-
komendum sínum götuna. Og það
ætti honum að veitast létt, því áhrif
hans eru næg. Fyrir síðasta flokks-
þing tryggði hann efnahagsum-
bótaáætlun sinni fullan stuðning.
Stefnt er að 10% hagvexti á þessu
ári. Deng er ákveðinn í því að þjóð
hans skuli sigrast á fátæktinni.
Hann má vera stoltur af framför-
unum. Frá því skömmu eftir 1980
jókst hlutur iðnframleiðslu fyrir-
tækja, sem ekki eru í ríkiseign, úr
því að vera 15% í það að vera nú um