Tíminn - 01.05.1992, Side 19

Tíminn - 01.05.1992, Side 19
Föstudagur 1. maí 1992 Tíminn 19 helmingur iðnframleiðslunnar. Ut- anríkisverslunin á fyrra ári nam 135 milljörðum dala, sem er þriðj- ungur þjóðartekna. Umsvif alþjóð- legra fyrirtækja eins og Procter & Gamble og Motorola hafa stórauk- ist eftir að rekstur þeirra í smáum stíl hafði gefið góða raun. Þetta kann að láta óþægilega í eyrum gömlu harðlínumannanna, en Deng og félagar hans hafa sagt að það sé sama hvort kötturinn sé hvítur eða svartur — „bara ef hann veiðir mýs“. „Ný íhaldsstefna" En eftir er að sjá hvort „erfðaprins- arnir" séu færir um að halda áfram á sömu braut, því enn er talið að margir þeirra eigi sitthvað ólært í stjómmálum. Þeir em á aldrinum 30 til 60 ára og skipa margir þegar háar ábyrgðarstöður, sem þeir munu nota sem stökkbretti til hæstu metorða. Nokkrir hafa meira að segja komið á fót pólitískri hreyf- ingu, sem þeir kalla „Ný íhalds- stefna". ' Eitt meginatriðið í stefhu þeirra er að endurvekja kínverskar hefðir. Þegar kemur að því að halda uppi lögum og reglu, mega foreldramir vera ánægðir með þá. Þeir vilja stuðla að kannski enn meira lög- regluríki til þess að halda kommún- istum við völd og koma f veg fyrir mótmælaaðgerðir. 3100 stjórnunarstöður Erfitt er að meta fjölda „erfða- prinsanna". Samkvæmt upplýsing- um í Hong Kong-tímaritinu Cheng Ming skipa böm forréttindastéttar- innar 3100 háar stjómunarstöður. Dóttir Dengs Xiaoping, Deng Nan. Þar af stýra 900 fyrirtækjum, sem sjá um utanríkisviðskipti. Ein „prinsessanna" er dóttir Dengs, Deng Nan, en hún er vara- forseti Vísinda- og tæknistofnunar- innar. Wang Jun, næst elsti sonur harðlínumannsins Wang Zehn varaforseta, er einn „prinsanna." Hann er varaforstjóri Citic, stær- asta fjárfestingafyrirtækis í landinu. Það sér um mikinn hluta vopnasölu landsins. En máske er sá metnaðarfyllsti í yngri klíkunni Chen Yuan. Hann er sonur Chen Yun, sem er einn nán- ustu samstarfsmanna Dengs. Chen Yuan hefur próf úr mikilsvirtum háskóla, er kominn á fimmtugsald- ur og hefur skipað fjölda hárra embætta. Hann var skipaður vara- forseti helsta banka landsins 1988. Gamla hugmynda- fræðin óaðlaðandi Margir „erfðaprinsanna" hafa menntast erlendis og reynst fúsari til að eiga viðskipti við Vesturlönd en feður þeirra. En helsta áhugamál þeirra er að halda í völdin. Hvattir áfram af falli kommúnism- ans í A-Evrópu, hyggjast þeir nú taka fræði kommúnismans til end- urskoðunar án þess þó að hrófla við grunnkennisetningum hans. Þetta er fremur hagsýnt fólk en hug- sjónafólk: „Við verðum að viður- kenna að gamla hugmyndafræðin er ekki aðlaðandi fyrir mikinn fjölda landsmanna," segir í skýrslu, sem samtökin ,Ný íhaldsstefna" gáfu út fyrir nokkru. Þeir vilja „endurtúlka" marx- len- ínismann, þynna hann út í þeim til- gangi að ný, kaldrifjuð kynslóð geti sætt sig við hann. Þeir vilja endur- vekja hefðir sem byggjast á fræðum Konfúsíusar, þá siðfræði sem þeir segja að liggi að baki efnahagsár- angri sumra annarra Asíuþjóða. Styrkt framkvæmdavald Mest kveður að hugmyndum um að fá allar ríkiseignimar kommún- istaflokknum í hendur. Látið er í veðri vaka að flokkurinn muni stjórna þeim betur en ríkisvaldið. En hvemig á að fást við þá, sem andæfa slíkum hugmyndum? Svör- in em á sama veg og feðra þeirra: þeir segja að í þágu þjóðaröryggis verði að gera dómskerfið virkara, sem og annað framkvæmdavald í landinu. Þannig verði hægast að koma í veg fyrir óróa, sem ógna mundi stjómarskránni og lögun- um. Gamalmennin, sem sendu skriðdrekana til Tiananmen-torgs 1989, mundu tvímælalaust fallast á þetta. BOGBALLE þegar vanda skal verk . Bjóðum hina frábœru Bögballe áburðar- TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR Bögballe BL-600 með elnni drelfiskífu Bögballe D-600 með tvelmur drelfiskífum Elgin þyngd, kg 178 285 Breldd, sm 186 220 Lengd, sm 167 120 Hleðsluhœð, sm 92 82 Ummál, sm 131 x 179 216x110 Áburðdrmagn, kg 600 600 Stlllanleg drelflbreldd, m 11-13 11-12 Snúa á aflúttakl á mín. 540 540 dreifara, BL-600 einnar skífu 600 kg, og D-600 2ja skífu 600 kg. Meðal margra kosta BL-600 og D-600 má nefna: • Stilla má áburðarmagn, opna og loka með vökvastýringu úr ekilssœti. • Kögglasigti. • Dreifibúnaður úr ryðfríu stáli með 8 dreifispjöldum í 4 mismunandi gerð- um og hrœrara. • Áburðarkassinn er á lömum svo að auðvelt er að þrífa hann, Einnig má taka hann af, svo að auðvelt er að setja dreifarann á þrítengi. v Bógoalle er með hreyfanlega festi- pinna og passar því á allar dráttar- vélar. • Aflúttak dreifibúnaðar er með ör- yggiskúplingu og í lokuðum gírkassa svo að hraði er ávallt stöðugur. Bœndur, kynnið ykkur verð og skilmála sem og búvélaprófanir Bútœknideildar á Hvanneyri. Wlésúiíftg HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 Trésmiðafélag Reykjavíkur hvetur félagsmenn sína til að fjölmenna í kröfugönguna og á fund verkalýðsfélag- anna 1. maí og síðan í 1. maí kaffið að Suðurlandsbraut 30. Við sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki ámaðaróskir á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí. HÚ8gagnahollin BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681109 Félag j árniðnaðarmanna Mætum í kröfugöngu og á útifund verðalýðsfélaganna. Ámaðaróskir í tilefni dagsins. Stjóm Félags járniðnaðarmanna Sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki árnaðaróskir á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí. Mikligarður hf. Sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki ámaðaróskir á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí. Breiðholts Apótek Mjódd Sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki ámaðaróskir á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí. IKEA Kringlunni 7

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.