Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 24

Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 24
24 Tíminn Föstudagur 1. maí 1992 Smávaxni fasteignasalinn fór áhyggjulaus til fundar við viðskiptavininn, sem kvaðst vera viðskiptajöfur í tíma- þröng og þyrfti því að fá að skoða húsið strax. í ljós kom þó að það var annað en húsakaup sem hann hafði í huga. Rán og morð var nær lagi. Dori Greene var fyrrverandi lyfsali, sem hafði séð sér hag í því að skipta um starf og verða fasteignasali. Hún var pínulítil, undir 150 sm á hæð, en metnaður hennar, starfsgleði og persónutöfrar voru ekki í samræmi við stærðina. Henni gekk mjög vel í starfi sínu, og yfirmaður hennar taldi hana mikinn feng fyrir fasteignasöluna. Þann 27. október 1989 fór Dori til að sýna viðskiptavini hús. Hún sagði samstarfskonu sinni að sá hefði sagst vera viðskiptajöfur sem hefði nauman tíma. Síðar sama dag kom Deena Baker, íbúi við Tasmaníuveg og fasteigna- sali, heim til sín. Hún veitti því þá athygli að jeppi merktur fasteigna- sölu stóð við tóma húsið á móti. Hún hafði sjálf selt húsið daginn áð- ur og íhugaði hvort hún ætti að fara og láta starfsmann fasteignasölunn- ar vita, en hætti við það. Morguninn eftir veitti hún því at- hygli að jeppinn var enn á sama stað. Deena gekk því yfir götuna og sá þá að bflstjórahurð jeppans stóð í hálfa gátt og lyklarnir voru í hon- um. Hún gekk þá upp að húsinu og sá að dyr þess voru ólæstar. Deena fór því heim til sín aftur, hringdi í samstarfsmann sinn og tjáði honum hvers hún hefði orðið vísari. Sá kvaðst myndi koma að vörmu spori. Þegar hann var kominn, gengu þau saman yfir götuna. í bflnum fundu þau nafnspjald Dori Greene. Þau hringdu heim til hennar, en fengu aðeins samband við símsvara. Síðan hringdu þau til fasteignasöl- unnar þar sem Dori starfaði og það- an kom enn einn fasteignasalinn. Hvar er Dori Greene? Þegar þriðji fasteignasalinn var mættur á staðinn, skoðuðu þau húsið og komust að þeirri niður- stöðu að eitthvað meira en lítið væri athugavert við þessar aðstæð- ur allar. Því var gripið til þess ráðs að hafa samband við lögreglu, sem kom á staðinn. Húsið var kannað nánar og lóðin umhverfis það, en engar vís- bendingar fundust um hvað átt hefði sér stað í tóma húsinu. Deena Baker skýrði frá því að hún hefði séð bílinn við húsið daginn áður, en hvorki séð Dori né við- skiptavin hennar. Aðrir íbúar við götuna höfðu enn minna fram að færa. Mörg hús við götuna voru á sölulista, og fasteignasalar því al- geng sjón sem allir voru hættir að veita sérstaka athygli. Lýst var eftir Dori Greene í fjöl- miðlum og lýsing gefin á henni: Mjög lágvaxin og grönn, dökkt stuttklippt hár, í svörtum buxum og rauðri peysu. Daginn eftir barst tilkynning um að tveir fiskimenn hefðu fundið lík Dori á floti í Tahoevatni. Líkið var flutt til krufningar, sem leiddi í ljós að það hafði legið í vatn- inu um sólarhring. Banameinið var skot í hnakkann með stórri skamm- John Colwell reyndi aö vekja samúö réttarins meö sögum um fátækt sína og ómegö. Þaö reyndist honum skammgóöur vermir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.