Tíminn - 11.07.1992, Side 7
Laugardagur 11. júlí 1992
Tíminn 7
„Reyndar þekki ég konu sem á tvenna tvíbura eins og viö, svo þetta er ekki neitt einsdæmi, “ segir Elln Ýrr. (Tímamynd Sigursteinn)
þær Anna Rut og Asta Ýrr, fyrri
tvíburamir okkar, fæddust, en
það var þann 16. ágúst 1987. Þær
eru því orðnar fimm ára. En ég
verð að játa að okkur Kristjáni
brá nokkuð í brún, þegar okkur
var tilkynnt að von væri á öðmm
tvíburum. Við fengum að vita
það, þegar ég var komin sjö vik-
ur á leið, svo þetta er nú ekki
eins og áður þegar slíkt kom
fyrst í ljós við fæðinguna. En
þetta var samt sannarlega ekki
það sem við bjuggumst við. Þó
var bót í máli að við vomm betur
undir það búin í seinna sinnið að
fá tvíbura í fjölskylduna. Ég hafði
nefnilega haldið til haga öllu því
sem stelpurnar áttu. Astæðan var
víst að einhvem veginn bjó sú
hugsun með mér að það kynnu
að koma aðrir tvíburar, og ég
sagði við sjálfa mig að ef ég byggi
mig nógu vel undir það, þá
kæmu þeir ömgglega ekki. En
kemur tilveran manni ekki alltaf
í opna skjöldu á einhvem hátt,
hvaða ráðstafanir sem em gerð-
ar?
Já, reyndar þekki ég konu sem á
tvenna tvíbura eins og við, svo
þetta er nú ekki neitt einsdæmi.
Hún heitir Sigríður Halldóra
Þorsteinsdóttir og er gömul
skólasystir mín. Svo em konur
sem em miklu meiri afreks-
manneskjur í þessu en við tvær.
Það er til dæmis alltaf verið að
minna okkur á konuna í Bolung-
arvík, sem eignaðist tvíbura sex
sinnum.“
Liggja alltaf í
sömu stellingum
Við spyrjum þau Elínu og Krist-
ján hvort nætumar séu ekki
ónæðissamar hjá þeim, hvort
ekki verði oft að vakna til bam-
anna.
„Nei, venjulega þurfum við ekki
að vakna nema einu sinni á
nóttu,“ segir Kristján. „Þau em
öll ákaflega vær. Ég held satt að
segja að sumt fólk, sem ekki á
nema eitt bam, geti borið sig
miklu verr en við að því leyti. En
þegar við komum inn til þeirra á
kvöldin er furðulegt að sjá hve
þau hegða sér líkt. Það er víst
einkenni á tvíbumm að látbragð-
ið er stundum eins og þetta væri
sama manneskjan. Þó em hvor-
ugir tvíburanna okkar eineggja.
En við tökum eftir að þegar ann-
að snýr sér í svefni í rúminu, líð-
ur ekki nema agnarstund þar til
hitt gerir það líka. Þau liggja al-
veg nákvæmlega eins, og stund-
um í skrýtnum stellingum.
Kynjamunurinn hefur hér ekki
áhrif, en annar nýju tvíburanna
er drengur. Hann heitir Halldór.
Hún heitir Herdís.
Þessu var eins farið með fyrri
tvíburana. Þó ber á skapgerðar-
mun og sú eldri hefur verið
stjómsamari. En nú er sú yngri
farin að spyma við fótum og ger-
ast ráðrík einnig. Þær em líka
báðar í ljónsmerkinu! En þótt ég
segi „eldri“ og „yngri“, er varla
hægt að tala um aldursmun, því
öll fjögur hafa verið tekin með
keisaraskurði. Þar er aðeins um
einnar mínútu mun að ræða eða
svo.
Þjóðhagslega hag-
kvæmt hlutverk
Elín Ýrr er hjúkmnarfræðingur,
sem áður segir, og starfar á
skurðlækningadeild Landspítal-
ans. Hvað segir hún um orlofs-
mál tvíburamæðra?
,AHar konur eiga rétt á sex
mánaða fæðingarorlofi og svo er
einn mánuður aukalega fyrir
„aukabarn", ef ég má kalla það
svo. Það er hið almenna. Hjá mér
er þetta þannig að ég held þeim
tekjum, sem ég hef haft (yfir-
vinna meðtalin) í fjóra mánuði,
en fæ gmnnlaunin í þrjá mán-
uði. En þar sem ég tek launin af
aðeins hálfu starfi, get ég lengt
mitt orlof um helming, þ.e. í um
eitt og hálft ár. Fyrir mitt leyti
verð ég að segja að mér finnst að
ég og bömin hafi fúlla þörf fyrir
það. En allar konur, sem eignast
tvíbura, geta þetta ekki. Ég vildi
því gjarna leggja þeim tvíbura-
mæðmm lið, sem gengu á fund
heilbrigðisráðherra á dögunum,
og er nú að kynna mér málflutn-
ing þeirra. Við gegnum tvímæla-
laust þjóðhagslega mjög hag-
kvæmu hlutverki og þar sem tví-
burafæðingar em ekki svo marg-
ar, aðeins 67 á síðasta ári, þá ætti
það ekki að vera kerfinu ofviða að
láta tvíburamæður hafa tvöfalt
fæðingarorlof. Eitt og hálft orlof
er það minnsta.
Svo erþað hinn beini útgjalda-
þáttur. Eg man að þegar stelp-
urnar fæddust, varð það okkur
talsvert erfitt fjárhagslega. Að
vísu höfum við ekki þurft að
auka við okkur húsnæði, en það
getur fólk, sem búið hefur
þröngt, þurft að gera. Og við höf-
um orðið að kaupa okkur stærri
bfi en við áttum áður.“
Nýir ferðafélagar
Kristján er framkvæmdastjóri
Ferðafélags íslands og hefur
starfað að útivistar- og ferðamál-
um um árabil. Hefur þessi
skyndilega fjölgun á heimilinu
ekki orðið til þess að hann er
minna á ferð og flugi en vant er?
Jú, en þó tókst mér að komast
með eldri tvíburana í Þórsmörk á
miðvikudaginn og þær vom ekki
nema ársgamlar þegar við fyrst
fómm með þær í ferðalag.
En nú í sumar verður þó óneit-
anlega minna um ferðalög en
venjulega hjá fjölskyldunni. Hjá
okkur í Ferðafélaginu stendur
háannatíminn yfir núna, svo ég
hef ekki getað tekið mér nema
þriggja daga frí til þess að vera
heima frá því er börnin komu af
fæðingardeildinni. Og meðan svo
er hyggja menn auðvitað ekki á
lengri ferðir. Ég er svo mikið
heima við sem mér er unnt. En
ætli Halldór og Herdís hleypi
ekki heimdraganum með okkur
Elínu og eldri stelpunum næsta
sumar. Það verður gaman að fá
þama enn nýja ferðafélaga. Og
þú mátt taka það fram að þótt
tvennum tvíburum fylgi töluvert
umstang, þá er þetta satt að segja
hreint afskaplega gaman.“ AM