Tíminn - 11.07.1992, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUOVITAf)
Suðurlandsbraut 12
Oðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
HOGG-
* DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahlutir
. HamarshöfAa 1 - s. 67-67-44
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ1992
Kvennaþing á írlandi hefur
verið sett:
Ræða Vig-
dísar vek-
ur athygli
ísland, íslenskar konur og verk
þeirra eru nú í brennidepli á Irlandi
en þar fer nú fram kvennarþingið
Gloþal Forum of Women, sem upp-
haflega átti að fara fram á íslandi.
Yfir 400 konur frá 53 löndum hafa
sótt ráðstefnuna en verndarar henn-
ar eru frú Vigdís Finnbogadóttir for-
seti íslands og frú Mary Robinson
forseti írlands. Hafa þær hlotið
mikla athygli í írskum blöðum.
Átta íslenskar konur sitja þingið
auk Vigdísar og tóku þær einnig þátt
í undirbúningi þess.
I gær voru forsetarnir við setningu
þingsins í Abbey- leikhúsinum og að
því loknu ávarpaði Vigdís þingheim.
Góður rómur var gerður að ræðu
hennar og var sérstaklega sagt frá
henni í dagblaöinu „The Irish Tim-
es“.
Vigdís benti m.a. á að ef ein kona
væri gagnrýnd félli sú gagnrýni á
allar konur en þegar slíkt henti karl-
mann væri það frekar rakið til þjóð-
ernis hans. —GKG.
Ekki veröur ekiö á þessum bílum í bráð. Timamynd Sigursteinn
U Slys á Reykjanesbrautinni:
Ok á röngum
vegarhelmingi
Fólksbíll og sendiferðarbíll
lentu saman á Reykjanesbraut-
inni á móts við Hnoðraholt um
hádegisleytið í gær.
Ökumaður fólksbílsins ók á
röngum vegarhelmingi með fyrr-
greindum afleiðingum. Kalla
þurfti slökkvilið til hjálpar til að
klippa hann úr flaki bílsins. Þrátt
fyrir að bíllinn sé algerlega eyði-
lagður, eins og myndin sýnir, er
ökumaðurinn ekki talinn vera al-
varlega meiddur.
Ökumaður sendiferðabílsins og
farþegi sluppu án teljandi
meiðsla.
—GKG.
Nokkur kurr hefur staðið um það álit ríkislögmanns að óbein eignaraðild út-
lendinga í útgerðarfélögum sé ólögmæt. Viðskiptaráðuneytið hefur í fram-
haldi af því lagt fram þá kröfu að þau fyrirtæki sem að hluta til eru í eigu er-
lendra aðila losi sig við hlutabréf í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum, en
eftir er að ákveða hve mikinn frest þessi fyrirtæki fá til þess. Stjómarmenn
margra fyrirtækja hafa talið niðurstöðuna fráleita, en Krístján Ragnarsson,
formaður LÍÚ, fagnar henni.
„Þessi úrskurður kemur mér ekki
á óvart með hliðsjón af þessum lög-
um, hann er í mjög góðu samræmi
við lögin. Það sem mér finnst kostur
við úrskurðinn, er það að hann fríar
útgerðina sjálfa af ábyrgð á þessu
máli, útgerðin mun ekki missa
veiðirétt þótt einhver úlendingur
eigi í einhverju öðru fyrirtæki sem á
í útgerðinni, en það höfðu menn ótt-
ast.“
Kristján segir að ábyrgðin sé nú
lögð á viðskiptaráðuneytið að það
tryggi að viðkomandi aðili, sem er í
einhverjum hlut í erlendri eigu og á
í útgerðarfyrirtæki, verður að
hreinsa það út öðru hvorum megin.
„Við getum tekið sem dæmi að ein-
hver 10 prósent eignaraðild útlend-
ings í einhverju fýrirtæki sem á aft-
ur í útgerðarfyrirtæki einhvern hlut,
að auðvitað mun það ekki hafa nein
áhrif á rekstur útgerðarfyrirtækisins
og engin erlend áhrif hafa á það. Ég
hef reynt að mynda mér skoðun um
hvar eigi að setja mörk og hvernig
ætti að fylgja þeim mörkum eftir. Ég
hef ekki fundið lausn á því og fagna
því þessum úrskurði og tel að hann
hreinsi þetta upp og geri fram-
kvæmanlegt. Ég sé ekki annað en
þetta tryggi það sem við ætluðum og
vildum og við viljum ekki að útlend-
ingar eignist hér ráðstöfunarrétt á
fiskveiðum íslendinga."
Stjórnarmenn fyrirtækja telja að
erfitt verði að finna kaupendur að
bréfum í sjávarútvegsfyrirtækjum
og að viðskipti með hlutabréf verði
nær ómöguleg. Albert Jónsson hjá
Landsbréfum telur að það fari mikið
eftir því hve fyrirtækjum verði veitt-
ur langur frestur til að losa sig við
bréf sín. Ef fresturinn verði mjög
stuttur geti bréfin lækkað verulega í
verði. -BS
Halldór Ásgrímsson.
Halldór Ásgrímsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra
segir að sjónarmiðið sem verði að ríkja:
Útlendingar ekki
í ísl. sjávarútvegi
Lögin sem banna beina sem óbeina
eignaraðild útlendinga í íslenskum
sjávarútvegsfyrírtækjum voru sam-
þykkt í apríl í fyrra, í sjávarútvegs-
ráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar.
Hann segist nú á engan hátt tilbú-
inn að breyta þeim lögum.
„Þegar við vorum að undirbúa
samningana við Efnahagsbandalag-
ið var það meginmál að útiloka er-
lenda aðila frá þátttöku í íslenskum
fiskveiðum með beinum og óbein-
um hætti. Það þýðir það að fyrirtæki
sem er að einhverju leyti í eigu er-
lendra aðila geti ekki átt í íslenskum
sjávarútvegsfyrirtækjum. Það eru ís-
lensk lög og þar með er það bannað.
Ég er ekki tilbúinn til að breyta
þeim lögum, því að ef menn ætla að
fara að setja einhver önnur mörk í
það, þá er spurningin hvar á að
enda. Þannig að mínu mati er þetta
sjónarmið sem verður að ríkja og er
ekki hægt að komast framhjá." Hall-
dór segist vera algjörlega sammála
ríkislögmanni og telur að þetta hafi
verið vilji laganna og það hefði öll-
um mátt vera Ijóst.
-BS