Tíminn - 25.07.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.07.1992, Blaðsíða 1
Laugardagur 25. júlí 1992 136. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Fleiri og fleiri snúast á sveif með sjávarútvegsráðherra varðandi veiðar á næsta fiskveiðiári: „Ég hlýt að standa vörð um þá grundvallarhagsmuni sem eru í húfí. Um leið mun ég áfram leita sátta meðal ríkisstjómar og þingliðs, enda er það skylda mín. Ég vinn að þessu út frá hreinu málefnalegu sjónarmiði og læt ekkert annað hafa áhrif á málinu." Þetta sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Tímann í gær, aðspurður um þá andstöðu sem hugmyndir hans um veiðar á næsta fiskveiðiári hafa mætt hjá forsætisráðherra og öðr- um samráðherrum hans úr Sjálf- stæðisflokki og Alþýðuflokki. Tíminn hefur heimildir fyrir því að kratar séu nú sem óðast að snúast á sveif með hugmyndum sjávarút- vegsráðherra um að veidd verði 190 þús. tonn af þorski næsta fiskveiðiár, sókn verði aukin í aðra og sterka fiskistofna innan kvóta sem utan og að veiðiheimildum Hagræðinga- sjóðs verði úthlutað þeim byggðar- lögum sem verst fara út úr sam- drætti í þorskveiðum. í gær virtist Ijóst orðið að meirihluti þingmanna Sjálfstæðisflokks styddi þessar hug- myndir sjávarútvegsráðherra. Krat- ar telja sig geta sæst á þær gegn því að niðurstaða tvíhöfðanefndarinnar svonefndu, sem endurmetur fisk- múta afstöðu eða vinnu í veiðistefnuna, feli í sér að horfið verði í áföngum í átt til fiskveiði- stefnu sem grundvallist á veiðileyfa- gjaldi. Flest bendir því til að Davíð Odds- son forsætisráðherra sé að einangr- ast í málinu og neyðist til að láta í minni pokann. Forsætisráðherra hefur sem kunnugt er farið hvatvís- legum orðum um hugmyndir sjáv- arútvegsráðherra og sakað hann um skort á samstarfsvilja. í gær hafa verið mjög stíf funda- höld hjá stjórnarþingmönnum um fiskveiðimálin og fastlega er búist við að ákvörðun um þau liggi fyrir eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag — í allra síðasta lagi. Sjá einnig viðtal við Magnús Gunn- arsson, formann Vinnuveitendasam- bands íslands á blaðsíðu 2 og við dr. Jakob Magnússon, aðstoðarforstjóra Hafrannsóknastofnunar, á blaðsíðu 6 og 7. —sá Sumarið hefur verið heldur kalt það sem af er en það var enginn kuldahrollur í þessum myndarlegu barnfóstrum sem Ijósmyndari mætti á Austurvelli I gærdag. Tfmamynd Sigurstolnn Afieiðing 20% flats niðurskurðar sauðtjár hlýtur að vera greiðsluþrot margra bænda: Brýnt að viðurkenna rétt bænda til atvinnuleysisbóta Að réttur bænda til atvinnuleyisbóta verði viðurkenndur er meðal þess brýnusta sem vinna þarf að á næstu vikum til þess að draga úr tekjumissi bænda og sporna við byggöaröskun. Stjómir Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda lýsa þungum áhuggjum sínum af þeim ógnvæn- lega atvinnu- og byggðavanda sem við blasir vegna stórfellds samdráttar í sauðfjárrækt, þar sem meira en fjórðungs skerðing sé fyrirsjáanleg á fram- leiðslurétti einstakra bænda á tveim árum. Þetta sé enn alvarlegra en ella vegna þess að slæmt efnahags- og atvinnu- ástand í landinu geri möguleika til annarrar tekjuöflunar með búskapn- um afar litla. Ekki sé því að öðru að hverfa fyrir þá sem bregða búi. Afleið- ingin hljóti að vera gjaldþrot margra bænda verði ekki að gert. Reiknað er með sauðfjárbændur standi frammi fyrir 20% flötum nið- urskurði á komandi hausti og 5% flötum niðurskurði í mjólkurfram- leiðslu. Sala afurðanna færist að fullu á ábyrgð bænda og umfang fram- leiðslunnar að mestu byggjast á inn- lendum markaði, sem jafnvel kann að skerðast af völdum alþjóðasamninga. Vegna þessara breyttu framtíðarhorfa telja stjómir bændasamtakanna horf- ur á eyðingu heilla byggða og gífur- legu atvinnuleysi á landsbyggðinni. Bændasamtökin segja því mikilvægt að allir taki nú höndum saman. Jafn- framt því sem bændasamtökin lofa að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að liðsinna í þessum efnum skora þau BTBBK M ■HpnBHHpHI B B ? fTvT « r . ^ h | r T - tí r t IIl* » Qi.v-'í’ h''r 'íV» \\ ^ -"V ■V* á ríkisstjórnina að grípa til allra til- tækra ráða til að milda áhrif þessa stórfelda samdráttar og koma í veg fyrir hmn heilla byggðarlaga. Vegna þessa uggvænlega útlits verði ríkis- stjórnin að marka stefnu í þessum málum nú þegar, svo ótvíræða að íbúar viðkomandi byggðarlaga viti hvers þeir mega vænta í beinum og óbeinum stuðningi við úrbætur. Viðurkenning á rétti bænda til at- vinnuleysisbóta er, sem áður segir, meðal þess sem brýnast er talið. Bændur hafi greitt tryggingagjald af tekjum sínum frá árinu 1991. Þeir hafi þó enn ekki fengið viðurkennd- an rétt á atvinnuleysisbótum þrátt fyrir fyrirheit stjórnvalda þar að lút- andi. Til að milda áhrif samdráttar- ins á komandi hausti og draga úr tekjuskerðingu bænda, leggja bændasamtökin til að gripið verði til ýmissa fleiri aðgerða. Sem gleggst mynd verið fengin af því hvaða verð reynist unnt að greiða bændum fyr- ir kjöt og aðrar afurðir þess sauðfjár sem slátrað verður umfram ytri ramma greiðslumarks. Sauðfjár- veikivarnir standi við skuldbinding- ar sínar um greiðslur til bænda að loknu fjárleysi sökum niðurskurðar. Ríkisvaldið standi við samnings- bundin framlög til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Reynist ekki unnt að hækka gæruverð, þurfi sérstakar niðurgreiðslur á kindakjöt að hald- ast svo markmið um verðlækkun til neytenda náist. Samið verði við bændur sem reiðu- búnir eru til fækkunar fjár gegn vinnu við landgræðslu og skógrækt. Stóraukin áhersla verði lögð á leið- beiningar og rannsóknir sem miða að lækkun framleiðslukostnaðar. Byggðastofnun stórefli atvinnuráð- gjöf og annan stuðning við ný at- vinnutækifæri á landsbyggðinni. Framleiðnisjóður veiti aðstoð við markaðsleit og vöruþróun fyrir er- lendan markað. Hraðað verði lagasetningu um 50% flata niðurfellingu lána sem bændur skulda vegna loðdýraræktar hjá Stofnlánadeild og tryggingu fjár- muna frá ríkissjóði til greiðslu á lán- um loðdýrabænda með ríkisábyrgð. Leitað verði samninga við Stofn- lánadeild um lengingu á greiðslu- tíma lána vegna rekstrartrygginga á sauðfjárbúum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.