Tíminn - 25.07.1992, Qupperneq 20
20 Tíminn
Laugardagur 25. júlí 1992
Skemmtikraftar og aðstandendur útihátíöar á Eiöum ætla aö gera sitt besta til aö gera verslunarmannahelg-
ina ógleymanlega gestunum. vmamynd Sigursteinn.
UÍA stendur fýrir útihátíð á Eiðum um verslunar-
mannahelgina:
Stjórnin og
GCD á Eiðum
Um næstu verslunarmannahelgi verð-
ur haldin útihátíð að Eiðum, en það
hefúr ekki verið gert áður um þessa
mestu ferðahelgi ársins, en hingað til
hafa slíkar hátíðar verið haldnar í Atla-
vík. Það er UÍA, Ungmenna- og íþrótta-
samband Austurlands, sem hefur veg
og vanda af framkvæmd hátíðarinnar
að venju og hefur verið skipulögð fjöl-
breytt dagskrá. Að sögn Alfreðs Alfreðs-
sonar, blaðafulltrúa hátíðarinnar, eru
aðstandendur hennar mjög bjartsýnir
á góða aðsókn á hátíðina, enda væri
mikið til hennar vandað á allan hátt.
„Við getum þó ekki sagt til um hvað
við búumst við mörgum, en við heyr-
um ekkert annað en bjartsýni og sú
umræða sem farið hefur fram, fyrir-
spumir af höfuðborgarsvæðinu eru
meiri en menn hafa átt að venjast hing-
að til. Það kemur líka til að útihátíðim-
ar eru ekki svo margir og við höldum
að þær eigi allar að geta gengið vel,“
sagði Alfreð Alfreðsson í samtali við
Tímann.
Alfreð segir aðstöðu alla á svæðinu
vera eins og best verður á kosið. Hátíð-
in hafi ávallt verið haldin í Atlavík og
þar væru möguleikar afskaplega tak-
markaðir og menn væru ávallt hræddir
um að svæðið tæki ekki við þeim fjölda
sem kæmi. Þetta þyrfti ekki að óttast á
Eiðum, enda tæki svæðið nánast óend-
anlega við af fólki. Það hefúr verið unn-
ið sleitulaust að undirbúningi á svæð-
inu í þrjár vikur, salemisaðstaða verð-
FERÐAMENN
Hjá okkur íáið þið flest sem þið þarfnist á ferðalaginu.
Verið velkomin á félagssvæði okkar.
Kaupfélag Fáskrúðsfírðinga
Fáskrúðsflrði