Tíminn - 25.07.1992, Síða 26
26 Tíminn
Laugardagur 25. júlí 1992
Hólmfrlöur með folaldið sifí, hann Funa, sem er aðeins nokkurra daga
gamalt.
Helgi, Axel og Daði klappa geit, sem finnst buxnabæturnar hans Daða góðar að narta I.
Húsdýragarðurinn heimsóttur:
Ofurlítið folald
og latur tarfur
Selirnirþrlr I húsdýragarðinum heita Kobba, Snorri og Sæfinnur, en ekki
er gofí aö segja hver er hvað.
Húsdýragarðurinn í Laugardal er nú
orðinn rúmlega þriggja ára en hann
var opnaður þann 14. maí 1990.
MINNING
Marí a Hj altadóttir
Fædd 1. júlí 1924
Dáin 18. júli, >92
Hún amma mín á Hvoli er dáin.
Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga að morgni 18. júlí sl.
eftir 7 ára baráttu við erfiðan sjúk-
dóm.
Þegar ég lít til baka hrannast
minningar upp í huga minn. Hún
amma var látlaus og sterk, hún
kvartaði aldrei í öllum sínum veik-
indum. Það sýnir best hvað amma
var ákveðin og dugleg að 4. júlí sl.
var ættarmót afkomenda foreldra
hennar á Hvoli, þar mætti amma þó
hún væri oröin rúmliggjandi. Hún
var flutt í sjúkrakörfu út í Hvol, þar
lá hún og spjallaði við fólk allan
daginn.
Það var gott að.koma til ömmu og
afa á Hvoli meÉft þau bjuggu þar.
A
Þar voru alltaf allir velkomnir. Þegar
brann hjá okkur íbúðarhúsið á Urð-
arbaki fluttum við öll út að Hvoli,
þar sem við vorum innilega velkom-
in. Sama var eftir að þau fluttu á
Strandgötu 12. Þau pössuðu alltaf
að enginn færi svangur frá þeim og
amma sagði alltaf: „Þið drekkið nú
allavega eða borðið áður en þið far-
ið.“
Svo er það atvik sem mér er sérlega
minnisstætt. Það var þegar amma
var sem veikust haustið 1990 og það
átti að fljúga með hana norður og
amma vildi endilega að ég flygi með
sér norður, sem ég gerði. Ég var nú
hálf smeyk, því ég hafði aldrei flogið
áður, en amma talaði í mig kjark.
Elsku afi, ég vona að guð gefi þér
og okkur öllum styrk til að bera
söknuðinn. Minningin um hana
ömmu okkar lifir áfram.
María Inga Hjaltadóttir
Garðurinn er öllum opinn og á vet-
uma fær hver 11 ára bekkur á höfuð-
borgarsvæðinu að eyða þar einum
degi. Börnin eru þá látin hirða dýrin
og svo er þeim kennt sitthvað um
þau.
Nú standa framkvæmdir yfir í garð-
inum, því verið er að útbúa hrein-
dýrahólf og hefur 10 milljónum verið
veitt til verksins. Hólfið stækkar
garðinn um 1/4 af því sem hann var
áður.
Að sögn Sigurjóns Bláfeld, forstöðu-
manns garðsins, á þetta aukasvæði
eftir að hafa góð áhrif á hreindýrstarf-
inn Leif, því hann verður alltaf mjög
árásargjam um fengitímann og þarf
því aukið pláss. Fengitíminn stendur
frá ágúst fram í febrúar en milli þess
er Leifur besta skinn.
„Hreindýrin em teymd um svæðið
einu sinni á dag og það kom okkur
mjög á óvart hversu auðvelt var að
temja þau,“ segir Sigurjón. Aðspurð-
ur segist hann því vel geta trúað því
að Bjarti í Sumarhúsum í „Sjálfstæðu
fólki" hafi tekist að ríða einum slík-
um.
Bráðum verður tekin upp sú nýjung
að bjóða upp á ökutúr í hestakerru
um svæðið. Kerran kemur frá Akur-
eyri, er 150 ára gömul og var áður
notuð í Nonnasafninu.
RIFANDI
Nafn
Póstnúmer:
Simi:
Heimilisfang:
Greiðslufyrirkomulag
Kort nr:
Gildir út
Ég undimtaáur/uð úska hér með eftir að gerast áskrifandi að Timanum
Kennitala
MILLIFÆRSLUBEIÐNI
T Tíminn
Lynghálsi 9.110 Reykjavík
Póstfax 68769. Pósthólf 10240
Hreindýrstarfurinn Leifur lá I mak-
indum og vildi ekki standa upp.
Á sunnudaginn fjölgaði eilítið í hús-
dýragarðinum þegar hryssan Hólm-
fríður kastaði folaldi og hefur það
þegar hlotið nafnið Funi.
Refaparið hafa líka eignast afkvæmi.
20 yrðlingar komu í heiminn en 18
þeirra eru lifandi. Páll Hersteinsson
veiðistjóri sem er sérfræðingur í at-
ferlisfræði refa notaði tækifærið og
gerði athugun á því hvort dóttir ref-
anna sem fæddist í fyrra myndi hjálpa
móðurinni við uppeldið. Það kom í
ljós að eldri systirin gerði það.
Refirnir eru annars orðnir mjög van-
ir mönnum. Þeir nálgast óhræddir
girðinguna og mæna til gestanna í
von um eitthvað góðgæti. I Húsdýra-
garðinum eru til einu kollóttu geit-
urnar á landinu og vekja þær undrun
margra sem þangað koma. Geitumar
eru afar vinsælar hjá bömunum og
kunnavel allri athygli.
Það sem af er árinu hefur aðsókn að
Húsdýragarðinum verið nokkuö
dræm miðað við þau tvö fyrri sumur,
sem hann hefur verið opinn og er
veðri kennt um. Venjan hefur verið
sú að flestir komi í júní en í ár var
hann fremur kaldur.
Aðeins 43.700 gestir hafa lagt leið
sína f garðinn það sem af er árinu og
er það mikil fækkun frá fyrra ári. Því
er nú vonast til að með góðri veður-
spá um helgina sjái fólk sér fært að
heimsækja húsdýrin í Laugardaln-
um. —GKG.