Tíminn - 25.07.1992, Page 29
Laugardagur 25. júlí 1992
Tíminn 29
Hvað verður um leikarana sem leikið hafa í þáttunum um fyrirmyndarföðurinn Cliff Huxtable, en framleiðslu
þeirra hefur verið hætt?
Rökuðu saman milljónum
en útlitið er ekki bjart
SABRINA
LEBEAUF
Hafði 35,5 m. króna
Framundan: 20 þús.
krónur á viku
TEMPESTT
BLEDSOE
Hafði: 35,5 m. króna
Framundan: 23
þús.krónur á viku
GEOFFREY
OWENS:
Hafði: 21,3 m. króna.
Framundan: 22 þús
krónur á viku
BILL
COSBY:
| Hafði: 3,3 milljarð kr.
| Framundan: Svo gífur-
I iegar tekjur aö ekki er
™ hægt aó henda reiður á.
KESHIA
KNIGHT
PULLIAM:
Hafði: 50 m. kröna
Framundan: Atvinnuiaus
PHYLICIA
RASHAD:
Hafði: 92 m. króna
Framundan: Heima'
vinnandi húsmóðir
Það er óhætt að segja að Cosby-
bömin svokölluðu hafi rakað saman
seðlum á meðan vinsældir þáttanna
um Fyrirmyndarföðurinn vom hvað
mestar, en nú þegar vinsældir þeirra
em að nálgast núllið og framleiðslu
þeirra hefur verið hætt, hvað verður
þá um leikarana? Þau höfðu tug-
milljónir króna á ári, en munu hrapa
niður, jafnvel í ekki neitt.
Það leikur enginn vafi á því að Cos-
þy sjálfur sé á grænni grein, enda ku
hann vera harður peningamaður og
útsjónarsamur peningapúki. En það
er hins vegar deginum ljósara að af-
gangurinn af Cosby-show liðinu er
hvorki fugl né fiskur án hans og er
ljóst að margir þeirra verða heppnir
að fá eitthvað. Best útlit er þó hjá eft-
irlætum Cosbys, þeim Raven-Sy-
mone og Malcolm-Jamal Wamer, en
þau leika í nýjum þáttum sem Cosby
framleiðir og eiga þau möguleika að
halda tekjum sínum áfram.
En lítum á hvað leikaramir höfðu í
laun fyrir Cosby-þættina á ári og
hvað er framundan hjá þeim:
LISA
BONET:
Hafói: 64 mi. króna
Framundan; Ekkert
stórt í uppsiglingu
RAVEN-
SYMONE
Hafði: 29 m. króna
Framundan: Sama ef
nýi þátturinn nær
vinsældum,
MALCOLM-
JAMAL
WARNER:
Hafði: 85 m. króna
Framundan: Sama ef nýi
þátturinn nær vinsældum
Sér fyrir endann á hjónabandi Fergie og Andrews prins?
Samningur verið gerður um endalok hjónabands
Eins og menn þekkja em enskir
fjölmiðlar afskaplega óvægnir í
umfjöllun sinni um bresku kon-
ungsfjölskylduna og þykir mönn-
um upp á síðkastið hafa keyrt um
þverbak. í kjölfar erfiðleika þeirra
hjóna Andrews prins og Fergie, í
hjónabandi reis upp ein alda slíkra
skrifa.
Nýlega mátti Iesa í einu ensku
blaðanna að drottningin enska
borgaði Fergie um þrjú þúsund
pund á viku, eða rúmlega þrjú
hundmð þúsund krónur, fyrir að
haga sér skikkanlega, auk þess sem
það væri hluti af þeim samningi
milli Fergie og lögfræðinga kon-
ungsljölskyldunnar um að enda
hjónabandið. Þar að auki þá mun
drottningin snara út um 236 þús-
und pundum, eða um 27 miiljón-
um króna til að Fergie geti greitt
uppsafnaðar skuldir sem sú fyrr-
nefnda er ekki hrifin af að séu úti-
standandi. Fergie vildi upphaflega
fá eina væna upphæð í stað viku-
legra greiðslna, en drottningin
neitaði að láta þá upphæð af hendi
í einu lagi þar sem hún treysti ekki
hinni kaupóðu og skemmtana-
glöðu tilvonandi fyrrverandi
tengdadóttur sinni fyrir þeim pen-
ingum.
Samt sem áður segja heimildir að
Fergie sé nokkuð ánægð með lykt-
ir mála og hún geti nú greitt upp
skuldir sínar í helstu verslunum
London, veitingastöðum og næt-
urklúbbum. Talsmenn konungs-
fjölskyldunnar neita alfarið að slík-
ur samningur hafi verið gerður, en
fjölmiðlar erlendis segja sig hafa
öruggar heimildir fyrir því að
hann hafi verið gerður og hljóði
eftirfarandi:
Fergie fái 30% af söluverði eignar
þeirrar sem hún bjó í með Andrew
prins, sem er að verðmæti um 300
milljóna íslenskra króna. Hún fær
að halda barnfóstrunni, sem verð-
ur launaður starfsmaður konungs-
fjölskyldunnar og allur náms-
kostnaður verður greiddur fyrir
börnin tvö sem hjónin eiga.