Tíminn - 10.10.1992, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.10.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn Laugardagur 10. október 1992 m m m BRUNABOTAFELAGISLANDS LAUGAVEG1103,105 REYKJAVlK, SlMI 696000, NNR. 1486-8968 Heiðurslaun Brunabótafélags íslands 1993 Stjóm Brunabótafélags íslands veitir einstak- lingum heiðurslaun samkvæmt reglum, sem settar voru árið 1982 í því skyni að gefa þeim kost á að sinna sérstökum verkefnum til hags og heilla fyrir íslenskt samfélag, hvort sem er á sviði lista, vísinda, menningar, íþrótta eða at- vinnulífs. Reglurnar, sem gilda um heiðurslaunin og veit- ingu þeirra, fást á skrifstofu BÍ að Ármúla 3 í Reykjavík. Þeir, sem óska að koma til greina við veitingu heiðurslaunanna 1993, þurfa að skila umsókn- um til stjórnar félagsins fyrir 1. nóvember 1992. Brunabótafélag íslands Björgúlfur Thor Björgúlfsson, markaðsstjóri hjá Víking Brugg h.f., hampar hér nýja Októberfestbjómum. Tilboö óskast í lokafrágang lyflækninga- og hjúkrunar- deildar við heilsugæslu- og sjúkrahús á (safiröi. Stærð hæöarinnar er um 600 m2. Verktími ertil 15. febrúar 1994. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 13. októbertil og með föstudeginum 23. októbergegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkis- ins, Borgartúni 7, fimmtudaginn 29. október 1992 kl. 14,00. ^ INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVlK Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd Landspítalans óskar eftir tilboði í „steinbrjót" (Extracorporeal shock wave Lit- hotripter and/or Laser Lithotripter). Útboðsgögn eru seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 20. nóvem- ber 1992 kl. 11:00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK Fyrsta alvöru íslenska bjórhátíðin hefst formlega í kvöld og stendur út vikuna: Bjórinn lækkar í verði um 40-50%! Áhugamenn um bjórdrykkju og bjórmenninngu eiga góða daga fyrir hönd- um alla næstu viku, en í kvöld hefst vikulöng bjórhátíð, sem Vfldng Brugg h.f. á Akureyri gengst fyrir í samvinnu við hóp veitingamanna. Fyrirmynd hátíðarinnar er sótt til hinnar rótgrónu Oktoberfest í Miinchen í Bæjara- landi og þaðan kemur einnig uppskríftin að samnefndum bjór, sem er bruggaður sérstaklega fyrir þessa íslensku Októberfest. Ánægjulegustu tíðindin eru ef til vill þau að veitingamenn hafa í sam- ráði við framleiðendur bundist fast- mælum um að lækka verðið á bjóm- um verulega, eða um 40-50%. Eini aðilinn, sem ekki gefur sína álagn- ingu að neinu leyti eftir, er ríkið, en októberfestbjórinn verður jafnframt til sölu í útsölum ÁTVR. „Við teljum þetta vera fyrstu alvöru bjórhátíðina á íslandi," segir Björg- úlfur Thor Björgúlfsson, markaðs- fulltrúi hjá Víking Brugg hf. „Þetta er rúmlega vikulöng dagskrá, með uppákomum á hverju kvöldi. Það eru margar og ólíkar krár sem taka þátt í þessari hátíð, en við, sem er- um stærsti bjórframleiðandi á ís- landi (með um 70% markaðshlut- deild af innlendum bjór), tengjum þetta saman og höldum utan um þetta.“ Fyrirmynd þessarar bjórhátíðar er sótt til Oktoberfestarinnar í Múnchen í Þýskalandi, en það er fjölmennasta hátíð sinnar tegundar í heiminum. Á Oktoberfest í Múnchen er bjórinn drukkinn í risa- stórum tjöldum úr ekki minni flát- um en líterskrúsum. Víking Brugg hf. hefur flutt inn þessar bjórkönnur frá Löwenbrau í Múnchen og úr þeim verður bjórinn drukkinn á þessari fyrstu íslensku bjórhátíð. Forsvarsmenn hátíðarinnar reyndu mikið til þess að fá að reisa 800 manna risatjald á Bakkastæði þar sem hægt væri að haida bjórhátíð í líkingu við Októberfestivalið í Múnchen. Þau áform strönduðu á yfirvöldum, en búið var útvega allan útbúnað sem til þurfti. í staðinn verður opnunarhátíð haldin undir glerþakinu á Eiðistorgi á Seltjamar- nesi. Gamanið byrjar klukkan níu í kvöld, en veislustjórar verða þau Sigurður Bjömsson og Bryndís Schram. Þýska hljómsveitin Die Fi- delen Múnchener ásamt sveiflu- bandinu Júpiters spila fram eftir kvöldi. Hátíðinni var reyndar þjófstartað í gærkvöldi í Sjallanum á Akureyri, þar sem Víking Bmgg bjórinn er framleiddur á Akureyri. Á Eiðistorgi, sem og á öðmm stöðum hátíðarinn- ar, verður í boði ekta Októberfest- glaðningur, sem er sérstaklega bmggaður eftir uppskrift frá Bæj- aralandi í Þýskalandi. Hátíðinni verður fram haldið út alla vikuna. Á sunnudag á veitinga- staðnum Gauki á Stöng þar sem verður í boði vegleg dagskrá, meðal annars fýrsta umferð í kappdrykkju, á mánudag á Café Amsterdam og Hard Rock Café, á Tveim vinum á þriðjudag, Fjömkránni á miðviku- dag, Duus og Berlín á föstudag og Naustkránni á föstudag, þar sem siegið verður upp risatjaldi, grillað, sprellað og hljómsveitirnar Skrið- jöklar og Polkasveitin Hringir spila. Októberfesthátíðinni verður síðan slitið á laugardag á Hressó og þar munu Todmobile og Skriðjöklar leika. Garðurinn verður opinn og þar verður hægt að kneyfa Októberfest- ölið undir tjaldi, auk þess sem leyni- gestir munu koma fram. Beint út- varp verður frá Hressó og úrslit fást í bjórþambskeppninni auk fjölda annarra uppákoma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.