Tíminn - 10.10.1992, Blaðsíða 14

Tíminn - 10.10.1992, Blaðsíða 14
14 Tlminn Laugardagur 10. október 1992 Jónas Þórólfsson Fæddur 15. október 1925 Dáinn 2. október 1992 Það er komið haust. í rúman hálfan mánuð höfum við fengið sannkallað- an sumarauka. Allir í sólskinsskapi, ýmsar lagfæringar og viðgerðir nýaf- staðnar og ýmislegt fyrirhugað á næstunni. En skyndilega berst sú fregn að Jónas í Lynghaga sé dáinn. Fólk setti hljóðan og það var dapur laugardagurinn, sem þessi frétt barst út um sveitimar hér á sunnanverðu Nesinu. Það eru eðlileg viðbrögð, þegar svona skyndilegt fráfall verður, að menn spyrji sig: Hvernig verður með traktorinn, bílinn, vatnslögn- ina, fjósið og ótal marga aðra hluti sem Jónas hafði komið nálægt um ævina? Það var nú einu sinni svo að enginn hafði áhyggjur þó eitthvað færi úr lagi eða þyrfti að smíða ein- hvem hlut, alltaf var hægt að kalla á Jónas í Lynghaga. í þessum fátæklegu Iínum langar mig að minnast og þakka allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Hann var einn af mínum bestu vin- um, þó helmingi eldri væri, leit alltaf á mig sem jafningja. Ailt frá því við kynntumst fyrst hef ég verið að læra meira og meira af þessum manni, sem allir hlutir léku svo í höndunum á, sama hvaða tæki eða verk var unn- ið við. Hann var sannkallaður þús- undþjalasmiður. Það var alveg sama hvaða verk Jónas tók að sér, alla hluti leysti hann af slíkum glæsileika, hógværð og vandvirkni að aldrei þurfti að vinna upp verk eftir hann. Helst vildi hann ljúka við öll verk sem fyrst. Sama hvað klukkan var orðin, sunnudagur sem aðrir dagar, allir voru eins ef svo stóð á. Jónas var dulur að eðlisfari, kvartaði helst aldrei þó svo hann fyndi til, en bar hag og heilsu annarra fyrir brjósti. Ég minnist margra heim- sókna hans til mín sumrin 1985 og 1990, þegar ég var óvinnufær eftir slys. Jónas vissi að dagurinn var lengi að líða, en alltaf hafði hann tíma til að líta inn hjá mér og ræða málefni líðandi stundar, jafnvel þiggja kaffi og konfektmola. Hann gat verið glettinn og gamansamur, en alltaf var alvaran og prúðmennskan í fyrir- rúmi hjá honum. Ekki alls fyrir löngu vorum við að vinna saman í Fáskrúðarbakkakirkju við lagfæringar á ofnfestingum í gólfi. Þá sá maður vel hvað Jónas var úrræðagóður og hagleiksmaður í alla staði. í þessari sömu viku lauk hann við smíði á nýju sáluhliði við kirkj- una, meistarasmíð í alla staði sem honum var einum lagið. Nú í síðustu viku vorum við nokkrir að vinna við Lynghaga uppsetningu á hliðinu og varð þá einum okkar að orði að það væri „Lynghagalagið" á þessu hliði. Ég vona að því nafni verði haldið á lofti í minningunni um góðan dreng. Ekki læddist sá grunur að manni þá að Jónas í Lynghaga yrði fyrstur til moldar borinn í gegnum það hlið. Já, það er stórt skarð höggvið í okk- ar litla samfélag hér í sveitinni, sem aldrei verður fyllt aftur, en ég veit að góður Guð mun varðveita þennan öðling og eljumann sem Jónas hafði að geyma. Hann var einstaklega bamgóður og átti auðvelt með að hafa böm í kringum sig. Það verður mikill og sár söknuður hjá barna- bömunum að geta ekki verið lengur með afa í skúmum góða, sem hafði svo margt spennandi að geyma. Mað- ur gat ekki annað en dáðst að snyrti- mennskunni og hvað allir híutir voru í röð og reglu í þessum einstaka skúr hjá Jónasi. Þama inni var hans vígi og hvað hann gat gert þarna, ekki í stærra húsi, það var aðdáunar- vert. Öll persónuleg viðvik, viðgerð á eldhúsvaski eða lagfæring á sófa, sem við unnum hver fyrir annan, vom alltaf sett á „reikninginn“ sem við kölluðum svo, því þar var aldrei neitt skráð eða uppgjör og hefur svo verið frá upphafi okkar samskipta. Ég tel mig vera meiri mann fyrir það að hafa fengið að kynnast og vinna með Jónasi í Lynghaga. Elsku Guðríður og fjölskylda, ég sendi mínar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Farþú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Blessuð sé minning um góðan og mætan mann. Auðunn Pálsson Til hafs sól hraðar sér, hallar úr degi. Eitt skeiðrúm endast hér á lífsins vegi. Ó, guð hvort artrtað nú ennþá vor bíður auglýsir engum því óðaren It'ður. Þessi spaklegu orð úr sálmi sr. Am- órs Jónssonar í Vatnsfirði ásönnuð- ust rækilega að kvöldi blíðviðrisdags 2. október s.l., þegar vængur dauð- ans laust Jónas í Lynghaga. Skyndilega og allsendis óvænt var hann hrifinn á brott og fjölskylda hans, vinir og samstarfsmenn á það minnt að enginn á morgundaginn vísan. Mér er það bæði ljúft og skylt að slást í hóp þeirra, sem með döpr- um huga festa á blað minningar sín- ar um horfinn öðlingsmann, svo sem eins og í þakklætisskyni fyrir öll þau góðu störf sem hann innti af hönd- um hér í sveitinni á sunnanverðu Snæfellsnesi og miklu víðar. Jónas Þórólfsson fæddist að Brekku- nesi í Borgarhreppi, sonur hjónanna Þórólfs Þorvaldssonar og Ingibjargar Jónsdóttur er þar bjuggu, en það býli er fyrir löngu fallið úr byggð. Ungur að árum fluttist hann í Borg- arnes og átti þar sín uppvaxtarár að mestu og meginhluta starfsævinnar; fyrst við almenna verkamannavinnu, sjómennsku og síðan við bifvélavið- gerðir, og varð það hans aðalstarf, auk þess sem hann var lærður pípu- lagningamaður. Vann hann löngum að þeirri iðn. Vegna ónógs fróðleiks læt ég það vera að fara fleiri orðum um þennan kafla í lífi Jónasar, en þann 26. des- ember 1950 gekk hann að eiga konu sína, Guðríði Jónsdóttur frá Þingnesi í Bæjarsveit, og bjuggu þau í Borgar- nesi til ársins 1976, að þau flytjast að Lynghaga í Miklaholtshreppi. Þar höfðu byggt upp og búið um tíu ára skeið ung hjón, sem nýlega höfðu flutt í Stykkishólm. Það var mikill happafengur fyrir okkur sveitungana að fá til okkar þessi hjón úr Borgarnesi og dæturn- ar tvær, sem fylgdu þeim, og þau voru fljót að vinna sér góðan sess MINNING ______________________________^ meðal okkar. Jónas hélt áfram störfum sínum sem bifvélavirki, jámsmiður og pípu- lagningamaður og störfin voru næg, þótt stundum yrði að leita tímabund- ið út fyrir sveit og sýslu að verkefn- um. Slíkt fór þó fremur minnkandi með árunum. Og kem ég nú að þeim atriðum, sem ég vil helst draga fram í stuttu máli og gera Jónas í mínum huga og allra, sem kynntust honum, að alveg ein- stökum manni. Er þar fyrst að nefna starfsgleðina. Starfið var hans nautn og lífsfylling og oftar en einu sinni ræddum við gildi þess. Þá hugsaði ég að hann gæti gert að sinni daglegu morgunbæn orð próf. Jóns Helga- sonar: Við hliðið mitt ég heimanbúinn stend, á himni Ijómar dagsins gullna rönd. Sú gjöf mér væri gleðilegust send að góður vinrtudagur færi í hönd. Þá var vandvirkni Jónasar með ein- Grétar Sveinbergsson Fæddur 13. október 1938 Dáinn 2. október 1992 Föstudagskvöldið 2. október s.l. bárust okkur þau hörmulegu tíðindi að Grétar hefði orðið bráðkvaddur þá um kvöldið. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hann skuli vera dáinn, rétt tæplega 54 ára gamall. Grétar vann lengst af hjá Kaupfé- lagi Húnvetninga á Blönduósi. Fyrst sem mjólkurbflstjóri og síðar sem flutningabflstjóri milli Blönduóss og Reykjavíkur. Við kynntumst Grétari fyrst að ráði þegar hann kvæntist Guðrúnu, eða Gæju eins og við kölluðum hana. Það var um það leyti er við byrjuð- um okkar búskap og áttum okkar fyrsta bam. Grétar og Gæja eignuðust þrjú böm: Steingrím, sambýliskona hans er Esther Amadóttir, þau eiga einn dreng, Grétar Braga; Guðlaugu og Auði Söndm. Grétar var mikill fjölskyldumaður og mjög bamgóður. Það sáum við best þegar við bjuggum í nágrenni við þau á Blönduósi. Minningarnar streyma fram. Minn- ingar um góðan dreng sem lét sér annt um okkur. Oft og iðulega hringdi Grétar til að vita hvernig „litli bróðir“ hefði það, eða þá krakk- amir eða aðrir í fjölskyldunni. Það var alltaf gaman að tala við Grétar, hvort sem var um bfla, en það var hans áhugamál alla tíð, bfln- úmer, en hann vissi númerin á flest- um bflum í Húnavatnssýslu og á bfl- um ættingja og vina. Eða bara minningargreinarnar í dagblöðum. Það áttum við Grétar sameiginlegt að yfirleitt lásum við þær og gátum spjallað um. Nú þegar leiðir skilja, viljum við þakka Grétari samfylgdina og það sem hann gerði fyrir okkur og börn okkar. Margt er það og margt er það, sem minningamar vekur, og þær em það eina, sem enginn frá okkur tekur. (Davíð Stefánsson) Elsku Gæja, Auður Sandra, Guð- laug, Steingrímur, Esther og litli Grétar Bragi. Við vottum ykkur öll- um okkar innilegustu samúð. Einnig sendum við móður Grétars, tengdaforeldmm, fósturdóttur og systkinum samúðarkveðjur okkar. Minning um góðan dreng mun Iifa. Magga og Silli dæmum. Hvort sem verkið var stórt eða smátt varð að leysa það af hendi með þeim hætti að nálgaðist full- komnun, og allt fúsk og hálfkák fyr- irleit hann ákaflega. Slíkur var metn- aður hans til starfans. Hann var einnig afar skipulagður maður í störfum sínum og öllum háttum og því nýttist honum tíminn hið besta og tíminn var dýrmætur í hans aug- um. Nær alltaf var það þó þannig að verkin vom leyst af hendi á mun skemmri tíma en hann hafði áætlað. Það væri sannarlega mikils virði hugum iðnnema að hafa slíkan mann að læriföður. Mikil var hjálpsemi hans og greið- vikni og hvers manns vanda vildi hann leysa eftir bestu getu, og þar er margur vandinn sem upp kemur á okkar tæknivæddu öld. Við bændur hér um sveitir, sem lifðum í ömggu skjóli Jónasar og áhyggjulitlir með allt okkar véladót, vitum hvers við eigum í að missa við fráfall hans, og er það þó léttvæg og eigingjöm hugsun þegar hafður er í huga harm- ur og söknuður fiölskyldu hans og nánustu ástvina. Jónas átti ríka lund og ef til vill þótti sumum, sem minna þekktu til hans, yfirborðið hrjúft. En gmnnt undir því leyndist viðkvæmni og hjarta- hlýja, sem best kom fram í návist barna. Og oft varð ég vitni að því, þegar bamabörn hans komu á verk- stæðið til hans, að hann talaði við þau sem jafningja og lét þau rétta sér hjálparhönd, þegar því varð við kom- ið. Þetta kunnu þau vel að meta. Fal- legt var einnig að sjá hann hampa barni á armi. Þeim Jónasi og Guðríði varð fimm barna auðið, en þau em í réttri ald- ursröð: Jón, kennari, kvæntur Maríu Stein- grímsdóttur sem einnig er kennari. Þau búa á Akureyri. Ingibjörg, gift Hauki Júlíussyni verktaka. Þau búa á Hvanneyri. Anna, gift Vilhjálmi Péturssyni. Þau em bæði kennarar og búa á Hvammstanga. Bryndís, gift Svavari Þórðarsyni og búa þau á Ölkeldu. Yngst er Þórdís, sem er ógift og býr á Hvammstanga. Barnabömin em 18 talsins. Jónas hafði því frá miklu að hverfa. Hann var að mínu áliti hamingju- maður; átti ágæta konu, elskuleg börn og barnabörn, ómælda starfs- gleði eins og áður er lýst, og síendur- nýjaða gleði yfir því að hafa getað leyst úr vandamálum og bætt um annarra hag. Hvers skyldu menn óska sér frekar? Hann verður okkur minnisstæður, sem á bak honum horfum yfir móð- una miklu, og þó að við þekkjum það spakmæli að maður komi í manns stað, þá vitum við alltaf vel að enginn kemur í stað Jónasar í Lynghaga. Hann er borinn til moldar í dag að sóknarkirkju sinni að Fáskrúðar- bakka. Okkur sveitungum hans þykir vænt um að mega búa honum hinstu hvflu þar. Það sýnir að honum, og þeim hjónum, hefur liðið vel hér í sveitinni okkar og að hér hafa þau eignast góðvini og kunningja, enda þótt ræturnar liggi suður um Borg- arfjörð. Ég veit að ég mæli fyrir munn fiölda fólks innan sveitar og héraðs, þegar við hjónin í Dal þökkum öll góðu handtökin hans og dýrmæt kynni af þeim Lynghagahjónum á umliðnum árum. Við biðjum þér, Guðríður mín, bömunum þínum og barnabömum, heilla og blessunar á sorgarstund. Erlendur Halldórsson, Dal Sumarið er brátt liðið, Iitadýrð nátt- úrunnar hefúr minnt okkur á að bráðum taki vetur sér völd. Undan- farandi dagar hafa verið mildir, hlýir vindar hafa leikið um vanga, sem er dýrmæt uppbót á stutt, blautt og fremur kalt sumar. Blómin, sem uxu í varpa á s.I. vori, em að kveðja. Lífs- keðjan er sú að allt sé fallvalt hér í heimi, þar á meðal blómin — komi, fari og kveðji. Þannig er líf okkar jarðarinnar búa, að heilsast og kveðjast er lífsins saga. Öllum okkar er sköpuð sú lífsganga að heilsa og kveðja, alveg eins og þau grös sem við hlökkuðum til að sjá lífsbrodda þeirra í morgunroða maís- ólar. Ég var staddur á sjúkrahúsi í Reykjavík, þegar mér var tilkynnt lát góðs heimilisvinar míns og konu minnar. Manns sem hafði ekki alltaf hátt um sína hagi, sem alltaf var reiðubúinn að rétta fram hjálpar- hönd ef einhvers staðar var þörf hjálpar. Það skipti engu máli hvenær sólarhringsins var til hans leitað eða hvaða dag vikunnar, þeir vom allir jafnir f hans huga ef hann gat veitt aðstoð. Handbrögð á verkum hans bám glöggan vott um vandvirkni og fágaðan frágang á öllu sem hann lét frá sér fara. Jónas kvæntist 26. desember 1950 sinni góðu konu, Guðríði Jónsdóttur frá Árbakka í Andakflshreppi. Heimili þeirra hefur alla tíð verið sá arinn sem yljar öllum sem þangað koma. Enda Guðríður frábær hannyrða- og smekkkona, sem dyggilega hefúr stutt mann sinn í sínum störfum. Þeim varð fimm bama auðið, sem öll em vel af guði gerð: Jón fyrrv. skóla- stjóri á Laugum í Reykjadal; Ingi- björg húsfrú á Hvanneyri; Anna hús- frú á Hvammstanga; Bryndís húsfrú á Ölkeldu í Staðarsveit; Þórdís, starf- ar á barnaheimili á Hvammstanga. Bamabörn þeirra em 18. Jónas Þórólfsson var fæddur 15. október 1925. Foreldrar hans vom Þórólfur Þorvaldsson verkamaður í Borgarnesi, og kona hans Ingibjörg Jónasdóttir. Jónas var barn þess tíma þegar vinn- an var sá aðall, sem hver átti að temja sér, og dyggð og trúmennska vom þær lyndiseinkunnir sem hver átti að hafa hugfastar. Bjargföst trú hans var sú að trúmennska í starfi og athöfn- um væri öllum holl. Lífsbraut hans bar þess glöggan vott að hugarfar hans var þannig að ekki var hugsað um að fá sem flestar krónur fyrir sitt dagsverk, heldur hitt að geta gjört sitt verk fyrir náungann á sem skjótastan hátt. Jónas var vel menntaður í sinni iðn, bifvélavirki og pípulagningamaður. Þegar þau hjón fluttu frá Borgarnesi árið 1976 hing- að í Miklaholtshrepp, þá sagði við mig mætur og mikilsvirtur maður í Borgarnesi: „Eg óska ykkur til ham- ingju með að fá þessi góðu hjón í sveitina. Verklög Jónasar vom á þann hátt unnin að mjög fáir skila þeim eins vel.“ Þetta var réttur dómur um störf þessa öðlingsmanns. Við, sem starfa hans höfum notið, staðfestum þetta. Við fráfall Jónasar bregður mörgum við, því starísvettvangur hans spann- aði yfir margar sveitir hér á Vestur- landi. Ég mæli hér fyrir hönd allra þeirra, sem starfa hans nutu, að skarð hans er vandfyllt og þakkir em frambomar fyrir einstaka hjálpsemi og góð kynni. Kona Jónasar, mín kæra vinkona, hefur mikið misst og við, sem áttum hann að traustum og fölskvalausum vini. Börn og barnabörn syrgja góðan föður og elskulegan afa. Lífsbók Jón- asar í Lynghaga er lokið. Þar er engin blaðsíða auð, trúmennska og heiðar- leiki vom hans lífsvenjur. Fyrir allan vinskap og tryggð viljum við hjónin þakka af heilum hug. Okk- ar kæm og góðu vinkonu, Guðríði, og börnum biðjum við guð að gefa styrk á erfiðri stundu. Guðs blessun fylgi honum á nýjum leiðum. PáU Pálsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.