Tíminn - 10.10.1992, Side 10
10 Tlmirw
Laugardagur 10. október 1992
Atímum dapurleika í efnahagsmálum
Vesturlanda er Austur-Asía í sókn:
í austanverðri Evrópu er ástandið í efnahagsmálum slæmt og fer
versnandi. Á Vesturlöndum eru menn frekar svartsýnir í þeim efn-
um, hvað þann heimshluta varðar. Jafnvel Japan hefur átt við viss
vandræði í fjár- og efnahagsmálum að etja allra síðustu árin.
ar með verulegan kaupmátt og
mikinn neysluáhuga. Efnahags-
legar undirstöður þjóðfélaganna
verða þar með öruggari, þau eru
ekki á sama hátt og áður háð
mörkuðum fyrsta heimsins.
Menn sérfróðir um efnahagsmál
og hagvöxt segja að mikið atriði í
velgengni ríkjanna sjö sé að hjá
þeim fari saman tiltölulega mikill
og útbreiddur kaupmáttur og að
tiltölulega margir íbúa þeirra séu
ungir. Samanlagður íbúafjöldi
ríkjanna er liðlega 330 miljónir,
og um 70% þeirra eru undir þrí-
tugu. Ungar manneskjur eru
gjarnan ötulir neytendur á það
sem nýjast er og í tísku, ef þær
hafa peninga.
Framsókn Japana í efnahagsmál-
um varð mikilvæg forsenda þensl-
unnar hjá Super Seven. Japanski
markaðurinn varð þeim mikil-
vægur og sérstaklega síðan á s.l.
áratug hafa japönsk fyrirtæki fjár-
fest í mörgum landanna sjö í stór-
Eitt er þó það svæði í heiminum,
sem nýtur efnahagslegs viðgangs
um þessar mundir, og það svo um
munar. Þar er fyrst og fremst um
að ræða Austur-Asíuríkin Suður-
Kóreu, Taívan, Hongkong og Sin-
gapúr, „litlu drekana fjóra“, eins
og þau eru gjarnan kölluð þar. Sú
þensla er farin að breiðast út til
Malasíu, Indónesíu, Taflands, Ví-
etnams og Suður-Kína.
Super Seven
Spáð er að aukning vergrar þjóð-
arframleiðslu þetta árið verði um
8,5% í Malasíu og Taílandi og um
6,5-7,5% í Indónesíu, Suður-Kór-
eu, Singapúr og á Taívan. Síðast-
nefnda ríkið á í handraðanum
meiri gjaldeyrisforða en flestöll
önnur, og síðan 1951 hefur hag-
vöxtur þar að meðaltali verið 10%
á ári.
„Litlu drekarnir fjórir" fóru fyrst
að láta í stórum stíl að sér kveða á
heimsmarkaðnum á áttunda ára-
tugnum og á s.l. áratug voru Mal-
asía, Indónesía og Taíland farin að
magnast svo mjög í efnahagsmál-
um að farið var á ensku að flokka
ríki þessi öll saman sem „Super
Seven". Af vörum, sem þaðan
komu, voru framan af þekktastir
skartgripir af ómerkilegra taginu
og ódýr og endingarlítil leikföng.
Þar fyrir utan var það mesta af út-
flutningnum þaðan hráefni.
Nú er útflutningur ríkja þessara
aftur á móti iðnaðarvörur mikið
til og ekki síður hátæknivarning-
ur. Frá Malasíu kemur nú meira af
örgjörvum en nokkru öðru ríki í
heimi. Helsta útflutningsvara Ta-
flands er rafeindavarningur í stað
vefnaðarvöru áður. Lífskjör og
neysla hafa risið svo í löndum
þessum að „Iitlu drekarnir fjórir"
a.m.k. eru farnir að nálgast fyrsta
heiminn (Vesturlönd, Japan,
Eyjaálfu) í þeim efnum. Að telja
þau til fátæklinganna í þriðja
heiminum er a.m.k. orðið nokkuð
úrelt.
Þensla út frá Japan
Efnahagsundur Super Seven
byggðist framan af einkum á út-
flutningi til Vesturlanda og Jap-
ans, enda atvinnulíf þeirra þá
skipulagt með það fyrir augum.
Nú er helmingur af utanríkis-
verslun ríkjanna sjö á milli þeirra
innbyrðis og auk þess selst mikill
hluti framleiðslunnar á heima-
markaði. Batnandi lífskjör hafa
hér eins og annarsstaðar haft í för
með sér mikla stækkun millistétt-
Hermenn I Seúl, höfuöborg
Suöur- Kóreu, á veröi gegn
stúdentum: lýöræöishefðin er
ekki sterk.
um stfl. Sumt af því þekktasta af
japönskum varningi á Vestur-
landamarkaði, Sony- sjónvarps-
tæki t.d., kemur nú þangað frá
t.d. Malasíu og Taflandi. Ennfrem-
ur hefur fjármagnsflótti frá Hong-
kong, þar sem menn horfa með
kvíða fram til fyrirhugaðrar sam-
einingar við Kína eftir fímm ár,
orðið efnahagslífi hinna ríkjanna
sex meðal Super Seven lyftistöng.
„Áður en ég fer til
himnaríkis
Þar að auki eru smádrekarnir
fjórir orðnir það þróaðir að þeir
eru á þeim grundvelli farnir að
flytja út fjármagn til hinna
þriggja. Þriðjungur erlendrar
fjárfestingar í Malasíu, Taflandi og
Indónesíu er nú frá „drekunum".
Taívan fjárfestir nú allra erlendra
ríkja mest í Malasíu.
Sumir efnahagsmálasérfræðing-
ar tala f þessu sambandi um
þenslu og útþenslu í bylgjum.
Fyrsta „bylgjan" hafi komið frá
Japan einkum til „litlu drekanna
fjögurra", önnur í röðinni frá
þeim til hinna þriggja í Super Se-
ven og nú rísi sú þriðja og falli inn
í Víetnam og Suður-Kína.
Shenzhen, efnahagslegt sérsvæöi viö iandamæri Hongkong og
eftirmynd hennar: Fyrirmyndin aö Kfna framtíöarinnar, segir Deng
Xiaoping.
Ofmælt væri að segja að kalda
stríðið hefði á þessum slóðum
dottið jafn gersamlega niður og í
Evrópu, en úr kulda þess hefur
eigi að síður mikið dregið. Óvild
milli kommúnista og andkomm-
únista er samskiptum því miklu
minni þrándur í götu en var fyrir
skömmu. Enda fjárfesta nú fyrir-
tæki frá Super Seven í Víetnam,
sem hefur iðinn og fremur vel
skólaðan verkalýð og þar sem
ströng miðstýring í atvinnulífi er
á undanhaldi.
í Kína segist Deng Xiaoping,
landsfaðir þar sem kominn er
undir nírætt, ætla að koma efna-
hag landsins á traustan grundvöll
„áður en ég fer til himnaríkis, þar
sem Marx tekur á móti mér“, eins
og hann hefur orðað það. Það
hyggst hann gera með efnahags-
legum sérsvæðum, þar sem einka-
framtak ríkir og opið er fyrir fjár-
magnsinnflutningi. Þetta hefur
þegar leitt til mikils efnahagsvaxt-
ar í Guangdong, grannfylki Hong-
kong.
Súper-Taívan
Deng Xiaoping: Þessi vopnabróöir Maós formanns býöur fjármagn
frá eftirmönnum erkióvinar hans, Chiangs Kai-shek, velkomiö til
suðurkínversku strandfylkjanna.
Af Super Seven er það Taívan,
sem athafnasömust er í Kína,
enda sumra mál að efnahagslega
séð sé eyríki þetta kröftugast um-
ræddra sjö ríkja um þessar mund-
ir. Taívanskir atvinnurekendur
hafa vaxandi áhuga á kínverska
meginlandinu, vegna lægri launa
þar en á Taívan og kostnaðar-
samra ráðstafana til umhverfis-
verndar sem taívönsk stjórnvöld
eru farin að krefja fyrirtækin um.
Þegar eru starfandi í Suður-Kína
um 5000 fyrirtæki sem Kínverjar
og Taívanar eiga saman. Taívansk-
ir stóratvinnurekendur og Kína-
banki vinna í sameiningu að sam-
runa efnahagslífs Taívan, Hong-
kong og strandfylkja Suður- Kína.
„Draumur minn er suðurkín-
verskt Evrópubandalag," segir Ge-
orge Wang, taívanskur þingmaður
sem á stáliðjuver og banka. „Við
höfum peninga og reynslu, Kína-
markað og vinnuafl." Áratugum
saman lifðu menn á Taívan (íbúar
um 21 milljón) í ótta við hugsan-
lega hernaðarinnrás frá Kína (íbú-
ar um 1160 millj.). Nú segja sum-
ir að í staðinn sé Taívan byrjað að
leggja undir sig Kína með fjár-
magni.
Skýringar á árangri umræddra
ríkja eru orðnar þó nokkrar. Litlu
drekarnir eru ekki hráefnaauðug-
ir. En nálægð þeirra við ríki undir
stjórn kommúnista — Kína,
Norður- Kóreu og Víetnam —
+