Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Þetta verk heitir Fjallasúrmjólk og er eftir pabba minn, Gylfa heit- inn Gíslason myndlistarmann. Það er eitt af hans þekktustu og mik- ilvægustu verkum, en í grunninn notar hann þekkt landslagsverk frá Þingvöllum eftir Kjarval sem heitir Fjallamjólk og bætir við þremur súrálsturnum sem rísa upp úr landslaginu og speglast í tærri lindinni,“ segir ljósmyndarinn Freyja Gylfadóttir um þann hús- mun á hennar heimili sem henni er hjartfólgnastur. „Pabbi teiknaði Fjallasúrmjólk árið 1973. Myndin var ádeila á álverið í Straumsvík sem formlega hafði verið vígt og tekið í notk- un þremur árum áður, en á jafn- vel enn meira erindi í endalausri álvæðingu okkar í dag, enda við á kolrangri braut í henni eins og svo mörgu öðru. Annað verk hans, og nánast eins, frá árinu 1971 er í eigu Listasafns Íslands,“ segir Freyja sem deildi skoðunum með föður sínum og er andvíg álverum í íslenskri náttúru. Myndin á því vel heima hjá Freyju. „Verkið er í öndvegi stofu minn- ar og vekur bæði athygli gesta, sem og margræðar tilfinningar hjá sjálfri mér, því 1. febrúar árið 2000 kom pabbi með það færandi hendi og gaf mér á sængina, þegar ég var að eignast mitt eina barn. Það var því mikill gleðidagur, bæði að fá þessa mynd og eignast strákinn, en svo ótrúlega merkileg örlög að upp á dag, nákvæmlega sex árum síðar, þann 1. febrúar 2006, varð pabbi bráðkvaddur á afmælisdegi sonar míns. Þá fékk þessi annars merkisdagur á sig sorgarblæ í bland við gleðilegt upphaf hans og tilefni. Verkið hefur því enn meiri þýðingu fyrir sjálfa mig nú, sem og sjálfsagt son minn þegar fram líða stundir.“ Freyja rekur ljósmyndastofuna Studio 101 þar sem alltaf er í nógu að snúast við portrett-myndatökur af lífsins stóru tilefnum, hvort sem það eru fermingar, brúðkaup, fjöl- skyldu- eða barnamyndatökur. „Kreppan hefur haft lítil áhrif á starfsemi stofunnar, enda við- fangsefnið dýrmætt. Fólk vill síður fresta myndatökum á stærri stundum lífsins, eða af uppvexti barna sinna, því tíminn eirir engu né stendur nokkurn tímann í stað.“ thordis@frettabladid.is Fjallasúrmjólk frá pabba bundin miklum örlögum Þjóðlífið tekur örum breytingum, en mannfólkið öllu hægari, í það minnsta þegar kemur að skoðunum á landsins gagni og nauðsynjum, eins og sjá má í áleitnu en sígildu viðfangsefni myndar Gylfa Gíslasonar. Freyja Gylfadóttir undir Fjallasúrmjólk föður síns, með heimilishundinn Stubb í fanginu, en hann er eins árs og af tegundinni Border Terrier, sem er sterkbyggð en fremur smávaxin og þykir einkar geðgóð sem félagi á heimili. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA s g Mjódd Næsta námskeið hefst 6. mars n.k. UPPLÝSINGAR O VINNUVÉLANÁMSKEIÐ FYRSTU ÁHRIF skipta máli og því er mikilvægt að aðkoma heimilisins sé aðlaðandi fyrir gesti sem ber að garði. Falleg húsgögn, hlýlegir litir og lifandi blóm gera forstofuna að góðum stað til að hefja heimsóknina á. Leitið upplýsinga hjá sölufulltrúum; Jóna María Hugi 512 5473 512 5447

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.