Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2009, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 02.03.2009, Qupperneq 26
18 2. mars 2009 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is F í t o n / S Í A 24. – 26. apríl 3. – 5. apríl Verð á mann í tvíbýli: 73.900kr. 75.900kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, hótelgisting í 2 nætur með morgunverði og miði á leikinn. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, hótelgisting í 2 nætur með morgunverði og miði á leikinn. Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Man. Utd. Aston Villa West Ham Chelsea Verð á mann í tvíbýli: Boltinn er hjá okkur! Eimskipsbikar karla: Valur-Grótta 31-23 (14-9) Mörk Vals: Sigurður Eggertsson 7, Heimir Örn Árnason 5, Orri Freyr Gíslason 4, Arnór Gunnars- son 4, Baldvin Þorsteinsson 3, Elvar Friðriksson 2, Dagur Sigurðsson 2, Sigfús Páll Sigfússon 1, Hjalti Pálmason 1, Gunnar Harðarson 1, Varin skot: Ólafur Haukur Gíslason 9/1. Mörk Gróttu: Arnar Freyr Theodórsson 7, Finnur Ingi Stefánsson 7/5m Atli Rúnar Steinþórsson 4, Þórir Jökull Finnbogason 3, Þorleifur Árni Björns- son 2, Davíð Hlöðversson 1. Varin skot: Hlynur Morthens 14/1. Eimskipsbikar kvenna: FH-Stjarnan 22-27 (13-14) Mörk FH: Ragnhildur Guðmundsdóttir 7/3, Ingibjörg Pálmadóttir 5, Guðrún Tryggvadóttir 4, Birna Íris Helgadóttir 2, Hafdís Inga Hinriks- dóttir 2, Arnheiður Guðmundsdóttir 1, Gunnur Sveinsdóttir 1. Varin skot: Kristina Kvaderiene 11. Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kjærnested 8, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 5, Alina Petrache 5/3, Elísabet Gunnarsdóttir 3, Þórhildur Gunnarsdóttir 2, Kristín Clausen 2, Aðalheiður Hreinsdóttir 1. Varin skot: Florentina Stanciu 19/1. Enska úrvalsdeildin: CHELSEA - WIGAN ATHLETIC 2-1 1-0 John Terry (24.), 1-1 Olivier Kapo (81.), 2-1 Frank Lampard (90.). EVERTON - WBA 2-0 1-0 Tim Cahill (35.), 2-0 Louis Saha (69.). MIDDLESBROUGH - LIVERPOOL 2-0 1-0 Alonso sjálfsm. (32.) 2-0 Tuncay Sanli (62.) ARSENAL - FULHAM 0-0 WEST HAM- MAN. CITY 1-0 1-0 Jack Collison (71.). HULL - BLACKBURN 1-2 0-1 Stephen Warnock (34.), 0-2 Keith Andrews (36.), 1-2 Ian Ashbee (79.). BOLTON - NEWCASTLE 1-0 1-0 Ricardo Gardner (47.). ASTON VILLA - STOKE CITY 2-2 1-0 Stilian Petrov (45.), 2-0 John Carew (79.), 2-1 Ryan Shawcross (87.), 2-2 Glenn Whelan (90.). STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA: Man. United 26 19 5 2 46-11 62 Chelsea 27 16 7 4 47-16 55 Liverpool 27 15 10 2 43-20 55 Aston Villa 27 15 7 5 42-27 52 Arsenal 27 12 10 5 38-25 46 ----------------------------------------------------- Tottenham 26 7 7 12 28-32 28 Newcastle 27 6 10 11 33-43 28 Portsmouth 26 7 7 12 29-43 28 Blackburn 26 6 8 12 30-43 26 Middlesbrough 27 6 8 13 20-36 26 Stoke City 27 6 8 13 25-44 26 WBA 27 6 4 17 24-51 22 ÚRSLIT Iceland Express-deild karla: Snæfell-Grindavík 89-88 Stig Snæfells: Lucious Wagner 22, Sigurður Þorvaldsson 20, Jón Ólafur Jónsson 17, Hlynur Bæringsson 15, Slobodan Subasic 6, Atli Hreins- son 5, Magni Hafsteinsson 4. Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 48, Þor- leifur Ólafsson 11, Páll Axel Vilbergsson 10, Arnar Freyr Jónsson 10, Nick Bradford 4, Helgi Jónas Guðfinsson 3, Páll Kristinsson 2. ÍR-FSu 83-80 Þór Skallagrímur 140-65 Stig Þórs: Konrad Tota 27, Baldur Jónasson 21, Óðinn Ásgeirsson 18, Daniel Bandy 18, Guðmundur Jónsson 15, Hrafn Jóhannesson 12, Sigurður Sigurðsson 11, Jón Kristjánsson 8, Baldur Stefánsson 6, Björgvin Jóhannesson 2, Sigmundur Eiríksson 2. Stig Skallagríms: Landon Quick 35, Sveinn Davíðsson 15, Þráinn Ásbjörnsson 11, Hörður Unnsteinsson 3, Sigurður Sigurðsson 2. HANDBOLTI Valur tryggði sér sigur í Eimskipsbikarnum annað árið í röð með öruggum sigri á Gróttu, 31-23, í sveiflukenndum leik. Þetta er í fyrsta skipti sem Valur vinnur bikarinn tvö ár í röð. Valslið Ósk- ars Bjarna Óskarssonar er því búið að skrá sig rækilega í sögu- bækurnar á Hlíðarenda. 1. deildarliðið af Seltjarnarnesi var yfirspennt í upphafi leiks og lenti fljótlega 6-0 undir. Munur- inn var síðan fimm mörk í leik- hléi, 14-9. Það var allt annað og betra Gróttulið sem mætti til leiks í síðari hálfleik. Gróttustrákarn- ir börðust grimmilega og ætluðu greinilega að selja sig dýrt. Þeir náðu að koma muninum í tvö mörk, 14-12, en þá tók Sigurður Eggerts- son til sinna ráða. Hann skoraði glæsileg mörk og byrjaði að tína leikmenn Gróttu af velli með tveggja mínútna brott- vísunum en þeim gekk bölvanlega að stöðva Sigurð. Þökk sé Sigurði náði Valur aftur fínni forystu og liðið leit aldrei til baka eftir það. „Hver ræður eiginlega við Gleði- gjafann?“ sagði Sigurður léttur í leikslok. „Mér fannst þeir ekkert ráða við mig. Ég var vel stemmd- ur sem og allt liðið. Það kom smá kafli í leiknum þar sem Grótta fatt- aði ekki að þeir væru verri en við en svo sagði þeim einhver það og þá lagaðist þetta allt aftur,“ sagði Sigurður og hló dátt. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var stoltur í leikslok. „Hvatn- ingin var að verða fyrsta Valslið- ið til að vinna tvo bikara í röð. Ég er mjög stoltur af þessu afreki. Ég sýndi einmitt í myndbandi fyrir leikinn myndir af Mulningsvél- inni, frá Geirs-kynslóð og svo lið- inu sem Óli Stefáns og Dagur léku með,“ sagði Óskar Bjarni brosmild- ur. „Ég var aldrei öruggur með sig- urinn og það fór verulega um mig í stöðunni 14-12. En strákarnir sýndu svo úr hverju þeir eru gerð- ir,“ sagði Óskar og hrósaði síðan Gróttuliðinu og Ágústi þjálfara þeirra í hástert. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Gróttu, var nokkuð ánægður með sína menn. „Við byrjuðum nátt- úrulega skelfilega. Ég hræddist það mest að við myndum lenda í vandræðum í upphafi. Við í raun- inni töpum leiknum strax á þessum kafla. Við náðum aðeins að þjarma að þeim en Valur er of reynt lið til að tapa svona forystu. Ég var samt ánægður með hvernig mitt lið kom til baka,“ sagði Ágúst Þór. henry@frettabladid.is Gleðigjafinn gerði útslagið Sigurður Eggertsson, sem er oft kallaður Gleðigjafinn, fór mikinn þegar Valur tryggði sér sigur í Eimskipsbikarnum með sigri á Gróttu, 31-23. Gróttustrákarnir sýndu karakter með endurkomu í síðari hálfleik en þá steig Sigurður upp. GÓÐUR DAGUR Dagur Sigurðsson spilaði með Val í Höllinni og skoraði tvö góð mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SIGURHRINGUR Sigurður Eggertsson og Baldvin Þorsteinsson hlaupa hér sigurhring- inn með bikarinn í Höllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Stjarnan vann öruggan og sanngjarnan sigur á FH, 27-22, í úrslitum Eimskipsbikar kvenna. Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik en Stjarnan hreinlega kafsigldi FH í síðari hálfleik. Þá spilaði liðið sterka vörn, Florentina datt í gírinn í markinu og hraðaupphlaupin komu á færibandi. FH-stúlkur áttu ekkert svar. Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar, var kampakátur í leikslok en hann tók við Stjörnuliðinu á miðjum vetri og hefur gert góða hluti með liðið. „Mér líður alveg svakalega vel. Það er stórkostleg tilfinning að koma með lið hingað í Höllina sem þjálfari og fá að upplifa sigur er æðislegt,“ sagði Atli og brosti út að eyrum. Þetta var hans fyrsti bikarsigur sem þjálfari en hann vann einu sinni bikarinn sem leikmaður og þá með FH árið 1994. „Vörnin var frábær í síðari hálfleik og Flora varði flott skot. Þá fáum við auðveld mörk úr hraðaupphlaupum og það kláraði leikinn. Ég var pínu smeykur því við spiluðum á fáum mönnum en þessar stelpur eru í svakalega góðu formi og héldu þetta út. Það var mitt happ í dag. Ég var mjög seint í rónni enda hefur okkur gengið illa að hrista þetta FH-lið af okkur í leikjum vetrarins,“ sagði Atli og hljóp svo að fagna með stelpunum sínum. „Þær spiluðu sterka vörn og það voru allt of fáir leikmenn hjá okkur sem voru að spila af eðlilegri getu í sókninni. Þar af leiðandi skorum við of lítið,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari FH-liðsins, svekktur í leikslok. „Ég var ágætlega sáttur við varnarvinnuna lengstum. Mörg af þeirra hraðaupphlaupum komu af því sóknin var að klára illa. Vörnin hefði átt að gefa okkur meiri möguleika en sóknin bilaði því miður. Þetta var svekkjandi,“ sagði Guðmundur. EIMSKIPSBIKAR KVENNA: FH GAF ALLT OF MIKIÐ EFTIR ÞEGAR LEIÐ Á LEIKINN GEGN STJÖRNUNNI Stjörnustúlkur keyrðu yfir FH í síðari hálfleik FÓTBOLTI Man. Utd heldur enn í drauminn um að vinna allar keppn- ir. United lagði Tottenham að velli í úrslitum deildarbikarsins í gær. Ekkert var skorað í venjulegum leiktíma eða framlengingu. Það þurfti því að útkljá viðureignina í vítaspyrnukeppni. Þar reyndust taugar Manchest- er-strákanna betri. Ben Foster varði frá Jamie O´Hara, David Bentley skaut fram hjá á meðan United skoraði úr öllum sínum spyrnum. Harry Redknapp, stjóri Spurs, var stoltur af sínum strákum. „Mér fannst við vera frábærir. Þetta var frábær frammistaða og leikurinn endaði með lottói. Það verður samt að viðurkennast að það var ekki sama sjálfstraust hjá okkur og þeim í vítunum,“ sagði Redknapp. Ryan Giggs er bjartsýnn á að United takist að vinna allar keppn- ir í vetur. „Það er enn langt í hina bikarana en við verðum að halda í hungrið og halda áfram að spila vel. Hungrið í stjóranum smitast í leikmennina og það sést á leik- mönnum,“ sagði hinn 35 ára gamli Giggs. - hbg Man. Utd vann deildarbikarinn eftir maraþonviðureign gegn Tottenham: Draumurinn lifir hjá Man. Utd HRESSIR Nani, Ronaldo og Giggs fögnuðu innilega. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Það er mikil spenna komin í spænsku deildina eftir 4-3 tap Barcelona gegn Atletico Madrid í gær. Diego Forlan og Sergio Agu- ero skoruðu báðir tvö mörk fyrir Atletico. Thierry Henry skoraði tvö fyrir Barca og Lionel Messi eitt. Eiður Smári lék allan leikinn og lagði upp eitt mark. Forysta Barcelona er nú aðeins fjögur stig og Real Madrid búið að vinna tíu leiki í röð. - hbg Atletico skellti Barcelona: Forskot Barca nú fjögur stig KR REYKJAVÍKURMEISTARI KR vann Fylki, 3-1, í úrslitum Reykjavíkurmótsins í gær. Pape Faye kom Fylki yfir en Guðmundur Pétursson, Óskar Örn Hauksson og Jónas Guðni Sævarsson skoruðu í síðari hálfleik fyrir KR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Snæfell lagði Grindavík Það var háspennuleikur í Stykkishólmi í gær þegar Snæfell lagði Grindavík að velli, 89-88. Jón Ólafur Jónsson skoraði sigurkörfuna þegar 9 sekúndur lifðu leiks. Arnar Freyr Jóns- son átti síðasta skot Grindavíkur en það gekk ekki. Vonir Grindavíkur um sigur í deildinni eru því litlar eftir tapið. Brenton Birmingham var þó maður kvöldsins en hann fór hamförum í leiknum og skoraði 48 stig. Þór slátraði Skallagrími í botnslagnum fyrir norðan og ljóst að Skallagrímur fellur. ÍR marði svo mikilvægan sigur á FSU í Seljaskóla.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.