Fréttablaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 30
22 2. mars 2009 MÁNUDAGUR
„Nei, þeir vilja ekki setja mig
á lista. Þannig að ég fór í Fram-
sóknarflokkinn til að segja mig úr
honum aftur. Þeir skilja ekki út á
hvað þetta gengur,“ segir Sævar
Ciesielski.
Fréttablaðið greindi frá því fyrir
nokkru að Sævar stefndi ótrauður
á 1. sæti á lista framsóknarmanna
á Suðurlandi. Enda á Sævar rætur
að rekja þangað. En eitthvert bix
er með lögheimili og sá fram-
kvæmdastjórn flokksins öll tor-
merki á að Sævar gæti tekið sæti á
lista flokksins þar. En bauð honum
þess í stað sæti aftarlega á lista í
Reykjavík. Sævar hins vegar telur
nú réttu stundina upp runna til að
hafa áhrif og breyta samfélaginu.
Hann segist eiga vísan stuðning
meðal námsmanna í Háskólanum
enda lætur hann sig málefni þeirra
nokkru varða. Og Sævar er nýlega
kominn frá Eyjum þar sem honum
var gríðarlega vel tekið þrátt fyrir
að Eyjar séu íhaldsbæli að sögn
Sævars. „Elliði Vignisson bæjar-
stjóri er afbragðsmaður. Ég átti
fund með bæjarstjórninni sem
var útvarpað. Og við ræddum
meðal annars aflaheimildir og
loðnu sem skiptir plássið gríðar-
lega miklu máli.“
Virðist nokkuð brátt um kand-
ídata í kosningar á vegum Fram-
sóknarflokksins. Áður hafði Þrá-
inn Bertelsson gefið á sér kost
en dró sig til baka. Sævar er þó
ekki af baki dottinn. Hann seg-
ist hafa stofnað árið 1995 félag:
Samtök um réttlæti. Og undirbýr
nú sérframboð undir fána þeirra
samtaka. „Allt klárt og stimplað.
Það verður að standa vörð um þá
sem minnst mega sín í samfélag-
inu.“ - jbg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT
2. veiða, 6. hæð, 8. meðal, 9. fram-
koma, 11. tveir eins, 12. afspurn, 14.
gistihús, 16. mun, 17. bjálki, 18. skörp
brún, 20. klaki, 21. pottréttur.
LÓÐRÉTT
1. útdeildu, 3. málmur, 4. sumbl, 5.
þróttur, 7. sáttir, 10. arinn, 13. sigað,
15. andaðist, 16. kirna, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. háfa, 6. ás, 8. lyf, 9. fas,
11. ll, 12. umtal, 14. hótel, 16. ku, 17.
tré, 18. egg, 20. ís, 21. ragú.
LÓÐRÉTT: 1. gáfu, 3. ál, 4. fyllerí, 5.
afl, 7. samhuga, 10. stó, 13. att, 15.
lést, 16. ker, 19. gg.
Ciesielski segir sig úr Framsókn
Sama hvernig heimurinn velkist þá
er eitt á hreinu: Francisca Mwansa,
kátasta kassadama landsins, verð-
ur brosandi þegar hún afgreið-
ir þig næst í Bónus úti á Granda.
Glaðværð hennar og vinsemd hefur
vakið verðskuldaða athygli. „Maður
fer alltaf í röðina hjá henni þótt það
sé styttri röð annars staðar. Hún er
alltaf svo glöð,“ segir eldri maður.
Hann er ekki einn um þessa skoð-
un.
„Ég kom hingað frá Sambíu í okt-
óber árið 2000. Vinur minn hafði
fundið fyrir mig vinnu á elliheim-
ilinu Skógarbæ,“ segir Francis-
ca. „Mér þótti ægilega skrýtið að
koma hingað. Ég hafði til dæmis
aldrei séð snjó áður. Ég fór að læra
íslensku á námskeiði og af gamla
fólkinu í vinnunni. Næst fór ég að
vinna hjá samlokugerðinni Sóma en
þar töluðu allir ensku svo íslensku-
námið mitt lá niðri. Það eina sem
var sagt á íslensku var „skera“,
„ostur“ og svoleiðis. Svo fór ég að
vinna fyrir rúmlega tveimur árum
á kassanum í Bónus. Hingað kemur
margt vinalegt og gott fólk sem
er duglegt við að leiðbeina mér í
málinu. Ég var feimin við að tala
íslenskuna fyrst en ekki lengur.“
Francisca segist sakna fjölskyldu
sinnar í Sambíu og lætur hugann
stundum reika þangað þegar það
er rólegt á kassanum. Hún hefur
tvisvar sinnum farið heim eftir að
hún flutti til Íslands og var nokkra
mánuði í heimahögunum í hvort
skipti. „Við búum úti í sveit, en það
er algjör misskilningur hjá mörg-
um að ég hafi verið umkringd villi-
dýrum, ljónum og gíröffum. Í eina
skiptið sem ég hef séð ljón var nú
bara þegar ég sá það í þjóðgarðin-
um.“
Kassadaman Francisca er kaþ-
ólsk og leggur mikla rækt við
trúna. Lífið gengur daglega sinn
vanagang. „Ég fer alltaf á sam-
komu á morgnana hjá Móður Ter-
esu í Breiðholti og þaðan í aðra
vinnu sem ég er í. Þar er ég í tvo
tíma. Svo fer ég heim og í Bónus-
gallann og svo er ég á kassanum frá
tólf til sjö. Ég einbeiti mér að hverj-
um kúnna og hef eignast marga
vini. Ég hef því miður ekki ferðast
mikið um Ísland. Ég hef eiginlega
bara séð það sem hægt er að sjá út
um strætórúðuna. Þegar Bónus var
úti á Seltjarnarnesi kynntist ég Sel-
tjarnarnesi og nú er ég öllum hnút-
um kunnug úti á Granda. Einu sinni
fór ég þó til Grundarfjarðar og einu
sinni til Þingvalla. Þar er rosalega
fallegt og mig langar auðvitað til
að ferðast meira um þetta fallega
land.“
Francisca segist sjá mikinn mun
á fólki eftir að kreppan skall á. „Já,
maður finnur til dæmis fyrir breyt-
ingu í strætó,“ segir hún. „Það er
einhvern veginn þyngra yfir og fólk
er ekki eins glatt og það var.“
En kreppan bítur ekki á Franc-
iscu, enda á hún sér leyndarmál,
sem þó er ekkert leyndarmál.
„Guð er eina leyndarmálið!“ segir
hún sannfærandi og verður alvar-
leg um stund. „Ef ég er eitthvað
hnuggin hugsa ég bara til Hans
og þá verð ég glöð í hvert skipti.
Kreppan skiptir litlu máli. Það
eina sem skiptir máli er Guð, gott
fólk, börnin og náttúran. Við finn-
um aldrei alvöru hamingju í pen-
ingunum. Enginn banki endist að
eilífu. Nema sá á himnum.“
drgunni@frettabladid.is
FRANCISCA MWANSA: KYNNIST ÍSLANDI Í GEGNUM STRÆTÓRÚÐUNA
Kátasta kassadama landsins
GUÐ ER EINA LEYNDARMÁLIÐ! Francisca Mwansa er kátasta kassadama landsins. Hún segir að kreppan skipti litlu máli. Ef hún er
hnuggin hugsar hún bara til Guðs og verður glöð að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SÆVAR CIESIELSKI
Segir ekki hægt
að breyta
Framsóknar-
flokknum
og stefnir
nú á sér-
framboð.
Fótboltafélagið Styrmir stendur
fyrir fyrsta alþjóðlega fótbolta-
móti samkynhneigðra á Íslandi
um páskana, Iceland Express Cup
2009.
„Styrmir hefur verið til síðan
2006 og við höfum spilað í Lond-
on, Kaupmannahöfn og Argent-
ínu,“ segir Alfreð Hauksson for-
maður Styrmis. „Við vorum meira
að segja með í utandeildinni 2007
og vorum tæklaðir og allt. Það var
bara gaman að prófa það.“
Alfreð segir mikinn áhuga
fyrir alþjóðlega fótboltamótinu.
„Það mæta 7-8 erlend lið. London
Leftfooters og London Titans hafa
þegar skráð sig til leiks. Einnig
Hamburg Ball-boys og Rad-ball-
er frá Noregi,“ segir hann. „Svo
verða að minnsta kosti tvö íslensk
lesbíulið í keppninni. Lez Jung-
les og KMK (Konur með konum)
sem er lið eldri lesbía. Við fyllum
svo upp í þetta með eins mörgum
útgáfum af Styrmis-liðum og þarf
til að ná tólf liðum samtals. Það er
til að við getum haft riðla.“
Til að byggja upp spennu fyrir
mótið mun Stymir spila við fót-
boltalið valinkunnra Íslendinga.
Sá leikur fer fram í Kórnum í
Kópavogi sunnudaginn 8. mars kl.
14. Sveppi er fyrirliði hinna gagn-
kynhneigðu frægðarmenna. Auk
Sveppa eru sjónvarpsstjörnurnar
Auddi og Logi Bergmann í liðinu.
Einnig leikararnir Gunnar Hans-
son og Atli Geir og fyrrverandi
landsliðsfólkið Guðmundur Torfa-
son, Helena Ólafsdóttir
og Guðlaug Jónsdóttir.
Í liðinu eru líka þing-
mennirnir Steingrím-
ur J. Sigfússon, Lúðvík
Bergvinsson, Bjarni
Benediktsson og Guð-
laugur Þór Þórðarson.
„Það var rosa lítið mál
að fylla liðið og sér-
staklega auðvelt
að fá alþingis-
menn,“ segir
A l f r e ð o g
h lær. „ Það
eru að koma
kosningar og
þeir neita engu
þessa dag-
ana.“ - drg
Sveppi og Bjarni Ben. á móti hommum
„Ingólfur hefur alltaf ætlað sér
eitthvað skemmtilegt. Honum
dettur mjög margt sniðugt í hug
og kemur manni oft á óvart
með hugmyndum sínum. Hann
er auk þess kjarkmikill, duglegur
og góður mannþekkjari.“
Þuríður Árnadóttir, móðir Ingólfs Júlíus-
sonar ljósmyndara sem verður þátttak-
andi í nýjum bandarískum ferðaþætti.
FRÆGIR GEGN
HOMMUM
Sveppi og Bjarni
Ben eru meðal
þeirra sem
spila við Styrmi.
Alfreð Hauksson
fer fyrir hinu
samkynhneigða
fótboltafélagi.
Meistara ljósvakans, Ingva Hrafni
Jónssyni, sjónvarpsstjóra
á ÍNN, hefur verið
legið á hálsi af Bláu
hendinni fyrir að vera
reikull í trúnni og hafa
ekki hampað Davíð
Oddssyni sem skyldi.
Hins vegar bætti
Ingvi sig mjög í
þeim efnum á
fimmtudaginn. Þá
tók hann sig til og framdi gjörning í
beinni útsendingu, hysjaði upp um
sig brækurnar í mynd og sagðist
gera þetta fyrir hönd fjölmiðlastétt-
arinnar. Tilefnið var að sögn Ingva
það að Sigmar Guðmundsson var
með dónalegar bloggspurningar
þegar hann tók frægt Kastljósviðtal
við Davíð á þriðjudaginn í síðustu
viku.
Gjörningalistamaðurinn Snorri
Ásmundsson býður sig fram til
formennsku í Sjálfstæðis-
flokknum og hefur sent
sjálfstæðismönnum
kjarnyrt bréf þar sem
hann hnykkir á nauðsyn
þess að fá nýtt blóð.
Hann fortekur fyrir
að um fíflagang
sé að ræða af
sinni hálfu og
segir að þó að
um gjörning sé að ræða þá hafi
gjörningar ríkisstjórnar Geirs H.
Haarde verið eitt gjörningagrín og
því nær að hafa gjörningameistara
við stjórnvölinn. Gjörningar sem
hann mun standa fyrir eigi að
koma í veg fyrir að ógeðfelldir og
gráðugir drullusokkar hafi eitthvað
með hagsmuni þjóðarinnar að
gera. Ekki er vitað hvernig þetta
fellur í kramið meðal flokksfélaga.
Einn þekktasti leikari landsins
og annálaður veiðimaður, Pálmi
Gestsson, er fremur óhress þessa
dagana. Hann sótti um hreindýra-
leyfi en hans nafn kom ekki
upp úr pottinum þegar
dregið var um hverjir
fengju dýr frekar en í
fyrra og hefur Pálmi
miklar efasemdir
orðið um þetta fyrir-
komulag við úthlutun
veiðileyfa. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Íslandshreyfingin.
2 Hinn 1. mars 1989.
3 Tómas Hermannsson.