Tíminn - 02.06.1993, Qupperneq 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn..Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn...Frétta-síminii...68-76-48.
Horfur eru á að nokkrir bændur verði í vandræðum með heyöflun í
sumar vegna kals í túnum:
Miklar kalskemmd-
ir orðið í túnum í
Þingeyjarsýslu
Nikið kal er í túnum í Suður- Þing-
eyjarsýslu og bendir flest til að þó
nokkrir bændur lendi í vandræðum
með heyöflun í sumar af þessum sök-
um. Talsvert kal er Iíka á einstöku
svæðum í Skagaflrði og í Eyjaflrði.
Tjón bænda er umtalsvert vegna
þessara kalskemmda, en ekkert ligg-
ur fyrir um hvort þeim verður bætt
það að einhveiju leytL
Ari Teitsson, ráðunautur hjá Búnað-
arsambandi Suður-Þingeyinga, sagði
að verst væri ástandið í Ljósavatns-
hreppi og Aðaldælahreppi. Þar séu
miklar kalskemmdir í túnum á mjög
mörgum bæjum. Þá sé talsvert kal í
Reykjahreppi og raunar víðar í sýsl-
unni.
Ari sagði ljóst að sumir bændur lendi
í miklum vandræðum með heyöflun
nema þeir bregðist við kalskemmdun-
um á einhvem hátt. Hann sagði að
menn geti gert ýmislegt t.d. að tæta
túnin upp og sá grænfóðri. Þá hafi
sumir möguleika á að nýta tún sem
ekki hafa verið slegin á seinni árum.
Ari sagði að þrátt fyrir slæma kal-
bletti í túnum þá verði bændur að
eyða einhverjum áburði á þá þó að
þeir fái enga uppskeru af þessum
blettum. Sé enginn áburður borinn á
kalblettina sé lítil von til þess að þeir
grói aftur.
Ari sagði að ráðunautar á vegum
Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga
hafi skoðað kalskemmdimar til að
reyna að gera sér grein fyrir tjóninu.
Ekkert liggi hins vegar fyrir um hvort
Bjargráðasjóður bætti þetta tjón að
einhverju leyti.
Að sögn Eiríks Loftssonar hjá Búnað-
arsambandi Skagfirðinga er talsvert
mikið kal á afmörkuðum svæðum í
Skagafirði. Kalið er mest í Óslandshlíð
en einnig er talsvert mikið kal inn í
Hjaltadal og á bæjum í kringum Sauð-
árkróki og Hofsós.
Orsökin fyrir kalinu em mikil svella-
lög á túnum víða í Skagafirði í fyrra-
haust. Eiríkur sagði að kal væri nokk-
Hvítasunnu-
kappreiðar
Fáks
voru um helgina og f tilefni
dagsins mætti litli söðlasmið-
urínn á svæðið með fram-
leiðslu sína og hélt þannig
einnig upp á sjö ára afmæli fyr-
irtækisins. Mikið er að gera hjá
hinum hugprúða söðlasmið,
sem öríögin hafa gert að styðj-
ast við tvær hækjur í gegnum
lífið, þótt auðvitað sé alltaf von
á bata. Hann er bæði í nýsmíði
og viðgerðum og lét vel af sér.
Mynd GTK
uð algengt í túnum í Fljótunum, en
nú bregður svo við að þar er nánast
ekkert kal. Hann sagði þetta skýrast af
því að meiri snjór hafi verið í Fljótun-
um í vetur en víða annars staðar í sýsl-
unni. Eiríkur sagðist telja að á stöku
bæjum sé kalið það mikið að bændur
getí lent í vandræðum við heyöflun í
sumar. Þetta fari þó mikið eftír því
hvemig sumarið verði. Þá beri að geta
þess að víða á bæjum séu tíl miklar
fymingar. —EÓ
Uppsögnum mótmælt
Bankastarfsmenn mótmæltu f gær uppsögnum 76 starfsmanna f
Landsbanka islands meö þvf aö framfylgja starfsreglum til hins ftr-
asta. Af þeim sökum og einnig vegna mánaðamótanna var búist vlð
löngum blörööum vlðskiptavlna eftir afgreiöslu. Ekkl varö þó vart
viö lengri biðraöir en oft vill verða f bönkum og e.Lv. hafa viðskipta-
vinlr Landsbankans og annarra banka, sem gátu komlö þvf við,
slegiö þvf á frest um einn dag að fara (sinn banka og ætla að gera
það f dag. Svo kann lika aö vera aö einhverjir fastakúnnar hafi ekkl
vlljaö fara f banka f gær og þannlg sýnt f verkl andúð sfna á upp-
sögnum starfsmanna Landsbanka. Timamynd Ami BJama
í það minnsta 18 félög innan ASÍ voru með atvinnuleysi sem mældist meira en 10% í mars
sl. Atvinnuleysi mest í Bolungarvík, eða tæp 30%:
Atvinnuleysi hefur þrefaldast í
stjórnartíð Davíðs Oddssonar
í það minnsta 18 félög innan ASf voru með atvinnuleysi sem mæld-
ist meira en 10% í mars sl. Sýnu mest var atvinnuleysið hjá Verka-
lýðsfélagi Bolungarvíkur, eða tæp 30%. Á sama tíma og atvinnu-
leysi á almenna markaðnum mældist um 8% var það aðeins 1,4%
meðal opinberra starfsmanna. Á þessu árí er því spáð að atvinnu-
leysið verði að meðaltall um 5%. í fyrra var það 3% og áríð 1991
mældist atvinnuleysið 1,5% að jafnaði. Atvinnuleysið hefur því
meira en þrefaldast i stjómartíö Davíðs Oddssonar.
Hæst var hlutfall atvinnulausra
hjá félögum ófaglærðra, eða 9,3% í
mars sem leið, um 6,8% hjá fag-
lærðum og 6,4% hjá verslunar-
fólki, eða samtals 7,9% hjá aðildar-
félögum ASÍ. Á sama tíma mældist
atvinnuleysið 1,7% hjá BSRB,
0,5% hjá BHMR og 1,4% hjá kenn-
urum, eða alls 1,4% atvinnuleysi
meðal opinberra starfsmanna.
Þetta kemur m.a. fram í saman-
tekt sem hagdeild ASÍ hefur gert
Gylfi Arnbjömsson, hagfræðingur
hjá ASÍ, segir að þetta séu hrika-
legar tölur en gerir þó ráð fyrir því
að eitthvað hafi slegið á atvinnu-
leysið upp á síðkastið. Það verður
svo væntanlega kannað frekar
hversu mikið atvinnuleysið er inn-
an einstakra aðildarfélaga ASÍ og
hvemig það dreifist þegar upplýs-
ingar um atvinnuleysið liggja fyrir
frá vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins fyrir nýliðinn
maímánuð.
„Atvinnuleysið á landinu mældist
5,4% í mars sl. en lækkaði niður í
4,6% í apríl sl. En aðalskýringuna
fyrir þessari fækkun var ekki að
finna í minnkun atvinnuleysisins
heldur fjölgun á vinnumarkaði."
Af einstökum aðildarfélögum ASÍ
var atvinnuleysið langmest meðal
félaga í Verkalýðsfélagi Bolungar-
víkur eða 28,6% í mars sl. En þau
félög sem voru með 10% atvinnu-
leysi eða meira voru m.a. hjá
starfsfólki í veitingahúsum, bygg-
ingarmönnum í Eyjafirði, Verka-
lýðsfélagi Vopnafjarðar, Iðju á Ak-
ureyri, Dagsbrún, Hlíf f Hafnar-
firði, Verkalýðsfélagi Húsavíkur,
Framtíðinni í Hafnarfirði, Verslun-
armannafélagi Hafnarfjarðar,
Verkalýðsfélagi Borgarness, TYé-
smiðafélagi Reykjavíkur, Verka-
lýðsfélagi Akraness, Sjómannafé-
lagi Hafnarfjarðar, Verkalýðs- og
sjómannafélagi Keflavíkur, Vöku
Siglufirði, Verslunaramannafélagi
Suðumesja og Sjómannafélagi
Reykjavíkur.
Þótt nýsamþykktur kjarasamn-
ingur hafi vakið litla hrifriingu
innan verkalýðshreyfingarinnar,
mótaðist afstaða samninganefndar
ASÍ einkum af tveimur atriðum.
Annars vegar á því að þrátt fyrir að
kaupmáttur kauptaxtans hafi farið
rýmandi að undanfömu jafnast
engin kjaraskerðing á við þá skerð-
ingu að missa vinnuna. Af þeim
sökum var m.a. lögð áhersla á að
leggja grunn að nýrri sókn í at-
vinnumálum. Milljarður í atvinnu-
skapandi aðgerðir á þessu ári og
annað eins á því næsta til viðbótar
því sem áður hafði verið ákveðið.
Hins vegar mótaðist afstaða samn-
inganefndarinnar af því að þegar
kreppi að í þjóðarbúskapnum sé
nauðsynlegt að slá skjaldborg um
stöðu þeirra tekjulægstu. Það var
m.a. gert með því að ná fram lækk-
un matarskattsins og um greiðslu
láglauna- og orlofsbóta. -grh
MmBiaiBiBa
Miðvikudagur
2. júní 1993
101.tbl.77. árg.
VERÐ f LAUSASÖLU
KR. 110.-