Tíminn - 02.06.1993, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 2. júní 1993
f,Wf!
jMpr- ' H
llt ÍSISr
A-fíokkur gæöinga frá hægri; Danlel og Dalvar, Erling og Þokki, Atli og Þokki, Guöni og Funi og Siguröur og Glói. Viöar formaöur og frú Ragna Bogadóttir standa hjá.
Hvítasunnukappreiðar Fáks:
Reiðskólahesturinn
sló hina snillingana út
Hestamannafélagið Fákur í
Reykjavík hélt sínar árlegu
Hvítasunnukappreiðar á annan í
hvítasunnu á svæði félagsins í
Víðidal. Veðurblíða var og slæð-
ingur af áhorfendum. Helst bar
til tíðinda að Daníel Jónsson, 16
ára unglingur, kom, sá og sigraði
í A-flokki, á fermingargjöfinni,
Dalvari, sem Danni prúttaði út
úr reiðskólanum fyrir tveimur
árum. Fengu þeir félagar 8,63 í
einkunn og er það frábært og
eiga þeir félagar mikla framtíð
fyrir sér.
Þá náðust góðir tímar í 250 m Leistur frá Keldudal, rann skeið-
skeiði, en íslandsmethafinn ið á 22,79 í mótvindi og var Sig-
urbjöm Bárðarson knapi. Eitill
og Hinrik Bragason fengu tím-
ann 23,02 og má búast við mikilli
baráttu þessara snillinga í sumar.
Gunnhildur Sveinbjamardóttir
hækkaði um fjögur sæti í röðun-
arkeppninni hjá unglingunum
og sigraði óvænt á Náttfara. Sig-
urbjörn Bárðarson og Snarfari
sigmðu í 150 m skeiði á 14,53
sek. og Axel Geirsson og Fylkir
frá Steinum sigmðu í 300 m
brokki á 43,25 sek.
Umsjón:
Guðlaugur
Tryggvi
Karlsson
Hart barist fskeiöi.
Hinn margbrotna snilling f Vföidainum, Magnús Norödahl úr Borgarnesi,
munaöi ekki um aö vippa sér á bak Fáfnis- og Mósusyninum, Trygger frá
Litlu-Tungu, milli atriöa. Magnús sýndi þrjá hesta ÍA- flokki gæöinga og kom
aö tamningu efsta hests I A-flokki og þriöja hests I B-flokki.
Barnaflokkur frá hægri; Styrmir og Haukur, Bergþóra og örvar, Davfö og
Dreyri, Þórdfs og Freyja og Viöar og Baugur. Viöar formaöur verölaunar.
B-fíokkur gæöinga frá vinstri; Alfreö og Prati, Hinrik og Goöi, Eirlkur og Geisli, Sigurbjóm og Svóröur og Siguröur og Hruni. Hinn stolti eigandi Prata, Agnar Óiafsson, hampar bikurum hjá Viöari og Rógnu.