Tíminn - 02.06.1993, Qupperneq 4

Tíminn - 02.06.1993, Qupperneq 4
4 Tíminn Miðvikudagur 2. júní 1993 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gfslason Skrtfstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavlk Slml: 686300. Auglýslngaslml: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Sjávamtvegurirm — orrustuvöllur í inn- anflokksátökum Sj álfstæðisflokksins Ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar um hámarks- afla á þorski á næsta fiskveiðiári var í samræmi við spár svartsýnustu manna. Það er ekki hægt að skella skollaeyrum við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Það er glæfraspil að afneita fiskifræðinni sem vísinda- grein, ef niðurstöður fiskifræðinganna flytja ill tíðindi. Þess vegna eru fréttir um 150 þúsund tonna hámarksafla alvarlegar fyrir íslenskt efnahagslíf. Viðbrögð forsætisráðherra og sjávarútvegsráð- herra við þessum tíðindum vekja furðu. Ljóst er að sjávarútvegurinn hefur liðið í tvö ár fyrir aðgerðaleysi og fálmkennd vinnubrögð stjórn- valda. Þetta tímabil hefur einkennst af átökum milli sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra, sem hafa sýnt sig með skýrum hætti þegar ákvörðun hefur verið tekin um hámarksafla. Forsætisráðherra gaf þær yfirlýsingar nú að það væri sjávarútvegsráðherra að leggja fram tillögur um hvernig 150 þúsund tonna há- marksafla væri mætt efnahagslega. Sjávarút- vegsráðherra hefur lagt á það áherslu hingað til að afleiðingar aflaskerðingar væru efnahagsmál á forræði forsætisráðherra. Forsætisráðherra vildi ganga lengra en sjávarútvegsráðherra í þorskveiði fyrir ári, og ekki verður betur séð en það sama gildi nú. Nú bregður svo við að unnið er í sjávarútvegsráðuneytinu að tillögugerð í efnahagsmálum. Sjávarútvegurinn sem atvinnugrein er eink- anlega illa í stakk búinn til þess að mæta afla- skerðingu. Málefni hans hafa löngum verið í biðstöðu. Sjávarútvegsráðherra hreyfði í nóv- ember 1991 málefnum hans og taldi úrbætur ekki þola bið. Forsætisráðherra sagði að ekkert lægi á, og framhaldið var að leggja stórfelldar álögur á atvinnugreinina. Málefni sjávarútvegs- ins voru um langa hríð söltuð í svokallaðri tví- höfðanefnd, sem skilaði ekki tillögum um efna- hagshliðina, utan tillögur um þróunarsjóð sem liggja í salti áfram, ásamt öðrum tillögum nefndarinnar. Það dylst engum að spenna er á milli forsætis- ráðherra og sjávarútvegsráðherra, sem á rætur að rekja til átaka þeirra um formennsku í Sjálf- stæðisflokknum. Þessi spenna endurspeglast í mismunandi áherslum í sjávarútvegsmálum og stirðum samskiptum þessara aðila. Það er háskalegt ef málefni sjávarútvegsins eiga að verða áfram orrustuvöllur í innanflokksátökum í Sjálfstæðisflokknum. Er ekki mál að linni? Þá er búið að stokka urpp í stjóm- ínni,einsogtafaðhafðiverið,oger Þorsteinn Páisson aftur orðínn raunverulegur forsætisraðherra landsins, samkvæmt opinberum yfirlýsingum Jóns Baidvins og Ðavíðs Oddssonar. Trúlega verður að bíða fram yfir landsíúnd Sjálf- stæðisflokksins í haust eftir því að Porstemn verði á ný ótnefndur for- maður Sjálfetæðisflokksins, en augljóst er að endurkoma Por- steins í sjálfetæðisstjommálum er nú í uppsiglingu. Útkoma Sjálfetæðisflokksins í skoðanakönnunum að undan- fömu hefúr valdið miklum titringi og áhyggjum meðal sjálfstæðis- manna um land alIL Áhyggjumar eru sýnu verri vegna þess að f skoð- anakönnunum fó óbreyttir sjálf- stæðismenn þaö staðfest að þorri landsmanna er að hugsa það sama og þeir, nefoilega að ríkisstjómin hefur enga stjóm á ffamvindu þjóðmála og að verkstjóm og úr- ræði verkstjórans, Davíðs Odds- sonar, fera alltaf á sama veg og enda í tómri vitleysu, klaufoskap og ðgöngum. Meira að segja Davíð Oddsson, sem enn er formaður Sjálfetæðisflokksins, hefúr játað að útkoma flokks síns í könnunum sé alvarlegt mál. Gamla góða Þoretelnn Ptisson verður að segja það alveg eins og er aö það fer að verða beinlínis vand- Hitt er raunar augljóst að formað- urinn virðfet álíka ráðalaus gagn- vart þessu „alvaríega máli“ og öðr- um alvarlegum málum sem inn á hans borð koma. í stað þess að horfest f augu við þá staðreynd að; stjómarstefha hans hefur beðið skipbrot heldur hann áfram bama- legum ásökunum sínum gagnvart einhverri útvarpsstöð, sem sé svo vond við hann að hann fei ekkert fylgi í skoðanakönnunum. Þetta er sama ástæða og hann nefhdi eftir síðustu skoðanakönnun og Garri ræðalegt að hlusta á manninn bera samsæriskenningar sínar á torg hvaðeftirannað. f>ó virðist sannfæringarkraftur samsæriskenningarinnar ekki eins mikill nú og oft áður, því forsætis- ráðherrann notaði fyrsta tækifæri eftir að síðasta skoðanakönnun birtisL tíl að afeala sér þeim völd- um sem fylgja forsætisráðherra- embættínu, þ.e. völdunum til að stjóma efnahagsmálum þjóðarinn- ar. Þessi völd hefur hann fært Þor- steini Pálssyni og sagt að það væri best að Þorsteinn kæmi með aí- hliða efhahagstillögur um það hvemig ættí að mæta aflasanv drættinum, jaftihliða því sem hann legði fram tfllögur um heildarafla- mark á n;usta ári. Ekki stólaskipti, held- ur verkefhaskipti Vitað var að búast mátti við upp- stokkun í rikisstjómínni nú um rnitt árið. Fáir hefðu þó átt von á aö sú uppstokkun yrði í þvf formi að flytja verkefhi milli raðherra og ráðuneyla, en láta ráðherrana sitja áfram á sínum stólum. Þessa óvenjulegu uppstokkun má hins vegar rekja að verulegu leyti tíl sí- endurtekinna vantrausLsyfirlýs- inga sem stjómarstefnan hefúr fengið f skoðanakönnunum. Augljóst er að Davíð Oddsson efnahagsmálaráðherra er ferinn að efast um að það hafi verið svo snjallt hjá sér að ráðast aftan að fé- lagasínum Þorsteini á sínum túna. Þess vegna vill Davíð nú reyna að velta ábyrgð efnahagssLjómunar- innar yfir á hann, áður en fylgi flokksins hverfur alveg. Engu að sfður hefúr verið þannig um hnút- ana búið að ef Þorsteíni tekst að komafram með einhvers konar úr- ræði verður reynt að túlfca það sem svo að ríkísstjómin í heild hafi unnið mikinn sigur. Tákist Þor- steini það hins vegar ekki er alveg ljóst að það verður hann einn, sem situr uppi með skömmina. Og hvað svo sem segja má um stjómun Þorsteins á erfiðleikatím- um, menn minnast jú haustsins 1988, þá má hugga sig við að al- mennt eru hugmyndir hans þo skömminni skárri en hugmyndir Davíðs. Hins vegar má ljóst vera að takist Þorsteini að halda efnahags- Iegum sjó fram að landsfundi í haust - og hann þarf ekki að vinna neina stórsigra - þá er eins víst að uppstokun verði í Sjálfetæðis- flokknum sjálfum, en ekki bara í ríkisstjóminni. En viðbúið er að sú uppstokkun verði ekki eintómur verkefnaflutningur milli aðila þar sem mennimir sjálfir sitji áfram í sínum formlegu stöðum. Verði for- ; mannaskipti þá verða formanna- Hátíð og ferðahelgi Að hvítasunnan sé næstmesta ferðahelgi ársins glumdi í ljósvak- anum frá föstudegi fram á mánu- dagskvöld. Fréttir voru sagðar af hvemig gekk að tjalda hingað og þangað og að heldur kulsamt væri í útilegum. En aðalfréttir voru af því að bílar óku saman fyrir norð- an, ultu á söndunum fyrir sunnan, endastungust út af vegum fyrir vestan, skoppuðu eins og kefli eft- ir Reykjanesbraut og próflausir strákar komust upp í 130 á götum höfuðborgarinnar. En aðaláhersl- an var lögð á hve umferðin gengi vel og hrósaði lögreglan í öllum umdæmum sér á hvert reipi fyrir að bflum var yfirleitt ekið á vegum landsins og komust flestir á áfangastaði. Svo mikil helgi hvílir yfir hvíta- sunnu að ekki dugir minna en tvo hvfldardaga til að fagna himnaför, og er messað báða dagana. Kirkju- sókn minnkar í öfugu hlutfalli við fjölgun guðshúsa og sætafram- boðs í þeim. Og til að hafa eitthvað fyrir stafni á helgidögum kirkj- unnar og umsömdum fridögum verklýðsfélaganna, fer fólk út að aka og tjalda og úr verður hugtak- ið ferðahelgi og tengist kirkjuár- inu á vissan hátt, en lauslegan þó. Gleymum búsorgum Um ferðahelgi er heldur dauflegt í þéttbýli þar sem flestir eru að leita uppi fjörið einhvers staðar annars staðar. En samkvæmt reglugerðum guðslaga og mannasetninga er helgi eins og sú sem kennd er við hina hvítu sól, ætluð til að ganga í guðshús og fagna og láta ekki glepjast af veraldarvafstri og hversdagslegum búsorgum. Þetta á að sjálfsögðu við um kaupstað- ina. En þar sem ferðahelgin ríkir á vegum og og í gildaskálum með- fram þeim gilda þar aðrar reglu- gerðir. Á laugardagskvöldi fyrir Hvíta- sunnu á að loka öllu vel fyrir mið- nætti í þéttbýli. Og flest skal vera lokað þar til á annan, nema guðs- hús. Sem alkunna er gætir mikils lauslætis í opnunartíma verslana og veitingahúsa í seinni tíð og fer hríðversnandi. Hafa kaupmenn opið fram eftir öllum kvöldum og alla daga vikunnar. Vittogbreitt Á hvítsunnudag héldu nokkrir kaupmenn uppteknum hætti og opnuðu sölubúðir sínar, rétt eins og að ferðahelgin væri dregin af himnaför, en ekki bfltúrum austur fyrir íjall og upp í Borgarfjörð. En þá tók pólitíið f Reykjavík til sinna ráða og lokaði þeim búðum sem opnar voru og skýrðu kaup- mönnum frá því að dagurinn væri helgur og ekki ætlast til þess að þeir væru að selja fólki mat og annan óþarfa fyrir peninga. Þetta var dagur kirkju og presta en ekki kaupslagara. Þar sem ferðahelgin var alls stað- ar utan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur þar sem kirkjuhelgin ríkti ein var ekki lokað annars staðar. Varðstaða Það er biskupsembættið og laun- þegasamtökin sem standa vörð um helgidaga þjóðkirkjunnar og fri- daga sem þeim tengjast. Þegar tví- og þríheilagt er, sér kirkjan um helgustu dagana en ASÍ passar upp á að ekki sé hróflað við frfdögun- um sem fylgja með. Þannig má oft dansa, drekka og jafnvel versla á hvfldardögum ASI og yfir þeim hvflir jafnvel nokkur ferðahelgi. Aftur á móti er ekki til þess ætlast að menn hafist neitt að á hátíðar- dögum kirkjunnar annað en að ganga til kirkju og vera heima og borða gott og hlusta á pólyfóníska músik, matrígala og gamlar upp- tökur á leikritum. Sá doði og drungi sem fylgir kirkjuhátíðunum urðu til þess að ferðahelgin varð til og amast eng- inn við henni. Það má kaupslaga og vaka framúr eins og hverjum sýnist, aðeins ef það er ekki gert í þéttbýlinu, þar sem guð er svo miklu kröfuharðari um að reglu- gerðum sé hlýtt, heldur en með- fram vegum og á samkomustöð- um ferðahelgarinnar. Hér gætir ef til vill áhrifa frá heil- agri kirkju, en um 500 ára skeið var heilagur Nikulás frá Bár einn ástsælasti dýrlingur íslendinga, en hann var verndari ferðamanna og kaupmanna og gott ef ekki ræn- ingja. Má vera að sú ferðahelgi sem hér er upp tekin stafi frá þeim rótgróna átrúnaði, og að aðrar reglur gildi um ferðamenn á stór- hátíðum en þá sem heima sitja. Og það má segja kaupstaðakirkj- unni til hróss að á meðan hún sendir lögregluna á kaupmenn að loka búðum á stórhátíðum, er þó einhver döngun í henni. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.