Tíminn - 02.06.1993, Side 7
Miðvikudagur 2. júní 1993
Tíminn 7
Fjármálaráðuneytið skuldbreytti 123ja millj-
óna skattaskuldum rúmlega 20 aðila 1991:
Tveir aðilar
fengu 55 millj.
skattaskuld á
5-10 ára bréf
Kreppuhljóð í ferðaskrifstofum:
Fjármálaráðuneytið samdi áríð 1991 um skuldbreytingu á 123ja
milljóna kr. skattaskuldum rúmlega 20 aðila. Tveir aðilar skulduðu
45% upphæðarínnar, eða um 55 milljónir kr. Algengast var aö færa
skuldimar yfir á skuldabréf til 5 ára, en í 2 tilfellum var samfð um
10 ára lánstíma. Strax á miðju árí 1992 var um helmingur þessara
bréfa kominn í vanskil. Af 4 bréfanna vom allar gjaldfallnar afborg-
anir ógreiddar. Meðal þeirra vom bæði 10 ára bréfin.
Allt að 15% fækk-
un íslendinga
á faraldsfæti
Það em þrengingar í þjófélaginu og þess sjást víða merki. Þar eru
feröaskrífstofur engin undantekning. Forsvarsmenn þeirra tala um
allt að 15% færri bókanir íslendinga í ferðir í ár heldur en f fyrra.
Svo virðist sem þeir sem halda til útlanda á annað borð, nýti sér
ódýr fargjöld stéttarfélaga en leggi síður í sóiariandaferðir.
Frá þessum skuldbreytingum er
greint f starfsskýrslu Ríkisendur-
skoðunar fyrir árið 1992, sem var að
koma ÚL Þar kemur m.a. fram að ár-
ið 1991 sendi fjármálaráðuneytið
Ríkisendurskoðun til umsagnar er-
indi 50 aðila vegna skuldbreytinga.
Að fengnu samþykki Ríkisendur-
skoðunar samþyklrti ráðuneytið er-
indi 31 þessara aðila. Þar af hafði
verið gengið frá 24 málum í árslok
1991. Heildarfjárhæð þeirra opin-
beru gjalda sem skuldbreytt var á ár-
inu, var tæplega 123 milljónir kr. Að
langstærstum hluta var þama um
þinggjöld að ræða en einnig var
TYyggingafélögin greiddu á fimmta
hundrað milljóna í bætur vegna
rúmlega 4.000 vatnstjóna á árinu
1992. Þetta svarar til þess að um
80 bótaskyld vatnstjón verði í
bverri viku og að tiyggingarnar hafí
þurft að borga rúmlega 100.000 kr.
bætur að meðaltali í hveiju tiTviki.
Einnig þurftu tryggingarfélögin að
greiða um 100 milljónir kr. í bætur
vegna þjófnaða og skemmdarverka,
vegna meira en 1.300 tfívika. SHk
mál em því um 25 á viku bverri að
jafnaði og bæturnar um 75.000 kr.
að meðaltali í hveiju tilviki.
Þessar upplýsingar komu í ljós í
samantekt Sambands íslenskra
tryggingarfélaga. Sambandið bendir
á að þar sem sumarleyfistíminn fer
nú í hönd, sé ekki úr vegi að fólk
hugi að því hvað það geti gert til
þess að auka líkur á því að það komi
aftur að eigum sínum í sama ástandi
og það skilur við þær þegar það fer í
frí. En því miður komi það oft fyrir
að fólk komi að heimilum sínum á
kafi í vatni eða þá að innbrotsþjófar
hafi rúið heimili öllum helstu verð-
mætum og oft þar á ofan stór-
skemmd af skemmdarvörgum, á
meðan íbúamir voru áhyggjulausir í
sumarleyfi.
Samband íslenskra tryggingarfé-
laga hvetur fólk því til þess að ganga
sem tryggilegast frá eigum sínum
áður en haldið er að heiman. Mikil-
launaskatti skuldbreytt.
Öll skuldabréfin, sem gengið var
frá, voru verðtryggð og með meðal-
talsvöxtum eins og þeir eru ákvarð-
aðir af Seðlabankanum. Til trygg-
ingar bréfunum var krafist fast-
eignaveðs eða sambærilegrar trygg-
ingar. Tvö skuldabréfanna vom þó
með sjálfsskuldarábyrgð þriðja aðila.
í júlí árið 1992 vom 10 bréf í van-
skilum. Samanlagður höfuðstóll
þessara vanskilabréfa var rúmlega
þriðjungur af heildarskuldbreyting-
um ársins, eða milli 40 og 50 millj-
ónir kr.
vægt sé m.a. að Ioka fyrir vatn að
tækjum, ofnum og öðmm búnaði til
þess að minnka hættu á vatnstjón-
um. Sömuleiðis sé mikilvægt að fólk
fái vini, ættingja eða nágranna til
þess að líta reglulega eftir heimilinu
meðan það er í burtu.
„Það var þungt ár í fyrra og við
búumst við enn þyngra ári í ár,“
segir Tómas Tómasson, markaðs-
stjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals
Útsýnar, og segir að samdráttur-
inn sé mismikill eftir ferðum en
yfirleitt megi tala um 10% sam-
drátt. Þetta gerist þrátt fyrir að
verð ferða hafi yfirleitt lækkað hjá
flestum ferðaskrifstofanna. „Við
höfiim verið að lækka verð í
krónutölu á bilinu 10 til 20%,“
segir Tómas og bætir við að verð-
lækkunin hafi ekki skilað sér í
fleiri farþegum. „Þá höfum við
dregið úr framboði því við bjugg-
umst við að það yrði þungt fyrir
fæti,“ segir Tómas.
Þá telur Tómas að tíska virðist
hafa eitthvað að segja í ferðavali
fólks og bendir á færri bókanir
ferðalanga til Portúgal en til Mall-
orka. „Þetta kemur á óvart þar sem
verð á ferðum til Portúgal er hlut-
fallslega hagstæðara en til Mall-
orka og þar er verðlag einnig talið
lægra,“ segir Tómas.
Að mati Tómasar er ekki hægt að
leggja mat á hvort færri velji flug
og bfl í ár en í fyrra. Það skýrir
hann með því að yfirleitt sé bókað
með styttri fyrirvara í þessar ferðir
en aðrar ferðir.
Tómas treystir sér ekki til að
leggja stéttalegan mælikvarða á
samdráttinn. „Við verðum samt
vör við að margir ákveða að fara út
í stað þess að endumýja bflinn, svo
dæmi sé tekið,“ segir Tómas.
Haukur Birgisson, framkvæmda-
stjóri ferjunnar Norrænu, segir að
fleiri farþegar hafi bókað sig nú en
í fyrra en getur ekki nefnt tölu í því
sambandi. Hann telur að fargjald
sé hagstætt og telur að jafnframt
sé ódýrara fyrir fólk að flytja bfl
sinn út heldur en að kaupa flug og
bfl.
„Pantanir skila sér seinna í ár en í
fyrra," segir íslaug Aðalsteinsdótt-
ir hjá Ferðaskrifstofu Reykjavíkur
en telur að fleiri eigi eftir að skila
sér. „Ég held samt að samdráttur-
inn sé nálægt 10% til 15% yfirleitt
í öllum ferðum,“ heldur hún
áfram.
Hún segir að það sé áberandi
hversu seint sé bókað en býst því
við að úr rætist þegar líða tekur á
sumarið. „Fólk virðist ákveða sig
mjög seint,“ segir íslaug. Hún seg-
ir að það virðist gilda það sama um
Norðurlandabúa og aðra evrópska
ferðamenn. „Þeir pöntuðu hér áð-
ur fyrr með margra mánaða fyrir-
vara en það er breytt," segir íslaug
og segir skýringu þessa geta legið í
efnahagskreppunni.
Helgi Pétursson, markaðsstjóri
hjá Samvinnuferðum Landsýn,
segir að svonefnd aðildarfélagsfar-
gjöld hafi selst mjög vel og betur
en oftast áður. Þar á hann við ódýr
flugfargjöld sem félögum stéttar-
félaga gefst tækifæri á að nýta sér
en í ár var samið við Flugleiðir um
þessi fargjöld.
„Við merkjum samt samdrátt í
sólarfluginu," bætir Helgi við en
telur að það eigi samt eftir að
koma endanlega í ljós. „Við höfð-
um spáð 10% samdrætti en erum
ekki vissir um að hann verði það,“
heldur Helgi áfram.
Hann segir að þegar sé farið að
spyrjast fyrir og bóka haustferðir
sem sé ný reynsla þeirra Sam-
vinnuferðamanna. „Fýrirtæki,
stofnanir sem og einstaklingar eru
að bóka og láta vita af sér,“ bætir
Helgi við.
Hann telur að þetta endurspegli
breyttar ferðavenjur fólks. „Eg
held að „sólarlandaferðin" sé ekk-
ert endilega lengur mælikvarðinn
og fólk fári í styttri ferðir jafnvel
oftar á ári," bendir Helgi á.
-HÞ
Póstur og sími býður upp á
nýtt farsímakerfi:
Minni farsímar
og nú getur
enginn hlerað
Nýtt stafrænt farsímakerfi verður
tekið í notkun á næsta ári en þá
hyggst Póstur og sími koma svoköll-
uðu GSM-kerfi á laggimar sem þeg-
ar er farið að nota í flestum löndum
Mið- og Vestur-Evrópu.
Helstu kostir GSM-kerfisins eru
þeir að fáanlegir verða mun fyrir-
ferðaminni farsímar, hægt verður að
nota þá um alla Evrópu og jafnframt
mun alger leynd hvfla yfir samtölun-
um sem um kerfið fara.
NMT-kerfið sem notað hefur verið
til þessa, fellur ekki úr gildi enda tal-
ið henta þeim vel sem þurfa að ná
sambandi í dreifbýli og á hafi úti.
-GKG.
- HEI
Niðurstaða Fjöruskoðunnar Evrópu 1992 leiðir í Ijós að:
íslenskar fjörur
mengast æ meir
Ástand íslensku fjörunnar hefur versnað á undanfömum þrem-
ur ámm en það kemur fram í skýrslu Fjöruskoöunnar Evrópu
1992.
Þar segir jafnframt að net og plast-
dræsur séu orðin sérstakt áhyggju-
efni. Netin eru hættuleg dýrum og
er skemmst að minnast hreindýr-
anna sem skotin voru fyrir austan
vegna þess að þau höfðu flækt hom-
in í netadræsum.
Meira er um saurgerlamengun og
skólp en búist hafði verið við og
mikið þykir vanta upp á að auknar
skólpvamir sveitarfélaga skili sér í
minnkandi mengun. Enn er ekki
vitað hvaða áhrif óþrifnaðurinn hef-
ur á dýr og menn.
Athygli vekur þó að í kjölfar endur-
vinnslu hefur umbúðum utan af
drykkjarvöm með skilagjaldi fækkað
í íslensku fiömnum.
Samtök líffræðikennara, Samlíf,
stóð að verkefninu hér á landi og fór
fiömskoðunin fram á þann hátt að
nemendur og kennarar gengu 6250
km af strandlengjunni og svömðu
spumingaeyðublaði þar sem spurt
var um gerð og ástand fiömnnar,
jurtir, dýr, rusl o.fl.
Jóhann Guðjónsson er formaður
Samlífs og segir hann að í öðmm
Evrópulöndum sé ítarleg fiömat-
hugun á borð við þessa árlegur við-
burður og er það nokkuð sem félag-
ið vill stefna að hér á landi.
„Við verðum að reyna að koma í veg
fýrir að ruslið berist í fiömmar með
því að brýna fyrir sjómönnum að
losa það ekki í sjóinn og hafa msla-
gáma á bryggjunum. Einnig verður
að gæta að því sem fýkur af landi,"
segir Jóhann. -GKG.
-HEI
Tryggingafélögin greiddu yfir 400 m.kr. bætur vegna
rúmlega 4.000 vatnstjóna á síðasta ári:
Bætur vegna vatns-
tjónauml00.000 kr.
að meðaltali