Tíminn - 02.06.1993, Page 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 2. júní 1993
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30.
Komið og fáið ykkur kaffisopa og spjallið.
Framsóknarfélögin
Kópavogur—
Framsóknarvist
Spilum að Digranesvegi 12 fimmtudaginn 3. júnl kl. 20.30. Góð verðlaun og
kaffiveitingar.
Freyfa, fétag framsóknarkvenna
fngfejöig
Aðalfundur Framsókn-
arfélags Borgamess
verður haldinn I húsi félagsins fimmtudaginn 3. júnl kl.
20.30.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður ræðir stjómmálavið-
horfið.
Sfómki
Sumartími skrífstofu
Framsóknarflokksins
Frá 17. mal verður skrifstofa Framsóknarflokksins I Hafnarstræti 20. III hæö, op-
in frá kl. 8.00 til 16.00 frá mánudegi til föstudags.
Verið velkomin Framsóknarfkrkkurirm
Maðurinn minn
Daníel Fríðrík Guðmundsson
fynverandl bóndi
Efra-Sefl, Hmnamannahreppi
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 29. mal s.l.
Ástriður Guðmundsdóttfr
____________________________________________________/
---------------------------------------------------N
if
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Hóimgarði 64, Reykjavfk
sem lést 26. maf, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 3. júni
kl. 15.
Slgurður Valdemarsson
Ásíaug Valdemarsdótbr
Ámi Valdemarsson
Svala Valdemarsdóttir
Gísli Valdemarsson
bamaböm og bamabamaböm
Theodóra StelnþórsdótUr
William S. Tracey
Anna HjartardótUr
Gunnar Rafn Jóhannesson
Lflja BragadótUr
Útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður og dóttur
Huldu Eiríksdóttur
Freyvangi 24
á Hellu
sem andaðist 27. maf s.l., fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 3. júnf
kl. 15.
Hreinn Svelnsson
Hlynur Hreinsson
Anna GuðmundsdótUr
_________________________________________________________/
GARÐSLATTUR
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Upplýsingar í síma 41224, eftir kl. 18.00.
Dagurinn langi
Groundhog Day ★★★
Handrit: Harold Ramis og Danny Rubln.
Framleiðendur: Trevor Albert og Harold
Ramls.
Leikstjóri: Harold Ramls.
Aöalhlutverk: Bill Murray, Andie MacDo-
well, Chris Elliott, Stephen Tobolowsky
og Brian Doyte-Murray.
Stjömubió.
Öllum leyfð.
Veðurfréttamaðurinn Phil Connors
(Murray) er sendur ásamt töku-
manni og framleiðandanum Ritu
(MacDowell) til krummaskuðsins
Pinxsutawney í Pennsylvaníu fjórða
árið í röð á Degi múrmeldýrsins, 2.
febrúar. Samkvæmt þjóðtrúnni í
Bandaríkjunum eru 6 vikur eftir af
vetri ef múrmeldýrið, þegar það
vaknar úr vetrardvalanum, sér
skugga sinn og skríður inn í híði sitt
aftur. Ef dýrið kemur alla leið út, er
vorið komið. Connors er sjálfselskur
og kaldlyndur monthani, sem af ein-
hverri ókunnri ástæðu upplifir
þennan sama dag aftur og aftur.
Hann hittir sama fólkið á sömu
stöðum mörgum sinnum í röð.
Fyrst notfærir hann sér aðstöðuna
sér til framdráttar, en fær fljótt leið
á því og reynir í staðinn að betra
sjálfan sig.
Þetta er ansi frumleg og sniðug
hugmynd, sem býður upp á margar
skemmtilegar og fyndnar uppákom-
ur. Eftir að Connors fer að upplifa
daginn sinn aftur og aftur, kemst
myndin á mjög gott skrið og margir
óborganlegir brandarar fylgja í kjöl-
farið. Bill Murray er eins og sniðinn
KVIKMYNPIB
fyrir hlutverkið, en fáum gaman-
leikurum ferst það betur úr hendi
en honum að Ieika kaldlyndar per-
sónur. Harold Ramis, sem leikstýrt
hefur nokkrum afbragðs gaman-
myndum eins og Caddyshack og Na-
tional Lampoon’s Vacation, heldur
myndinni vel gangandi og engum
ætti að leiðast á Deginum langa.
Þegar endirinn nálgast missir gam-
anþátturinn þó aðeins marks vegna
staðlaðrar bandarískrar vellu, en all-
ir sæmilega sjóaðir kvikmyndahúsa-
gestir ættu nú að vera orðnir vanir
slíku.
Skoðanir á Bill Murray sem gaman-
leikara skiptast í svart og hvítt, bæði
á íslandi sem og annars staðar. Ann-
að hvort finnst fólki hann mjög
skemmtilegur eða mjög Ieiðinlegur.
Frammistaða hans hér er frábær og
erfitt er fyrir fólkið í svarta hópnum
að færa rök fyrir afstöðu sinni, ef
það sér þessa mynd. Andie MacDo-
well (Green Card og Sex, Lies and
Videotape) fer léttilega með sitt
hlutverk, enda persóna hennar hér
keimlík þeirri sem hún lék í Green
Card. Aukaleikarinn Stephen To-
bolowsky er eftirminnilegur, en
hann leikur tryggingasala sem er
með þeim leiðinlegri mannkertum
sem sést hafa á hvíta tjaldinu.
Örn Markússon
Bankakreppan í Banda-
ríkjunum á enda?
Tæplega þremur vikum fyrir kosn-
ingarnar í Bandaríkjunum, í þann
mund er umræðum lauk að sinni
um bankakreppuna svonefndu, eða
19. október 1992, sagði Newsweek:
,Aðeins tveimur árum eftir að ýms-
ar stærstu peningastofnanir lands-
ins virtust að hruni komnar, er
bankakreppan nær á enda...
Eftirlitsmenn samríkisins hafa lok-
að 721 sparisjóði og 585 bönkum frá
1989. Eftir nokkur tilhlaup og tals-
vert karp á Þjóðþinginu hefur Res-
olution TVust Corporation, stofnun
sú sem sér um sölu eigna gjaldþrota
sparisjóða, á skömmum tíma og
^'irig A ^
[ Vioskiptalifio j
skilmerkilega selt verðbréf og fast-
eignir fyrir meira en 300 milljarða $.
Kostnaður skattgreiðenda af trygg-
ingu innstæðna í sparisjóðum virð-
ist ekki munu fara fram úr 115
milljörðum $ á núverandi verðlagi,
— helmingi lægri upphæð en svart-
sýnismenn hentu á loft, — og bank-
ar kunna sjálfir að standa skil á inn-
stæðum greiðsluþrota banka.“
„En dag skal að kvöldi lofa. Þótt
enn hafi ekki verið gerðar allar
nauðsynlegar ráðstafanir til að aftur
sæki ekki í fyrra horf, er áhugi
stjórnvalda í Washington (á vanda
banka) dvínandi... Fyrir orð tals-
manna banka varð það ofan á í Fe-
deral Deposit Insurance Corporati-
on (Tryggingastofnun innstæðna í
sambandsríkinu), að hækka ekki ið-
gjöld flestra banka vegna tryggingar
innstæðna. Settur formaður FDIC,
Andrew Hove jr., telur iðgjöldin
nægilega há til að upp verði greidd
skuld tryggingasjóðsins, 7,6 millj-
arðar $, fyrir 2000, — án framlaga
frá skattgreiðendum."
„Bankar, sem illa standa, greiða nú
öðrum hærri tryggingargjöld til
FDIC, en að nýjum reglum munu
þrír af hverjum fjórum greiða lág-
marksgjald. Þannig er kostnaði illa
stæðra banka haldið niðri, en betur
stæðir bankar ekki hvattir til að
bæta stöðu sína. — Öllum sparisjóð-
um er gert að leggja fram skýrslur
(um stöðu sína), til að eftirlitsmenn
geti séð áhrif snarpra vaxtabreytinga
á þá. En af bönkum er ekki slíkra
skýrslna krafist. — Þeim sparisjóð-
um fer fjölgandi, er skipta á starfs-
leyfi frá samríkinu við starfsleyfi frá
ríki sínu... En Þjóðþingið hafnaði
þeirri tillögu Bush forseta, að bönk-
um í einu ríki verði heimilað að
stofna útibú í öðru.“
,A fyrri árshelmingi 1992 varð arð-
ur banka meiri en nokkru sinni fyrr,
15,5 milljarðar $, en sparisjóða 2,8
milljarðar $. Sakir þess hafa þeir
getað aukið varasjóði sína (og af-
skriftir). Og vegna hækkaðs verðs
hlutabréfa þeirra á mörkuðum hafa
margir þeirra boðið út nýtt hlutafé.
Um leið hefur lækkun vaxta stöðvað
verðhrun fasteigna. Vegna lokunar
2.600 banka og sparisjóða frá 1988
þarf síður að bjóða háa vexti á inn-
lögnum."
„Þessi góði árangur hefur ekki
kveðið niður gagnrýni... Henni
halda hagfræðingamir Roger Vaug-
han og Edward Hill uppi í skýrslu,
sem birt var (um miðjan október
1992), en þeir segja ótrausta stöðu
nær 40% bandarískra banka með 1,7
billjönir $ (enskar trilljónir) í eign-
um.“
„í lokunarhættu em nú 40 spari-
sjóðir samkvæmt lista Office of
Thrift Supervision (Eftirlitsstoffiun-
ar sparisjóða), en 300 aðrir með 200
milljarða $ eignir hafa hættulega Iít-
ið eigið fé. Og þótt 85% hinna
11.600 banka Bandaríkjanna séu
traustir, eru liðlega 700 bankar
reknir með tapi og enn fleiri eru rétt
taplausir. Bankar í vanda á lista
FDIC hafa 568 milljarða $ eignir."
Vinnubúðir til sölu
Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi tilboð fást,
vinnubúðir á eftirfarandi stöðum til brottflutnings:
Við Blöndustöð í Austur-Húnavatnssýslu
6 sjálfstæð svefnhús stærð 2,5 x 3,9 m
2 sjálfstæðar húseiningar — 2,5x5,1m
1 íbúðarhús (4 húseiningar 2,5 x 7,5 m) — 10,5 x 7,5 m
1 íbúðarhús (5 húseiningar 2,5 x 7,5 m) — 12,5 x 7,5 m
2 parhús, 4 íbúðir
(2,5 húseiningar, 2,5 x 7,4 m) — 12,5 x 7,4 m
1 mötuneytis- og svefnherbergjasamstæða. í samstæðunni
eru samtals 46 húseiningar af stærðinni 2,5 x 7,4 m = 851
m2, 80 manna matsalur, eldhús, frystir, kælir, hreinlætisein-
ingar og 44 einstaklingsherbergi.
Við Búrféllsstöð í Ámessýslu
8 sjálfstæð svefnhús
2 sjálfstæðar húseiningar
1 frystir
1 inngangur og snyrting
stærð
2,5 x 3,9 m
2.5 x 5,1 m
2.6 x 4,1 m
2,0 x 4,2 m
Dagana 4.-5. júní 1993 munu starfsmenn Landsvirkjunar
sýna væntanlegum bjóðendum húsin, en aðeins frá kl.
10:00-18:00.
Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Landsvirkjunar.
Tilboö þurfa aö berast Landsvirkjun, innkaupadeild, Háa-
leitisbraut 68,103 Reykjavík, eigi síðar en 9. júní 1993.
G
LANDSVIRKJUN
Nýtíndir, fjörugir og spriklandi
laxa- og silungsmaökar vilja komast 1 kynni við hressa veiði-
menn. Verð aöeins 15 og 20 krónur stk. Uppl. i s. 672822.