Tíminn - 10.07.1993, Side 14

Tíminn - 10.07.1993, Side 14
22 Tíminn Laugardagur 10. júlf 1993 Sumarhappdrætti Framsókn- arflokksins 1993 Drætti f Sumartiappdrætti Framsóknarflokksins hefur veríð frestað til 9. ágúst n.k. Veiunnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til að greiða heims- enda giróseðia fyrir þann tima. Allar frekarí upplýsingar veittar á skrífstofu flokksins eða i sima 91- 624480. FimaáknmHoUawtnn Landsþing LFK 6. landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið 8.-10. október n.k. á Austuriandi. Nánar auglýst slöar. Framkvæmdastjóm LFK Fjölskylduhátíð framsóknar- manna á Vesturlandi Fjölskylduhátiö framsóknarmanna á Vesturiandi verður haldin 24. júll 1993. Mæting að Holti, Borgarhreppi, kl. 13.30. Dagskrá: 1) Gróöursetning I landgræðslugirðingu Skógræktarfélags Borgarflaröar. 2) Haldið I Danlelslund I landi Svignaskarðs og hann skoöaður undir leiðsögn Agústs Amasonar. 3) Eftir Id. 16.30 verður kveikt upp I stóru grilli við sumarhús Steingrfms Her- mannssonar aö Kietti I Reykholtsdal. Takið meö ykkur þaö sem þiö viljið helst grílla til kvöldveröar. Margir góöir grill- meistarar veröa með f för og svo njótum við saman ánægjulegrar kvöldstundar I góöum félagsskap og fögru umhverfi. Fonnenn framsóknariélaganna i VesturiancH Sjúkrahús og heilsugæslu- stöð á Akranesi Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar rlkisins f.h. heilbrígð- is- og tryggingamálaráðuneytisins og hlutaðeigandi sveitar- félaga óskar eftir tilboðum í að byggja við og endurínnrétta Sjúkrahús og Heilsugæslustöð Akraness. Verkið tekur til byggingarbrautar aðkeyrslu að inngangi, ný- byggingu framan við anddyri og að endurinnrétta afgreiðslu- og móttökusvæði. Verktími ertil 15. febrúar 1994. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkis- ins Borgartúni 7, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 13. júll til og með fimmtudeginum 22. júlf. Verð útboðsgagna er kr. 12.450 m/vsk. Tllboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 26. júlí 1993 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK ÚTBOÐ Vatnsnesvegur, Kárastaðir- Skarð, 1993 Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum I lagningu 2,9 km kafla á Vatnsnesvegi frá Kárastöðum að Skarði. Helstu magntölur: Fyllingar og fláar 4.500 m3, neðra burðarlag 6.500 m3, ræsi 90 m, frágangur fláa 47.000 m3. Verkinu skal lokiö 1. október 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlkisins á Sauðárkróki og I Borgartúni 5, Reykjavlk (að- algjaldkera), frá og með 12. þ.m. Skila skal til- boðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 26. júlí 1993. Vegamálastjóri InniCegt þafákzti jyrir f&eðjur, gjaftr og fieimsófqiir tií mín og ftöC- sfq/Cdu minnar afmœCisdaginn 5. júCí sd, sem gerði mér daginn ógCeyman- Cegan. Sverrir Sveinsson Hermann Jónsson skrifstofustjóri og kennari Fæddur 13. ágúst 1913 Dáinn 28. júní 1993 Enda þótt fólk á efri árum kveðji þetta jarðlíf, kemur lát þess okkur oft á óvarL Öllu eru takmörk sett, dauða jafnt sem lífi. Hvað segir ekki spámaðurinn í Biblíunni? „Að lifá hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma.“ Og þegar í hlut á maður, sem á sínum tíma átti nokkurn þátt í því að mennta mig á vissu sviði, er við hæfi að ég minnist hans með nokkrum orðum. Deila má um, hvort það hefði endilega átt að vera ég. Þó fannst mér ekki óeðlilegt, að ég, sem minnist margra í blöðum við vistaskiptin, léti nokkur orð falla um gamlan læriföður, enda þótt hann gegndi ekki fastri kennara- stöðu við menntastofnun þá, sem ég nam við um árabil á fimmta áratug þessarar aldar. Hermann Jónsson, lengstaf titlaður fulltrúi verðlagsstjóra, lést 28. júní 1993, tæplega áttræður, en fæddur var hann í Reykjavík 13. ágúst 1913. Voru foreldrar hans Amfríður Ing- varsdóttir bíikksmiðs á ísafirði Vig- fússonar, og Jón Ólafur málari á ísa- firði, sonur Jóns Einars stúdents Jónssonar, síðast á Ingunnarstöðum í Geiradal. Jón Einar, afi Hermanns, var kvæntur Herdísi Andrésdóttur skáldkonu. Hún var því föðurmóðir hans, sem hér er minnst við leiðar- lok. Jón Einar hóf nám í Prestaskól- anum, en hætti því og fluttist vestur á land. Hann stundaði kennslu eitt- hvað og var um skeið lögregluþjónn á ísafirði. Þá þótti talsverður vegs- auki að því að vera stúdent úr menntaskóla eða lærðum skóla. Auk Jón Ólafs málara, föður Hermanns, komust upp þau systkini: Elín, sem átti Jón bæjarfógetaskrifara Thorar- ensen, en sonur þeirra var hinn þjóðkunni kennimaður og rithöf- undur Jón Thorarensen (1902- 1986), og Einar magister (1890- 1947), lengi kennari við Stýri- mannaskólann og fleiri lærdómsset- ur í höfuðstaðnum. Af ofantöldu sést að Hermann var vel ættaður. En eigi ólst hann upp hjá foreldrum sínum, heldur hjá móðursystur sinni, Sigríði Ingvars- dóttur, er gift var Þórami Stefáns- syni, bóksala á Húsavík. Snemma komu í ljós góðar almennar gáfur hjá Hermanni, svo og námsgáfur, en þetta tvennt fer ei alltaf saman, eins og kunnugt er. Þótti við hæfi að hann gengi menntaveginn og úr því varð, sem betur fór. Hann stundaði fyrst nám til gagnfræðaprófs á Akur- eyri, en stúdentsprófi lauk hann við M.R. 1935. Eftir að hafa lokið prófi í forspjallsvísindum við H.í. árið eftir lá leiðin til Hafnar og stundaði hann nám í tryggingafræði við Hafnarhá- skóla um árs skeið, því að stærð- fræði lá vel fyrir honum. Þar næst sneri hann sér að námi í verslunar- fræðum við Verslunarháskólann (Det handelsvidenskabelige Lære- anstalt). En Hermann kom heim eft- ir tveggja ára útivist og var þá há- skólanámi hans lokið. Eflaust hefur fjárskortur valdið nokkm um þetta hvarf frá námi, eins og oft var á þess- um ámm. Þá hefúr hann vafálítið gmnað, hvað í vændum var: heims- styrjöld og það sem henni fylgdi, innilokun frá heimalandinu. En hvað beið nú Hermanns, sem ekki hafði prófskírteini frá háskóla upp á vasann, eftir að heim kom? Auðvitað var hann vel menntaður maður, þrátt fyrir allt. Og nú hófst ævistarfið. Hann fékk stunda- kennslu og skrifstofustörf. Og þá er ég kominn að persónulegum kynn- um okkar, er hann kenndi stærð- fræði og eðlisfræði við Kennara- skóla íslands. Hermann kenndi venjulega í fyrsta tíma, því að hann þurfti ekki að mæta á skrifstofú verðlagsstjóra fyrr en klukkan 9 ár- degis. Þar vann hann svo meðan starfsorka og aldur leyfðu. En hvernig kennari var Hermann? Því miður er ég ekki dómbær á slíkt, þar eð kunnátta og áhugi á kennslu- greinum hans var í algjöru lágmarki hjá mér. Hann var léttur í hreyfing- um og gætti þess vel að skyggja ekki á dæmið, sem hann var að skýra út á töflunni hverju sinni. Skýringar hans voru stuttorðar og einhvem veginn held ég, að hann hafi ætlast til að við værum öll ágætlega að okkur í stærðfræðinni. Eg held, að Hermann hefði fremur átt að kenna í stærðfræðideild menntaskóla en þama, því að stærðfræðingur var hann ágætur. í brag einum, þar sem ég gat kenn- ara minna úr Kennaraskóla íslands á árabilinu 1945-49, minntist ég Hermanns stærðfræðikennara á þessa leið: Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar sonar okkar og bróður Guðjóns Rúnarssonar Súlukletti 6, Borgamesl Krlstín Guðjónsdóttlr Rúnar Vlktorsson Björg Jónína Rúnarsdóttir Róbert Rúnarsson ________________I___________________________________/ Þjóðarbókhlaðan Tilboð óskast í smlði og frágang á innveggjum og hurðum í Þjóðarbókhlööu. Um er að ræða 1400 ferm. gipsveggi, 580 fermetra glerveggi, 350 ferm. spónlagða veggi, 175 ferm. flísalögn og 109 stk. innihurðir. Verktími ertil 01. mars 1994. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 Reykjavík, til og með föstudeginum 30. júlí nk. Verð útboðsgagna er kr. 12.450 með virðisaukaskatti. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borgar- túni 7, þriðjudaginn 03. ágúst 1993 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVIK Óska eftir Deutz dráttarvél Ýmsar árg., ‘74-’88, koma til greina. Upplýsingar í síma 93-86851. Við töflu stendur Hermarm hress og hoppar til og frá. íheridi sirmi hefur krít; og hratt útskgrir sá. Það var ekki fyrr en löngu eftir að námi mínu í kennaraskóla lauk, að eiginleg kynni sköpuðust milli okk- ar Hermanns. Aðallega voru þau gegnum talsímann, en hann hafði leyninúmer, sem hann trúði mér fyrir. Vildi greinilega vera laus við hringingar að nauðsynjalausu. Hann hringdi í mig og spurði mig um vísur. Kom þá í Ijós að hann kunni margt af slíkri andans fram- leiðslu. Hann lofaði mér að heyra margar snjallar stökur eftir sig. Jú, Hermann var hagmæltur vel. Það kom mér ekki til hugar, þegar hann var að reyna að kenna mér stærð- fræði fyrr á tíð, með litlum árangri. Ég fór þess á leit, að hann miðlaði mér nokkru af vísum sínum, með tildrögum, í rit, sem ég hafði þá í smíðum, en við það var ekki kom- andi. Eigi að síður skrifaði ég niður allmargar vísna hans og eru þær vel geymdar. Kímni er rík í þessum kveðskap Hermanns. Hermann hafði áhuga á landsmál- um og bauð sig fram til þings á veg- um Þjóðvarnarflokksins. Sat hann sem varamaður á Alþingi f desember 1954. Þétta er orðið lengra mál en ég ætl- aði í upphafi, en þegar kveðja skal hugsjónafélaga (við höfðum báðir dálæti á vísnagerð), finnst mér raunar skylt að skrifa þessi minn- ingarorð. Minningin um mann, sem tók mig eins og ég er og vildi miðla mér af andlegum auði sínum, geym- ist í þakklátum huga til æviloka. Einka- og heimilislífi Hermanns kynntist ég ekki. Sjálfsagt verður einhver annar en ég til að gera grein fyrir því. Far þú í friði, gamli lærifaðir minnl Auðunn Bragi Sveinsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.