Tíminn - 16.10.1993, Qupperneq 1

Tíminn - 16.10.1993, Qupperneq 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn.«68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-síminii—68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-símihn—68-76-48 Laugardagur 16. október 1993 196.tbl.77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- 17 þúsund símnotendur í miðbæ Reykjavíkur símasambandslausir Miðbæjar- stöð óvirk í fjóra klukkutíma Miðbæjarstöð Pósts og síma varð óvirk í fjórar klukkustundir í gær. Um 17 þúsund símanúmer í vest- ur- og miðbæ Reykjavíkur duttu út. Súni lögreglu og slökkviliðs var óvirkur, en hægt var að ná sambandi við neyðarnúmer lög- reglunnar og slökkviliðs. Stjóm- sýslan og fjölmörg stór fyrirtæki hálflömuðust vegna bilunarinnar. Það var um kl. 12.30 sem mið- bæjarstöðin datt út Um var að ræða bilun í hugbúnaði sem illa gekk að finna. Kl. 16.30 tókst við- gerðarmönnum Pósts og síma að gera við bilunina. Unnið var að því fram á kvöld að skilgreina bilunina og reyna að tryggja að ekki yrði um frekari bilanir að ræða. Sér- fræðingar frá símafyrirtækinu Er- icson í Danmörku komu til lands- ins í gærkvöldi. Símabilunin hafði víðtæk áhrif á allt athafhalíf í miðbænum. Ekki var hægt að ná sambandi við ráðu- neytin eða Ráðhúsið og viðskipta- vinir banka og margra stórra fyrir- tækja urðu fyrir miklum óþægind- um. Bilun varð einnig á símakerfinu í fyrradag sem varði í um 25 mínút- ur. Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafull- trúi Pósts og síma, sagði að stjórn- endur Pósts og síma litu á bilun- ina mjög alvarlegum augum. Hún sagði að allt yrði gert til að koma í veg fyrir frekari bilanir. Sérfræð- ingar frá Pósti og síma og Ericson myndu leita skýringa á biluninni um helgina. -EÓ Ríkisrisnan niður um 40 milljónir Risnukostnaöur ríkisins lækkaöi á síðasta árí um 40 milljónir króna. Aksturskostnaður og feröakostnaöur ríkisins lækkaöi sömuleiðis milli ára. Samtals nam risnu-, ferða- og aksturskostn- aður ríkisins 2.826 milljónum í fyrra, en 2.733 milljónum árið 1991. Vítisvélar leyfðar Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra segir eðlilegt að Happdrætti Háskólans fái Ieyfi til að reka bein- línutengda spilakassa, svokallaðar „vítisvélar“. Reglur um þessa kassa verði tilbúnar í næstu viku. Forsvarsmenn Rauða krossins eru mjög óánægðir með að Há- skólahappdrættið skuli fá leyfi til reksturs spilakassa, en rekstur spilakassa er megintekjulind Rauða krossins. Þeir óttast að spilakassar Háskólans muni skerða mjög mikið tekjur af Rauða kross kössunum, jafnvel að um al- gert hrun verði að ræða. Þorsteinn Pálsson gerði ríkis- stjóminni grein fyrir stöðu máls- ins í gær. Hann sagði að miklar breytingar hefðu átt sér stað á happdrættismarkaðinum undan- farin ár. Háskólahappdrættið hefði þar farið nokkuð halloka í sam- keppninni. Hann sagði ekki óeðli- legt að því væri gefið tækifæri til að nýta sér nýjustu tækni á sviði happdrættisreksturs og þar með að rétta nokkuð hlut sinn. Þorsteinn tók fram að fleiri aðilar myndu ekki fá leyfi til að reka spilakassa á næstunni. -EÓ Árið 1991 nam risnukostnaður rík- isins röskum 208 milljónum króna á verðlagi þess árs, en í fyrra nam þessi kostnaður tæpum 167 milljón- um. Spamaðurinn er um 40 millj- ónir. Öll ráðuneytin hafa tekið sig á og lækkað risnukostnaðinn. Athygli vekur hins vegar að risnukostnaður aðalskrifstofu iðnaðarráðuneytisins hækkaði um 1,5 milljónir milli ára, fór úr tæplega 800 þúsundum í 2,2 milljónir. Risnukostnaður ríkisins 1991 og 1992 í milljónum króna 1991 1992 Æðsta stjóm ríkisins...18,3 ...19,0 Forsætisráðuneyti .....12,6...7,2 Menntamálaráðuneyti ...39,9 ...27,7 Utanríkisráðuneyti ....37,0 ...34,3 Landbúnaðarráðuneyti ....7,4..5,4 Sjávarútvegsráðuneyti...8,0...6,2 Dóms- og kirkjumálar. ..10,2..8,9 Félagsmálaráðuneyti ....3,8...3,2 1991 1992 Heilbrigðisráðuneyti ..15,4 ...11,2 Fjármálaráðuneyti........11,8 8,6 Samgönguráðuneyti....21,7 ...16,4 Iðnaðarráðuneyti.....12,6 ...11,9 Viðskiptaráðuneyti .....3,5...3,7 Hagstofa íslands .......1,1...0,7 Umhverfisráðuneyti........4,6 2,3 Samtals..............207,9 .166,7 Af einstökum stofnunum vekur at- hygli hár risnukostnaður embættis biskups íslands, en risnukostnaður þess var röskar 2,5 milljónir í fyrra. Risnukostnaður Byggðastofnunar er einnig 2,5 milljónir. Þetta er litlu lægri risnukostnaður en hjá Há- skóla íslands (2,8 milljónir). Til samanburðar má nefna að risnu- kostnaður landlæknisembættisins var rúmlega 500 þúsund og Ferða- málaráðs Islands 1,7 milljónir. Ferðakostnaður ríkisins lækkaði einnig á síðasta ári eins og risnu- kostnaðurinn. Ferðakostnaðurinn nam 1.489 milljónum árið 1992 (747 milljónum innanlands og 752 milljónum erlendis), en var 1.466 milljónir árið á undan (706 milljón- ir innanlands og 760 milljónir er- lendis). Aksturskostnaður ríkisins hækkaði hins vegar úr 1.059 millj- ónum í 1.160 milljónir. -EO Olís hefur lokað á viðskiptl vlð fyrirtæki Magnúsar G. Kjartanssonar, sem hefur meö höndum skólaaksturinn í Reykjavík. Tímamynd Ámi Bjama Rekstrarerfiðleikar hjá Magnúsi G. Kjartanssyni hf. Bílstjórar skólarúta fá ekki greidd laun Bílstjórar, sem sjá um akstur skólabama í Reykjavík á vegum Magnúsar G. Kjartanssonar hf., hafa ekki fengið greidd laun. Auk þess hefur Olís lokað á viðskipti við Magnús vegna van- skila. „Þetta er innanbúðarmál og kemur ekki öðrum við,“ segir Magnús G. Kjartansson. „Ég held uppi þeirri þjónustu sem mér var falið. Ég hef ekki fengið neinar kvartanir og á meðan svo er, get ég ekki álitið að neitt sé að.“ Starfsmaður fyrirtækisins stað- festir að laun hafi ekki verið greidd og að Magnús G. Kjartans- son hafi borið fyrir sig seinlæti á Skólaskrifstofu Reykjavíkur. „Þetta er ekki rétt,“ segir Ragnar Júlíusson, yfirmaður kennslu- deildar Skólaskrifstofunnar, en hann hefur umsjón með skóla- akstrinum. „Það eru engar van- efndir af hálfú borgarinnar." Heimildir Tímans herma að skólarútur Magnúsar hafi orðið eldsneytislausar og ferðir fallið niður af þeim sökum, síðast á fimmtudag, og það sé vegna þess að fyrirtækið geti ekki staðgreitt eldsneyti eftir að Olís lokaði á við- skipti við það. Magnús neitar þessu og segir að engin röskun hafi orðið á skóla- akstri hjá sér. Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar lagðist gegn því fyrir rúmum mánuði að Magnúsi yrði falinn skólaakstur í borginni, þar sem margt benti til að fyrirtækið heföi ekki nógu sterka fjárhagsstöðu til að valda verkefninu. Magnús G. Kjartansson hf. lagði fram lægsta tilboðið í skóla^ksturinn. Skóla- skrifstofa Reykjavíkur mælti með tilboði frá Jónatan Þórissyni, en tilboð Magnúsar hlaut engu að síður stuðning fúlltrúa Sjálfstæð- isflokksins, sem mynda meiri- hluta í borgarráði. Sú ákvörðun varð til þess að meirihluti borgar- ráðs var sakaður um einkavina- væðingu, meðal annars í rit- stjómargrein í þessu blaði, en Magnús G. Kjartansson er for- maður Sjálfstæðisfélagsins í Mos- fellsbæ. „Þetta eru nornaveiðar og of- sóknir,“ segir Magnús. -PS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.