Tíminn - 16.10.1993, Síða 4

Tíminn - 16.10.1993, Síða 4
4 Tíminn Laugardagur 16. október 1993 Tímiim Ritstjóri: Þór Jónsson ábm. Aöstoöamtstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóri: Stefán Ásgrímsson Útgefandi: Mótvægj hf. Framkvæmdastjórí: Hrólfur Ölvisson Skrtfstofun Lynghálsi 9,110 Reykjavlk Sfml: 686300. Auglýslngaslml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1400- , verö I lausasölu kr. 125,- Grunnverö auglýsinga kr. 765,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Leiðtogi án ábyrgðar Vald og áhrif sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku CNN er orðið þvílíkt, að leiðtogar stórvelda láta stjórnast af því, hvert hún beinir athygli sinni hverju sinni. Þeir fylgjast með fréttum sjónvarpsstöðvarinnar til þess að gera sér grein fyrir stöðu mála annars staðar á jarðarkringlunni og hafa jafnvel látið svo um mælt, að CNN færi þeim greinarbetri upplýs- ingar og með skjótari hætti en erindrekum þeirra og njósnurum er kleift að gera. Flestir keppinauta stöðvarinnar hafa látið í minni pokann hvað snertir fréttaflutning af viðburðum á erlendum vettvangi og þegar einn fréttamiðill ber ægishjálm yfir aðra með þessum hætti verða áhrif hans á skoðanamyndun almennings óeðlilega og reyndar hættulega mikil. Ekki er fráleitt að ætla, að hernaðaríhlutun Bandaríkjaforseta í Sómalíu hafi að verulegu leyti ráðist af því, að CNN varpaði fréttaljósinu á hörm- ungarnar þar í landi. Það hefði allt eins getað ver- ið stríðið í Angóla eða hungrið í Súdan. Staðsetn- ing sjónvarpsvélanna virðist hafa meiri pólitíska þýðingu en sjálfir atburðirnir, sem eiga sér stað. Það er alls ekki ólíklegt, að fréttaflutningur CNN frá Sómalíu leiði að lokum til þess að Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar hætti þar íhlutun sinni og kalli hersveitirnar heim. í fréttablaðinu Time er til að mynda sagt frá skoðanakönnun í Bandaríkj- unum, þar sem 90 af hundraði eru þeirrar skoðun- ar, að bandarískt herlið eigi að kalla heim án tafar. Með minni samkeppni aukast að sjálfsögðu áhrif og völd CNN. Ábyrgð sjónvarpsstöðvarinnar verður að sama skapi meiri — og meiri en eðlilegt er að ætlast til af fjölmiðli. Hann fær sjálfkrafa einhvers konar leiðtogahlutverk, en ber í raun og veru enga ábyrgð sjálfur. Enda var það augljóst af fréttaflutn- ingi sjónvarpsstöðvarinnar af uppreisninni í Moskvu í upphafi mánaðarins, þar sem fréttamenn CNN voru að langmestu leyti látnir einir um að flytja umheiminum beinar fréttir af þróun mála, að stöðinni var ekki hollt að verða svo öflug á markaðnum. Hún þarf nauðsynlega á aðhaldi sam- keppninnar að halda. Fréttamennirnir þverbrutu margar grundvallarreglur í blaðamennsku. Þeir lögðu sig ekki í framkróka við að afla upplýsinga frá öllum deiluaðilum. Þeir reyndu ekki að nálgast sjálfa atburðina, heldur héldu sér lengstum í ör- uggri fjarlægð frá átökunum. Þeir tóku aðeins örfá viðtöl við talsmenn hinna stríðandi fylkinga og það var greinilegt að dreginn var taumur Jeltsíns og hans manna, án þess að sjónarmið andstæðinga þeirra kæmust nokkurn tímann almennilega til skila. Þá var viðlejtni þessarar stöðvar talsvert virðing- arverðari í flóabardaga um árið, þótt aðstæður þar væru allar verri og erfiðari sökum ritskoðunar bandaríska hersins og bandamanna. Slæm og einhliða fréttamennska er út af fyrir sig alvarlegt mál. En þegar hún tíðkast á jafn áhrifa- miklum fjölmiðli og CNN er orðinn, þá er voðinn vís. Þingmenn skildir útundan Þeir hafa næma tilfinningu fyrir tímasetningu, alþingismennimir sem hlupu í pontu í fyrradag til að kvarta yfir kaupinu sínu og hve illa þeir væru haldnir í sporslum og fríðindum. Guðrún Helgadóttir harmaði að úrskurður Félagsdóms í fyrra um kauphækkun til handa þingmönnum skyldi ógiltur með bráðabirgðalögum. Samtímis er Félagsdómur að dæma Dagsbrún fyrir að standa að kröfugerð fyrir verkamenn. Matthías Bjamason, sjóðastjóri í fristundum, telur mikið órættlæti að þingmenn skuli ekki vera nema hálfdrættingar í launum miðað við bankastjóra og sveitarstjóra. Sam- tímis er verið að heimta að gerð verði grein fyrir óskiljanlega mikl- um tekjum þeirra sem þingmað- urinn vill bera sig saman við. Ingi Bjöm Albertsson upplýsir þingheim um að ekki sé nokkur vegur fyrir mann að framfleyta sér fyrir 200 þúsundkall á mánuði og telur því þingmannalaunin hneyksli. Samtímis er verið að birta skýrslur um meðallaun starfsmanna sveitarfélaga og em þau um helmingur beinna greiðslna sem þingmenn fá. Hlunnindin bætast þar ofan á. Miðað við kaup þeirra sem mest bera úr býtum í bæjarvinnu er þeim naumt skammtað sem á lægri töxtunum em og ætti Ingi Bjöm og hinir 62 setufélagar hans að hyggja að því hvemig það fólk sér fýrir sinni framfærslu. Sporsla hér og sporsla þar Alþingismönnum er greitt fyrir að masa um bág launakjör sín og bera þau saman við tekjumar sem embættismenn og stjómendur fyrirtækja fá. Úr ræðustóli löggjaf- arsamkundunnar kveina fulltrú- amir yfir að þeir fái ekki borgaða yfirtíð og spyrja hver um annan þveran hvar annars staðar á byggðu bóli önnur eins ósvinna eigi sér stað. Og þeir svara: Hvergi. Sjálfir raða þeir sér í nefridir og ráð og grípa sporslu hér og sporslu þar og svo em það ferðapeningar og daggjaldapeningar og bensín- peningar og húsaleigupeningar og matarpeningar vegna þess að þeir hafa enga yfirtíð. Þingmenn em ekkert ofsælir af kjömm sínum og em langt frá því að vera hátekjumenn. Hins vegar ættu þeir að vera matvinnungar og vel það og ætíð ættu þeir að hafa í huga að þeir em ekki kosnir á Alþingi til að bæta afkomu sfna. En það sem þeir opinbera við um- ræðu eins og þá sem hér er skír- skotað til, er að þeir em blindir á þau kjör sem fólkið í landinu býr við. Þegar verið er að fletta ofan af óhóflegum tekjum og hlunnind- um og ofboðseyðslu þeirra sem stjóma stofriunum í eigu ríkisins Oddur Olafsson skrifar og hvernig stofrianimar leyfa sér að hygla sér og sínu starfsfólki, hlaupa firrtir þingmenn til og kvarta og kveina yfir því að þeim hefur ekki tekist að ná umtals- verðum hluta af herfangi nómen- klatúmnnar. Himinhrópandi Þingmennimir em svo raunvem- leikafirrtir að þeir koma ekki einu sinni auga á hverjir hafa búið til embættin og aðstöðuna fyrir gæð- ingana sem ausa til sfn úr nægta- homi ríkiskassans eða stofnana sem Alþingi hefur skapað og ræð- uryfir. ::::: :::::::: í öllum háembættum sitja fyrr- verandi pólitíkusar og flokksgæð- ingar. Minniháttar meðreiðar- menn og konur em þeim við hlið og njóta góðs af öllu örlætinu sem gæslumenn sjóða, peningamust- era, stjómarsetra og jafnvel dóms- valds sýna þegar þeir og einkavin- imir og samstarfsmenn eiga í hlut Vegna dæma um himinhrópandi misrétti og misbeitingu þar sem æðstu embættismenn hygla sjálf- um sér á kostnað almennings er allt í einu farið að ræða málin og jafnvel ráðherrar em famir að biðja um upplýsingar um tekjur og kjör starfsmanna opinberra stofnana og allt það sjálfdæmi sem þeim er sett um eigin rekstur. Engar skyldur Ef einhver minnsti dugur er í al- þingismönnum og geti þeir sýnt að áhugi þeirra á landsmálum nái út fyrir buxnastrenginn, ættu þeir að heimta skýrslur um fjármál þeirra stofriana sem þeir hafa sjálf- ir búið til og stjóma. Alþingi kýs sjálft stjómir, ráð og neftidir sem fara með æðstu stjóm peninga- musteranna, sjóðanna og úthlut- unar valds og embætta. En svo hefur þingið enga eftirlits- skyldu með því hvemig stjórnað er og þótt siðspillinginn gapi framan í hvem mann sitja eftirvinnu- snauðir þingmenn undir ræðum annarra þingmanna sem kvarta sáran yfir því að þeir hafi sjálfir lægri laun en sjálftökuliðið i þing- og stjómskipuðum embættum og hafast hvergi að. Sárar kjarahetjur Tekjur og fríðindi embættis- mannanna sem mest hafa og em til umræðu í fjölmiðlum og miklu fremur á vinnustöðum sýnast ekki vaxa þingmönnunum, sem kvarta um lélega kaupið sitt, í augum. Það kemur ekki fram í þingræðum að þeim sé ofborgað eða að hlunn- indi þeirra séu óhófleg. Kjarahetjurnar á Alþingi lýsa að- eins yfir sárindum yfir því að vera varla hálfdrættingar þeirra sem best hafa komið sér fyrir. Á þessum málum eru fleiri fletir sem kjörnir fulltrúar ættu að gaumgæfa meðfram því hvemig þeir eiga að ná meiru til sín af feng nómenklatúrunnar. Tekjur ríkisins fara minnkandi og verið er að skera niður útgjöldin hér og þar og kvarta þingmennim- ir sjálfir manna mest yfir því að farið sé að spara. Þeir ná ekki upp í nefið á sér af vandlætingu þegar verið er að skera niður framlög til heilbrigðismála og menntunar og hrópa að verið sé að ganga af vel- ferðarkerfinu dauðu og allt eigi að lenda þyngst á sjúklingum og bömum. Eitthvað er til í því, enda eiga þeir þjóðfélagsþegnar verra með að verja sína hagsmuni en t.d. menningar- og keppnisíþróttafólk- ið. En að skera niður tekjur og lífs- stfl nómenklatúmnnar og draga úr ofboðseyðslu margra stofriana sem sækja lífsviðurværi sitt í vasa almennings er óhugsandi. Þar á aldrei að draga saman og spara. Aldrei er talað um að bágur efna- hagur og í sumum tilfellum hörmulega illa reknar stoftiair eigi rót sína að rekja til þess hve mikill rekstrarkostnaður þeirra er og sér í lagi hve mikið er dælt af fjármun- um út úr stofnunum í formi sjálf- tekinna launa og flottræfilsháttar af ýmsum toga. Þeirri höfuðlygi er haldið á loft að þeir sem valist hafa til stjómunar, iðulega eftir gjörspilltum leiðum, séu öllum öðmm færari um að ráðskast og stjóma. Þeirra eiga að bíða ótal atvinnutilboð annars staðar og er ríghaldið í þá í núver- andi stöðum með því að borga þeim vel. Skömmin Allur þessi óhemjudýrmæti starfskraftur, kjömir fulltrúar meðtaldir, er á góðri leið að kaf- sigla þjóðarskútuna og jafnvel fár- inn að tala upphátt um gjaldþrotið framundan. Viðbrögðin em ekki önnur en að þjarma að velferð þeirra sem minnst mega sín en láta alla opinbera eyðsluseggi leika lausum hala og sanka að sér fé og hlunnindum í öfugu hlutfalli við kjör allra þeirra sem ekki em leng- ur matvinnungar, þótt í fúllu fjöri séu. Svo bíta þingmenn höfuðið af skömminni með því að heimta að fá að taka þátt í óráðssíunni í stað þess að snúast gegn henni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.