Tíminn - 16.10.1993, Blaðsíða 9
Laugardagur 16. október 1993
Tíminn 9
Gríkkjum voru f störfum hjá því
opinbera sem þjónuöu vart nein-
um tilgangi nema að veita þeim
vinnu, rfkisfyrirtæki voru rekin
með tapi og þeim haldið á floti
með rfídsstyrkjum. Niðurstaðan
varð skuldasöfhun, verðbólga og
harla bágt ástand f rfkisfjármál-
um. í utanríkismálum skelfdi
Papandreú Vesturlönd (og suma
af löndum sfnum einnig) með
því að sýna af sér vinsemd við
„róttæk" þriðjaheimsríki og
austurblökkina og stíga í væng-
inn við menn eins og Gaddafi,
Saddam Hussein og Honecker.
Helena hin nýja
Eftir 1985, er Papandreú hafði
unnið nýjan kosningasigur, var
ástandið í ríkisfiármálum orðið
slíkt að hann sá sér ekki annað
feert en að taka upp allstranga
sparnaðarstefnu. Hún kom illa
niður á Iffskjörum margra og þar
að auki komu nú upp fjármála-
ffá því að París TVójuprins nam á
brott Helenu fögru.
Þessu til viðbótar kom nú f Ijós
að Papandreú var alvaríega veik-
ur fyrir hjarta.
Þetta femt, spamaðurinn, fjár-
málahneykslin, ástamálin og
hjartveikin, varð Papandreú að
falli f þingkosningum 1989, iík-
lega helst vegna þess að þetta bar
allt upp á sama tfma.
Kaþarsis
Mitsotakis kom nú til valda og
lofaði „kaþarsis" (hreinsun).
Hann mun hafa hugsað sér að
fylgja kosningasigrinum eftir
með því að svipta erkióvin sinn
Papandreú æm og binda enda á
feril hans í stjómmálum í eitt
skipti fyrir öll. Flestra spá var að
Mitsotakis tækist það. En Pap-
andreú tókst að sleppa sýkn frá
réttarhöldum út af fjármála-
hneykslunum, gekk að eiga
Dimitru og hvað heilsuna varðar
Filippos Makedóníukonungur, faöir Alexanders mikla: enn kveöur að þeim feög-
um I stjórnmálum Balkanskaga.
hneysli, sem háttsettir menn í
Pasok voru flæktir í. Ofan á þetta
tók Papandreú að vera með Dim-
ibru Liani, forkunnarmyndar-
legri flugfreyju, sem er rúmum
aldarþriðjungi yngri en hann, og
lét hina bandarísku eiginkonu
sfna, er alið hafði honum fjögur
böm, róa. Það mál kölluðu fjöl-
miðlar sápuópem. Stjómarand-
stæðingar höfðu þetta f blautleg-
um gamanmálum og sögðu
skaut Dimitm vera valdhafa
Grikklands. Vinur hennar tók
hana með sér á ráðstefnu æðstu
manna Evrópubandalagsríkja á
Ródos og er mælt að hinum leið-
togunum, þ.á m. Margaret
Thatcher, hafi ekki orðið um sel.
Má mikið vera ef ástamál hafa
nokkm sinni valdið meira uppi-
standi í stjómmálum þarlendis
reyndist seigara í honum en bú-
ist hafði verið við.
í efnahagsmálum viðhafði
Mitsotakis spamaðarstefnu,
fækkaði störfum f ríkisgeiran-
um, frysti laun o.s.frv. Við það
hrapaði kaupgeta Grikkja um
30% að meðaltali, en verðbólga
varð síst minni en fyrr og ekki
léttist skuldabagginn. Fljótlega
komst f hámæli að spilling og
ættarklíkuskapur væri vart
minni hjá Mitsotakis en verið
hafði hjá Papandreú. Sá síðar-
nefndi hafði að fordæmi föður
síns gert son sinn að ráðherra,
og Mitsotakis kom dóttur sinni,
sem Dóra heitir, í ráðherrastól.
Þetta allt saman dró fylgið frá
Mitsotakis og Papandreú, glögg-
ur á hugarfar almennings sem
fyrr, geystist fram í stjómmála-
baráttuna á ný. Hann reyndist
engu hafa glatað af leikni sinni
við að ná til almennings og
hneykslin kringum hann höfðu
gleymst á bak við óánægjuna
með Mitsotakis.
Það, sem réði úrslitum f þessari
sfðustu viðureign þeirra tveggja,
var þó klofhingur í Nýju lýðræði.
Ástæðan var ágreiningur út af
nafhi Makedóníu, eins ríkja
þeirra sem urðu til er Júgóslavfa
datt sundur. í augum Grikkja er
það ósvinna að Makedónar nú-
tímans, Slavar sem komu til
lands þessa fyrir aðeins um 1400
árum, skuli leyfa sér að skreyta
sig með nafrii Makedóna hinna
fomu og hellensku, sem lögðu
heiminn að fótum sér undir for-
ustu Alexanders mikla. Hcifa
Grikkir því fyrir reglu að kalla
hið nýja makedónska rfki Skopje
eftir höfuðborg þess.
Sagan endurtók sig
Vesturlönd, á nálum um að
deila þessi gæti leitt til frekari
útbreiðslu ófriðareldsins á Balk-
an, fengu um síðir talið Mitso-
takis, sárlega kominn upp á fjár-
framlög frá EB, á að samþykkja
að Makedónía fengi að heita
Makedónía. En Antonis Samar-
as, utanrfldsráðherra í stjóm
Mitsotakisar, brást reiður við
þessari eftirgjöf, sagði sig úr
stjóm og stjómarflokki og tók
með sér nógu marga af þing-
mönnum flokksins til þess að
stjóminni varð ekki lengur stætt
á þingi. „Hann beit í höndina
sem gaf honum að éta,“ sagði
Mitsotakis. Hið sama gerðir þú
herra þínum og velgerðamanni,
svömðu þeir sem muna hvernig
Mitsotakis reis gegn Papandreú
eldra. Þeir Mitsotakis og Pap-
andreú em „tveir jafngamlir dín-
ósárar og pólitísk hugsun beggja
jafhsjúkleg,“ segir Samaras.
Um Mitsotakis segir þýska
tímaritið Der Spiegel að hann
hafí reynt að gera Grikkland að
„venjulegu Evrópulandi" sem
önnur EB-ríki „gætu reitt sig á“.
Ummæli þessi og fleiri endur-
spegla þreytu norðlægra EB-
ríkja á félagsskapnum í því
bandalagi við Suður-Evrópuríki,
sem ýmsum norðanvert í EB
finnst að gegni í bandalaginu
helst því hlutverki að hafa fé af
Norður-Evrópuríkjum með
sterkari efnahag. Undanfarið
hefur Grikkland fengið úr sam-
eiginlegum sjóðum EB, sem
gjaman em kenndir við þróun,
hærri framlög en nokkurt annað
aðildarríki þess, og nú heyrist að
í EB-höfuðstöðvum óttist menn
að undir stjórn Papandreús
muni óráðsía aukast í grískum
ríkisfjármálum, með þeim af-
leiðingum að Grikkland verði
enn þyngra á fóðmnum hjá
norðlægum EB-ríkjum. Erfitt er
raunar að sjá að Mitsotakis hafi
tekist betur til með efnahags-
málin en Papandreú, en í stjórn-
artíð sinni fékk sá síðamefndi
orð á sig á Vesturlöndum fyrir að
vera „óútreiknanlegur". Mitso-
takis þykir hinsvegar ekki þess-
legur að koma á óvart og í EB-
höfuðstöðvum komust menn að
þeirri niðurstöðu um hann að
honum væri alvara með að reyna
að fara að ráðum þeirra um
stjómun efnahagsmála.
Vesturlönd em ekki eins svart-
sýn á Papandreú í utanrfkismál-
um, í samræmi við að öldin er
nú önnur í þeim efnum. Telja
þau td. að hann muni sætta sig
við að Makedónía fái að heita
Makedónía og e.t.v. reynast fús
til að bæta samskipti Grikklands
við önnur grannríki þeirra, sér-
staklega Albaníu og Búlgarfu, og
stuðla þar með að stöðugleika á
Balkanskaga.
Tilkynning
Byggöastofnun á hlutabréf I eftirtöldum fyrirtækjum miðað viö
árslok 1992. Hlutabréf stofnunarínnar eru til sölu ef viðunandi
verð feest að mati stjómar stofnunarínnar.
rirtaki Bærhf., Kirkjubæjarklaustrí Hlutafé Byggöa- Heildar-
stofnunar Wutafé
(hótelrekstur) 10.000 40.173
Fiskeldi Eyjaflarðar hf. (lúðueldi) 15.586 94.651
Foida hf., Ákureyrí (ullariðnaður) 8.000 64.865
Jöklaferðir hf., Höfn (ferðaþjónusta) 5.000 30.000
Límtré hf., Flúðum (iönfyrírtæki) Póls-rafeindavörur hf., ísafirði 18.226 50.215
(iðnfyrirtæki) 4.500 17.450
Samverk hf., Hellu (glerverksmiðja) Silfurstjaman hf., Öxarfjarðarhreppi 7.500 11.244
(fiskeldi) Þörungaverksmiðjan hf., Reykhólum 25.000 85.000
(þangmjölsverksmiðja) 12.500 33.000
Frekarí upplýsingar gefei fyrírtækjasviö Byggðastofnunar f
Reykjavfk og skrífstofur Byggðastofnunar á Akureyrí, Egilsstöð-
um og ísafirði.
Byggðastofnun
Rauðarárstlg 25.105 Reykjavtk . Slmi 91-605400 .
Bréfslmi 91-605499 . Grænlína 99-6600
UTBOÐ
xz
Hvítárvallavegur, Tunguá-
Hvanneyri
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum I lagningu
6,8 km kafla á Hvitárvallavegi frá Tunguá að
Hvanneyri.
Helstu magntölur Fyllingar og buröariag 60.000
m3, skeringar 14.000 m3 og klæöing 43.000 m3.
Verki skal lokiö 30. september 1994.
Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerð rikisins i
Borgamesi og Borgartúni 5, Reykjavik (aöal-
gjaldkera), frá og meö 19. þ.m.
Skila skal tilboöum á sömu stööum fyrir kl. 14:00
þann 1. nóvember 1993.
Vegamálastjóri
________________________________________/
KÓPAVOGSBÆR
Nónhæð — breytt
deiliskipulag við
Gullsmára
Tillaga aö breyttu deiliskipulagi á Nónhæö, nánar tiltekiö
við Gullsmára (reitir 12, 13 og 14), auglýsist hér með
samkvæmt grein 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
í breytingunni felst m.a. eftirfarandi:
Viö Gullsmára 1,3 og 5 (reitur 12) er I tillögunni gert ráö
fýrir 3 stakstæðum íbúöarhúsum (2 þriggja hæða og 1
átta hæöa) með 54 íbúðum samtals. Áætlað byggingar-
magn 5.800 fm.
Við Gullsmára 7, 9 og 11 (reitur 13) er í tillögunni gert ráð
fýrir 3 stakstæðum húsum (8,10 og 12 hæða) með sam-
anlagt 120 íbúðum fýrír aldraða ásamt möguleika á þjón-
ustumiðstöð fýrir aldraða. Áætlað byggingarmagn 13.500
fm.
Við Gullsmára 2, 4, 6, 8 og 10 (reitur 14) er í tillögunni
gert ráð fýrir 5 stakstæðum íbúðarhúsum (3 þriggja
hæða, 1 fimm hæða og 1 sex hæða með samtals 78
íbúðum. Áætlað byggingarmagn 9.200 fm.
Deiliskipulagsuppdráttur í mkv. 1.500, ásamt skipulags-
skilmálum og líkani verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópa-
vogs, Fannborg 2, 4. hæð, frá kl. 9.00 til 15.00 alla virka
daga frá 7. október til 4. nóvember 1993.
Athugasemdir eða ábendingar, ef einhverjar eru, skal
skila skriflega til Bæjarskipulags innan auglýsts kynning-
artíma.
Skipulagsstjóri Kópavogs.