Tíminn - 16.10.1993, Page 17

Tíminn - 16.10.1993, Page 17
Laugardagur 16. október 1992 TíminVi 17 Fimm saklaus fórnarlömb — afleiðing sjúklegrar afbrýðisemi Douglas Jackson. Afbrýðisemi er fylgifiskur flestra ást- arsambanda, jafnvel allra. í litlum mæli getur hún beinlínis verið af hinu góða, en þegar hún vex og verður að þráhyggju geta afleiðingamar orðið ógnvænlegar. Klukkan var stundarfjórðung gengin í fjögur eftir miðnætti, sunnudaginn 1. mars 1981, þegar tveir menn á mót- orhjólum óku upp að slökkvistöð í Flórída og tilkynntu um eld. „Það logar eldur í bfl á þjóðvegi 27 skammt frá HoIIywood breiðstræti," sagði annar þeirra. „Eldurinn er of mikill til að við þyrðum að fara nálægt bflnum. Við vitum ekki hvort ein- hverjir farþegar eru innandyra." Slökkviliðið var komið á staðinn, u.þ.b. fimm mínútum síðar. Bfllinn var eldhaf er að var komið. Mennimir unnu sitt verk og nokkrum mínútum síðar höfðu þeir ráðið niðurlögum eldsins. Einn slökkviliðsmannanna kíkti inn í bflinn þegar eldurinn var að mestu leyti dauður. Hann hrökk til baka og hryllti sig. „Þetta er lögreglu- mál, við verðum að hafa samband við lögregluna áður en við gerum meira,“ sagði hann og svipur hans lýsti því að eitthvað hræðilegt hefði gerst. Það sem hann hafði séð var bmnnir líkamar heillar fjölskyldu, fimm lík alls. Hrikaleg aökoma Skömmu síðar kom lögreglan í Pem- broke Pines á vettvang. Frederick Crawford fulltrúi var meðal þeirra fyrstu á vettvang og honum var falið að rannsaka málið. Hann byijaði á að skoða bflinn. Hann var af Pontiac gerð, tveggja dyra, árgerð 1973. Crawford gægðist inn í bflinn og við honum blasti hrikaleg sýn. í framsæt- inu var sundurbrunninn mannslíkami með andlitið niður við gólf. Enn rauk úr líkinu. í aftursætinu voru fjögur lík. Þar af voru tvö böm. Það var ljóst að það yrði erfitt og sóðalegt verk að greina í sundur Iíkamsleifamar og rannsaka líkin. Bfllinn ásamt innihaldi var dreginn burL Við leit að vísbendingum á vett- vangi fundust handjám skammt frá bflnum en annað fannst ekki sem gæti varpað ljósi á málið. Þegar líkin vom fjarlægð úr bflnum kom í ljós að karlmaðurinn í aftursæt- inu var með bundnar hendur afftan við bak. Það var því sýnt að ekki væri um neitt slys að ræða, enda gat það varla verið. Hægt aö útiloka slys ítarleg rannsókn á bflnum sjálfum gaf ekkert sérstakt til kynna. Eldurinn hafði afmáð öll vegsummerki svo sem fingraför og annað. Hins vegar fannst byssukúla sem reyndist vera úr 38 kal- íbera skammbyssu og snyrtiveski kon- unnar í aftursætinu. Það var ekki mjög illa farið þar sem það hafði lent undir konunni og eldurinn hafði ekki náð að tæta það í sig. í snyrtiveskinu fannst sjúkraskírteini sem stílað var á Ednu Washington, búsetta á Miami, Flórída. Mikill harmleikur hafði átt sér stað en hvers vegna? Það var verkefhi Crawford og manna hans að komast að því og helst sem allra fyrst. Hvaða fólk var þetta? Hver átti bflinn? Var snyrtiveskið í eigu eins fómarlamb- anna eða tilheyrði það einhverjum sem tengdist glæpnum á einhvem máta? Það þurfti að finna svör við þessum spumingum því tíminn vann með þeim sem höfðu framið glæpinn. Tvö böm höfðu verið brennd til dauða og málið var ekki neitt venjulegt saka- mál. Gríðarleg illska hlaut að vera á bak við þennan hryllilega glæp. Daginn eftir, 2. mars, var haft sam- band við nálægar lögregludeildir og menn unnu að málinu vítt og breitt um Flórídafylki. Crawford hringdi í menninna tvo sem höfðu tilkynnt um bmnann og mælti sér mót við þá til að öðlast ítarlegri upplýsingar. „Klukkan var korter yfir þrjú um nóttina," sagði annar þeirra. „Við vor- um að keyra um í góða veðrinu er við sáum bflinn standa í Ijósum logum. Við þorðum ekki að nálgast hann vegna þess að við vomm hræddir um að hann myndi springa. Við sáum eng- an í nágrenninu og keyrðum beint á slökkvistöðina." Crawford ætlaði að spyrja nánar er síminn hringdi og honum var sagt að vömbflstjóri nokkur væri að reyna að ná í hann vegna þessa máls. Að sögn vömbflstjórans hafði bfllinn staðið mannlaus á þjóðvegi 27 u.þ.b. klukku- stundu áður en eldsins varð vart. Það gaf til kynna að bfllinn þyrfti ekki endilega að tengjast fólkinu beint. Það vom fleiri aðilar sem höfðu sam- band við Crawford þennan dag. Sumir sögðust hafa heyrt skothvelli f ná- grenninu. Mönnum bar þó ekki sam- an, nokkrir töluðu um tvö til þrjú skot en aðrir allt upp í 6. Leidd til slátrunar? Upp úr hádeginu bámst upplýsingar um Ednu Manuel Washington. Henn- ar hafði verið saknað ásamt manni og tveimur bömum þeirra hjóna í tvo daga. Að sögn aðstandenda var mjög ólíkt þeim að láta ekki vita af sér og ættingjar vom famir að hafa miklar áhyggjur (og ekki að ástæðulausu). Lögreglan fékk staðfestingu á að Edna og fjölskylda hennar væri fólkið sem hafði bmnnið í bflnum þegar far- ið var til heimilis þeirra og lyklinum sem hafði fundist í tösku konunnar var rennt í skrána. Dymar opnuðust. Við fyrstu sýn fannst ekkert óeðlilegt á heimilinu en rannsóknarlögreglu- mennimir hrylltu sig er þeir fundu fæðingarvottorð yngra bams Wash- ingtonhjónanna. Það hafði aðeins ver- ið 3ja mánaða gamalt Sérmenntaðir menn vom kallaðir til að athuga vegsummerki. Þá kom í ljós að brotist hafði verið nýlega inn bak- dyramegin og auk þess var svo að sjá sem hugsanleg átök hefðu átt sér stað innanhúss. Nokkur óreiða var á inn- anstokksmunum, brotinn gólfvasi o.s.frv. í bflskúmum fannst 5 lítra kút- ur af eldfimum vökva sem lögreglan gat ekki útilokáð að hefði verið notað- ur til að kveikja í bflnum. Umbúðimar vom teknar til rannsóknar, allt húsið var ljósmyndað og fingraför tekin. Ef til vill hafði morðinginn brotist inn á heimili fólksins og leitt þau síðan til slátmnar með því að brenna þau inni í Pontíaknum. Þótt allt væri óljóst um ástæður og gerendur í þessum mikla harmleik, vom þó fyrstu skrefin að lausn málsins stigin, þar sem nú hafði tekist að finna bakgmnn fómarlamb- anna. Fleiri nöfn Að sögn ættingja höfðu hjónin ekki búið ein með börnum sínum. Dale nokkur Henry, vinkona Washington- hjónanna, hafði dvalist í húsinu um skeið með tvö böm sín. Þegar læsing- in á herberginu hennar var skoðuð kom í ljós að brotist hafði verið inn til hennar. Hins vegar var engin um- merki um hana eða bömin ao finna. Á þessu stigi var búið að nafngreina fjögur af fimm fómarlömbum; Wash- ingtonhjónin sem höfðu verið skotin og böm þeirra tvö, sem höfðu bmnn- ið til dauða. Enn átti eftir að finna fimmta fómarlambið. Að morgni næsta dags hafði Craw- ford samband við fyrrum vinnuveit- anda Dale Henry. Hann sagði lög- reglufulltrúanum að Dale hefði unnið hjá honum um skeið þangað til dag- inn áður að æstur maður, Douglas Jackson, hefði komið til hans í vinn- una og sagt honum að hún væri hætt störfum. Ekkert hafði sést til hennar síðan 27. febrúar sl. Dale og Jackson höfðu verið í sam- búð og áttu tvö böm saman en höfðu skilið fyrir nokkm. Vinkona Dale sagði að Jackson hefði ítrekað Iagt hendur á hana og Dale hefði verið hrædd við hann. Stundum hafði hann handjám- að hana og hótað henni öllu illu. Edna hafði reynt að slíta samvistir við Jack- son mánuðum saman en hún óttaðist afleiðingar þess. Eftir að hún steig skrefið og fluttist inn til Washington fólksins, hafði henni liðið betur en samt haði hún tjáð vinkonunni að hún væri hrædd um að Jackson myndi koma einn dag- inn og neyða hana og bömin hennar aftur til sín. Vinkonan sagði ennfrem- ur að Dale hefði nýverið kynnst manni sem hún hafði orðið astfangin af. Hann hét Larry Finney og eftir því sem hún vissi best hafði hann búið með henni á heimili Washington hjónanna síðustu vikumar. Það hafði e.t.v. orðið ti) að magna afbrýðisemi fyrmm sambýlismanns hennar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þegar lögreglan hafði samband við ættingja Larrys Finney, kom í ljós að hans hafði verið saknað í nokkra daga. Um kvöldið var staðfest að Larry Finn- ey var fimmta fómarlambið í bflnum og þá var loks búið að nafngreina öll líkin. Það hafði tekið þrjá daga en Jackson var gmnaður um morðin og hans var ákaft Ieitað. Hringnum lokaö Rétt fyrir miðnætti, sama dag, tókst lögreglunni að hafa uppi á Jackson á heimili hans í Miami. Jackson var kurteis og samvinnuþýð- ur en svaraði spumingum lögregl- unnar um Dale og bömin hennar á þá Ieið að hann hefði ekkert séð til þeirra vikum saman. Það gerði Jackson þó gmnsamlegan að á enni hans og nefi vom rauðir blettir, eins og hann hefði brennst lítillega nýverið. Crawford kvaddi við svo búið. Daginn eftir lokaðist hringurinn. Dale hafði sjálf samband við lögregl- una og sagðist hafa dvalið tveimur nóttum áður með fyrrverandi sambýl- ismanni sínum, Jackson, og bömun- um þeirra tveimur. Hann hafði haldið henni nauðugri en henni tekist að sleppa er hann skrapp út í matvöm- verslun. Hún sagði lögreglunni jafn- framt að Jackson hefði fimm morð á samviskunni. Lögreglan sendi rakleiðis menn til að gæta þessa mikilvæga vitnis og á sama Hér bjuggu fórnarlömbin. tíma var gefin út handtökuskipun á hendur Jackson. Að sögn Dale hafði hann myrt fólkið með aðstoð kunn- ingja síns, Aubrey Livingstone, og þeirra var nú beggja leitað. Tveimur tímum síðar handtók lög- reglan Jackson á heimili ættingja sinna og Livingstone kom einnig f leitimar á svipuðum tíma. Þeir neit- uðu öllum sakargiftum. Við húsleit hjá Jackson fannst 38 kal- íbera skammbyssa sem hafði nýlega verið hleypt af. Þá fundust tvö skot- hylki, annað beyglað eins og það hefði lent undir bfl. Þá fúndust blóðblettir á gólfteppi og snærisrúlla sömu tegund- ar og hafði verið notað til að binda hendur Washingtons í bflnum. Ekki þurfti frekar vitnanna við. Engu eirt Búið var að púsla spilinu saman. Douglas Jackson hafði orðið óður af afbrýðisemi og magnað upp heift til kærasta Dale og fólksins sem hana hýsti. Hann hafði ákveðið að láta til skarar skríða eitt kvöldið með vini sín- um og markmiðið var aðeins eitt; að myrða alla þá sem tengdust lífi henn- ar. Það skipti Jackson ekki máli hvort um væri að ræða þriggja mánaða gamalt bam Washingtonhjónanna eða kærasta hennar, eitt skyldi yfir alla ganga. Hann hafði stolið Pontíak og komið honum fyrir á afskekktum stað til að losa sig við sönnunargögnin. Síðan réðst hann inn á heimili Wash- ingtonhjónanna og lét vin sinn færa Dale og bömin nauðug til heimilis hans en sjálfur fór hann með kærast- ann hennar og Washington fólkið að þjóðvegi 27 þar sem hann var búinn að leggja Pontíaknum. Hann smalaði fólkinu inn í bflinn og skaut síðan þá fullorðnu. Þá hellti hann eldfimum vökva yfir og kveikti í og við það létu litlu börnin tvö lífið. Þá fór hann heim til sín þar sem vin- ur hans hafði gætt Dale og hélt henni nauðugri um nóttina. Hún hafði sýnt mikinn styrk daginn eftir og sagt hon- um að hann gæti treyst sér og er hann fór út í kjörbúð til að versla, notaði Dale tækifærið og stakk af með bömin sín. Þar með var draumnum lokið fyr- ir Jackson. Dómurinn Aubrey Livingstone var dæmdur í lifstíðarfangelsi enda var honum full- kunnugt um áform Jacksons. Mál Jacksons reyndist erfiðara og það þvældist um í réttarkerfinu í 11 ár áð- ur en endanlegur dómur loks féll. Á þeim tíma hafði Jackson orðið full- numa í lögfræði innan fangelsisveggj- anna og hann ákvað að verja sig sjálf- ur. Hann játaði sekt sína og kom vel fyrir í hvívetna, lýsti glæpnum sem af- leiðingum óheftrar afbrýðisemi og slapp við dauðarefsinguna. Haiin var að lokum dæmdur í 125 ára fangelsi sem þýðir að hann verður aldrei frjáls maður á ný.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.