Tíminn - 18.12.1993, Qupperneq 7

Tíminn - 18.12.1993, Qupperneq 7
timlnii íoómgtra. á „Die neue alte Reeperbahn ist „mega in',* segja forsvarsmenn ferðaiðnaðar í Hamborg og það er ekki laust við að þeir séu stoltir af því að geta sagt frá því að þetta þekktasta gleðihverfi Þýskalands njóti nú aftur vaxandi vinsaelda ferðamanna. Á Reeperbahn, St. Pauli, eru gömul slagorð í fullu gildi. „Það skiptir engu máli hvort þú ert með konu eða ekki klukkan hálf eitt að nóttu á Reeperbahn", er enn í fullu gildi. Munurinn er kannski sá að nú fara menn varlegar en áður. Hraeðslan við eyðni hefur sitt að segja. Hamboig er önnur stærsta hafn- arborg Evrópu og auðlegð hennar og ríkidæmi hefur að verulegu leyti byggst upp á þeirri lífaeð sem höfn- in er. Það skapaðist snemma mark- aður fyrir vaendi og annað nautna- líf í Hamborg. Hávaerir og lang- þyrstir sjómenn þyrptust inn á krár og vændishús Hamborgar eftir langa útivisL Vændið og gjálífið eru orðin hluti af sögulegum minjum. Um það vitnar Erótíska listasafnið, sem opnað var nýlega í borginni. Tímamir breytast og mennimir með og þar em gestir Reeperbahn engin undantekning. Nú til dags ber meira á drukknum kaupsýslu- mönnum en sjómönnum í gleði- götu Hamborgar. Vændið sjálft skiptir heldur ekki jafnmiklu máli og það gerði. Markaðurinn býður upp á meiri fjölbreytni og margir koma við einungis fyrir forvitni sakir. Á kvöldin flykkjast hópar ferðamanna á Reeperbahn til þess að skoða klámmenninguna. Sálu- veiðénar nútímans gera sig gildandi fyrir utan strippbúllur og nætur- klúbba, og heita forvitnum ferða- mönnum óborganlegri skemmtun. Sá, sem gerir þau mistök að sýna einhver viðbrögð við gylliboðun- um, er Ðæktur í netið og getur átt von á að þurfa að eyða löngum tíma í að losa sig úr því, hafi hann ekki áhuga á klámsýningunni. „Þetta er ekki hættulegt hverfi," segir Reiner Búchtmann, starfs- maður hjá ferðamálaskrifstofu Hamborgar. „Ég er búinn að búa í Hamborg í áratugi og geng oft um Reepeibahn að kvöldlagi. Það hef- ur aldrei komið neitt fyrir mig. Enginn hefur reynt að ræna mig eða beita mig ofbeldi." Ferðamönnum er þó ráðlagt að halda hópinn á Reeperbahn að næturlagi. Tvær vændiskonur standa fyrir utan kráardyr í illa lýstri hliðargötu og reyna að fá þijá miðaldra Skandínava tU lags við sig. Innan af bamum fylgist mellu- dólgurinn með samningaviðræð- um, sem einhverra hluta vegna fara út um þúfur og Norðurlanda- búamir halda áfram út í nóttina á meðan mellumar leggja net sín fyr- ir næstu bráð. Greiðsluáskorun! Tollstjórinn í Reykjavík skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru álögð 1990, 1991, 1992 og 1993 og féllu í gjalddaga til og með 15. desember 1993 og eru til innheimtu hjá ofan- greindum innheimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá birtingu áskorunar þess- arar. Gjöldin eru þessi: Virðisaukaskattur, virðisaukaskattur í tolli, trygginga- gjald, launaskattur, bifreiðaskattur, slysatryggingagjald ökumanna, þungaskattur skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmt- anaskattur, vinnueftiriitsgjald, vörugjald af innlendri framleiðslu og aöflutningsgjöld. Fjámáms verður krafist án firekari fýrirvara fyrir van- goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum frá birtingu áskorunar þessarar. Athygli er vakin á því, að auk óþæginda hefur fjámáms- gerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldendur. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000 fyrir hverja gerð, þinglýsingargjald kr. 1.000 og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fýrst til að forðast óþægindi og kostnað. Jafnframt mega þeir, sem skulda virðisaukaskatt og tryggingagjald, búast við að starfsstöð verði innsigluð nú þegar. Reykjavík, 16. desember 1993. Tollstjórinn í Reykjavík. Dísilrafstöðvar til sölu Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í eftirtaldar dísilraf- stöðvar ásamt varahlutum og rafbúnaði sem þeim fylgir a) Dísilrafstöð: Tegund: Ruston & Homby; gerö 18 ATC Árgerð: 1968 Hestöfl: 4.880 kW: 3.500 Snúningshraði: 600 snúningar/minútu Keyrslutími frá upphafi: 18.362 klst. (Komið hefur í Ijós leki á kælivatni niður í smuroliu vélarinnar og selst hún meö þeim ágalla). Rafali: Tegund: AEJ kVA: 4.375 Volt: 6.600 b) Dísilrafstöð: Tegund: Ruston & Homby; gerö 12 ATC Árgerð: 1964 Hestöfl: 2.750 kW: 2.000 Snúningshraði: 500 snúningar/mínútu Keyrslutimi frá upphafi: 15.088 klst. Rafali: Tegund: AEJ kVA: 2.500 Volt: 6.600 Vélamar eru staðsettar á Oddeyri, Akureyri, og þeir, sem vilja skoða þær og fá nánari upplýsingar, hafi sam- band við aflstöðvadeild Landsvirkjunar, Glerárgötu 30, Akureyri, sími 96-11000. Tilboð óskast send innkaupadeild Landsvirkjunar, Háa- leitisbraut 68,103 Reykjavík, fýrir 8. janúar 1994. Erótlkin á slna sögu. Þessi mynd Barents van Oriey (1492-1542) ertil sýnis I Erótlska listasafninu ISL Pauli. Á daginn lltur Reeperbahn sakleysislega út og sker sig ekki úr öömm götum nema af því aö nánast önnur hver verslun selur varning sem tengist kynllfi. Þessi þekktasta gleöigata Þýskalands breytir um svip og ber nafn meö rentu þegar nóttin færist yfir. Leigubflstjóri upplýsir að það sé hagkvæmara að skipta við heima- vinnandi vændiskonur, heldur en þær sem harki á Reeperbahn. Þær séu ódýrari og yfirleitt ekki vara- samir melludólgar á bak við þær. „Götumellumar setja upp 100 mörk fyrir greiðann," segir hann. „Síðan kemur að því að borga og þá heimta þær helmingi meira og hóta að láta melludólginn beija þig, ef ekki er að því gengið. Þær, sem em praktíserandi heima hjá sér, taka yfirleitt bara hundrað mörk." í dagsbirtu lítur Reeperbahn út eins og hver önnur verslunargata í Hamborg, nema að það er kynlífs- hjálpartækjaverslun eða klámvíd- eósjoppa í þriðja hveiju húsi. Fólk- ið á götunni er jafn venjulegt og ég eða þú og það er bara einn og einn Norðurlandabúi sem sker sig úr þar sem hann lítur Ðóttalega til beggja handa áður en hann hverfur inn í næstu búð til þess að birgja sig upp af forboðnum vamingi. Ámi Gunnarsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.