Tíminn - 22.12.1993, Side 4
4
tími nn
Miðvikudagur 22. desember 1993
Hús brennur
áHúsavík
Naer aldargamalt íbúðarhús
á Húsavík er ónýtt eftir að eld-
ur kom upp í því í gærmorg-
un. Fjögurra manna fjölskylda
sem bjó í húsinu slapp ómeidd
út úr því um Ðmmleytið um
morguninn eftir að hafa vakn-
að við reykskynjara sem
sennilega hefur orðið til að
bjarga lífi fólksins. Þegar
slökkviliðið kom á vettvang í
moigun var töluverður eldur í
húsinu og mikill reykur.
Að sögn slökkviliðsmanns
var eldurinn aðallega í ein-
angrun á milli þilja og því von-
laust að komast að honum
nema með því að rífa niður
veggi. Ekki náðist að bjarga
neinu út úr húsinu og er allt
innbú fólksins talið ónýtt eftir
eldsvoðann.
Þrátt fyrir að nokkur vind-
ur væri á Húsavík í gærmorg-
un voru nærliggjandi hús aldr-
ei í hættu þar sem frekar litlar
eldtungur stóðu út úr húsinu.
Slökkviliðið stóð vakt við hús-
ið til klukkan 11 um morgun-
inn en eftir það var ekki talin
nein hætta á ferðum lengur.
Húsið sem var úr timbri var
byggtárið 1899. -GK
Engar umkvartanir á hendur
flugmálastjúrn
Flugmaðurinn sem lenti í
hrakningum á sunnudag segir
ummæli sín rangtúlkuð í §öl-
miðlum
Engar ásakanir á hendur flugum-
ferðarstjóm koma fram í nýrri
skýrslu sem tekin var af Christopher
Lavalle, flugmanni tveggja hreyfla
flugvélar, sem lenti í vandræðum
suðaustur af Reykjavík á sunnudag-
inn. Flugmálastjóri segir að ekkert
hafi komið fram sem bendi til þess að
flugstjóminni hafi orðið á mistök en
atvikið verði rannsakað nánar en ella
vegna ummæla flugmannsins í fjöl-
miðlum.
Lavalle var á leiðinni frá Glasgow
til Reykjavíkur þegar bilun varð í
flugvélinni. Hann lýsti yfir neyðar-
ástandi og var ráðlagt af flugumferð-
arstjóm að lenda á Vestmannaeyja-
flugvefli. Lavalle taldi íiftur á móti að
það væri of áhættusamt og hélt
áfram til Reykjavikur þar sem hann
lenti óhappalaust. Eftir atvikið sagði
Lavalle við fjölmiðla að samskiptum
flugmálastjómar við hann hefði ver-
Heilbrigðisráðherra
kominn í þrot með
sparnaðartiUögur
ið ábótavant og hann hefði ekki
fengið nægjanlega aðstoð fyrr en eft-
ir að hann lýsti yfir neyðarástandi. Þá
sagðist hann sannfærður um að
hann hefði farist hefði hann farið eft-
ir ráðleggingum flugmálastjómar.
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segjr að það hafi þótt nauðsynlegt að
fá nýja skýrslu frá flugmanninum
eftir þessi nmmæli hans í fjölmiðl-
um, þar sem engar ásakanir á hend-
ur flugumferðarstjóm hafi komið
fram í skýrslu sem hann gaf eftir at-
vikið. Flugmálastjóri segir að í síðari
skýrslunni hafi Lavalle staðfest það
sem fram kom í fyrri skýrslunni og
ekki talið ástæðu til að bera fram
neinar umkvartanir á hendur flug-
umferðarþjónustunni. Varðandi um-
mæli sem höfð vom eftir honum í
fjölmiðlum hafi hann sagt að þau
hafi verið vitlaust eftir honum höfð
eða of mikið gert úr þeim. Þorgeir
segir að þrátt fyrir það verði atvikið
rannsakað nánar en ella og þá sér-
staklega öll samskipti í gegnum fjar-
skiptarásir. Formanni flugslysa-
nefndar var gert viðvart um málið og
fylgjst með gagnatöku og rannsókn
þess.
Þorgeir segist búast við að Lavafle
verði frjálst að fara af landi um leið
og skýrslutökunni ljúki enda hafi
hún aðallega snúist um að fá fram
staðreyndir málsins. Hann býst við
að Lavalle fari heimleiðis í dag. -GK,
Böm út um allt land eru þessa dagana að halda upp á litlu jóiin. Þessi forsmekkur að jólunum vekur kátinu og gleði í hverri
bamssál. Þessi mynd var tekin i Mýrarhúsaskóla i gær. Timamynd Ami Bjama
Árás á lýðveldið ef
sjómenn opna kjaftinn
Gerir tillögu um niður-
skurð á sömu útgjaldalið-
um í tví- og þrígang
Guðmundur Bjamason, fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra, segir
að tillögur heilbrigðisráðherra
um niðurskurð á útgjöldum til
heilbrigðismála beri vott um að
ráðherra hafi verið kominn í al-
gjört þrot með að finna leiðir til
sparnaðar. Gerðar séu tillögur
um sparnað á einstökum út-
gjaldaliðum í tví- og þrígang án
þess að nokkuð nýtt liggi þar að
baki.
»Það er alveg ljóst að kostnaður
við lífeyristryggingar er of lágt
reiknaður. Það blasir alveg við að
þær tillögur sem heilbrigðisráð-
herra kom með við lokaaf-
greiðslu fjárlaga eru gersamlega
óraunhæfar og munu ekki nást
fram. Þegar ljóst var að það vant-
aði 200 milljónir í lífeyristrygg-
ingar er bara farið í að krukka hér
og þar út í loftið í einstaka liði í
sjúkratryggingunum og nefndir
liðir sem búið er að tví- og þrí-
taka áður. Það sjá allir hversu
ótrúverðugt þetta er,* sagði Guð-
mundur.
í fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir að framlög til sjúkra-
trygginga verði lækkuð um 730
milljónir. Þar munaði mestu um
upptöku heilsukorta sem skila
áttu 400 milljónum. Að auki átti
að endurskoða greiðslufyrir-
komulag til lækna og spara þann-
ig 30 milljónir. Með endurskoð-
aðri greiðslu fyrir röntgen-
myndatöku og rannsóknir átti að
ná í 120 milljónir. Með endur-
skoðun á fyrirkomulagi lyfja-
verðlagningar átti að spara 150
milljónir og loks átti að spara 30
milljónir með því að bjóða út
tannlækningar.
Þegar ákveðið var að hætta
við að leggja á heilsukort þurfti
að bregðast við því með nýjum
spamaðartillögum. Við aðra um-
ræðu um fjárlagafmmvarpið
komu fram tillögur um að lækka
útgjöld vegna hjálpartækja um
100 milljónir. Þetta átti að gera
með magnafslætti frá framleið-
endum, með útboðum og betra
eftirliti með kostnaðaráætlunum.
Spara átti 60 milljónir með lækk-
un á erlendum sjúkrahúsakosm-
aði. Þá var gerð tillaga um að
spara enn meira í tannlækning-
um eða um 100 milljónir. Sömu-
leiðis var gert ráð fyrir að spara
meira í lyflakostnaði eða um 100
milljónir. Þar er sérstaklega
. nefnd til lækkun á kostnaði
vegna magasárslyfja. Þá átti að
breyta reglum um sjúkradagpen-
ingagreiðslur með því að herða
eftirlit með greiðslum til einstak-
linga sem dvelja til lengri tíma á
stofnunum og spara þannig 20
milljónir. Með nýjum og endur-
skoðuðum reglum um kosmað
vegna sjúkraþjálfunar átti að
spara 20 milljónir.
Þrátt fyrir allar þessar tillögur
átti enn eftir að finna leiðir til að
spara 180 mifljónir. í nýjusm til-
lögrnn heilbrigðisraðherra er enn
höggvið í sama knérunn. Þar er
gert ráð fyrir að spara 50 milljón-
ir til viðbótar með lækkun út-
gjalda vegna hjálpartækja og
sömu rök og áður týnd til um
magnafslátt, útboð og eftírht með
kostnaðaráætlun. Spara á 15
milljónir til viðbótar með því að
draga úr erlendum sjúkrahúsa-
kostnaði. Sjúkradagpeninga-
greiðslur eiga að lækka um 15
milljónir til viðbótar og sömu rök
og áður týnd til í því sambandi.
Þá er gert ráð fyrir 100 milljóna
spamaði í lyfjakosmaði og enn og
aftur em magasárslyfin nefnd þar
til sögunnar sem spamaðarliður.
-EÓ
Tökum ekki þátt í að nauðga
stjómvöldum, segir fram-
kvæmdastjóri VSÍ
,Ef þessi verkfallsboðun verður
dæmd ógild þá get ég ekki betur
séð en að sjómenn getí bara ekki
opnað kjaftinn. Þá er það bara árás
á lýðveldið. Það er hægt að tína
fram fjölda dæma sem sjómenn og
útvegsmenn hafa samið um, sem
sfðan hafa verið lögfest. Sem dæmi
þá em hlutaskiptin, sem ráða
mestu um kjör sjómanna, bundin í
lögum. Ef við skyldum boða veik-
fall tíl að knýja fram breytingar á
þeim þá yrði það væntanlega túlk-
að sem árás á löggjafann og dæmt
ógjlt. Ef þetta verður dæmt ógilt þá
er deilan samt sem áður óleyst og
mun að öllum líkindum bara
magnast,' segir Helgi Laxdal, for-
maður Vélstjórafélags íslands.
Eins og kunnugt er þá slitnaði
upp úr samningaviðræðum sjó-
manna og útvegsmanna í vikunni
eftir að VSÍ ákvað, fyrir hönd út-
vegsmanna, að láta reyna á lög-
mætí verkfallsboðunar sjómanna
fyrir Félagsdómi. En VSÍ telur að
krafa sjómanna gegn þátttöku
þeirra í kvótakaupum og boðað
verkfall, séu sett til höfuðs stjóm-
völdum og löggjafanum til að brey-
ta núgildandi ákvæðum í kvótalög-
unum um fijálst framsal veiði-
heimilda og því sé ekki hægt að
Ijúka málinu við samningaborðið.
Stefnan verður þingfest fyrir
dómnum í dag og er búist við úr-
skurði í næstu viku. Á meðan hef-
ur sáttaumleitunum verið slegið á
frest.
,Við tökum ekki þátt í því að
nauðga stjómvöldum til þéssara
breytínga,' segir Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri VSÍ.
Hann segir jafnframt að VSÍ hafi
ekki útilokað neinar umræður um
þá þættí sem snúa að breytingum á
kvótalögunum.
,Það liggur fyrir yfirlýsing sjó-
manna um að verkfallinu verði
ekki afstýrt nema með Iöggjöf.
Verkfallshótunin er Akkilesarhæll-
inn. Þetta snýst um grundvallarat-
riði því það em til ótal dæmi um
samvinnu aðila vinnumarkaðarins
gagnvart ríkisvaldinu og í því sam-
bandi nægir að minna á lækkun
matarskattsins,' segir fram-
kvæmdastjóri VSÍ. Hann minnir
einnig á að sameiginleg verkefni
aðila vinnumarkaðarins hafi verið
leyst með fijálsum hættí en ekki
með nauðung.
Fari svo að Félagsdómur úr-
skurði verkfallsboð sjómanna ólög-
mætt, þá má búast við að samtök
sjómanna afli sér nýrrar verkfalls-
heimildar og boði síðan verkfall á
nýjan leik með þriggja vikna fyrir-
vara. Það þýðir að öllum lfldndum
að fiskiskipaflotinn stöðvast í lok
næsta mánaðar.
-GRH
í peningabað
P • • sf Q
Það er hætt við að einhver getí
baðað sig í peningum fyrir þessi
jól, dettí sá hinn sami í lukkupott-
inn og vinni fjórfaldan fyrsta vinn-
ing í lottói á Þorláksmessu eða hátt
í 20 millj. kr.
í frétt fra íslenskri getspá er
greint frá því að þetta sé í annað
skiptí í sögu lottósins sem fyrstí
vinningur verður ^órfaldur en alls
er búist við að heildarupphæð
vinninga verði hátt í 25 millj. kr.
Þá segir að sl. laugardag hafi
fyrsti vinningur verið 9.3 miflj. kr.
sem færist nú yfir á Þorláksmessu.
Vakin er athygli á því að skyn-
samlegt sé að koma tímanlega á
sölustaði og losna við óþarfa bið-
raðir.