Tíminn - 22.12.1993, Síða 11
Miðvikudagur 22. desember 1993
tiinín n
11
Ingimar Eriendur Sigurösson.
Ingimar
Erlendur
kveður sér
hljóðs
Ný ljóðabók er komin út eftir
Ingimar Erlend Sigurðsson, en
naerri áratugur er liðinn frá út-
komu ljóðabókar eftir hann. Hin
nýja Ijóðabók ber heitið Hvíta-
myTkur og er einskonar speglun
af yrkingum Ingimars Erlendar á sl.
áratug.
f fréttatílkynningu frá útgefanda
segir:
„Nafn bókarinnar er táknrænt;
þegar vissum áfanga er náð í and-
legum skilnaði mannssálar við
myrkrið, tekur við annars konar
myrkur: sú ofbirta sem byrgir
mennskum sjónum fulla sýn að
uppsprettu ljóssins, þar sem eðli og
sannleikur, samhengi heims og
himins og manns og guðs, em fólg-
in líkt og opinn leyndardómur.
Ljóð Ingimars Erlendar em hlað-
in af merkingu, sem er ljós og lukt í
senn; hann er á heimavelli í hinu
smndlega sem hinu eilífa; ljóð hans
eru ekki afkvæmi tóms og tilgangs-
leysis, heldur borin til lífs og ástar,
trúar og vonar.
Hvítamyrkur er jafnframt
mikil ádeilubók; þar er deilt á inni-
haldsleysi og gervimennsku sam-
tímans. Menningartíldrið fær sinn
skell í þessum skörpu ljóðum, sjálf-
miðuð göfgun nýaldarmanna, yfir-
borðsmennska hjartfólginnar
kirkju og bókmenntabraskið, svo
eitthvað sé tínt tíl."
Bókin er 215 blaðsíður og er
tólfta ljóðabók Ingimars Erlendar
Sigurðssonar. Útgefandi er Sigur-
jón Porbergsson.
(Fréttatilkynning)
SOÐASKAPUR
- ELDHÆTTA
Sýnum alhliða tillitssemi
í umferðinni!
ÚK
FERÐAR
Andvari kominn út
Andvari, rit Hins íslenska þjóðvina-
félags, er kominn út. Það er 118. ár-
gangur, sá 35. í nýjum flokki. Ritstjór-
inn, Gunnar Stefánsson, fylgir ritinu
úr hlaði. Aðalgreinin, æviágrip árs-
ins, fjallar um Pálma Jónsson kaup-
mann, Pálma í Hagkaup, og er eftír
Hcrnnes Hólmstein Gissurarson. Tvö
ljóð eftir Jóhann Hjálmarsson eru í
Andvara, en annað efni er sem hér
segir:
Tryggvi Gíslason á ítarlega ritgerð
um Evrópubandalagið og er það
þáttur í þeirri stefnu, sem upp hefur
verið tekin, að Andvari taki þjóðfé-
lagsmál samtíðarinnar til meðferðar,
auk hefðbundins menningarsögulegs
efnis. Af þvl tagi eru allmargar grein-
ar í ritinu að þessu sinni. Hallfreður
Öm Eiríksson á greinina Mímnlýs-
ingar og munnmæli. Andrés Bjöms-
son birtir grein um Grím Thomsen og
raunsæið. Eftír Úlfar Bragason er
greinin „Orð vex af orði" og fjallar
um sjálfsævisögu Stephans G. Steph-
anssonar. Amheiður Sigurðardóttir
ritar um fyrstu Reykjavíkurár Guð-
mundar Magnússonar (Jóns Trausta).
„í leit að eilífum sannindum" eftir
Höllu Kjartansdóttur fjallar um tvær
sögulegar skáldsögur Gunnars
Gunnarssonar, Jörð og Hvítakrist.
Davíð Erlingsson hefur þýtt kafla úr
rití P.M. Mitchell um danska trúar-
bragðafræðinginn Vilhelm Grönbech.
Kristján Amason ræðir um tvær nýj-
ar Ijóðaþýðingar. Grein hans heitir
„Tveim tungum" og er um þýðingu
Sverris Hólmarssonar á Eyðilandinu
eftir XS. Eliot og þýðingu Sigfúsar
Daðasonar á Útlegð eftir Saint-John
Perse. Loks er grein eftir Kristján
Kristjánsson um Rætur og vængi,
safn af ræðum og greinum Þóréuins
Bjömssonar skólameistara.
Andvari er 176 blaðsíður. Oddi
prentaði, en aðsetur ritsins er hjá
Sögufélaginu, Fischersundi 3. Verð
kr. 1.300 + vsk, 1.482 kr. með vsk.
Stórbrotið
grundvallarrit
Jón G. Friðjónsson dósent hefur gef-
ið út hjá Bókaklúbbi Amar og Örlygs
ritverkið Mergur málsins, þar sem
hann fjallar um liðlega 6000 ólík
orðatiltæki. Um 2/3 hluta þeirra hef-
ur ekki verið fjallað áður. Að baki
liggur meira en tíu ára vinna höfund-
arins þar sem hann gerir grein fyrir
heimildum, merkingu, notkun, aldri
og uppmna orðatiltækjanna. Hundr-
uð teikninga eftir Ólaf Pétursson
skýra enn frekar líkingar sem liggja
að baki orðatiltækjunum.
Hér er á ferðinni alþýðlegt gnmd-
vallarrit, sem á erindi við alla tslend-
inga. Það hefur þegar verið tílnefnt til
íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Jón G. Friðjónsson lauk BA-prófi í
íslensku og sagnfræði vorið 1969 og
cand. mag.-prófi í íslenskri og al-
mennri málfræði 1972. Að námi
loknu starfaði hann við Orðabók Há-
skólans fram á haustíð 1972, en þá
var hann ráðinn sem Wissenschaftlic-
her Assistent við Christian-AI-
brechts-háskóla í Kiel þar sem hann
hafði m.a. íslenskukennslu með
höndum. í september 1975 var hann
skipaður lektor við Háskóla íslands.
Frá 1982 hefur hann verið formaður
stjómar Orðabókar Háskólans.
Gleðileg jól-
IZ
Óskum starfsfólki
okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári
með þökk fyrir f?að liðna
i
KAUPFELAG BORGFIRÐINGA
Borgarnesi
farsœlt komandi ár