Tíminn - 12.03.1994, Page 6
6
Laugardagur 12. mars 1994
Hagyr&ingaþáttur
Til Tímans með gamla blaðhausinn.
Tíminn er breyttur og betri,
ég er bjartsýnni á þessum vetri,
því ég vil honum vel
og hann vandaðan tel,
hann er virtur og varkár með vel
gerðu uþprunaletri.
Limruna sendi Sap og senda Tímamenn honum þakkir fyrir
góðar óskir og montnir eru þeir alltaf af hrósinu.
Og meira frá Sap:
Hljóma finnst mér furðu snjallt
ferskeytlunnar háttur.
Enda bcetir blaðið allt
bragyrðingaþáttur.
Búi hefur fengið sig fullsaddan af íþróttum og sendir þessar
limmr:
Ólympíulimra
íþrótta- geysilegt -gjamm er,
garpskapinn sjónvarpið fram ber.
Dansa á skautum
og skríða á brautum
hetjur í Lillehammer.
(Áöur var talað um að skríða á skíðum)
Handknattleikslimra
Síst verður lítið um leiki,
en landanum óttast ég skeiki,
þótt ýmsu hann fómi
og framhleypinn stjómi
handboltans heimsdellumeiki.
Sami heilsar góu og væntir betri tíðar, þegar nær dregur vor-
komunni.
Góður, fagur gafst og scell,
góudagur fyrsti.
Rýr og magur þorraþrcell
þekktan slagkraft missti.
Feykist jakans fóla bak,
fugla kvakið vaknar.
Óþjál klakans trausta tak
tuns á þaki slaknar.
HP í Kópavogi varð að orði, þegar Davíö forsætisráðherra kall-
aöi andstæöinga sína „dót":
Nefiir Davtð aðra dót,
drjúgur sorakjaftur.
Snúist margir honum mót,
magnast þjóðarkraftur.
Aðalsteinn Ólafsson kvað eftirfarandi:
Kvenréttindi
Frá uppha f deildu konur við karla
afkappi um heimilisvöld,
en scekja nú fram með scelubrosi
til sigurs á þessari öld.
Karlamir vilja ei viðurkenna
hve vonlaus baráttan sé
þeir bíta á jaxlinn, bölva í hljóði
með buxur neðan við hné.
Skemmtilegir em hagyrðingar þegar ruglað er í rími og naskir
á að rétt sé með fariö. Fyrriparturinn um tómu tunnuna og
andleysið hefur farið fyrir brjóstið á sumum, aörir botnuðu
samviskusamlega, og fyrriparturinn lyfti enn öðrum upp á
sjálfan skáldfákinn.
Sap er ekki skemmt þegar hann sendir: Hér er gamla, vonda
vísan:
/ tómri tunnu bylur hcest,
tcemdur er orðaforðinn.
Og botnar:
Við byrjun þessa botn ei fcest,
svo brengluð em orðin.
Og Pétur botnar gáfulega:
Upphafið er ekki glcest,
eyddur er viskuforðinn.
Enn annar hagyrðingur gerir bragarbót og yrkir:
/ tómri tunnu bylur hœst;
tcemdur orðaforðinn.
Reyndar vil eg velja ncest
venjum skorðuð orðin.
í framhaldi af því fá hagyröingar þekkilegan fyrripart að glima
við:
Eigi að yrkja vandinn vex,
vill allt snúa þversum.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4.
105 Reykjavík. P,s. SKRIFIÐ GREINILEGA!
HEIÐAR jÓNSSON
SNYRTIR
Hvernig
áég a 5
vera?
Hvemig föt á ég að kaupa fyrir
sumarið? Hvernig em sumarlit-
imir og mig langar að vita hvort
ég get farið aftur í sólarferð í
sömu fötunum og í fyrra?
Svar: Tíska hefur breyst litalega
séð. Tískulitir hafa ekki alveg
sama vægi og þeir hafa oft og lík-
lega á litgreiningin einhvem
þátt í því. Þótt tískukóngamir
komi með einhverjar litastefnur,
em þeir ekki eins ráðandi og var.
Fötin frá í fyrra og jafnvel sumr-
inu þar áður, ef þau em fín og
smart, þurfa ekki að hafa neitt
minna vægi núna en þegar þau
vom keypt. En það, sem sést
mjög mikið í sumar, em ljósir
náttúmlitir, sem fylgja þessari
svokölluðu dmslutísku, lag yfir
lag yfir lag. Litimir em öll til-
brigði af beis, drappað og grátt.
Síöan er dálítið um sterka neón-
liti og pastelliti. Er þá mildum og
sterkum litum blandaö saman á
dálítið djarfan og persónulegan
máta. En sumartískan er yfirleitt
ansi persónuleg.
Buxnaklaufar á
skálmum
Sömu konu langar að frétta af
hvemig pilsin eiga aö vera í sum-
ar: síö, stutt, þröng, mjó, eða
plísemð, og svo hvort buxur séu
aö verða þröngar eða útvíðar.
Svar: Þetta er víðtæk spurning,
en sumartískan er sérkennileg að
þvi leyti að buxumar geta verið
eins margvíslegar og persónurn-
ar sem ganga í þeim. Þröngar
kvartbuxur sjást mikiö í sumar,
en konur meö breið læri ættu að
velja sér ööm vísi flíkur
En þröngu buxurnar em heldur
síðari núna en í fyrra og með
tveimur litlum klaufum á hlið-
um skálmanna.
Um pilsin gildir svipað og um
annan sumarklæðnað og lýst er
hér að framan með liti, en snið-
in geta veriö meö öllu móti. Lit-
imir em drapp og grátt, sem fara
vel meö öðmm litasamsetning-
um.
Stublar á
sólarvörum
Lesandi hafði samband og bað
um upplýsingar um númer á sól-
arvömm og hvað hentaði að
nota hér á landi og hvað væri
best aö bera á sig í sólarlöndum.
Svar: Númerin á sólarvömm em
margföldun á þeim tíma sem við
getum veriö í sólinni án vamar.
Ef við emm með lágan stuðul,
t.d. 2 sem er lægsta sólamúmer,
þýðir þaö að við getum verið í
tvo tíma í sólinni án vamar. Svo
þegar við erum komin í sólar-
stuðulinn yfir 10, þá emm við
farin að skyggja mikið á sjálfa
sólina.
Þetta þýðir að við veröum því
seinna brún eftir því sem vömin
er meiri, en pössum húðina á
okkur betur. Það er misjafnt
hvemig maður tekur sólinni eöa
þolir hana, sumir betur, en aðrir
verr. í sólarlandaferö er æskilegt
aö hafa með sér sérstuöul fyrir
andlit. Þessi andlitsvörn getur
farið efst á axlir og á konum,
sem vilja vera topplausar, á
brjóst. Sem sagt á þá staði sem
em jafn viðkvæmir og andlitið.
Síðan á að nota heldur lægri
stuðul á líkamann og margir
hafa lægsta stuöul á fætur, en
eitt einkenni okkar íslendinga í
sólarferðum er hvað við tökum
seint lit á fótunum.
Því er sniöugt fyrir manneskju
sem er sólþolin að hafa með sér
kannski stuðul 4 á fætur, vamar-
stuðul 6 á líkamann, en vamar-
stuðul 12 á andlitið og við-
kvæma líkamshluta. Á annarri
vikunni notar hún annan
skammt og stuðullinn er lækkað-
ur um svo sem helming.
Rétt er ab taka fram að þessir
stuölar gilda jafnt fyrir karla sem
konur. Sólarvaran er algjör imi-
sexvara. Og aldrei skal gleyma að
setja mjög öflugan vamarsmðul
á börnin, þegar þau era með í
sólarlandaferð.
Það er trú fólks að þar sem
ósonlagið sé að eyöast, brennum
vib meira í sólinni. Og við skul-
um muna að hver einasti sól-
bruni flýtir öldmn húöarinnar
gífurlega. En sólarvömmar eiga
að geta komiö í veg fyrir það, ef
þær em notaðar af þekkingu og
skynsemi.
Hattar og önnur
höfubföt til
varnar sól?
Svar: Þegar við ferðumst um sól-
rík lönd sjáum viö að íslending-
arnir, við sjálf, em alltaf ber-
höfðaðir, en heimamenn ganga
meö höfuðföt til vamar sterku
sólskini. Það er til að forðast
óþægindi eins og höfuðverk og
sólsting og ég held að þessir
sterku sólargeislar skabi nú bara
kvamimar og við þurfum áreið-
anlega á þeim að halda.
Topplaus kona
liggur
Fyrst spurt var um sólarferöir
vildi Heiðar koma persónuleg-
um skilaboðum til sólarlanda-
fara í restina:
Það er mikill misskilningur ís-
lenskra kvenna gagnvart topp-
leysi að slíkt fari varla nema
þeim sem em vanar að nota
mjög flegna kjóla. Þab er allt í
lagi ab vera topplaus útafliggj-
andi og helst ekki öðm vísi.
Konu, sem aldrei gengur í flegn-
um kjól, fer miklu betur að vera í
fallegum sundbol en að ferðast
um meö ber brjóstin, sem hún
hvort eð er sýnir ekki í kjólum.
Svo er það vobalega hvimleitt,
að ef maður fer á bar þá liggja
stæröai íslensk kvenbrjóst á bar-
borðinu innan um glösin. Og ef
maöur fer í boltaleik við bömin
sín, þá er maður að grípa vitlausa
bolta annab slagið.
Munið: Topplaus kona liggur,
en er ekki ab dinglast með þetta
út um allar trissur.